Fréttablaðið - 03.01.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.01.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS Skaustu upp flugeldum um áramófin? Ég skaut ekki upp einum einasta flugeldi, var ekki einu sinni með stjörnuljós. Reynir Jónasson organisti Aukin kortanotkun hjá Visa-Island: 9,3 millj- arða króna velta í des- ember krepitkort Velta kreditkortavið- skipta hjá fyrirtækinu VISA ís- land, hér á landi á tímabilinu 1. til 24. desember, nam 9,3 milljörð- um króna en það er 11,4% aukn- ing miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá Önnu Ingu Grímsdóttur, for- stöðumann hagsýslusviðs Visa- íslands. Þá hafi debetkortanotkun auk- ist um 10%. Aðspurð um notkun kreditkorta erlendis segir Anna Inga að dregið hafi úr henni um 15% miðað við sama tíma í fyrra eða á tímabilinu 18. nóvember til 17. desember. „Þetta er þróun sem við erum búin að sjá frá því í mars á þessu ári en dregið hef- ur úr kortanotkun íslendinga er- lendis um 6% yfir allt árið.“ Anna Inga segir skýringuna vera m.a. að gengið hafi verið afar óhagstætt og því verslað í mun minni mæli en áður. Þá seg- ir hún þessar tölur staðfesta orðróminn um að fólk væri að halda að sér höndum hvað varðar eyðslu og beri vott um samdrátt á íslandi. ■ —«— Starfsmaður FBI af arabískum uppruna: Meinað að fljúga baltimore Bandarískum leyni- þjónustumanni forsetans, sem er af arabískum uppruna, var mein- að að fljúga með vél American Airlines frá Baltimore til Dallas. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan, FBI. Að sögn talsmanns flugfélags- ins var „misræmi" í pappírum mannsins, sem var vopnaður og á leið til Texas þar sem George W. Bush Bandaríkjaforseti mun dvelja næstu tvær vikur á bú- garði sínum í Crawford. Sagði talsmaður flugfélagsins að flug- stjóri vélarinnar hefði tekið þá ákvörðun að meina honum að fljúga með vélinni þar til hann gæti fært frekari sönnur á hver hann væri. Maðurinn var sestur í vélina þegar öryggisvörður gaf sig á tal við hann og bað um að svara nokkrum spurningum. Vélinni seinkaói um klukku- tíma og korter á meðan áhöfn þotunnar og starfsmenn flugvall- arins yfirheyrðu manninn. Hann bauðst til hafa samband við leyniþjónustuna sem gæti stað- fest hver hann væri en því var hafnað. ■ 6 FRÉTTABLAÐIÐ 3. janúar 2002 FIMIVITUDAGUR Efnahagsvandi, stríð og hryðjuverk ofarlega í huga: Aramótum fagn- að víða um heim ÁramÓt Jarðarbúar fögnuðu ára- mótunum með ýmsum hætti. Sum: ir höfðu reyndar fáu að fagna. í Ástralíu stóð yfir barátta við skóg- arelda, í Argentínu glímdu menn við efnahagshrun og stjórnar- kreppu, og í Afganistan eru menn að berjast við að rísa úr rústum styrjaldar, sem enn er ekki lokið með öllu. í New York söfnuðust hins veg- ar hundruð þúsund manna saman til þess að fagna áramótunum og um leið nýjum borgarstjóra, Mich- ael Bloomberg, sem tók við af Rudolph Giuliani um áramótin. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun telja Bandaríkjamenn almennt að efnahagslífið taki við sér á nýja ár- inu, en óttast jafnframt að fleiri hryðjuverk verði á árinu. í Evrópu fögnuðu menn víða nýrri mynt um leið og nýja árinu var fagnað, og var efnt til skraut- legra hátíðarhalda af því tilefni í Brussel, Frankfurt og víðar. ÁRAMÓTASTÖKK í RÓM Riccardo Russi nefnist þessi kappi sem stakk sér í ána Tíber frá Ponte Vittorio brúnni í Róm í gær. Þriggja áratuga hefð er orðin fyrir því að fólk stökkvi af brúnni á nýársdag. Pútín Rússlandsforseti notaði áramótin til að fagna árangri í efnahagsmálum og sagði öngþveit- ið, sem hrun Sovétríkjanna leiddi af sér, nú loks vera að baki. Líkt og gerst hefur undanfarin áramót kom til óeirða víða í Frakk- landi á nýársnótt. Kveikt var í meira en fjörutíu bifreiðum Stras- borg og um það bil 30 manns voru handteknir þar í borg. Víðar í Frakklandi var kveikt í bifreiöuma Stjórnsýslukæra á hendur utanríkisráðuneytisins Sjómannafélag Reykjavíkur hefur lagt fram stjórnsýslukæru á hendur Utanríkisráðuneytinu. Krefst þess að samningur Atlantsskipa um flutninga fyrir bandaríska herinn verði felldur úr gildi. Erlent skipafélag sér um útgerð fyrir hönd Atlantsskipa. Tekju og atvinnumissir fyrir Islendinga. Málið til meðferðar hjá Utanríkisráðuneytinu. stiórnsýslukæra Utanríkisráðu- neytið hefur til meðferðar stjórn- sýslukæru sem Sjómannafélag Reykjavíkur hefur lagt fram. Að sögn Friðriks Hermannssonar, lögmanns