Fréttablaðið - 24.01.2002, Page 6

Fréttablaðið - 24.01.2002, Page 6
SPURNING DAGSINS 6 FRÉTTABLAÐIÐ 24. janúar 2002 FIIVIIVITUDAGUR Hvern villt þú sjá sem næsta borgarstjóra? Haukur Valdimarsson, aðstoðarlandlæknir: P"--------wxr „Auðvitað vil ég sjá Ingibjörgu Sólrúnu sem næsta borgarstjóra. Hún hefur staðið sig ákaflega vel. Er málefnaleg og skemmtileg kona." Cunnþóra Björnsdóttir heimavinnandi húsmóðir Úkraína: Eitt prósent íbúa smitaðir af ey ðni úkraína / ap í Úkraínu eru eitt prósent íbúanna smitaðir af eyðni. Landið er því hið fyrsta í Evrópu sem nær þessu hlutfalli smitaðra. HIV smituðum hefur fjölgað verulega í austur Evrópu og mið Asíu undanfarið. í löndunum um- hverfis Úkraínu eru tilfelli smit- aðra um fimmtán prósent fleiri en fyrir þremur árum, samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna. Eyðni var nær óþekktur sjúkdómur í Úkraínu fram til ársins 1994. Fjöldi tilfella var aðeins 184. Þeg- ar frelsi og fátækt jókst, við fall Sovétríkjanna, smituðust fleiri eiturlyfjaneytendur og vændis- konur af eyðni. Avinnuleysi og bágur efnahagur hafði haft áhrif á neyslu eiturlyfja og vændi. Nú er talið að um 400 þúsund manns séu smitaðir af veirunni. Sameinuðu- þjóðirnar hafa varað við því að faraldurinn geti færst enn frekar í aukana í fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna. Æ fleira fólk, sem hvorki stundar eiturlyfjaneyslu eða vændi, hefur smitast af eyðni- veirunni. ■ Bretland: Laust við ginog klaufavciki london / ap Bretland er laust við gin og klaufaveiki. Því hefur ver- ið lýst yfir af alþjóða dýraheil- brigðisstofnuninni. Hópur sér- fræðinga stofnunarinnar tóku ákvörðun um yfirlýsinguna vegna alþjóðaverslunar. Um ár er síðan gin og klaufaveiki varð fyrst vart í Bretlandi. Talið er að yfirlýsing- in muni ryðja veginn svo útflutn- ingur á kjöti, frá landinu, geti haf- ist að fullu. Einhverjar hömlur Evrópusambandsins á innflutn- ingi á kjöti frá Bretlandi, munu þó enn vera við lýði. ■ Skítseiði ekki brot á reglum uiviiviæli „Það stendur ekki til að veita Jóni áminningu," sagði Haukur Valdimarsson, aðstoðar- landlæknir. Hann telur ekki að ummæli Jóns B. G. Jónssonar yfirlæknis á Patreksfirði, sem kallaði íbúa Pat- reksfjarðar skítseiði á vefsíðunni patreksfjörður.is, stangast á við þær reglur sem læknum eru sett- ar. í siðareglum lækna segi þó að þeim beri að sýna vammleysi í starfi og líferni. „Læknar verða að forðast að hafast það að, sem veikt getur trúnaðarsamband milli hans og sjúklinga. Jón þarf þó ekki að hafa trúnað við alla á Patreksfirði. Þar er væntanlega um fleiri lækna að ræða,“ segir Haukur. Ekki standi til að veita Jóni áminningu vegna ummæl- anna. Rannsaka yrði hvort og hvenær ummælin áttu sér stað. Ummæli sem birtust í blöðum HAUKUR VALDIMARSSON Ég hef fulla samúð með mönnum sem eru að bagsa í þessu. Þeir eru að láta gott af sér leiða og hafa oft reynslu og þekkingu sem er hjálpleg í svona samfélögum. væru ekki endilega tekin trúan- leg. „Það má ekki hefta menn í því að stunda pólitískt starf. Við erum mjög ánægðir með að menn hafi sig í frammi og stýri samfélaginu. Þeir þurfa þó að aðlaga sig þeim aðstæðum." segir Haukur. „Menn eru gjarnan útsettir fyrir óþæg- indum þegar þeir eru í þessari stöðu. Eg hef fulla samúð með mönnum sem eru að bagsa í þessu. Þeir eru að láta gott af sér leiða og hafa oft reynslu og þekk- ingu sem er hjálpleg í svona sam- félögum. Þeir eru sterkir máttar- stólpar." ■ Skulda 10 millj- ónir vegna van- goldinna launa Fyrirtækið Reykjavik.com rambar á barmi gjaldþrots. Norðurljós hf. á þriðjungshlut í fyrirtækinu og Kaupþing í Lúxemborg á einnig hlut í því. Skipt hefur verið um kennitölu. Ritstjóri Reykjavikur.com gekk út um áramótin. launapeilur Reykjavik.com ramb- ar á barmi gjaldþrots. