Fréttablaðið - 03.01.2002, Síða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
3. janúar 2002 FiMMTUPAGUR
Stefán Jón Hafstein:
Jón Baldvin
býður liðsstyrk
stjórmálin Stefán Jón Hafstein,
formaður framkvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar, segir það
mótast mjög af kringumstæðum
hveraig hann tæki því að Jón
Baldvin Hannibalsson kæmi aftur
til starfa í íslenskri pólitík. „Ég
tek eftir því að Jón Baldvin er að
bjóða fram liðsstyrk. Hann getur
stutt hugsjónir jafnaðarstefnunn-
ar með svo mörgum hætti að það
hálfa væri nóg. Hann hefur því
næg verkefni til þess með mörg-
um hætti og verður að velja sér
það sjálfur. Ég sé ekkert tilefni til
þess að útfæra þessa þanka hans
frekar." ■
GJALDMIÐILL
Verðbólga var tæp 9% á íslandi á síðasta
ári og sá engin önnur EES-þjóð sambæri-
lega tölu. Holland var í öðru sæti með
4,8°/o.
Gylfi Arnbjörnsson:
„AUt á áætlun“
verðbólga „Krónan hefur styrkst
nokkuð í kjölfar samkomulagsins
um að fresta uppsögn launaliða
kjarasamninga en auðvitað kemur
sú styrking ekki strax með já-
kvæðum hætti inn í verðlagið,“
sagði Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðusambands-
ins, þegar hann var spurður hvort
markmið samkomulags launþega,
atvinnurekenda og ríkis um verð-
bólgu séu í hættu vegna hækkun-
ar í desember. Gangi spá Lands-
banka og Búnaðarbanka um 0,4%
veróbólgu fyrir síðasta mánuð
ársins eftir má hækkunin aðeins
vera tæpt prósent á f jögurra mán-
aða tímabili fram í maí til þess að
samkomulagið haldi.
Gylfi segir að núverandi verð-
lag beri enn merki þess þegar
gengisvísitala krónunnar fór yfir
150 stig í nóvember og byrjun
desember. „Fólk er enn að kaupa
vörur á því verðlagi. Við gerum
ráð fyrir verðhjöðnun í mars og
apríl þegar áhrif styrkingar krón-
unnar fara að skila sér út í verð-
lagið. Eins og stendur er allt á
áætlun." ■
Ný úrvalsvísitala Verð-
bréfaþings:
Flugleiðir
detta út
hlutabréf Lyfjafyrirtækið Delta
og tryggingafyrirtækið Sjóvá-Al-
mennar hafa verið valin í Úrvals-
vísitölu Verðbréfaþings íslands
og taka þar sæti Flugleiða og
Húsasmiðjunnar. Vísitalan er val-
in til sex mánaða í senn og inni-
heldur þau 15 félög sem virkust
verðmyndun hefur verið með síð-
ustu tólf mánuði á undan. Rúm-
lega eitt þúsund viðskipti með
bréf Delta áttu sér stað á Verð-
bréfaþinginu á árinu og 527 með
bré/ Sjóvár.
í upphafi síðasta árs var gengi
bréfa Flugleiða 3,40 krónur, en fór
í desember sl. niður í 1,25 krónur.
Markaðsvirði skráðs hlutafjár var
um 7.800 milljónir fyrir einu ári
en hefur sl. mánuð rokkað á bilinu
2.800 til 3.500 milljónir. Á sama
tíma hefur markaðsvirði Delta
rúmlega tvöfaldast á meðan gengi
bréfa þess hefur farið úr 21 krónu
í 43,5. Bæði innlendir og erlendir
stofnanafjárfestar horfa jafnan
sérstaklega til úrvalsvísitölunnar
við mat á fjárfestingarkostum og
má því ætla að eftir nokkru sé að
slægjast. ■
Sala ríkisins á Landssíma Islands:
Opin kerfi með í
Símakaupum TDC
viðskipti Upplýst hefur verið að
íslenskir fjárfestar hafi sett sig í
samband við Tele Danmark (nú
TDC A/S) um aðild að kaupum á
Landssíma íslands. í viðtali við
Útvarpið upplýsti Henning
Dyremose, forstjóri TDC, að
haldnir hafi verið óformlegir
fundir með nokkrum fjárfest-
anna. Ekki hefur fengist upp gefið
hvað fjárfestar það eru sem sett
hafa sig í samband við TDC.
