Fréttablaðið - 31.01.2002, Page 10

Fréttablaðið - 31.01.2002, Page 10
FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Cunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Cunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Sfmbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: (P-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgaisvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendmgarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta alft efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Mikið ósköp er gaman að fylgj- ast með íslenska landsliðinu í handknattleik. Ég hef yfirleitt ekki gaman af því að fylgjast með íþróttum. Þeir sem fara í fylking- arbrjósti í þessari erfiðu keppni hafa vakið aðdáun mína. Leikgleði og hreysti skín af þeim öllum. Það er von mín að þeim takist að vinna marga aðra góða sigra. Ég hef heyrt að handknatt- leikshreyfingin standi illa hvað fjárhag varðar. Með framgöngu sinni nú þykir mér rétt að staldr- að sé við og athugað hvort al- menningur, fyrirtæki og hið opin- bera eigi ekki að sýna velvilja sinn í verki og styrkja handknatt- leiksfólk til frekari dáða. ■ Afram Island Geir skrifar.: | BRÉF TIL BLAÐSINS 10 23. janúar 2002 MIÐVIKUDAGUR Langt í land hjá Birni að verður ekki létt verk fyrir sjálfstæðismenn að fella meirihluta R-listans í vor. Niður- stöður skoðanakönnunar Frétta- blaðsins, sem birtar voru á þriðjudaginn, sýna að þótt sjálf- stæðismenn hafi loks fundið sér foringja, þá er þar vart hálfur sigur unninn. Ef sjálfstæðismenn eiga að ná meirihluta í borgar- stjórn þurfa þeir að höfða langt út fyrir sínar raðir. Til þess þarf meira en sátt innan flokksins. í síðustu alþingiskosningum fékk Sjálfstæðisflokkurinn 45,7 prósent atkvæða í Reykjavík. Ef flokkurinn vill ná meira en 50 pró- sent fylgi í borgarstjórnarkosn- ingum þarf hann því að stilla upp foringjum, lista og málefnum sem ná út fyrir náttúrulegt fylgi flokksins. Þetta tókst flokknum lengst af á 20. öld. Sjálfstæðis- menn í Reykjavík stóðu heilir á bak við borgarstjóraefni sín. Póli- tík þeirra í borginni var nær miðj- unni í stjórnmálum en sú pólitík sem flokkurinn rak í landsmálum. Andstæðingar flokksins voru nokkrir smáir flokkar án sam- stæðrar forystu. í dag er staðan önnur. Þótt and- stæðingar sjálfstæðismanna séu ef til vill ekki frekar samstiga nú en áður þá deila þeir ekki um for- ingja sinn, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Hún nýtur almennra vinsælda borgarbúa og er líklega næst vinsælasti stjórnmálamaður landsins á eftir Davíð Oddssyni forsætisráðherra. Sjálfstæðis- menn hafa hins vegar átt í ^angaYdía Gunnar Smári Egilsson skrifar um borgarstjórnarkosning- arnar og niðurstöður skoðana- könnunar Fréttablaðsins. langvarandi forystuvanda í borg- inni. Stjórnarandstaða þeirra hef- ur verið álíka veik og stjórnarand- staða Samfylkingarinnar á þingi. Þótt þeim hafi tekist að draga fram veikleika R-listans þá hefur þeim ekki tekist að sannfæra fólk um að þeir myndu fara betur með völdin. En það hlýtur að vera meg- inmarkmið stjórnarandstöðu. Ef sjálfstæðismenn vilja eygja von um sigur í vor verða þeir því að stilla upp fólki á lista sem höfð- ar út fyrir raðir flokksins. Þeir þurfa að vinna trúverðuga stefnu- BJÖRN BJARNASON Hann vantar menn og málefni sem höfða út fyrir Sjálfstæðisflokkinn. skrá um verkefni borgarinnar næstu árin. Og áhersluröð þeirra verkefna verða að eiga sér góðan hljómgrunn meðal borgarbúa. ■ KVIÐDÓMURINN Hagfræðistofnun Háskóla fslands hefur, að beiðni Verslunarmannafélags Reykja- víkur, samið skýrslu þar sem kynntar eru umfangsmiklar breytingar á skólakerf- inu. Breytingarnar fela í sér þrjár leiðir: Að nám í grunnskóla hefjist ári fyrr og Ijúki ári fyrr. Lengingu skólaársins og stytta námstíma í framhaldsskóla um eitt ár. Samkvæmt skýrslunni yrði töluverður þjóðhagslegur ávinningur af breytingunum. Auk þess sem ævitekjur og lifsgæði fólks ykjust. SVERRIR HERMANNSSON FORMAÐUR FRJÁLSLYNDA FLOKKSINS Var stefna mín auna sem hag- fræðistofnun beiðni VR. Ég get þó sagt að þegar ég var menntamálaráðherra, hafði ég sem stefnu að þetta ætti að taka upp. Lengja ætti skólaárið og stytta námstímann til samræmis við það sem er meðal annarra þjóða. Að sjálfsögðu myndum við beita okkur fyrir þessu máli.