Fréttablaðið - 24.01.2002, Page 10

Fréttablaðið - 24.01.2002, Page 10
10 FRETTABLAÐIÐ 24. janúar 2002 FIIVHVITUPAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, t05 Reykjavlk Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: IP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS FLUGSTÖÐIN Bréfritari leggur ekki trúnað á að verri kjör fáist í fraktflugi með Bláfugli en Flug- leiðum og byggir á eigin reynslu. Gerir GO ísland byggilegt? Frá Einarí Guðjónssyni, innflytjanda. Kostulegt að sjá skrif frá Flug- leiðum Fragt í blaðinu [í fyrradag]. Lesendur mega vera vissir um að hefðu vínberin komið með Flugleiðum Frakt þá hefðu þau verið gömul og verið miklu dýrari. Neytendur mega því vera ánægðir, þrátt fyrir allt, hafi þau komið með Bláfugli. Rétt er hjá Pétri [J. Eiríkssyni] að hafi innflytjandinn skipt við Bláfugl þá hefur kynnt verð stað- ist. Öfugt við reynslu mína af Flugleiðum Frakt þar sem einu verði er lofað en allt annað og dýr- ara verð er rukkað. Þá eiga menn engra kosta völ og vara ekki af- hent nema að greiða það verð sem Flugleiðum Frakt dettur í hug að hækka „í hafi“. Neytendur geta þakkað Bláfugli og Cargolux (og EES samningnum) fyrir að fragtgjöld í flugi hafa lækkað stórkostlega síðan þeir rufu þá einokun sem Flugleiður höfðu á flugfragt. Á sama hátt geta neytendur þakkað GO flugfélaginu fyrir að gera ísland byggilegt." ■ Vond fákeppni og góð Eg veit ekki hvort það er vegna þess að þingmenn hafa stjórnar- skrárbundinn rétt til að segja ósatt, en ég efast alltaf um að þeir meini nokkuð með því sem þeir segja. í raun er fráleitt að gera ráð fyrir að þeir segi satt. Og jafnvel fyndið. Hvernig á til dæmis að skilja óttakast Davíðs Oddssonar í ræðupúltinu niður á þingi á þriðju- daginn? Tilefnið voru verðhækkan- ir sem Davíð taldi að mætti rekja til þess að stjórnendur verslunarkeðja stæðu ekki undir því valdi sem mik- il markaðshlutdeild færði þeim. Davíð var skapi næst að beita ríkinu fyrir sig og kljúfa þessar keðjur í herðar niður. Ef Davíð óttast mikil ítök eins fyrirtækis í matvælaverslun hlýtur að fara um hann hrollur þegar hann hugsar um fjármálamarkaðinn. Þar hefur ríkisvaldið ráðandi stöðu í gegnum eign sína í tveimur við- skiptabönkum. Sömu sögu er að segja um fjarskiptamarkaðinn; þar á ríkið fyrirtæki með drottnandi stöðu. Davíð vill reyndar selja þessi fyrirtæki öll, en alls ekki til að brjó- ta þau upp. Þvert á móti vill hann selja fáum sem mest. Drottnunar- staða er verðmeiri en veikari staða. Og Davíð vill fá sem mest fyrir þessi fyrirtæki. Ríkisvaldið er fyrirferðamikið á fleiri sviðum. Það er svo til einrátt í mennta- og heilbrigðisgeirunum. Það þarf ekki að teygja hugsun Dav- íðs langt til að komast að því að ein- mitt sú staða sé helsta ástæða þess Gunnar Smári Egilsson skrifar um ótta Davíðs Odssonar við 60 | prósent markaðshlutdeild. hversu slælega þjónustu þessi kerfi veita þrátt fyrir mikinn tilkostnað. Og hvað með eftirlitsbáknið? Það þenst út og leggur gríðarlegan kostnað á einstaklinga og fyrirtæki. Þar virðist drottnunarstaðan ekki kenna mönnum hófsemd. En kannski metur Davíð drottn- unarstöðu ríkisfyrirtækja og - stofnana öðruvísi en sterka stöðu einkafyrirtækja. Ef til vill finnst honum að einkafyrirtæki geti spillst en ekki ríkisfyrirtæki; að ríkið hafi gott eðli en einstakling- arnir verra. Annars myndi hann líklega snúa sér þeim sviðum sam- félagsins sem eru verr leikin af langvarandi fákeppni en matvæla- búðirnar. ■ Stjórnvöld mega gríp Öllum frjálst að keppa ÓLÍK SJÓNARMIÐ: Eiga stjórnvöld að kljuia markaðsráðandi fyrirtæki? í kjölfar hækkunar neysluverðsvísitölu hafa