Frosti Bergsson, stjórnarfor-
maður Opinna kerfa, vildi ekki tjá
sig um það hvort farið hefðu fram
viðræður milli Opinna kerfa og
TDC um aðkomu fyrirtækisins að
kaupum á Símanum. Opin kerfi
voru meðal þeirra fyrirtækja sem
lýstu áhuga á vera kjölfestufjár-
festir í Símanum. Ýtir það undir
sögusagnir um aðkomu Opinna
kerfa að málinu að tengsl eru milli
stjórnarmanna Opinna kerfa og
TDC í gegnum stjórnarsetu í fyr-
irtækinu Columbus IT Partner í
Danmörku. Þar á Frosti sæti
ásamt Niels Heering sem situr í
stjórn TDC.
Hreinn Loftsson, hrl., formað-
ur einkavæðingarnefndar, segist
ekki vita hvaða innlendu fjárfest-
ar það séu sem hug hafi á sam-
starfi við Tele Danmark um kaup
á hlut í Landssíma íslands. „Við
erum bara í viðræðum við Tele
Danmark og höfum ekki hugmynd
um við hverja þeir hafa verið að
tala. Við höfum í þessum viðræð-
FROSTI BERGSSON
Frosti vildi ekki tjá sig um það hvort Opin
kerfi hefðu átt í viðræðum við TDC um að-
komu að kaupum á Símanum.
um eingöngu hitt menn frá Tele
Danmark." ■
Kasmírdeilan kraumar
Sprengjuárás á þinghúsið í Kasmírhéraði. Fimmtíu herskáir múslimar handteknir í Pakistan.
Utanríkisráðherrar Indlands og Pakistans ræða saman í vinsemd.
ISLAMABAD. SRINAGAR. KATMANDU. AP
Indverskur lögreglumaður lést
og a.m.k. 24 manns særðust þeg-
ar tveir menn sprengdu tvær
sprengjur rétt hjá þinghúsinu í
Srinagar, sem er höfuðstaður
Kasmírhéraðs á yfirráðasvæði
Indverja. Talið er að mennirnir
tveir séu herskáir múslimar, en
þann 1. október gerði hópur rót-
tækra múslima
sjálfsmorðsárás á
þetta sama þing-
hús, og létust þá
40 manns.
Utanríkisráð-
herrar Indlands og
Pakistans, þeir
Jaswant Singh og
Abdul Sattar, hitt-
ust á fundi utanríkisráðherra sjö
Suður-Asíuríkja í Nepal í gær.
Þeir tókust í hendur, brostu og
spjölluðu saman að því er virtist í
mestu vinsemd.
Forsætisráðherrar ríkjanna
sjö koma síðan á þennan sama
leiðtogafund á morgun, þar á
meðal þeir Atal Bihari Vajpayee,
forsætisráðherra Indlands, og
Pervez Musharraf, forsætisráð-
herra Indlands. Frá Vajpayee
hafa borist þau skilaboð að hann
ætli ekki að ræða við Musharraf
á fundinum, en Musharraf hefur
sagst reiðubúinn til viðræðna
hvenær sem er.
Mikil spenna hefur ríkt milli
Pakistans og Indlands frá því
herskáir múslimar gerðu sjálfs-
morðsárás á indverska þinghúsið
í Nýju-Delhi þann 13. desember,
þar sem 14 manns létust. Indverj-
ar segja Pakistan bera ábyrgð á
árásinni, og krefjast þess að
stjórnvöld í Pakistan komi í veg
fyrir starfsemi tveggja samtaka
múslima sem barist hafa fyrir
sjálfstæði Kasmírhéraðs. í gær
var svo skýrt frá því að um 50
meðlimir þessara samtaka hefðu
verið handteknir í Pakistan.