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins skuldar fyrirtækið um 10 starfsmönnum hátt í 10 milljónir vegna vangold- inna launa. Blaða- mannafélag ís- lands mun vera með málið til skoð- unar, þar sem nokkrir starfs- mannanná eru fé- lagar í því. Þröstur Emilsson, fyrrver- andi ritstjóri Reykjavikur.com, staðfesti að hann hefði gengið út um áramótin, en hinir hefðu gert það í ÞRÖSTUR EMILSSON Ritstjóri Reykjavik- ur.com gekk út um áramótin. október. Nú væru tveir að vinna hjá fyrirtækinu miðað við 16 til 18 manns þegar mest var. Fyrirtækið Veraldarvefurinn hf. var stofnáð um rekstur Reykja- vikur.com í desember árið 1999. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins átti fyrirtækið í miklum rekstrarerfiðleikum á síðasta ári og ákváðu forráðamenn þess að skipta um kennitölu. Fyrirtækið Borgarvefurinn á nú og rekur reykjavik.com. Norðurljós hf., fyr- irtæki Jóns Ólafssonar, keypti þriðjungshlut í Veraldarvefnum fyrir um ári síðan. Einnig átti Jón Olafsson persónulega hlut í fyrir- tækinu, sem og Kaupþing í Lúxem- borg. Auk krafna starfsmanna upp á um 10 milljónir króna, mun fyrirtækið hvorki hafa greitt fé- lagsgjöld né í lífeyrissjóði síðan á fyrri hluta síðasta árs. Samkvæmt &SSS-3J k i{%lj hmti vip.nMtMi• Ww , & VEFSÍÐA REYKJAVIKUR.COM Luðvík Geirsson, formaður Blaðamannafélags (slands, sagði að innheimtuaðgerðír vegna vangoldinna launa hefðu ekki borið neinn árangur. --------laaaaagswt----------- ----------------------------------------------------------------------i---------------------------------------------- ..................... t. »» (« H (t L» »• H *« n n » H ** *’< n " "w&gait <W'' ‘laímnwtfainKÍuik' po>v«wfv.;rwit:*:'í’í«r.(íif’tS/AÚ. ‘ B., fM/rtoi.WíH-i,.. k V HaS.je, Vt'UT h CUy gic heimildum blaðsins munu skatt- greiðslur fyrirtæksins einnig vera í ólestri og það ekki greitt skatt síðan síðastliðið sumar. Lúðvík Geirsson, framkvæmda- stjóri Blaðamannafélagsins, sagði að félagið hefði staðið í innheimtu- aðgerðum fyrir fjóra starfsmenn reykjavik.com, en að þær hefðu ekki borið neinn árangur. Ljóst væri því að fara þyrfti lagaleiðina og að borgarfógeti myndi fá málið inn á sitt borð á næstunni. Hinir starfsmennirnir sem eiga inni laun hjá fyrirtækinu eru í öðrum stétt- arfélögum en Þröstur rekur mál sitt sjálfur. Borgaryfirvöld í Reykjavík munu lengi hafa haft áhuga á lén- inu Reykjavik.com. Samkvæmt heimildum blaðsins voru farnar af stað óformlega viðræður milli borgaryfirvalda og forráðamanna Reykjavikur.com síðastliðið sumar um kaup á léninu og fyrirtækinu. Nú þykir hins vegar ljóst að ekkert verði úr þeim viðskiptum, þar sem allt stefnir í að fyrirtækið lendi í málaferlum vegna vangoldinna launa og verði jafnvel tekið til gjaldþrotaskipta. trausti@frettabladid.is Samfylkingin í Reykja- nesbæ: Gefur kost á sér til að leiða listann áfram prófkjör Jóhann Geirdal, bæjar- fulltrúi Samfylkingar í Reykjanes- bæ hyggst gefa kost á sér til að leiða lista flokksins í bæjarstjórn- arkosningum í maí. Prófkjör vei’ð- ur haldið 23. febrúar nk. um sæti á lista flokksins. Frestur til að til- kynna þátttöku í prófkjöri rennur út á