Fréttablaðið - 03.01.2002, Page 24
FRETTABLAÐIÐ
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 7520
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Krístínar Helgu Gunnarsdóttur
Jólagjöf ársins
2001
Korter í jól þegar landsmenn
dönsuðu í kringum einiberja-
runna, tróðu út ísskápa sína og hlupu
á milli verslana til að grípa síðustu
gjafirnar var haldin dulítil samkoma
í Iðnó. Fréttasnápar skutust á stað-
inn, gripu tilheyrandi tilkynningar
og köstuðu svo upplýsingunum út í
jólaruglinginn. Þingmenn voru farn-
ir heim í jólafrí. Snilldarbragð, tíma-
setning sem gera má ráð fyrir að al-
mannatenglar hafi úthugsað fyrir
umhverfisiðnaðarráðuneytið.
—*—
KÁRAHNJÚKAR skulu virkjaðir,
sagði iðnaðar, nei... umhverfisráð-
herra, en við teygjum okkur langt
fyrir náttúruvini. Við látum nánasta
umhverfi Snæfells í friði. Svo ætlum
við að setja girðingar og hindranir
fyrir Landsvirkjun svo þetta verði
miklu dýrara fyrir Friðrik og hans
menn, fari milljarða fram úr fyrir-
huguðum fjárhagsáætlunum.
Einhverjir einfeldningar urðu hissa,
klóruðu sér í kollunum og sögðu: Var
ekki búið að ráðleggja fólkinu frá
þessum aðgerðum? En hlutverk um-
hverfisiðnaðarráðuneytisins er að
leita leiða til að réttlæta stóriðju og
virkjanaframkvæmdir og þakka
skyldi að ekki verður malbikað upp
að skálaveggjum í Snæfeili.
—♦-—
HLUTVERK ráðuneytisins er ekki
að reikna út arðsemina sem hlýst af
öllu bröltinu, hvað þá að reikna út þá
arðsemi sem hlytist af því að virkja
ekki - þann gróða sem hlytist af því
að snerta ekki víðernið á norðaustur-
landi, svæði sem nú þegar er ein-
stakt í náttúru Evrópu. Enginn hefur
fundið hjá sér þörf fyrir slíka út-
reikninga því fjórðungurinn hrópar
á björgunaraðgerðir strax og getur
sætt sig við þessar. Ríkisstjórnin
þarf að búa til góðæri til að þakka
sér og tímabundna þenslu fyrir aðal-
og aukaverktaka þessa lands.
Skipulagsstjóri setti plástur á lands-
menn með úrskurði sínum, en um-
hverfisiðnaðarráðherra kippti
plástrinum af þegar þjóðin leit und-
an og héit jól, kannski svo það yrði
sársaukaminna, en sviðinn er skolli
sár og meinið er opið fyrir áfram-
haldandi sýkingu.
JÁ , þetta var jólagjöf ársins, lokaat-
riði í leiksýningu, þótt endalokin
kæmu ekki á óvart - eins og farsi sem
eldist illa og þykir að lokum úreltur
og lélegur. Jólagjöf sem kemur eins
og Trójuhestur inn í hátíðahald lands-
manna og hefur afieiðingar um alla
framtíð. ■
*
Pín frístund - Okka r fag
VINTERSPORT m
Bíldshöfða • 510 8020 • Smáralind • 510 8030 • www.intersport.is
Kraftmikla
lófatölvan
med stóra
skjánum
Hawk's Pro Skater 2
Frábær þrívíddar grafík og
frábært hljóð I þessum
stórskemmtilega leik.
Langflottasti GBA
leikurinn.
Warioland 4
Alveg splunkunýr leikur i
anda Super Mario
leikjanna. Troðfulluraf
frábærum ævintýrum og
þrautum.
.490
Super Mario Advance
Super Mario Bros &
Super Mario Bros 2. Tveir
vinsælustu leikirnir frá
Nintendo í einum pakka.
Komdu og kíktu
á úrvalið
BRÆÐURNIR
TÓLVULEIKIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
VINTERSPORT VINTERSPORT VINTERSPORT VINTERSPORT VINTERSPOBT VINTERSPORT VINTERSPOPT- VINTERSPORT VINTEI