Fréttablaðið - 05.02.2002, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
5. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
VEXTIR ERU LANGHÆSTIR Á ÍSLANDI
Neðangreindur samanburður á vöxtum
innan OECD er frá árinu 2000, en hlutföll-
in hafa lltið breyst síðan þá. Langtímavextir
hér eru um rúm 11% auk þess sem verð-
bólga hefur verið mun hærri en nágranna-
löndunum. Mánaðarlegir vextir af tveggja
milljóna kr. skuld eru um 10 þúsund krón-
um hærri hérlendis en I nágrannalöndun-
8 10
12
—i
ísland 11,7
Kórea 7
Noregur 6
Frakkland 5,5
Holland 5
Svlþjóð 4,9
Sviss 3,5
Heimild: www.agustis
BOBBY FISCHER
Nigel Short segir dularfulla taflmanninn
hafa teflt eins og Fischer og verið stórskrít-
inn eins og hann.
Ummæli Fischers í
Sunday Times:
Short biðst
afsökunar
skák Sunday Times segir frá því að
Bobby Fischer hafi neitað að hafa
teflt við breska stórmeistarann
Nigel Short á Netinu í símaviðtali
sem Egill Helgason tók við hann í
þættinum Silfur Egils á Skjá einum
fyrir skömmu. Nigel Short sagðist
hafa teflt við Fischer á Netinu á
síðasta ári og byggði grun sinn á
leikaðferð skákmannsins, sem
óskaði nafnleyndar. Hann sagði að
rússneski stórmeistarinn Boris
Spassky hefði tekið undir getgátur
sínar.
Fischer hefur ekki spilað opin-
berlega í nær tíu ár. Egill Helgason
spurði hann út í þær sögusagnir, að
hann væri að tefla á Netinu, m.a.
um umræddar skákir við Short.
Fischer neitaði þessum sögusögn-
um og sagði þær vera algjört
kjaftæði og gyðingalýgi. Aðspurð-
ur um orð Short sagði Fischer að
hann gæti sagt það sem hann vildi.
f viðtali við Sunday Times sagði
Short að hann hefði að öllu líkind-
um rangt fyrir sér. „Fyrirgefiði,"
sagði hann en fýsti að vita hver
plat Fischer væri. ■
Átök á Gasasvæðinu:
GA5ABORG, CASASVÆÐINU.AP Fjórir
Palestínumenn létust og einn
maður særðist alvarlega þegar
bifreið þeirra sprakk á suður-
hluta Gasasvæðisins í gær.
Palestínumenn sögðu ísraela
hafa skotið eldflaug á bílinn.
Skömmu áður skutu herþyrlur
ísraela eldflaugum á tvær verk-
smiðjur í borginni Jabalya,
norður af Gasasvæðinu þar sem
ísraelar töldu að vopnafram-
leiðsla hafi farið fram. Jasser
Arafat, leiðtogi Palestínu, sak-
aði ísraela um að reyna að spilla
friðarferlinu. „ísraelsk stjórn-
völd vilja ekki að ró komist á.
Þau ættu aftur á móti að vita að
Palestínumenn verða ekki
brotnir á bak aftur,“ sagði Ara-
fat eftir dauða Palestínumann-
anna.
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra ísraels, ætlar á morgun að
ræða við George W. Bush, for-
seta Bandaríkjanna, í Hvíta hús-
inu um deilurnar fyrir botni
Miðjarðarhafs. ■
BJÖRGUNARAÐGERÐIR
Fjölmargir Palestinumenn reyndu
hvað þeir gátu til að bjarga því sem
bjargað varð eftir eldflaugaárásina á
verksmiðjurnar í gær.
