Fréttablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.01.2002, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ Viltu læra að tála spamsku? Sebastian Nowenstem SfMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsínga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavef urinn á vlsar.ísB Fyrstur með fréttirnar Nýlína Compaq Evo AcoTæknival Bakþankar Kristínar Helgu Gunnarsdóttur Þú þýlynda þjóð Leiðtogasýki hefur löngum hrjáð þessa veðurbörðu þjóð hér norður í Dumbshafi. Vér verðum að hafa öfl- ugan leiðtoga, leggja allt vort traust á herðar einu stórmenni sem skal leiða oss til frelsis og fyrirheita. Þannig er landsmálapólitíkin og allir sem ein- hvers mega sín hafa af því stórfelld- ar áhyggjur ef stjórmálaflokkur nær ekki að finna mikilmenni innan sinna raða svo hylla megi og kasta sér að fótum þess. Því miður koma mikil- mennin ekki á færibandi og leggi Björn ekki í borgarslaginn verða reykvískir sjálfstæðismenn áfram herdeildin hauslausa. EKKI ER TILTRÚIN MIKILá störf flokksmanna hvar í flokki sem þeir eru. Þeir skulu vera viljalaus verkfæri í höndum leiðtoganna. Reykjavíkurlistinn hlyti að leggjast af ef ekki nyti hins sterka borgar- stjóraleiðtoga. SjálfsEtæðisflokkur- inn í borginni virðist að mati margra vera ósamstæður saumaklúbbur þar sem forsætisráðherra getur vart ver- ið á tveimur stöðum í einu. Leiðtogar eru mál málanna fyrir kosningar, skítt veri með velferðarmál og hug- myndir sem þetta annars góða fólk hefur fram að færa. Veit annars nokkur hver helstu kosningamál vorsins eru? HVAÐAN ER SPROHIN SU ÞRÆLSLUND i þjóðarsálinni sem veldur því að hún verður að lúta ein- um höfðingja? Þarf að hverfa aftur til apanna til að finna skýringuna eða nægir kannski að skoða söguna nær okkur? Leiðtogadýrkunin er kannski ekki svo óeðlileg þegar horft er til bláfátækra kotbænda og verbúðar- manna sem norpuðu í nepjunni með sjóvettlinga öldum saman, en áttu sinn kóng úti í heimi og komust stöku sinnum við illan leik yfir hafið til að berja hann augum. Þrátt fyrir góð- viljaðar tilraunir Bessastaðabænda fyrr og nú hefur ekki tekist að laða fram trúverðuga konunglega stemmningu þar. EN ÚR ÞVÍ AÐ MÖRLANDINN virðist ekki ætla að læknast af sinni andlýðræðislegu leiðtogasýki væri kannski ekki úr vegi að fara bónleið- ina til Margrétar Þórhildar, biðjast afsökunar á óhemjuganginum, grát- biðja hana að taka okkur aftur undir sinn væng og fyrirgefa sjálfstæðis- bröltið. Þá eigum við að minnsta kosti ættstóran leiðtoga sem býr í höll og hefur hirð og gengur með kórónu á tyllidögum. ■ w w. M IBS kÆ «________8 sss >, :■*'',,."'ípWs Í||jj§ \í: wm&i, m Stereó myndbandstæki Uerð áður 23.990 Tilboð kr. 19.990 Afsláttur 4.000 Heimilistæki á ótrúlegu veröi! Kaffikönnur, brauðristar, katlar og straujárn á kr. 1.490. Allt aö 50% afsláttur. Fjölkerfa DUD spilari Uerð áður 26.990 ■ni.TTH’ranimiB Afsláttur 7.000 GRUNDIG 20“ SJÖNVARP Verðáaur 84.990 Tilboð kr. 54.990 Afsláttur 10.000 Ferðatæki með CD spilara Uerð áður 6.990 Tilboð kr. 4. Afsláttur 2.000 JUC míkró hljómtæki Uerð áður 29.990 Tilboð kr. 24. Afsláttur 5.000 Digital sími m/númerabirti Uerð áður 12.990 Afsláttur 3.000 JUC Digital tökuuél Uerð áður 149.990 lilboð kr. 119.990 Afsláttur 30.000 Heimabíóhljómtæki með miklum afslætti Fyrstur kemur fyrstur fær - Takmarkað magn JVQ GRURDIC AKAI UNITED HITACHI Olympus MIN®LTA harman/kardon UBL Sjónuarpsmiðstöðin RAFTÆKJAVERSLUN • SÍBHMðLA 2 • SÍMI 5S8 90SB • www.sia.is nosíf-jiunz fzirnizitjnziyriM'i Jj J»BAE RAFGEYMAR í LYFTARA 1-- & MEYER ÉllÉsÉ SNÚNINGAR ;fl|: í F. LYFTARA . MHiBBaiMÍBaiBMMMBIWWIIWliTi n ■ M KBBR JgaSr m mUffl Lyftu þér upp og líttu til okkar BRÆÐURNIR ORMSSON VINNUVELAR Lágmúla 9 • Sími 530 2800 . V......... ..

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.