sunnudag. „Við teljum okkur eiga góða möguleika á að bæta við okkur“, segir Jóhann. „Við fengum fjóra bæjarfulltrúa síðast og telj- um okkur hafa forsendur til að bæta við þeim fimmta." ■ LYF Vísbendingar eru um að bólgueyðandi lyf, á borð við Ibufen, minnki líkurnar á alzheimer að sögn hollenskra lækna. Rannsóknir á alzheimer: Felst lækningin í bólgueyð- andi lyfíum? heilsa Von gaéti verið fyrir þá sem óttast að fá alzheimer. Hollenskir vísindamenn hafa fundið vísbend- ingar um, að bólgueyðandi lyf, á borð við Ibufen, minnki líkurnar á alzheimer. í könnun sem þeir gerðu kom í ljós, að líkurnar á því að fólk, sem tekið hafði lyfið í, að minnsta kosti, tvö ár, fengi alzheimer, voru einungis einn sjötti, samanborið við þá sem ekki höfðu tekið lyfið. í könnuninni, sem birt var í New England læknatímarinu, er bent á að ekki sé hægt að slá niðurstöðunum föstum. Fjöldi rannsókna væri þó hafinn. Þær miðuðu að því að kanna hvort bólgueyðandi lyf hefðu áhrif á þá, sem þegar hafa fengið alzheimer, eða eru í bráðri hættu við að fá sjúkdóminn. Gert er ráð fyrir að niðurstöður þeirra rannsókna verði afgerandi. Rann- sóknirnar endurspegla áhuga vís- indamanna á þeirri tilgátu að afar venjulegar bólgur geti verið und- irrót margra krónískra sjúkdóma á borð við alzheimer, hjartasjúk- dóma, beinþynningu og sykur- sýki. Bólgueyðandi lyf geti því gegnt stóru hlutverki í að koma í veg fyrir eða hægja á þessum sjúkdómum. ■ Húsnæðismál aldraðra: AOL Time Warner: LÖGREGLUFRÉTTIRl Hrafnista með stórhuga áform á Akureyri húsnæðismál Hrafnista hefur kynnt hugmyndir um byggingu þjónustusvæðis fyrir aldraóa á 10 hektara landi á Akureyri á næstu 10 til 15 árum. Á svæðinu er m.a. gert ráó fyrir hjúkrunar- heimili og fbúðum. Að sögn Guð- mundar Hallvarðssonar, for- manns Sjómannadagsráðs, mun þjónusta aldraðra verða í sér- flokki á Akureyri ef ráðist verð- ur í framkvæmdirnar. Rúv.is. greindi frá. ■ Höfðar mál á hendur Microsoft tölvur Fjölmiðlarisinn AOL Time Warner, hefur höfðað mál á hend- ur hugbúnaðarfyrirtækinu Microsoft fyrir að halda aftur af samkeppni. Að sögn fulltrúa AOL hefur Microsoft notað markaðs- ráðandi stöðu sína til að grafa undan Netscape-vafra fyrirtækis- ins. AOL-fyrirtækið fer fram á skaðabætur vegna málsins. Talið er að lögfræðikostnaður AOL vegna málshöfðunarinnar gæti numið milljörðum króna ákveði fyrirtækið að halda málinu til streitu. Hlutdeild Netscape á net- vaframarkaðnum er innan við 20%, en árið 1995 var hún rúm- lega 70%. Var Netscape vafrinn afar algengur á skjámynd tölva allt þar til Microsoft hóf innreið sína á markaðinn. í nóvember síðastliðnum komst Microsoft að samkomulagi utan réttarsalar við bandaríska dómsmálaráðuneytið og níu bandarísk fylki vegna ákæru um tilraun til einokunar. ■ BILL gates Enn og aftur er verið að höfða mál gegn Bill Gates og fyrirtæki hans Microsoft. Jeppi valt þegar ökumaður ók honum út af veginum á milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum í gær. Víða er bratt niður á þessari leið en bílstjórinn slapp vel þar sem hann fór ekki út af á hæsta stað. Talið er að blinda vegna éljagangs hafi or- sakað útafaksturinn. —+— Ungur maður sem handtekinn var í fyrradag ásamt öðrum manni eftir innbrot í verslunina Office 1 í Skeifunni hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæslu- varðhald. Hinum manninum var sleppt að loldnni yfirheyrslu. Mbl.is. greindi frá

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.