Samkeppnisráð:
Blómabúð
breyti nafni
samkeppnismál Samkeppnisráð hef-
ur mælt fyrir um að blómabúðin
Blóm og list leggi af nafn sitt. Nafn-
ið þykir of líkt nafni annarrar
blómabúðar sem starfað hefur
nokkrum mánuðum lengur. Sú heit-
ir Blóm er list. Báðar eru í Linda-
hverfi í Kópavogi. „Nöfnin eru það
lík að það er mat samkeppnisráðs að
nafnið Blóm og list gefi í skyn að
þar sé um að ræða sömu blóma-
verslun og hjá kvartanda eða a.m.k.
nátengdan rekstur. Þá starfa fyrir-
tækin í sama hverfi og höfða til
sama markhóps. Er því að mati
samkeppnisráðs veruleg hætta á að
neytendurf...] villist á nöfnunum." ■
Slökkvilið ber ábyrgð
á áfallastreituröskun
Slökkviliðið á ísafirði bakaði bænum skaðabótaskyldu þegar brunaæf-
ing þess fór úr böndunum. Láðst hafði að láta konu í næsta húsi vita af
æfingunni. Hún varð skelfingu lostin þegar hún var vakin og gert að yf-
irgefa heimili sitt. Hún er sögð hafa orðið fyrir „áfallastreituröskun."
dómsmál Kona á ísafirði á að fá
skaðabætur frá bænum vegna
brunaæfingar slökkviliðsins sem
fór úr böndunum.
Slökkviliðsstjórinn á ísafirði
hafði efnt til æfingar í mannlausu
timburhúsi einn
—♦— desembermorgun
Þegar allt árið 1993. ísaf jarð-
þetta er virt arbær var eigandi
verður að hússins. Ibúar
telja að nærliggjandi húsa
slökkviíiðið á voru látnir vita af
æfingunm daginn
áður en ekki náðist
ísafirði hafi
sýnt af sér gá- eii eKKi Iidul,bl
leysiviðund- txl konunan Hun
• L,- var ein 1 husmu
framkvæmd sambýlis-
,. maður hennar var
æfingarinnar. & gjó
Hús konunnar
stóð aðeins fjóra metra frá húsinu
sem kveikt var í. Eldurinn fór
fljótlega úr böndum. Eldtungur
stóðu að húsi konunnar þegar hún
var vakin og beðin að yfirgefa
heimili sitt.
Umtalsverðar skemmdir urðu
á húsi konunnar. Rúður sprungu í
bílum og húsum í nágrenninu.
„Hér verður að líta til þess, að
eldur var kveiktur í timburhúsi í
íbúðarhverfi án þess að gerðar
væru sérstakar verklegar ráð-
stafanir gagnvart næsta ná-
grenni, svo sem að loka svæðinu,
fjarlægja bifreiðar og aðra lausa
muni og verja aðliggjandi hús,“
segir Hæstiréttur. „Þegar á reyn-
di kom svo í ljós, að misbrestur
var á því, sem mestu skipti, en
það var að tryggja með óyggjandi
hætti, að allt fólk í umhverfinu
vissi um hina fyrirhuguðu
(SAFJÖRÐUR
Hæstiréttur hefur dæmt Isafjarðarbæ skaðabótaskyldann vegna brunaæfingar sem
slökkviliðið missti stjórn á: „Við tók hröð og spennuþrungin atburðarás. Eins og þarna
háttaði til hafði hún réttmæta ástæðu til að verða skelfingu lostin og telja sjálfa sig, heim-
ili sitt og eigur I bráðri hættu."
slökkviliðsæfingu og gæti þannig
haft varann á. Þegar allt þetta er
virt verður að telja, að slökkvilið-
ið á ísafirði hafi sýnt af sér gá-
leysi við undirbúning og fram-
kvæmd æfingarinnar og hljóti að
axla ábyrgð á því að hafa ekki
verið til þess búið að ráða niður-
lögum eldsins hratt og örugg-
lega.“
Hæstiréttur segir ljóst að kon-
an hafi vaknaði við óvæntar og
ógnvekjandi aðstæður. „Við tók
hröð og spennuþrungin atburða-
rás. Eins og þarna háttaði til hafði
hún réttmæta ástæðu til að verða
skelfingu lostin og telja sjálfa sig,
heimili sitt og eigur í bráðri
hættu,“ segir í dómnum.