Pakistönsk stjórnvöld eru talin
hafa stutt við bakið á a.m.k. sum-
----4----
Fundur utan-
ríkisráðherr-
anna bendir
til þess að
heldur hafi
dregið úr
spennunni.
-....
PAKISTANSKIR HERMENN í VIÐBRAGÐSSTÖÐU
IVIeðan utanríkisráðherrar Indlands og Pakistans spjölluðu saman í bróðerni á fundi í Nepal biðu hermenn ríkjanna í viðbragðsstöðu við
landamæralínuna sem skiptir Kasmírhéraði í tvennt.
um þeirra samtaka múslima sem
barist hafa við indverska herinn í
Kasmírhéraði undanfarin tólf ár.
Eftir að stjórnvöld í Pakistan
snerust gegn herskáum múslim-
um í Afganistan hafa indversk
stjórnvöld beitt þau þrýstingi um
að gera slíkt hið sama í Kasmír.
Ekki er ólíklegt að Musharraf
taki þessum þrýstingi fegins
hendi, a.m.k. í aðra röndina, enda
hefur honum þótt áhrif róttækra
múslima í Pakistan vera orðin allt
of mikil. Musharraf gæti raunar
stafað meiri hætta af þeim heldur
en Indverjum og gæti átt yfir
höfði sér borgarastyrjöld.
Fundur utanríkisráðherranna
bendir til þess að heldur hafi
dregið úr spennunni, í bili að
minnsta kosti. Deilumál ríkjanna
eru þó óleyst og telja margir að
stríð geti brotist út hvenær sem
er. Þau hafa tvisvar háð stríð út
af deilum sínum um yfirráð í
Kasmír, en nú er svo komið að
þau ráða bæði yfir kjarnorku-
vopnum og því gætu afleiðing-
arnar af styrjöld nú orðið skelfi-
legar. ■
F ær ekki svar fr á ráðuneytinu
Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna er ekki sáttur og leita svara vegna inn-
flutnings nautakjöts fyrir jól. Ætlar að ítreka fyrirspurnina.
neytendamál Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna undrast seinagang landbún-
aðarráðuneytisins
í að svara fyrir-
spurn samtakanna
um tilhögun sölu
erlends nautakjöts
hér á landi. Flutt
var inn finnskt
nautakjöt í nóvem-
ber sl., en síðan þá
hefur greinst kúa-
riða í Finnlandi.
Jóhannes sendi
...♦—
Það á rétt á
því hvort
heldur sem er
í kjötborðum
eða á veit-
ingastöðum
og þær upp-
lýsingar liggi
fyrir.
---4—
landbúnaðarráðherra fyrirspurn í
lok nóvember þar sem hann
spurðist fyrir um hvort ekki giltu
sömu reglur hér á landi og í Evr-
ópusambandslöndunum um að
upplýsa ætti neytendur um upp-
runa nautakjöts. „Síðan vildi ég
vita hverjir hefðu fengið leyfi til
innflutningsins. Ég ætla að ítreka
þessa fyrirspurn,“ sagði hann og
fannst ókurteisi hjá ráðuneytinu
að taka svona langan tíma til að
svara jafn einfaldri fyrirspurn.
Jóhannes sagði að jafnframt væri
verið að skoða málið fyrir hann
hjá Evrópusambandinu í Brussel
og vænti hann svars þaðan fljót-
lega.
Sjöfn Sigurgísladóttir, for-
stöðumaður matvælasviðs Holl-
ustuverndar, segir hart tekið á
kjötinnflutningi hér á landi, en
hvetur fólk til að fara fram á upp-
lýsingar um uppruna ltjöts sem
það kaupir. „Það á rétt á því hvort
heldur sem er í kjötborðum eða á
veitingastöðum og þær upplýsing-
ar liggi fyrir.“ Hún sagði þó að
ekki væri skylt að merkja kjötið
uppruna þess en reglur hér á landi
kvæðu á um að fólk ætti að geta
fengið þær upplýsingar væri þeir-
ra óskað. ■
JÓHANNES GUNNARSSON
Formaður Neytendasamtakanna segir að
samkvæmt evrópskum reglum sé þeim
sem selja nautakjöt skylt að upplýsa neyt-
endur um uppruna þess.