Fréttablaðið - 03.01.2002, Síða 14
FRÉTTABLAÐIÐ
3. janúar 2002 FIMMTUPACUR
FÓTBOLTI
Thierry Henry - Arsenal 16 0 0 6 22
Van Nistelrooy - Man. Utd. 13 0 O 6 19
Hasselbaink - Chelsea 14 1 0 0 15
Michael Owen - Liverpool 10 O 0 5 15
Eiður Smári - Chelsea 7 3 0 3 13
Michael Ricketts - Bolton 11 2 0 O 13
Marka-
skorarar
Englands
“ q.
•5 S w J|
T3 (■ (0 5
J2 ™ £ Q.
5 S -o *g m
c <u «r > =
O Q 2 iu <
Enska úrvalsdeildin:
Leeds enn á toppnum
fótbolti Mikið er búið að ganga á í
fótboltanum á Englandi síðast-
liðna viku. Kalt veður gerir það að
verkum að mörgum leikjum í
fyrstu, annarri og þriðju deild
hefur þurft að fresta en úrvals-
deildin hefur haldið sínu striki.
Þó Liverpool hafi um tíma haft
sex stiga forystu á toppi deildar-
innar hefur liðinu ekki gengið
sem skyldi upp á síðkastið. Það
hefur aðeins landað sex stigum í
sex síðustu leikjum, gerði m.a. 1-
1 jafntefli við Bolton um helgina.
Á þriðjudaginn fóru fram nokkrir
toppleikir. Leeds mætti West
Ham á Elland Road. Leeds vann
leikinn 3-0 og komst aftur í topp-
sætið. Arsenal hefði reyndar get-
að hrifsað sætið sama dag en leik
STAÐA EFSTU LIPA:____________
Lið Leikir U J T Mörk Stig
Leeds 21 11 8 2 33-17 41
M. United 21 12 3 6 51-31 39
Arsenal 20 11 6 3 41-24 39
Newcastle 21 12 3 6 39-28 39
Liverpool 20 11 5 4 30-20 38
Chelsea 21 8 9 4 33-20 33
Tottenham 21 9 4 8 32-27 31
Charlton 21 7 8 6 27-24 29
Aston Vílla 21 7 8 6 27-26 29
Sunderland 21 7 6 8 18-23 27
þess við Leicester var frestað
vegna veðurs.
I gær fylgdust síðan flestir
með því þegar Manchester United
tók á móti Newcastle, sem gat
skotist upp fyrir Leeds með sigri.
Sú reyndist ekki raunin þar sem
United vann leikinn 3-1 og fór í
annað sæti deildarinnar. Vörn
Newcastle átti fá svör við Ruud
van Nistelrooy og Paul Scholes,
sem skoraði tvö mörk, en gamla
kempan Alan Shearer minnkaði
muninn þegar líða tók á leikinn.
Þetta var 105. mark Shearer í úr-
valsdeildinni.
MÁTTI REYNA
Mark Eiðs Smára Guðjohnsen dugði ekki
til í 4-2 sigri Southampton á Chelsea á
þriðjudag.
í gær mættust einnig Derby og
Fulham. Fulham vann leikinn 1-0
og var það Horacio Carbonari hjá
Derby að þakka en hann skoraði
sjálfsmark. ■
MIKE TYSON
Ólátabelgurinn Mike Tyson á erfitt með að
hemja skap sitt og hefur oftar en einu
sinni verið kærður fyrir líkamsárás og
nauðgun.
Mike Tyson á Kúbu:
Kýldi ljós-
myndara og
kastaði krist-
alskúlum
hnefaleikar Hnefaleikakappinn
Mike Tyson hefur enn einu sinni
komið sér í vandræði er hann
réðst á ljósmyndara fyrir utan
hótel á Kúbu í fyrradag, en þar
hefur hann dvalið yfir hátíðarnar.
Tyson kom út af hótelinu í galla-
buxum einum fata með risa húð-
flúr af uppreisnarhetjunni Che
Guevara og brást illa við þegar
hann sá hvar fimm ljósmyndarar
biðu hans.
