Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.01.2002, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 24.01.2002, Qupperneq 18
18 FRETTABLAÐIÐ 24. janúar 2002 FIIVIIVITUPAGUR Kvikmyndaklúbburinn Filmundur: Náin kynni tveggja ókunnra NÁIN KYNNI Patrice Chéreau, vann Cullbjörninn fyrir leik- stjórn myndarinnar Intimacy og einnig má geta þess að myndin var tilnefnd til Evrópsku kvik- myndaverðlaunanna sem besta myndin. Á HVAÐA TI'MUM LIFUM VIÐ? Nýir tímar Við lifum é nýjum tímum. Orri Vésteinsson fornleifafræðingur kvikmynp Kvikmyndaklúbburinn Filmundur sýnir í kvöld frönsk/ensku myndina Intimacy sem leikstýrð er af Patrice Chér- eau. Myndin er rheð erótísku yfir- bragði og vakti hún mikla athygli þegar hún var frumsýnd í Evrópu fyrir opinskáa kynlífsumfjöllun. Þykja kynlífsatriðin á köflum vera á mörkum velsæmis og hef- ur myndinni verið líkt við Last Tango in Paris. Handritið er unn- ið í samstarfi við breska rithöf- undinn Hanif Kureishi og byggir á tveimur sögum eftir hann, skáldsögunni Intimacy og smá- sögunni Nightlight úr smásögu- safninu Love in a Blue Time. Skáldsagan Intimacy er mörgum landsmönnum að góðu kunn, en hún var gefin út hér nýlega undir nafninu Náin kynni. Fylgst er með pari sem hittist vikulega á sama tíma og sama stað og hefur samfarir. Það er engan veginn ljóst hvernig þetta samband hefur komið til og þekkjast þau ekkert og vita ekk- ert um hvort annað. Með aðal- hlutverk fara Mark Rylance og Kerry Fox, sem vann til verð- launa á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrir leik sinn. Þar vann leikstjórinn Patrice Chéreau ein- nig Gullbjörninn og einnig má geta þess að Intimacy var til- nefnd til Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna sem besta myndin. Filmundur hefur fjölgað sýn- ingartímum um helming og sýnir nú á miðvikudagskvöldum kl. 20.00, síðan sýndar á fimmtu- dagskvöldum kl. 22.30, sunnu- dögum kl. 18.00 og mánudags- kvöldum kl. 22.30. Sem fyrr fara sýningar fram í Háskólabíói. ■ 25% afsl. á hársnyrtistofu 10 tíma Ijósakort á 3900. Hársnyrtistofa opin til 22.00 WINK HÁR & SÓL Smiðjuvegi 1, s. 5444949 CAFÉ PREST0 þar sem hressa fólkið hittist. Margrómaðar súpur og hád. réttir v. daga kl. 12-14 Opið virka daga 10-23, laug.-sunnd. 12-18 HLfÐASMÁRA 15 Sími 555 4585 Harmræn dramatík á tónleikum sinfóníunnar Hörmungaratburðir heimstyrjaldarinnar síðari eru yrkisefni tónskáldanna sem eiga verk á tónleikum í kvöld. Þar ber hæst „Babí Jar“ sinfónía Dimitrí Sjostakovitsj. tónleikar Harmur og dramatík einkenna stórtónleika Sinfóníu- hljómsveitar íslands í kvöld. Verkin á efnisskránni eru túlkun stórbrotinna tónskálda á voða- verkum heimstyrjaldarinnar síðari. Fyrsta verk tónleikanna er Eftirlifandinn frá Varsjá eftir Arnold Schönberg. Verkið er samið fyrir sögumann karlakór og hljómsveit og greinir frá sönnum atburðum af hörmung- um gyðinga í gettóinu í Varsjá. Annað verkið birtir sýn pólska tónskáldsins Krzystof Pender- ecki á hörmungar sprengjunnar í Hírósíma. Þetta eru hvorttveg- gja mögnuð verk. Að þeim ólöstuðum er lokverk tónleikanna jafnframt hápunktur þeirra. Þá verður flutt 13. sinfónía Sjostakovitsj, „Babí Jar“ fyrir bassasöngvara, karlakór og hljómsveit. Með Sinfóníuhljómsveit ís- lands koma fram á tónleikunum Karlakórinn Fóstbræður, Ólafur Kjartan Sigurðarson sem er sögumaður í verki Schönbergs og rússneski bassasöngvarinn Gleb Nikolskíj. Babí Jar er sam- in við ljóð Jevgení Jevtúshenko sem fjallar um atburði sem urðu í dalnum Babí Jar í Úkraínu. Þar myrtu Þjóðverjar 100 þúsund manns, flesta gyðinga, árið 1941. Árni Harðarson, stjórnandi Fóstbræðra, segir þetta verk lit- að dökkum tónum og mjög dramatískt. Tónsvið kórsins sé mestallt á sviði bassaraddar, enda þótt tenórarnir syngi með til fyllingar. „Verkið endur- speglar vel rússneska þjóðarsál. Það sveiflast milli mikillar dramtíkur með miklu slagverki og mýktar og hlýju. Mikil dýpt og kraftur og svo þunglyndisleg- ur