sjónir manna beinst að verðlagningu fyrirtækja, einkum á matvörumarkaði. Baugur er sterkast allra fyrirtækja á matvörumarkaði. Á Alþingi var samhljómur á milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að mögulega þyrfti að grípa inn í matvörumarkaðinn og hugsanlega skipta fyrirtækinu upp. að er náttúrlega ekki hægt að segja neitt um það hvort hið opinbera eigi að grípa inn í stöðu fyrirtækis á markaði, nema á grundvelli ein- hverra rann- sókna,“ segir Guð- mundur Olafsson, hagfræðingur. „Andstaða við það að menn skipti sér af markaðsráð- andi stöðu byggist á almennum sjónarmiðum sem ekki taka tillit til sérstakra aðstæðna. í Banda- ríkjunum þykir það sjálfsagt mál ef markaðshlutdeild fer yfir ákveðið stig, að auka mjög eftirlit með rekstrinum. Ég held að það sé fyrsta skrefið sem menn ættu að taka. Það að matvöruverð vegi minna í neysluvísitölunni í dag en fyrir nokkrum árum stafar af því að matvöruverð hefur verið að lækka í heiminum síðustu 200 ár. Verð hefur hins vegar verið að hækka mikið undanfarin þrjú ár, í engu samræmi við gengisbreytingar. Það þykir ekki goðgá í forystu- ríkjum markaðsbúskapar að skak- ka leikinn þegar menn eru komnir í þá aðstöðu að geta beitt bola- brögðum gegn almenningi. Ég ætla ekki að dæma um hvort að svo sé í tilviki Baugs. Þegar það er einsýnt að menn séu komnir í þessa aðstöðu, þá finnst mér lág- markið að eftirlit sé hert. Settir séu inn eftirlitsmenn frá ríkis- valdinu í fyrirtækin til að kanna stöðuna frá degi til dags á kostnað fyrirtækjanna. Til að tryggja að ekki sé verið að spenna upp verð- lag af óprúttnum aðilum í aðstöðu sem við viljum ekki að þeir séu í. Þegar markaðshlutdeild þrigg- ja aðila er komin í 80 - 90%, þá er ekki um það að ræða að menn séu í einhverju draumalandi þar sem lögmál frjálsrar samkeppni eru virk. Það heitir markaðsbrestur á máli hagfræðinnar. Við slíkar að- stæður þykir ekki óeðlilegt að rík- ið grípi inn í.“ ■ Ifyrsta lagi leikur vafi á því að það sem samkeppnisyfirvöld og stjórnvöld kalla markaðsráðandi stöðu sé í raun markaðsráðandi staða, segir Birgir Þór Runólfsson, hagfræðingur. „I öðru lagi, ef að svo er, getur eitthvert stjórnvald sagt til um það hvenær menn eru að nota þá stöðu á óeðlilegan eða eðlilegan hátt. Menn myndu vera mjög ósam- mála um aðferðina við að reyna að meta það. Á Alþingi standa menn upp og segja: Hagið þið ykkur eins og við viljum. Hafið það verð sem við vilj- um, annars hirðum við af ykkur eignirnar. Þetta er stórhættulegt. Á annan veginn er verið að skamma Baug fyrir að níðast á heildsölun- um. Það gera þeir til að fá þá til að lækka verðið til sín. Á hinn veginn er verið að skamma þá fyrir að selja vöruna of dýrt. Það er ekkert að því að menn hagnist á því að vera með lægsta verðið á markaðnum. Segjum svo að ég sé með lítið fyrirtæki og varan sé ódýrust í því fyrirtæki og jafnframt að skila mestri framlegð. Á að banna slíkt? Ef svarið er nei. Af hverju ættu menn þá að banna slíkt þegar fyrir- tæki er orðið stórt? Það sem gildir á opnum markaði er að ef að menn eru að misnota að- stöðu sína, þá opnast rými fyrir nýja aðila á markaðnum. Það getur hver sem er opnað matvöruverslun, bæði innlendir og erlendir aðilar, án stórkostlegrar fjárfestingar. Það má heldur ekki gleyma því að Baugur á í samkeppni meðal annars við Kaupás sem er meðal annars í eigu Landsbankans. Þar fyrir utan er markaðshlutdeild þeirra 60% í Reykjavík, en þegar önnur svæði eru tekin inn i er hún mun minni. Að mínu mati eru þær umræð- ur um afskipti stjórnvalda af Baugi sem fóru fram á Alþingi hrein vitleysa frá sjónarhóli hag- fræðinnar." ■ ———- 