Hæstiréttur telur sannað að
konan „hafi orðið fyrir
áfallastreituröskun við eldsvoð-
ann og viðvarandi og hamlandi
kvíðaröskun og hlotið af þung-
lyndi án geðrofseinkenna. Af
þessu hefur hún samkvæmt nið-
urstöðu yfirmatsmanna hlotið
20% varanlegan miska og 40%
varanlega örorku."
gar@frettabladid.is
KENNETH LAY
Kenneth Lay, fyrrverandi forstjóri Enron.
Hann neitaði að bera vitni við rétttarhöldin
í gær. Kom það mjög á óvart miðað við
fyrri yfirlýsingar hans.
Fyrrverandi forstjóri
Enron:
Neitaði að
bera vitni
washington.ap Vitnaleiðslur í máli
orkufyrirtækisins Enron tóku
óvænta stefnu í gær þegar Kenn-
eth Lay, fyrrverandi forstjóri fyr-
irtækisins, neitaði að bera vitni.
Búist var við að vitnisburður hans
yrði hápunktur réttarhaldanna
sem standa munu yfir alla vikuna.
Lögfræðingur Lay sagði skjól-
stæðing sinn ekki hafa viljað taka
þátt í réttarhöldum þar sem dóm-
arar væru þegar búnir að fella
sinn dóm í málinu. Þónokkur vitni
hafa einnig ákveðið að nýta sér
stjórnarskrárbundinn rétt sinn
með því að neita að bera vitni í
málinu eða þau hafa ekki mætt til
réttarhaldanna. ■
EERLENT
Okumenn í Kaupmannahöfn
urðu að hægja verulega á öku-
hraða sl. föstudag. Þá gengu í gildi
nýjar umferðareglur en sam-
kvæmt þeim má ekki aka hraðar
en á 40 km hraða á klst. í miðbæ
Kaupmannahafnar. Reglurnar eru
liður í átaki á Kaupmannahafnar-
svæði að draga úr hraða bíla. ■
Stórútsala!
Prjónagarn 30-45% afsláttur
Hannyrðavörur 35% afsláttur
(
MSkólavorubúðin - Arva!~
9 - émámHii én*U{5 -
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Ginsengstríðið gengið yfir?:
Osannaðar fullyrðingar um hreinleika
SAMKEPPNI Heilsuverslun íslands
braut samkeppnislög með því að
fullyrða í auglýsingum að svonefnt
Ortis gingseng frá Kína væri rækt-
að á ómenguðu landssvæði. Úr-
skurður Eðalvörum í vil gekk sl.
föstudag hjá samkeppnisráði. Stað-
festir ráðið þar með úrskurð Holl-
ustuverndar ríkisins þess efnis.
Reyndar komst Hollustuverndin
einnig að því að virk efni í rótinni
væru undir skaðsemismörkum og
því heimilt að selja almenningi.
Hinsvegar mátti ekki fullyrða að
rótin væri ræktuð í ómengaðri
mold. Engu að síður var sölu Ortis
hætt sl. vor.
Fjölmörg mál tengd ágreiningi
um gingseng hafa að undanförnu
komið til Samkeppnisstofnunar.
Meðal annars var tekin afstaða til
fullyrðinga í bæklingi frá Heilsu-
versluninni um annmarka á kóresku
gingsengi, enda væru heilbrigðisað-
stæður þar almennt lakari en í Kína.
SAMKEPPNISSTOFNUN
Eðalvörur hf. vildu ekki una því að kínverskt gingseng samkeppnisaðila þeirra væri sagt
ræktað í ómenguðum jarðvegi. Sjálft flytur það inn frá Kóreu.
Eðalvörur, sem flytja inn frá Kóreu,
kvörtuðu, en stofnunin taldi ekki
ástæðu til aðgerða. Þá bannaði
stofnunin Cetus hf. á síðasta ári að
kalla gingsengið sitt (Power
Gingseng) það sterkasta í heimi.
Sem stendur eru engar kvartanir
tengdar gingsengi hjá Samkeppnis-
stofnun. Samkvæmt heimildum
blaðsins eru starfsmenn þakklátir,
enda nokkur erill verið vegna slíkra
mála. ■