Sjómannafélags Reykjavíkur, felur kæran í sér, að samkvæmt lögum skuli utanríkis- ráðuneytið úr- skurða um gildi einstakra þátta varnarsamnings- ins. Krafa Sjó- mannafélags Reykjavíkur er að samningur Atl- antsskipa um flutninga á varn- ingi fyrir banda- ríska herinn verði felldur úr gildi þar sem fyrirtækið hafi brotið ákvæði hans. Samningurinn felur í sér að Bandaríkjamenn og íslendingar skipti með sér flutningum á varn- ingi fyrir bandaríska herinn á Keflavíkurflugvelli. Þau skip, sem sjái um flutningana fyrir hönd Islands, skuli samkvæmt samningnum, gerð út af íslensku skipafélagi. „Utgerðarmaður er sá sem sér um rekstur skipsins og greiðir mönnunum laun. Það felur í sér að íslenskir kjarasamningar og lög hljóta að gilda um útgerð- ina,“ segir Friðrik. Atlantsskip séu með tímaleiguflutninga og feli því öðru skipafélagi að gera út skip til flutningsins. „Málið snýst ekki um það hvort Atlantsskip sé FRIÐRIK Málið snýst ekki um það hvort Atlantsskip sé íslenskt skipafélag, heldur að skipafé- lagið gerir ekki út skip tii flutninganna. Það stangast á við varnarsamninginn. íslenskt skipafélag, heldur að skipafélagið gerir ekki út skip til flutninganna. Það stangast á við varnarsamninginn," segir Friðrik. „Flutningarnir eiga að tryggja ís- lendingum tekjur og atvinnu. Með þessu fyrirkomulagi tryggir, hins- vegar, skipafélag sér samninginn en tekjurnar og atvinnan fara til erlendrar útgerðar." Útboð vegna flutninganna gæti einnig verið ógilt, þar sem tilboð Atlantsskipa hafi miðað við erlenda kjarasamn- inga, en tilboð annars skipafélags við íslenska samninga. Sverrir H. Gunnlaugsson, ráðuneytisstjóri hjá utanríkis- ráðuneytinu sagði að fyrir lægi Flutningarnir eiga að trygg- ja íslending- um tekjur og atvinnu. Með þessu fyrir- komulagi tryggir, hins- vegar, skipafé- lag sér samn- inginn en tekj- urnar og at- vinnan fara til erlendrar út- gerðar. Hlíf og Sameinaði lífeyrissjóðurinn: Sameining kynnt sjóðsfélögum LÍFEYRI55JÓÐIR Sameining lífeyris- sjóðsins Hlífar og Sameinaða líf- eyrissjóðsins var kynnt á félaga- fundi hjá Hlíf á föstudaginn fyrir helgi. Sameiningin á sér stað frá og með áramótum en verður svo væntanlega staðfest á aðalfundi lífeyrissjóðanna í maí nk., að sögn Finnboga Finnbogasonar, stjórn- arformanns lífeyrissjóðsins Hlíf- ar. „Við erum að klára þetta ferli núna og höldum þennan fund í dag [28.12.] til að upplýsa sjóðsfélaga um stöðu mála, kynnum samning- inn og skýrum hvernig málið gengur fyrir sig. Endanleg ákvörðun verður svo tekin á árs- fundinum í maí, en frá og með áramótum tekur Sameinaði lífeyr- issjóðurinn við rekstrinum þótt við séum ennþá með okkar félaga þarna inni,“ sagði Finnbogi og bætti við að í raun væri verið að leggja lífeyrissjóðinn Hlíf niður. Hann segir sjóðinn hafa verið orð- inn of lítinn og aldurssamsetning sjóðsins með þeim hætti að hann stóð ekki undir sér. „Þetta eru sjó- menn sem komnir eru í land,“ sagði hann um það hverjir væru sjóðsfélagar. „Við byrjuðum á þessu ferli fyrir nokkuð mörgum árum. Við höfum verið með mjög SJÓAMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR Krafa þess er að íslenskir sjómenn verði á þeim skipum sem sigla með vörur fyrir ban- darlska herinn. Félagið hefur margoft gripið til aðerða til að ná fram vilja sínum. bréf sem væri stjórnsýslukæra frá lögmönnum Sjómannafélags Reykjavíkur. „Verið er að taka málið fyrir og mun fljótlega verða tekin afstaða til bréfsins," segir Sverrir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gæti Atlantsskip skotið niðurstöðu utanríkisráðu- neytisins til dómsstóla. Komist þeir að annarri niðurstöðu en ráðuneytið væri það skaðabóta- skylt. Ennfremur væri í'áðuneyt- inu skylt að tryggja örugga flutn- inga, komi til þess að Atlantsskip- um verði ekki lengur heimilt að flytja farm, samkvæmt samn- ingnum. Sverrir vildi ekki tjá sig um afstöðu ráðuneytisins til ákærunnar í ljósi þess. arndis@frettabladid.ís AÐSETUR HLIFAR I BORGARTUNI Stjórnarformaður Hlífar segir að lögreglumál sem komu upp I tengslum við Kaupþing og snertu fyrrum framkvæmdastjóra sjóðsins séu I engum tengslum við sameinginuna sem stefnt hafi verið að lengi. háa ávöxtun undanfarin ár en eins og staðan er í dag er hún mjög slæm. Við höfum enda fjárfest þannig að hún verður verri þegar samdráttur á sér stað á hluta- bréfamarkaði." ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.