harmur. Hann er náttúrlega snillingur í að skrifa fyrir sin- fóníuhljómsveit." Árni segir að það sé geysilega spennandi að takast á við þessi verk. Efnis- skráin sé vel saman sett og spennandi að setja saman tón- leika þar sem ákveðið þema HÖRMUNCAR STRÍÐS Tónverkin á sinfóníutónleikum í kvöld eru dramatísk og tjá bæði angist og sorg vegna gjörða mannkyns. Mannmargt er á sviðinu þar sem hljómsveitin er í stærra lagi, auk þess sem karlakórinn Fóstbræður syngur með hljómsveitinni. gangi í gegnum verkin. „Alla- vega er slíkt ákaflega vel heppn- að í þessu tilviki." Árni segir að bassasöngvar- inn sé fyrsta flokks maður og lofar góðum tónleikum. Pólski hljómsveitarstjórinn Jerzy Maksymiuk stjórnar hljómsveit- inni á tónleikunum í kvöld. haflidi@frettabladid.is Uppistand á Sportkaffi í kvöld kl. 22 Þorsteinn Guðmundsson og Sigurjón Kjartansson verða með uppistand á Sportkaffi, Þingholtsstræti 5, í kvöld Aldurstakmark 20 ár. Aðgangseyrir* 1000 kr. enginn símreikningur! www.sportkatfi.is TALsmenn fá 20% afslátt af miðaveröi og betri kjör á barnum! FIMMTUDACURINN 24. JANÚAR FUNDUR______________________________ 12.05 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, heldur í dag erindi á vegum stjórnmálafræðiskorar Há- skóla (slands. Umræðuefnið er: Lífsgæði og samkeppni í borg framtíðarinnar. Fundurinn er haldinn f Odda, stofu 201 ,og stendur til kl. 13.00. 12.30 Tílraunastöðin að Keldum held- ur fræðslufund í dag. Fyrirlesari er Benedikta S. Hafliðadóttir, líf- fræðingur, fjallar um: Gerð hjúppróteins mæði-visnu- veirunnar. Fundurinn er haldinn í bókasafni Kelda sem staðsett er í húsið númer tvö. LEIKLIST____________________________ 20.00 Cyrano - Skoplegur hetjuleikur eftir Edmond Rostand verður sýndur í kvöld á Stóra sviði Þjóð- leikhússins. Nokkur sæti laus. 20.00 Leikritið Fyrst er að fæðast eftir Line Knutzon verður sýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins. Örfá sæti laus. TÓNLEIKAR___________________________ 19.30 Sinfóníuhljómsveit íslands held- ur tónieika í kvöld i Háskólabíói. Með hljómsveitinni koma fram Karlakórinn Fóstbræður og rúss- neski bassasöngvarinn Gleb Nikolskíj. Hljómsveitarstjóri er Jerzy Maksymiuk. Yfirskrift tón- leikaanna er Sigur andans. SKEMMTANIR______________________ 22.00 Hljómsveitin Gras leikur í kvöld á veitingahúsinu Vídalín við Ing- ólfstorg. 21.00 Sigurjón Kjartansson og Þor- steinn Guðmundsson halda áfram með uppistand á Sport- kaffi f kvöld. Aðgangseyrir er 1000 krónur og aldurstakmark 20 ár. Allir sem eiga fyrir þvi að borga sig inn sérstaklega velkomnir. 22.00 Hljómsveitin Útrás leikur í kvöld á Gauki á Stöng. Hljómsveitina skipa Sigursteinn, söngur, Atli, gít- ar, Olgeir bassi og Guðjón tromm- ur. SÝNINCAR___________________________ Fellingar heitir sýning um sögu Eyglóar Harðardóttur sem stendur yfir í Þjóðar- bókhlöðunni. Það er Kvennasögusafnið sem setur sýninguna upp .Opnunartimi Kvennasögusafnsins er milli klukkan 9 og 17 alla virka daga. Handritasýning í Stofnun Árna Magn- ússonar, Arnagarði við Suðurgötu. Handritasýning er opin kl. 14-16 þriðju- daga til föstudaga. Sýningin Landafundir og ragnarök stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er samstarfsverkefni við Landa- fundanefnd og fjallar um landafundi og siglingar íslendinga á miðöldum með áherslu á fund Grænlands og Vínlands. MYNDLIST___________________________ Finnska listakonan Helena Hietanen sýnir skúlptúra gerða úr Ijósleiðurum í i8galleri. Sýningin stendur til 3. mars. Safnið er opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13 till7. í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi sýnir þýski listamaðurinn Bernd Koberl- ing olíu- og vatnslitamyndir sem hann hefur unnið fráárinu 1988, m.a. hér á landi. Kjarvalsstaðir eru opnir alla daga 10-17 og miðvikudaga 10-19. Sýningin stendur 3. mars. Tilkynningar sendist á netfangið ritstjorn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.