Fréttablaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 05.02.2002, Blaðsíða 14
FÓTBOLTI 14 FRETTABLAÐIÐ 5. febrúar 2002 ÞRIÐJUDAGUR Úrslitaleikur NFL deildarinnar: Patriots komu öllum á óvart HESKEY í LANDSLIÐIÐ Breskir fjölmiðlar töluðu mikið um það í gær að Emile Heskey væri liklegur í fram- línu enska landsliðsins við hlið Michael Owen í sumar. Hann skoraði tvö mörk fyrir Liverpool á móti Leeds um helgina. Þjálfari Liverpool segir þetta fyrirtaks ráðahag. RUÐNINGUR New England Patriots komu, sáu og sigruðu í úrslitaleik NFL deildarinnar, Superbowl, á sunnudaginn. Fyrir leikinn var ekki búist við miklu af liðinu. St. Louis Rams voru sagðir mun sig- urstranglegri í leiknum. Þeim var líkt við Golíat og Patriots Davíð. Það var aðeins talið formsatriði fyrir Rams að spila við Patriots. Rams byrjuðu ágætlega og komust í 3-0. Leikstjórnandi liðs- ins, Kurt Warner, sem var kosinn leikmaður ársins í fyrra, náði sér hinsvegar ekki á strik. Leikmenn Patriots komust þrisvar sinnum inn í sendingar frá honum. Það endaði allt með marki. Patriots komust í 17-3. Það var ekki fyrr en í síðasta fjórðungnum sem Rams komust á skrið. Þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum náði liðið að jafna, 17-17. Þá hófu Patriots sókn og fór þar fremstur hinn ungi leikstjórnandi Tom Brady. Hann var seinna kosinn maður leiksins. Þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum komust Patriots í að- stöðu til að reyna vallarmark. Sparkari liðsins, Adam Viniatieri, skoraði vallarmarkið af 44 metra færi og tryggði Patriots 20-17 sig- ur í einni stærstu íþróttakeppni Bandaríkjanna. Sigur þeirra var vel við hæfi á STOLINN BOLTI Hér kemst Ty Law (t.v.) hjá Patriots inn í sendingu frá leikstjórnanda Rams, Kurt Warner, ætlaða Isaac Bruce (t.h.). Law sneri við með boltann og skoraði snertimark. sunnudaginn. Nafnið vísar í þjóð- ernishyggjuna, sem sveif greini- lega yfir vötnum. ■ KONTRAST hárstofa Tilboð á sérmeðferðum við skemmdu hári, flösu og hárlosi. □pnunantími mánud. frá kl.11-18 þri. • fös. frá kl. 11-21 laugard. frá kl. 10-16 Selásbraut 98 587 2111 Meiri hraði og tækni- lega færari menn Júlíus Jónasson var í landsliðinu í handbolta á Olympíuleikum 1992 og í B-keppninni í Frakk- landi. Hann telur stemninguna í kringum landsliðið lítið hafa breyst. Handboltinn sjálfur sé hins vegar tæknilega betur útfærður og einstaka leikmenn betri hanpbolti „Handboltinn hefur breyst mikið síðan ég var í lands- liðinu og spilaði á stórmótum. Hann er hraðari og leikmenn FRÉTTABLAÐIÐ Holl og vellaunuð morgunhreyfing Við óskum eftir blaðberum til að bera út Fréttablaðið í eftirtalin hverfi: 112 Brúnastaðir Bakkastaðir 105 Beykihlíð Birkihlíð Karlagata Skaiphéðinsgata Garðabær Blikanes Mávanes Kríunes Súlunes Bakkaflöt Hagaflöt Þeir sem áhuga hafa geta hringt í síma 515 7520 Virka daga kl. 10:00-16:00 tæknilega betri,“ segir Júl- íus Jónasson fyrrum lands- liðmaður í handbolta. „Leikmenn eiga auðveld- ara með að taka við erfið- um sendmgum og línuspil er meira. Það sem var mörgum erfitt að gera þá er mönnum léttara núna. Ástæðan er sú að þróunin hefur verið í þá átt að nauðsynlegt er að vera tæknilega fær um að taka við erfiðum sendingum og vinna úr þeim. Mjög marg- ir eru atvinnumenn og gera ekkert annað. Það gefur augaleið að árangur- inn er í samræmi við það.