Fréttablaðið - 15.01.2002, Síða 18

Fréttablaðið - 15.01.2002, Síða 18
HVER ER TILGANGUR LÍFSINS Gleymt og grafið Ég hafði einhvern tímann svarið við þessari spurningu, en er búin að gleyma því í augnablikinu. Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri Halldór Ásgrímsson Áhrif alþjóða- samstarfs á fullveldi erinpi Halldór Ásgrímsson, ut- anríkisráðherra heldur erindi á vegum stjórn- málafræðiskor- ar Háskóla ís- lands í hádeginu í dag frá kl. 12.15-13 í há- tíðasal, aðal- byggingu. Er- indið fjallar um áhrif alþjóðasam- starfs á fullveldi. Eftir fundin verða leyfðar fyrirspurnir og eru allir velkomnir á fyrirlesturinn. ■ HALLDÓR ÁSGRÍMSSON 18 FRÉTTABLAÐIÐ 15. janúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR Salurinn: Ný og forn kínversk þjóðlagatónlist tónlist Hinn þjóðlegi tónlistar- hópur kínversku kvikmynda- hljómsveitarinnar í Peking held- ur tónleika í Salnum í kvöld klukkan átta. Hópurinn er skip- aður sex hljóðfæraleikurum og á efnisskránni er ný og forn kín- versk þjóðlagatónlist á gömul hljóðfæri. Hljómsveitin var stofnað árið 1949 og er ein elsta hljómsveit sinnar tegundar í Kína sem star- far á vegum ríkisins. Hún nýtur mikillar frægðar heima fyrir enda eru hljóðfæraleikarar hennar þekktir fyrir fágaða túlk- un. Með henni hafa leikið lands- þekktir hljóðfæraleikarar og á hennar vegum starfa mjög þekkt tónskáld. Frá því að hljómsveitin var stofnuð hefur hún hljóðritað tón- list við rúmar tvö þúsund kvik- myndir auk fréttamynda og ótal- margra sjónvarpsþátta. Þá hafa verið gefnir út fjölmargar hljóm- plötur, snældur og geislaplötur með leik hennar. Á vegum hljómsveitarinnar hafa hópar hljóðfæraleikara sótt heim fjölmargar þjóðir og kynnt hina ríku tónlistarhefð sem er hluti hinnar ævafornu menning- ar Kínverja. Þar á meðal er sex- tett sá sem nú heimsækir íslend- inga í boði Kínversk-íslenska menningarfélagsins, Íslensk-kín- verska viðskiptaráðsins og utan- ríkisráðuneytisins. Hljóðfæra- leikararnir heita: Li Chunyong, He Yuan, Yin Yan, Yang Fan, Chen Yu og Sun Xin. ■ KÍNVERSK TÓNLIST Kínversku tónlistarmennirnir leika allir á gömul hljóðfæri. Þeirra á meðal er hljóðfærið pipa sem er kínversk lúta með fjórum strengjum. Verkiderekki fullkomn- að fyrr en það er flutt Myrkir músíkdagar hófust síðastliðinn sunnudag og standa til 21. febrúar. A efnisskránni er mikið um frumflutning íslenskra tónskálda. tónlist „íslensk tónskáld eru alltaf að semja en það verður aldrei fullkomnað fyrr en verkið er flutt,“ segir Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafélags ís- lands og talsmaður Myrka mús- íkdaga, sem hófust síðastliðinn sunnudag og standa til 21. febrú- ar. Myrkir músíkdagar fagna nú tuttugu og tveggja ára afmæli sínu á þessu ári og frá upphafi hefur íslensk tónlist verið í for- grunni á dagskrá hátíðarinnar. Stella Sigurbjörsdóttir Nagla og föráunarfræáingur Hef hafið störf á nýjum stað, snyrtimiðstöðinni Lancóme Kririglunni 7, sími: 588 1990. Gamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir LANCOME S N Y R T MIÐSTÖÐ Andlegi Skólinn Eftirfarandi námskeið