Hann blótaði ljósmyndurunum
bæði á ensku og spænsku áður en
hann tók kristalskúlur á stærð við
handbolta, sem lágu í anddyri hót-
elsins og grýtti í átt að þeim. Að
sögn vitna sló hann líka tvisvar í
höfuð eins ljósmyndarans.
„Hann gjörsamlega trylltist,"
sagði Felipe Borrego, Ijósmyndar-
inn sem varð fyrir höggum heims-
meistarans fyrrverandi. „Ég ætl-
aði að biðja hann um viðtal en ég
fékk aldrei tækifæri til þess.
Hann bara gjörsamlega trylltist."
Að sögn starfsfólks hótelsins
virtist Tyson verða pirraðri með
hverjum deginum sem leið og
virtist sem athyglin sem hann
fékk frá öðrum hótelgestum færi í
taugarnar á honum.
Tyson má vart við enn einu
hneykslinu en hann mætir Bret-
anum Lennox Lewis í hringnum
þann 6. apríl n.k. og vilja margir
meina að það verði einn stærsti
bardagi sögunnar. ■
KEPPT I GO
Hinn 12 ára gamli Gao Yu-ka keppir hér
við hinn 10 ára gamla Liang Chun-chia á
hinu árlega Go móti í Taiwan. Go er borð-
leikur, sem nýtur slfellt meiri vinsælda, þar
sem keppendur reyna að ná yfirhöndinni
með því að umlykja svæði í kringum
leikpeð andstæðingsins.
Þjóðargersemi Brasilíu
Stríðandi fylkingar í Nígeríu sömdu um vopnahlé þegar Pelé kom til landsins. Hann skoraði
1.282 mörk í 1.363 leikjum og fékk 5.000 krónur í mánaðarlaun hjá Santos árið 1955.
l: .i-. ,--v.-, >• •
SVARTA PERLAN
Það leikur enginn vafi á því að meðan Pelé lék knattspyrnu átti hann sér engan jafnoka - í
knattspyrnu var hann á undan sinni samtíð
fótbolti Pelé er án efa einn allra
besti knattspyrnumaður sögunnar
ef ekki sá besti. Hann varð heims-
meistari með Brasilíu aðeins 17
ára gamall árið 1948 og leiddi
landslið sitt einnig til sigurs í
keppninni árið 1962 og 1970, en
það hefur enginn knattspyrnu-
maður leikið eftir. í 1.363 leikjum
skoraði hann 1.282 mörk, sem er
ótrúlegt afrek.
Vissulega er erfitt að fella dóm
um það hvort Pelé sé besti knatt-
spyrnumaður sögunnar, þar sem
íþróttin hefur þróast mikið síðan
hann var upp á sitt besta og
áherslur breyst. í nútímaknatt-
spyrnu er mikið lagt upp úr leik-
skipulagi og öguðum varnarleik
og því mun erfiðara að skara fram
úr. Það leikur hins vegar enginn
vafi á því að meðan Pelé lék knatt-
spyrnu átti hann sér engan jafn-
oka - í knattspyrnunni var hann á
undan sinni samtíð. Hann var
meðalmaður á hæð, gífurlega
fljótur og með gott jafnvægi.
Hann var kattliðugur, leikinn,
jafnvígur á báða fætur, afburða
skallamaður og með frábært auga
fyrir spili. Hann virtist sjá hreyf-
ingar andstæðinga sinna fyrir og
alltaf vita hvar samherjar hans
voru á vellinum.
Pelé var fæddur 23. október
árið 1940 í Tres Coracoes í Brasil-
íu. Hann var skírður Edson
Arantes do Nascimento en fékk
fljótlega viðurnefnið Pelé og síðar
Svarta perlan. Pelé hóf atvinnu-
mannaferilinn aðeins 15 ára gam-
all með brasilíska liðinu Santos og
fékk hann um fimm þúsund krón-
ur í mánaðarlaun. Tveimur árum
síðar var hann orðinn dýrlingur í
heimalandi sínu, eftir að hafa
skorað þrennu í undanúrslitaleik
Brasilíu og Frakklands í Heims-
meistarakeppninni í Svíþjóð og
tvö mörk í sjálfum úrslitaleiknum
gegn Svíum, en Brasílía sigraði
leikinn 5-2. Þegar Pelé var 19 ára
skrifaði franska blaðið L’Equipe:
„Við höfum orðið vitni að óvið-
jafnanlegri list. Pelé smaug í
gegnum víglínu andstæðinga
sinna líkt og deyfilyf í gegnum
frumur veiks manns.“
PELÉ
Lék knattspyrnu í 22 ár.
