Fréttablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-.
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingaikostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
1 BRÉF TIL BLAÐSINS~[
EKKI ÍSLENDINGUR
Baldri finnst grunnskólinn orðinn að
framlengingu á útlendingaeftirlitinu.
Eru börnin
velkomin?
Baldur hringdi:
LE5ANÐI Nú á að krefjast þess að
foreldrar barna staðfesti lögmæti
veru sinnar hér á landi áður en
börn þeirra fá inngöngu í grunn-
skóla borgarinnar. Það er verið að
gera skólann að einhvers konar
framlengingu á útlendingaeftirlit-
inu og börnin að villibörnum.
Þetta er gert undir því yfirskyni
að það sé verið að vernda börnin!
Það er yfirmáta heimskulegt.
Hvar á að draga mörkin? Eiga
þessi börn ekki heldur að njóta
heilbrigðisþjónustu? Skólakerfið
á að bjóða þessi börn velkomin.
Það er betra að fá þau fram í dags-
ljósið, þau njóti samvistar við
önnur börn og öðlist þekkingu.
Ekki er betra að þau séu falin! ■
C A F f
p r m o
þar sem hressa fólkið hittist.
Margrómaðar súpur og hád.
réttir v. daga kl. 12-14
Opið virka daga 10-23, laug.-sunnd. 12-18
HLÍÐASMÁRA 15
sími 555 4585
10
FRÉTTABLAÐIÐ
15. janúar 2002 ÞRIDIUDAGUR
rnnr. ’.cimci.' ? r nn«« !<»■»*"»-*
Mokum yfir rústirnar
Eg á eina sorglega minningu frá
París. Ég stóð rétt fyrir innan
dyrnar á Notre Dame og horfði inn
eftir kirkjuskipinu. Erkibiskupinn
af Parísarborg stóð við altarið.
Hann söng messu fyrir fáein sókn-
arbörn sem sátu á átta bekkjum
þar fyrir framan. Aðrir bekkir
voru í geymslu út í bæ. Kirkjugólf-
ið hafði verið grafið upp. Þar sem
áður var steingólf var nú stór
gryfja og gulur leir. Nokkrir forn-
leifafræðingar og aðstoðarmenn
þeirra voru á stangli í gryfjunni;
sumir að bursta ryk af steinum;
aðrir að mæla með stikum fjar-
lægðina frá einum stein að öðrum.
Utan um þetta — messuna og forn-
leifagröftinn — hringsnérust sjö
rútufarmar af japönskum túristum
Gunnar Smári Egilsson
skrifar um fomminjar I Aðalstræti.
og smelltu myndum af dýrðlingum
í skápum sínum og fornleifafræð-
ingum að störfum sínum. Ég sá
engan mynda biskupinn.
Síðan hefur mér verið í nöp við
frekjuna sem er undirrót túrism-
ans; þessa skilyrðislausu kröfu um
að fá að sjá allt og skoða — helst að
pota líka. Þessi frekja hefur lagt í
rúst flesta fegurstu staði jarðar.
Þar sem áður voru kirkjur Guði til
dýrðar eru nú musteri þeirrar
delluhugmyndar að túristi geti
skilið það sem hann sér.
Og síðan þá hef ég ekki náð til-
gangi þess að grafa eftir fornminj-
um. Hverju voru þeir sem grófu
upp gólfið í Notre Ðame bættari
þótt þeir finndu kirkjuna undir
þessari — og jafnvel aðra þar fyrir
neðan. Það var löngu vitað að það
hafa margar kirkjur staðið þar
sem Notre Dame er nú.
Það hefur heldur enginn efast
um að landnámsSkáli hafi verið í
Aðalstræti. Þær rústir sem menn
hafa nú grafið upp bæta þar engu
við — það er líklegra að þær
skyggi á hugmyndir okkar af
bænum en auðgi þær.
Og þótt við drögum túrista að
rústunum mun það ekki auðga líf
þeirra — eða skilning á sjálfum sér
eða okkur. Það er því óþarfi að
byggja viðhafnarskála kringum
heimsókn túristanna að rústunum.
Eðlilegast er að moka aftur yfir
grjótið og halda lífinu áfram. ■
DEBET KREDIT [“ I
BÆTIFLÁKI
Vinnusamur
og hæfileikaríkur
Smámunasamur
og feiminn
„Ég held að Björn sé ákaflega
vandaður og samviskusamur mað-
ur,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson
læknir sem hefur verið málsvari
andstæðra skoðana í utanríkis-
málum. „Hann birtist mér sem
ósköp indæll og hlédrægur mað-
ur.“
„Björn er feikilega vinnusam-
ur, nákvæmur og skipulagður,"
segir Ásgeir Sverrisson, blaða-
maður á Morgunblaðinu sem vann
undir stjórn Björns í erlendum
fréttum. „Hann er besti stjórn-
andi sem ég hef unnið með. Hann
á gott með að Ieiða saman hópa og
menn til samstarfs. Það hefur
komið mörgum á óvart, því marg-
ir hafa talið hann kreddufastan.
Þar fyrir utan er hann mjög
skemmtilegur."
Ingólfur Guðbrandsson, ferða-
mála- og tónlistarfrömuður hefur
verið tengdafaðir Björns í þrjá
áratugi. „Heiðarleiki er fyrsta
orðið sem kemur upp í hugann
þegar Björn er nefndur. Hann er
maður sem má ekki vamm sitt
vita í neinu. Hann er mjög hæfi-
leikaríkur maður."
BJÖRN BJARNASON
MEN NTAMÁLARÁÐ HERRA
hefur verið mikíð í umræðunni upp á
síðkastið. Flest bendir til þess að hann
muni gefa kost á sér til forystu í borgar-
stjórnarkosningum í vor.