hefjast: 16. janúar: Sálarhugleiðsla - Miðlun 17. janúar: Uppstigningar ( Kristvitundar) vinnunámskeið Hugsað fyrir þá sem vilja þróast eins mikið og þeir geta á þessu æviskeiði. Upplýsingar á heimasíðu: www.vitund.is/andlegiskolinn Skráning og upplýsingar í síma: 553 6537 Geymið auglýsinguna. Engin undantekning er á þessari hefð í ár. Kjartan segir óvenju- mikið um frumflutninga og ein- nig séu flutt stærri verk en oft áður. Vísaði hann til tónleika Kammersveitar Reykjavíkur sem voru haldnir síðastliðinn sunnudag svo og tónleika Sinfón- íuhljómsveitar íslands sem haldnir verða 21. febrúar næst- komandi. Meðal annarra dag- skrárliða má nefna kórtónleika með Hljómeyki þar sem flutt verða verk eftir Jón Nordal, strengjakvartetttónleika, raftón- leika og flaututónleika. Að auki verður í fyrsta sinn Tónþing í samvinnu við Menningarmið- stöðina Gerðuberg með Atla Heimi Sveinssyni í forgrunni. Sú breyting er komin á að Myrkir músíkdagar eru nú hald- ir árlega en voru áður annað hvert ár. Kjartan segir þetta eðli- lega þróun í framhaldi af menn- ingarborgarárinu. Sú gróska sem þar hafi myndast sé nú að skila sér. íslenskir tónlistarmenn hafi nú sem fyrr verið áhugasamir að flytja og frumflytja íslenska tón- list. „Mér finnst meiri skilningur í þjóðfélaginu um mikilvægi þess að íslensk tónlist sé flutt af íslenskum flytjendum. Opinberir ÍSLENSK TÓNSKÁLD Á tónlistarhátíðinni Myrkir músíkdagar hefur flutningur íslenskrar tónlistar verið i forgrunni og er engin undantekning í ár frá fyrri venjum. aðilar eru farnir að gera sér grein fyrir auknum atvinnutæki- færum ýmissa aðila sem frum- flutningur íslenskra verka hefur DAGSKRA MYRKRA MÚSIKDAGA 16. janúar: Ýmir. Klarínettutónleikar. 21. janúar: Hjallakirkja. Hljómeyki. 28. janúar: Salurinn. Strengjakvartettstónleikar. 2. febrúar: Salurinn. Raftónleikar. 11. febrúar: Listasafn Sigurjóns. Tónlistardeild Listaháskóla (slands. 16. febrúar: Gerðuberg: Tónþing. 18. febrúar: Ýmir. Flaututónleikar. 21. febrúar: Háskólabíó. Sinfóníuhljómsveit Islands. í för með sér. Við hvert nýtt verk þarf að búa til nótur, hljóðfæra- leikarar fá vinnu, salir eru tekn- ir á leigu og svo framvegis." Kjartan segir undirbúning Myrkra músíkdaga á næsta ári þegar hafinn. „Við íhlutun opin- berra aðila verður öll skipulagn- ing auðveldari. í framtíðinni verður því auðveldara að bóka og fá erlenda gesti hingað til lands og um leið erlend áhrif sem er ekki síður mikilvægt fyr- ir íslenskt menningarlíf." kolbrun@frettabiadid.is Þrífum bíla utan sem innan Alþrif Mössun • Djúphreinsun • Vönduð vinna • Vélarþvottur • Tökum í umboössölu hljómflutningstæki í bíla • Aöstoöum viö ísetningu hljómflutningstækja í bíla, einnig viö minniháttar bílaviögeröir GERUM TILBDÐ TIL FYRIRTÆKJA OG STOFNANA LÁTUM FAGMENN VINNA VERKIN BÓIMSTÖÐIN BÓIM OG ÞRIF Smiöjuvegi 44e, gul gata Sími 564 0330 ÞRIÐJUDAGURINN 15. JANUAR MYNDLIST FUNDUR 12.15 Halldór Ásgrímsson flytur erindið Áhrif alþjóðasamstarfs á full- veldi á vegum stjórnmála- fræðiskorar Háskóla (slands I dag. Erindið verður flutt í hátíða- sal aðalbyggingar. 