Fréttablaðið - 31.01.2002, Side 11

Fréttablaðið - 31.01.2002, Side 11
FIMMTUDAGUR 31. janúar 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 11 Viðurkenna að hafa of mörg börn: Dagfaðir segist saklaus HÉRAÐSDÓMUR REYKJANES Ákæra gegn dagforeldrum úr Kópavogi var þingfest I gær. dómsmál Maðurinn sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi með því að hafa hrist ungabarn ógæti- lega lýsti sig saklausan af ákærunni við þingfestingu máls- ins í gær. Maðurinn og kona hans viður- kenndu hins vegar að hafa haft fleiri börn í gæslu en þau höfðu leyfi fyrir. Þau sögðust þó telja ákæruna hvað þetta atriði snertir aðeins að hluta til rétta. Ekki sé rétt að ákæra þau samkvæmt 187. grein hegningarlaga eins og gert sé. Þau sögðust mundu skýra sjón- armið sín hvað það snertir þegar málið verður tekið til aðalmeð- ferðar. Það verður gert 15. febrú- ar nk. í ákæruskjalinu kemur fram að níu mánaða drengur sem fólkið hafði í gæslu lést af innri áverk- um í höfði í byrjun maí í fyrra eft- ir að hafa verið hristur eða veittir þeir áverkar á annan hátt. Samkvæmt ákæruskjalinu voru á bilinu 7 til 15 fleiri börn í gæslu hjá fólkinu en þau ellefu sem það hafði leyfi fyrir. í janúar 2001 voru börnin alls 18. I apríl, um þær mundir sem drengurinn lést, voru börnin orðin 26. ■ Bandaríski Seðlabankinn: Vextir ekki lækkaðir vextir Bandaríski Seðlabankinn ákvað i gærkvöldi að lækka ekki skammtímavexti. Sú ákvörðun er talin marka endalok mikilla vaxta- lækkana sem bankinn hefur sam- þykkt á undanförnum mánuðum. Skammtímavextir sem bankinn ákveður eru nú 1,75%. Þeir hafa ekki verið lægri frá 1961. Fyrir ári síðan voru vextirnir 6%. Eftir það fór Seðlabankinn að lækka vextina jafnt og þétt þar til þeir náðu lág- marki í síðasta mánuði. í yfirlýs- ingu bankans um að vextir skyldu standa í stað mátti þó lesa vísbend- ingar um að vaxtalækkun sé hugs- anleg á næstunni. ■ Bretland: Barni hent sipcup. kent Líki barns, sem fæðst hafði fyrir tímann, var í misgán- ingi fleygt í óhreinatauið á spítal- anum og sett í suðuþvott, sam- kvæmt fréttavef Sky. Barnið, sem var drengur, fæddist sautján vik- um fyrir tímann, á spítala í Kent, Englandi. Hann lést stuttu eftir fæðingu. Þegar útfaraþjónusta hugðist sækja barnið, fannst það hvergi og hófst þá umfangsmikil leit. Drengurinn fannst morgun- inn eftir á færibandi þvottahúss spítalans. Virðist vera sem að lík drengsins hafi týnst í haug af óhreinum þvotti, eftir að farið hafði verið með það í líkhúsið. Spítalinn hefur beðið foreldrana afsökunar á atburðinum. Þegar hafi verið gerðar breytingar á vinnubrögðum svo atburður sem þessi hendi ekki aftur. ■ ÓLAFUR MAGNÚS BIRGISSON Sveitarstjórinn á Tálknafirði. Hreppsnefnd Tálknaíjarðar: Hefur áhyggjur af sölu Bjarma tálknafjörður Hreppsnefnd Tálknafjarðar lýsir yfir áhyggj- um sínum vegna fyrirhugaðrar sölu á dragnótarskipinu Bjarma BA 325 sem hefur verið auglýst- ur til sölu með öllum veiðiheim- ildum. Hreppsnefndin átti fund með Níels og Hlyni Ársælssonum hjá útgerðarfélaginu Tálkna ehf. sem gerir út Bjarma. Þar var far- ið yfir stöðu mála og að viðræð- um loknum samþykkti hrepps- nefndin samhljóða ályktun þar sem hún lýsir yfir áhyggjum yfir því atvinnuástandi og byggðar- röskun sem skapast gæti ef Bjarmi verður seldur úr byggð- arlaginu ásamt öllum veiðiheim- ildum. Að sögn Ólafs Magnúsar Birg- issonar, sveitarstjóra á Tálkna- firði, er verið að vinna í málinu en þær Ársælsbræður gátu ekki gefið neina skýra afstöðu. „Þeir eru að reyna að selja skipið en vilja leita allra leiða til að halda því í byggðinni. Við bíðum bara í von og ótta en þetta á víst að skýrast nánar eftir helgi.“ ■ Áfram íslandt Snorrabraut sAMwám, Með sisri í dae förum við alla leið! Island - Þýskaland Tímaritið Sportlíf býður til handbolta- veislu á risatjaldi r A ■ ■ I r r • i SAMbioinu Snorrabraut kl. 1900

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.