7— — | KVIODOMUMNNr okiptir mali ao hala íslenskt sendiráð í Japan? íslendingar opnuðu sendiráð í Japan í lok síðasta árs. Kostnaður við stofnun þess er rúmar 700 milljónír króna. Árlegur rekstrarkostnaður er tæpar 100 milljónir. Sendiráðinu er ætlað að efla samskipti og viðskipti fslendinga og Japana. Auk sendiherra er víðskíptafulltrúí starf- andi í sendiráðinu. GUNNAR ÖRN KRISTJÁNSSON FORSTJÓRl SÍF KRISTÍN ÍSLEIFSDÓTTIR, MYNDLISTARMAÐUR OG HÖNNUÐUR GUNNAR HELGI KRISTINSSON, STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR SIGTRYGGUR R. EYÞÓRSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI XCO BOGI PÁLSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI P. SAMÚELSSON Sita Þakniðurföll Eigum á lager þakniðurföll, með eða án hita. Með mismunandi dúkum til álímingar eða suðu VA rNSVMKINN eht. Ármúla 21, Sími: 533-2020 Eru sjálfum sér nógir „Það er engin reynsla komin á þessa starfsemi. Ég reikna ekki með að stóru íslensku útflutningsfyrir- tækin muni nýta sér starfsemi sendiráðsins að neinu marki. Við erum sjálfum okkur nógir. Mik- ilvægi persónulegra sam- skipta fer eftir löndum og menningu. Ég geri ráð fyrir að persónuleg sam- bönd sendiherra í Japan séu mikilvægari en í lönd- um í Evrópu. í ríkjum þar sem ríktu einræðisstjórn- ir, eins og á Spáni og í Portúgal var mikilvægi utanríkisþjónustu mun meira en það er í dag.“ ■ Grundvöllur fyrir öflug samskipti „ísland er fremur ein- angrað í menningarlegu tilliti og tækifæri fyrir ís- lenska listamenn fá. í Asíu eru nánast engin tækifæri fyrir íslenska listamenn. Með því að opna sendiráð í sterkasta landi í Asíu ætti að vera I hægt að láta reyna á | hvort ekki megi koma ís- I lenskri menningu á fram- j færi. ísland og Japan eiga I ótrúlega margt sameigin- | legt þó langt sé á milli f þjóðanna. Japanir eru I mjög opnir og jákvæðir í j garð íslendinga. Það eru í engir atburðir í sögunni | sem skyggja á samskipti I þessara þjóða og því ætti > að vera góður grundvöllur I fyrir öflug samskipti." ■ Samskiptin eru mikilvæg „Þegar menn eru að agnúast út í kostn- að við stofnun sendiráða, þá eimir eftir af þeim hugsunarhætti að ís- lendingar þurfi ekki neina utanríkisþjónustu. Það held ég að sé mikill mis- skilningur. Þegar við- skipti af öllu mögulegu og ómögulegu tagi eru vax- andi, þá er utanríkisþjón- ustan mikilvægari en nokkru sinni áður. Ég hef ekki nokkra trú á að net- samskipti sem eru fín og gagnleg, komi nokkru sinni í staðinn fyrir venjuleg mannleg sam- skipti, augliti til auglitis." Góð íjárfesting „Ég tel að starfsemi sendiráðs í Japan sé mjög mik- ilvæg fyr- ir hags- muni smærri út- flytjenda. Markaðsstarf og aðstaða eru dýr í landinu og ekki á færi nema stær- ri fyrirtækja. Ég hef góða reynslu af aðstöðu sendi- ráðsins í Kína sem hefur skilað góðum árangri. Ég tel að sendiráð í Japan muni gera slíkt hið sama. Líta verður á stofnkostn-_ aðinn sem fjárfestingu. Ég vænti þess að kostnaður við rekstur sendiráðsins muni skila sér og vel það í gegnum viðskipti íslend- inga við Japani." ■ Hlýtur að ráð- ast af árangri „Sendiráð í Japan snertir lít- ið okkar starfsemi, enda eru okkar samskipti við höfuð- stöðvar Toyota í Evrópu. Markmið þessa sendiráðs er frekar fyrir þá sem eru | að reyna að fóta sig með ; útflutning til Japan. Það er mjög erfitt að meta hvort sendiráðið er fjár- munanna virði og hlýtur að fara eftir því starfi sem það skilar. Gagnrýni á þetta sendiráð hlýtur að | beinast að því hvort und- irbúningur hafi verið | nógu góður og hvort Imenn hafi sett sér skýr markmið áður en ákvörð- un var tekin.“ ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.