14.15 Halldór Björnsson heldur fyrir- lestur á vegum Félags íslenskra veðurfræðinga um hringrás í suðurhöfum og veðurfar á norð- urslóðum. Fyrirlesturinn fer fram á Veðurstofunni. SÝNINGAR____________________________ Fellingar heitir sýning um sögu Eyglóar Harðardóttur sem stendur yfir í Þjóðar- bókhlöðunni. Það er Kvennasögusafnið sem setur sýninguna upp. Handritasýning í Stofnun Árna Magn- ússonar, Arnagarði við Suðurgötu. Handritasýning er opin kl. 14-16 þriðju- daga til föstudaga. Sýningin Landafundir og ragnarök stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er samstarfsverkefni við Landa- fundanefnd og fjallar um landafundi og siglingar islendinga á miðöldum með áherslu á fund Grænlands og Vínlands. í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi sýnir þýski listamaðurinn Bernd Koberl- ing oiíu- og vatnslitamyndir sem hann hefur unnið fráárinu 1988, m.a. hér á landi. Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga 10-17 og miðvikudaga 10-19. Sýningin stendur 3. mars. Þrjár sýningar eru nú í tengslum við Gallerí Fold. í Rauðu stofunni er sölu- sýning á 18 pastelverkum eftir Hring Jó- hannesson. Verkin eru myndaröð sem hann vann árið 1990 á sólarströnd. í Ljósafold stendur yfir kynning á Ijós- myndum Magnúsar Óskars Magnús- sonar en á síðasta ári kom út bókin Face to Face eftir Magnús. I Baksalnum sýnir Inger Helene Bóasson Ijósmyndir en sýninguna nefnir listakonan Litið um öxl. Safnið er opið daglega frá kl. 10-18, laugardaga ki. 10-17 og sunnudaga kl. 14-17. f Listasafni Kópavogs - Gerðasafni sýnir Ritlistarhópur Kópavogs Ijós og myndverk í tilefni af útgáfu Ijóðarbókar- innar Sköpun. Bókin er samvinnuverk- efni við myndlistarmenn úr Kópavogi. Félagar í Leirlistafélaginu hafa einnig opnað sýningu sem ber heitið Tvískipt. Þar sýna ellefu listamenn ýmist nytjalist eða frjáls form. Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Sýningarnar standa til 3. febrúar. [ galleri@hlemmur hefur samvinnu- verkefnið Markmið 6 verið tekið til sýningar. Verkið er unnð af Helga Eyjólfssyni og Péturs Arnari Friðrikssyni. Það er sett úr margþættum verkefnum sem unnin eru til sýningar. Safnið er opið frá fimmtudegi til sun- nudags kl. 14-18. Sýningin stendur til 3. febrúar. í Gerðubergi er sýning á þýskum tískuljósmyndum frá árunum 1945- 1995 þar sem má sjá verk framsækinna Ijósmyndara sem voru áhrifavaldar í stíl og framsetningu tískuljósmyndarinnar. Sýningin er samvinnuverkefni Gerðubergs og Goethe Zentrum og styrkt af IFA. Sýningin stendur til 17. febrúar. í Gallerí Skugga sýnir Orri Jónsson Ijós- myndir sinar og ber sýningin yfirskriftinaEyðibýli. Verkin vann Orri á árunum 1999-2000 og er um að ræða litmyndir teknar inni f eyðibýlum á ólikum stöðum á landinu. í Klefanum sýnir Ragna Hermannsdóttir, myndlis- tarmaður bókverkin Vofur, Gular rósir og Lífsháski. Þar gefur að líta þrjár bækur með tölvunnum myndum og textum. Sýningin er opin frá kl. 13-17 alla daga nema mánudaga. Sýninganrar standa til 3. febrúar. Tilkynningar sendist á netfangið ritstjorn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.