“ Júlíus segist ekki muna hve margir voru í atvinnu- mennsku þegar hann spil- aði með landsliðinu á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992. „Ég er nokkuð viss um að þeir eru fleiri núna,“ segir hann. Evrópumótið nú er fyrsta stórmótið þar sem Júlíus er ekki með liðinu í sextán ár. „Ég hef haft mjög gaman af að upplifa þessa stemningu sem myndast Andlegi skólinn Raja jóga námskeið fyrir byrjendur hefst næstkomandi þriðjudag 5. febrúar kl. 20:00 Upplýsingar í síma: 553 6537 og heimasíðu www.vitund.is/andlegiskólinn hefur í kringum handboltann. Það kemur mér ekki á óvart. Við viss- um alltaf af áhuganum heima þó við værum í órafjarlægð. Ég veit það fyrir víst að mórallinn er mjög góður hjá strákunum því þeir hefðu aldrei náð þessum árangri annars. Guðmundur er stemnings- maður og ótrúlegur keppnisandi í honum. Auk þess hefur hann góðan húrnor." Júlíus vill meina að aðrar HRAÐAUPPHLAUP KALLA Á GÓÐA VÖRN Júlíus Jónasson segir áríðandi að áhersla verði lögð á vörn og markvörslu. áherslur séu í handboltanum en áður fyrr. „Nú er meira um hraða- upphlaup. Það kallar á góða vörn og markvörslu. Öðruvísi virka ekki hraðaupphlaup. Það er því mikilvægar en nokkru sinni að þeir hlutir séu í lagi. Toppliðin í dag leggja áherslu á að skora sem mest úr hraðaupphlaupum. Stungusendingar inn á línu eru al- gengari. Það krefst tækni að skila þannig frá sér bolta og taka við honum. Línuspil er öflugra og tæknilega eru hraðaupphlaup bet- ur útfærð." Júlíus nefnir í því sam- bandi Svíana sem hafi alla tíð keyrt áfram á hraða- upphlaupum enda hafi þeir verið með markvörsl- una í lagi. „Sóknarleikur þeirra er ekki endilega neitt sérstakur." Júlíus minnist Ólymp- íuleikanna í Barcelona 1992 þar sem liðið var í fjórða sæti. „Það var skemmtilegt mót. Munur- inn á Ólympíuleikum og öðrum stórmótum er sá að við höfðum lengri tíma. Hins vegar þurfti maður að hafa meira fyrir því að halda sér á jörðinni og hafa það á hreinu hvers vegna liðið var á staðnum. Lifandi goðsagnir ganga fram hjá manni daglega í Olympíuþorpinu. Það er einkennileg tilfinning að vera í hópi allra þessara frægu.“ Júlíus þjálfar og leikur með ÍR í handbolta. Hon- um brá í brún þegar hann mætti á æfingu í vikunni. „Á und- an okkur eru fimmti og sjötti flokkur á æfingu. Það eru jafnan 30-40 strákar og stelpur sem æfa saman. Það brá hins vegar svo við í vikunni að það mættu 180 börn á æfingu í þessum yngstu flokkum. Það sýnir hvað svona árangur hjá landsliðinu hefur mikil áhrif. Þó ekki væri nema lítill hluti þessara barna sem héldi áfram, þá á það eftir að skila sér. Vonandi lesum við seinna viðtöl við landliðsmenn sem hófu sinn feril í síðustu viku.“ ■ Lewis vill nýjan áskoranda: Frestar bardagan- um við Tyson eið hefst þann 5.2.2002 jendur hefst þann 5.feb. föstud. Kl. 19:30 I Lífssýnar) ar í síma: Y YOGA HNEFALEIKAR Lennox Lewis til- kynnti á sunnudaginn að hann mun ekki berjast við Mike lyson 6. apr- íl. Sá dagur var áður ákveðinn fyr- ir bardaga þeirra tveggja. Tyson hefði getað nælt sér í heimsmeist- aratitla Lewis en var neitað um hnefaleikaleyfi í Nevada fylki eftir að eiga upptökin á blaðamanna- fundinum í New York á dögunum. Síðan leyfið var afturkallað hafa heyrst getgátur um ýmsa mögulega bardagastaði. Los Ang- eles, Kaupmannahöfn, Jóhannes- arborg og Manila voru nefndar til að halda bardagann sama dag. En Lewis hefur ekki áhuga á þeim. „6. apríl kemur ekki lengur til greina fyrir bardaga á móti Tyson. Það er hinsvegar aldrei að vita nema að ég berjist þá við einhvern annan,“ sagði Lewis. Þannig opnast dyrnar fyrir Chris Byrd, sem er næstur á áskorandalista IBF sambandsins. Viðræður eru hafnar við samn- ingsaðila Byrd. Þó Lewis ætli ekki að berjast við Týson í apríl segir hann líklegt að þeir mætist á árinu. „Seinna á árinu. Þá mætumst við. Án efa. Mike lýson er rosalegasti andstæðingur sem ég get mætt nú. Það væru vonbrigði fyrir mig og almenning að missa af þeim bar- KÓNGUR Lennox Lewis hefur öll ráð í hendi sér. Hann nefnir dagsetningu og Tyson þarf að hlýða. daga. Hann verður að fara fram, fyrir íþróttina." Þrátt fyrir uppákomuna á blaðamannafundinum er byrjað að ræða við samningsaðila Tyson. „Ég myndi elska að lúberja Týson. Það þarf að rasskella þennan dreng. Það er það sem fólkið vill sjá.“ ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.