“ ÓLAFUR ÖRN HARALDS- SON FORM. FJÁRLAGANEFNDAR Otímabært en má skoða „Mér finnst að það megi vel skoða þessar hugmyndir. ís- lenskt samfé- lag er að þró- ast til svipaðr- ar áttar og í nágrannalönd- unum. Hins vegar held ég að við eigum ekki að flýta okkur við þetta. Mér sýnist að þátttaka í atvinnulífinu og gömul og góð gildi sem við erum alin upp við séu verðmæti sem við eigum ekki að kasta frá okkur. Við hljótum að skoða þess- ar hugmyndir í ljósi þess hvernig samfélagið þróast. Það kæmi mér ekki á óvart að þessu kæmi innan ekki langs tíma. Eins og er tel ég að þetta sé ekki tíma- bært.“ ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR SJÁLFSTÆÐISFLOKKI Spyrjum hvað má betur gera efíiahagslegu staðreyndir. Breyting á skólafyrirkomulagi verð- ur samt ekki metin út frá því einu saman. Ég tel að við eigum að taka þær skýrslur sem lagðar hafa verið fram eins og Pisa- skýrsluna og meta ís- lenskt skólastarf. Spyrja okkur hvað við séum að gera vel og hvað mætti gera betur. Það kæmi mér ekki á óvart að við mynd- um komast að þeirri nið- urstöðu að við ættum að stytta námið fram að stúdentsprófi. “ KOLBRÚN HALLDÓRS- DÓTTIR VINSTRI-GRÆNUM Efniviður í umræður „í skýrslunni er efniviður í gagnlegar umræður. Mín fyrstu við- brögð eru því afar jákvæð. Það er löngu tímabært að tekið sé almennilega, af dýpt og visku, á þessu máli. Eg tel, hinsvegar, að í skýrslunni sé einblínt full mikið á efnahagsleg- an ábata. Skoða mætti betur þætti á borð við skólastarf og hugmynda- fræði. VR hefur, með skýrslunni, sýnt ákveðið frumkvæði. Nú kemur að stjórnmálamönnum. Okk- ur ber að standa vörð um menntastefnuna og einnig að þróa hana áfram." EINAR MÁR SIGURÐAR- SON SAMFYLKINGUNNI Ekki næg niðurstaða „Ég tel þær hugmyndir sem fram koma í skýrls- unni, um að stytta leiðina að lokum framhaldsskólanáms, og nálgun þeirra áhugaverð- ar. Um er að ræða einn þátt málsins sem ekki er næg niðurstaða ein og sér. Hugmyndirnar þarf því að skoða í víðtækara sam- hengi í samráði við aðra hópa og fagstéttir. Meðal annars, hver þeirra leiða sem kynnt var, sé vænleg- ust. Mikilvægast er að verið er að hreyfa við þessu máli. Stytting námstímans er ekki ein- göngu mikilvæg vegna þjóðhagslegs ábata.“ ISAL auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði umhverfismála og rannsókna á náttúru íslands. Upphæð styrksins er 1.200.000 kr. og verður hann veittur næsta vor í einu lagi eða honum skipt á milli fleiri verkefna. Umsóknir ásamt greinargerð skal senda til ISAL, í pósthólf 244, 222 Hafnarfirði fyrir 22. febrúar 2002. ISAL ISAL er hluti af ALCAN samsteypunni ORÐRÉTTj LÁTTU EKKI SVONA, HALLDÓR „Hæstvirtur forseti. Nú held ég að sé rétt að fara að horfa á handbolta." Guðní Ágústsson, landbúnaðarráðherra, við lok utandag- skrárumræðu um lóðasölu meðan útsend- ing RÚV frá leik íslands og Frakklands í EM stóð yfir. VINSTRI GRÆN VIÐSKIPTA- FRÆÐI „Landssíminn á að hætta að veðja á ranga hesta.“ Jón Bjarnason, alþingis- maður um tap Símans á netfjarskiptafyrirtækinu @IPbell. DV, 29. janúar. SAIVIA HVAÐAN GOTT KEMUR „Því er heldur varla mikill grund- völlur fyrir starfse- mi félags, sem á tilvist sína undir því að félagsmenn losni ekki við félagsgjaldið með því að segja sig úr félaginu." Jón Steinar Gunnlaugsson lýsir stuðn- ingi við frumvarp Samfylkingarþingmann- anna Marðar Árnasonar og Ástu R. Jóhannesdóttur um afnám gjalda til trúfélaga á menn utan trúfélaga. Mbl, 30. janúar. ÞESS VEGNA VARÐ JAFNTEFLI „Fyrir utan það var boltinn svo ■ aia .... o ^ mt lélegur að nærri því hefði eins mátt reyna að spila með sjnóbolta.“ Guðmundur Hrafn- kelsson markvörður í Morgunblaðinu eftir að hafa gert jafntefli við Ftakka. ÓDÝRT EN GOTT RÁÐ „Ég legg til að allir sem hyggja á hjónaband leggist í langferð í bíl.“ Jim Rogers, bandarískur auðkýfingur, sem ók um heiminn I tvö ár ásamt konu sinni. MAÐUR í A/IANNS STAÐ? „Klúður sjálfstæð- ismanna styrkir Reykjavíkurlist- ann og Björn mun hverfa úr embætti menntamálaráð- herra. Þar stendur eftir óglæsileg staða.“ Ágúst Einarsson prófessor á agust.is. NOKKUÐ HEILBRIGÐUR „Ég reyki ekki og kaupi fátt fyrir sýningu þannig að þetta slítur bara í sundur þá annars góðu skemmtun að fara í bíó.“ Björn Brynjólfur Björnsson í DV að tala um hvort sleppi megi að hafa hlé $ bíósýningum. 31 "aaLtí 'iií'io iBnðr' tcbi'Uis

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.