„Mér finnst hann vera dálítið stíf-
ur og svolítið langrækinn. Mér
finnst stundum eins og hann sé að
erfa að óþörfu gamlar væringar
við andstæðinga í pólitík," segir
Steingrímur J. Sigfússon formað-
ur Vinstri- grænna
„Maður sem er jafn nákvæmur
og Björn á það til að vera smá-
munasamur og hengja sig í tækni-
leg atriði, segir Ásgeir Sverris-
son, samstarfsmaður Björns í er-
lendum fréttum á Morgunblaðinu.
Mér finnst að hann ætti aö láta
sína pólitísku sýn og greinandi
njóta sín meir innan Sjálf-
stæðisflokksins til mótvægis við
miðstýringartilhneigingar flokks-
„Mér finnast skoðanir hans á
utanríkismálum vera forneskju-
legar og allt of einlitar," segir
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir
og andstæðingur Björns í utanrík-
ismálum. „Hann hefur fyrst og
fremst tekið mið af utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna á hverjum
tíma.“
„Ég hef þá tilfinningu að hann sé vinnusamur og
skipulagður í sinni vinnu,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon formaður Vinstri-grænna. „Hann er fylginn
sér og meira fyrir að ná málum fram en vekja á sér
athygli."
„Þegar Björn fetaði hina póli-
tísku braut, hafði ég um það viss-
ar efasemdir, þar sem ég taldi erfitt fyrir hann að
feta í fótspor föður síns, segir Ingólfur Guðbrands-
son, tengdafaðir hans. „Mér fannst það há honum í
byrjun að hann er hlédrægur og jafnvel feiminn.
En hann hefur vaxið mikið, ekki aðeins af vegsemd,
heldur ekki síður af þroska."
„Það var feikilega lærdómsríkt að vinna með
Birni fyrst og fremst vegna þeirrar framsæknu
pólitísku sýnar sem hann hefur," segir Ásdís Halla
Bragadöttir, bæjarstjóri í Garðabæ sem var aðstoð-
armaður hans í menntamálaráðuneytinu.
„Hann er vinnusamur, greindur, skemmtilegur,
hefur mikla seiglu og endalaust til í að hlusta á nýj-
ar hugmyndir. Björn kemur manni sífellt á óvart
enda óvenju víðsýnn maður.“ |
„Mér finnst hann hafa mjög fáar veikar hliðar,"
segir Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri sem var
aðstoðarmaður Björns. ,“Veikar hliðar manna tengj-
ast gjarnan styrkleika þeirra. Þannig má segja að
sterk pólitísk sýn hans leiði stundum til þess að
hann bregst stundum harkalega við skoðunum sem
ganga þvert á hans eigin.“ ■
KRISTINN H.
GUNNARSSON
ÞINGMAÐUR FRAMSÓKNAR
OGFORMAÐUR
BYGGÐASTOFN U N AR
Valgerður Sverrisdóttir gagnrýndi
Kristin í DV fyrir hugmyndir hans um
gjaldtöku á byggðakvóta og sagði
hann ekki talsmann flokksins.
Tala sem for-
maður Byggða-
stofnunar
„í þessu máli er ég að tala sem
formaður stjórnar Byggðastofn-
unar um mál sem henni er falið
að leysa úr. Ég er að lýsa mínum
skoðunum um breytingar sem ég
tel nauðsynlejgt að gera í ljósi
reynslunnar. Eg tel mig hafa fullt
umboð til að bera mínar skoðanir
í því. Ég geri engar kröfur til
þess að allir aðrir séu sammála
því. Ég hef viðrað þessi sjónar-
mið í stjórn Byggðastofnunar og
flokknum, Þetta er ekkert sem
þarf að koma mönnum á óvart.
Það hafa ekki verið útnefndir
talsmenn sérstaklega í einstök-
um málaflokkum. Auðvitað er
bara formaðurinn talsmaður
flokksins. ■
Tölvunámskeið
Windows
Word
Excel
Access
Power Point
Publisher
'Outlook
Front Page
Internet
Tölvupóstur
Hannes Hólmsteinn:
Sá sigur-
stranglegasti
verði borg-
arstjóraefni
„Ég tel að við eigum að bjóða
frani sem borgarstjóraefni þann
sem er sigurstranglegastur. Það
eigum-við að ræða í okkar hóp og
komast að niðurstöðu. Þegar við
höfum komist að sameiginlegri
niðurstöðu þá eigum við að kynna
hana,“ segir Hannes Hómsteinn
Gissurarson aðspurður um hvern
hann vilji sjá sem borgarstjóra-
efni Sjálfstæðisflokksins í kosn-
ingunum í vor. ■
Tölvuskólinn Sóltúni
Word grunnur 21 .jan.
Access grunnur 25.jan.
HTML grunnur 25.jan.
Excel grunnur 28.jan.
Front Page grunnur21 .jan.
Tölvunám 1 60 st. 16.jan.
*Windows
*lnternet
* Word
*Excel
Eldriborgarar 23.jan.
Skráning stendur yfir
í síma 562-6212
alla daga frá kl. 1 3 - 22
Sóltúni 3 105 Reykjavík símí5 62 62 12 netfang: skoli@tolvuskoli.net heimasíða: www.tolvuskoli.net
Sérfræðinámskeið
Vefsíðugerð:
HTML
Front Page
Dreamweaver
Flash
Fireworks
Photoshop
Forritun:
Pascal A.
Visual Basic
PHP &
ASP &
■-------J'----------J
HANNES
HÓLMSTEINN
GISSURARSON
„Þegar við höfum
komist að sameigin-
legri niðurstöðu þá
eigum við að kynna
hana," segir Hannes
Hólmsteinn.