Svarta perlan var gífurlega
eftirsótt af evrópskum liðum sem
buðu honum milljónir ef hann
vildi koma. Hann vildi hins vegar
ekki fara frá Santos og gat það
reyndar ekki því árið 1961 lýsti
Janio Quadros, forseti Brasíliu,
því yfir að hann væri þjóðarger-
semi. Pélé hafði gífurlega mikil
áhrif hvert sem hann kom og sem
dæmi samþykktu stríðandi fylk-
ingar í Nígeríu tveggja daga
vopnahlé þegar hann kom þangað.
Þegar hann lagði skóna á hillinu
sagði J.B. Pinheiro, sendiherra
Brasílíu hjá Sameinuðu þjóðun-
um: „Hann hefur leikið knatt-
spyrnu í 22 ár og á þeim tíma hef-
ur hann gert meira til að stuðla að
velvilja og vináttu í heiminum en
nokkur sendiherra."
trausti@frettabladid.is
REYNSLAN
NÝTT
Frakkinn Jean
Louis Schlesser,
sem sigraði I
Dakar keppninni
1999 og 2000,
mætti I ár á bll,
sem hann hann-
aði sjálfur en er
með Renault vél.
Bíllinn brann í
gær.
Dakar kappaksturinn:
Hannadi bílinn en kveikti í
kappakstur Til tíðinda dró í Dakar
kappakstrinum í gær. Frakkinn
Jean-Louis Schlesser, sem sigraði í
kappakstrinum árin 1999 og 2000,
datt úr keppni þegar kviknaði í
bílnum hans. Schlesser var í ní-
unda sæti eftir fimm leiðir. Bíllinn,
sem hann ók, var hannaður af hon-
um sjálfum og knúinn áfram af
dísel olíu. Ekki voru allir þó jafn
óheppnir og Schlesser. Spánverj-
inn Jordi Acarons, sem ekur vél-
hjóli, var fljótastur í gær frá Er-
Rachidia í Marokkó til Ouarzazate,
sjöttu leið kappakstursins. Landi
hans Joan Roma, sem ekur einnig
vélhjóli, er hinsvegar í forystu í
sjálfum kappakstrinum.
í gær fengu keppendur for-
smekkinn af sandhólum Sahara
eyðimerkurinnar. í dag hefst síðan
fyrri af tveimur löngum leiðum,
sem var bætt við nú í ár. Þær eru
báðar rúmir 1500 kílómetrar. ■
Vetrarólympíuleikarnir:
Kyndillinn nálgast
Scilt Lake City
ólympíuleikar Senn styttist í það
að Ólympíukyndillinn verði bor-
inn inn í Salt Lake City í Utah
fylki í Bandaríkjunum. Hann er
nú staddur í Ohio fylki og skiptast
kyndilberar ótt og títt á að hlaupa
með hann. Tekið var nokkurra
daga hlé yfir áramótin en í gær
var haldið aftur af stað. Alls kyns
fólk hleypur með kyndilinn, jafnt
þekktir íþróttamenn sem almenn-
ir borgarar, og fylgjast fjölmargir
vegfarendur jafnan með til að
fagna kyndilberum.
Ólympíukyndillinn, sem vegur
tæp tvö kíló, lítur út eins og grýlu-
kerti. Hann verður borinn inn í
Salt Lake City áttunda febrúar. Þá
munu ellefu þúsund og fimm
hundruð kyndilberar hafa skipst á
því að bera hann að leikunum. ■
SKUTLAÐ YFIR ÁNA
Hér er kyndilberinn Casey Farties að fá far
yfir Conneticut ána á kanó með mönnum
úr Abernaki ættbálkinum um síðustu helgi.