Fréttablaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN
MARCIR BAKA
Bolludagsbollur eru
bakaðar heima hjá hátt
í helmingi kjósenda
-------- Vísís.is.
Eru bakaðar bolludagsbollur
heima hjá þér?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú að borða saltkjöt og baunir f
dag, sprengidag?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
Forsætisráðherra um
Samkeppnisstofnun:
Osammála
ungliðum
stjórnmál „Ég er ósammála þeim
ályktunum Sambands ungra sjálf-
stæðismanna sem vísað er til“,
sagði Davíð Odds-
son, forsætisráð-
herra á Alþingi í
gær. Gunnlaugur
Stefánsson, vara-
þingmaður Sam-
fylkingingar, hafði
spurt forsætisráð-
forsætis- herra hvort hann
ráðherra væri sammála yf-
Á öndverðri skoð- irlýsingu ungra
un við unga sjálf- sjálfstæðismanna
stæðismenn um um að leggja ætti
Samkeppnisstofn- Samkeppnisstofn-
un un niður. „Ég met
störf Samkeppnisstofnunar mikils.
Ég tel hana mikilvæga stofnun",
sagði Davíð. Hann ítrekaði að tií
greina kæmi að veita stofnuninni
vald til að skipta upp fyrirtækjum
sem misbeittu markaðsráðandi að-
stöðu. Ef til þeirrar lagasetningar
kæmi mætti hún ekki beinast gegn
einstökum fyrirtækjum. Slík laga-
setning yrði að vera með almennum
hætti.
Gunnlaugur fagnaði stuðningi
forsætisráðherra við Samkeppnis-
stofnun og aukin völd hennar. Það
væri þó ljóst að um þetta væru
skiptar skoðanir i Sjálfstæðis-
flokknum. ■
Þórður tekur við Verð-
bréfaþinginu:
Tími til að
söðla
um
verðbréfaþing „Ég hef verið for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar lengi og
hef verið þeirrar skoðunar að menn
ættu að skipta um starfsvettvang
nokkrum sinnum á lífsleiðinni. Auk
þess er þingið
spennandi kostur,“
sagði Þórður Frið-
jónsson spurður
um ástæður
ákvörðunar hans
um að taka við
starfi fram-
þórður kvæmdastjóra
FRIÐJÓNSSON Verðbréfaþmgs ís-
Ætlar meðal ann- lands. Hann sagði
ars að sjá til þess ákvörðunina ekki
að reglum um tengjast ríkjandi
upplýsingaskyldu óvissu um framtíð
verði framfylgt. þjóðhagSStOfnun-
ar. Þórður hefur verið forstjóri
stofnunarinnar undanfarin 15 ár að
frátöldu hálfu öðru ári sem hann
starfaði sem ráðuneytisstjóri við-
skiptaráðuneytisins.
Þórður sagði að um áframhald-
andi þróunarstarf yrði að ræða,
enda saga þingsins ekki löng.
Ástæða væri til að herða á ýmsum
reglum. í því sambandi vildi Þórður
ekki nefna dæmi um einstakar
áherslubreytingar en tók fram að
stöðugt þyrfti að vinnna að því að
bæta ímynd þingsins og efla trú-
verðugleika þess. Þá væri eftirlit
þess með reglum um upplýsinga-
gjöf einkar mikilvægt. ■
FRETTABLADIÐ
nrTébtúar 2ÖÖ2 ÞRIÐJUDACUR
Frumvarp barið í gegn í þriðju tilraun:
Ahugamannahnefaleikar leyfðir
alþinci Alþingi heimilaði í gær
ástundun áhugamannahnefa-
leika. Núna má því innan skamms
bæði æfa og sýna ólympíska
hnefaleika hér á landi. Frum-
varpið var samþykkt með 34 at-
kvæðum gegn 22. Tveir þing-
menn, þau Lára Margrét Ragn-
arsdóttir og Ólafur Örn Haralds-
son, sátu hjá við afgreiðsluna.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að þegar sé hafinn undirbúningur
sýningarkeppna og frekara mót-
halds í íþróttagreininni.
Gunnar I. Birgisson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, lagði fram
frumvarp þar að lútandi í þriðja
sinn á þessu þingi, en Alþingi
hafði tvisvar áður hafnað því að
heimila áhugamannahnefaleika.
Breytingatillaga við frumvarp
Gunnars um að banna ætti högg í
höfuð, jafnt í hnefaleikum sem
og öðrum bardagaíþróttum, var
felld með yfirgnæfandi meiri-
hluta þar sem 16 voru henni
fylgjandi en 35 á móti. Þá tillögu
báru fram þingmennirnir, Kol-
brún Halldórsdóttir (VG), Katrín
Fjeldsted (D) og Sigríður Jóhann-
esdóttir (Sf).
„Þetta er mikill ósigur fyrir
forsjárhyggjuna," sagði Gunnar
I. Birgisson um niðurstöðuna í
CUNNAR BIRGISSON
Frumvarp Gunnars um að leyfa áhuga-
mannahnefaleika var samþykkt á Alþingi
í gær.
gær. „Það er mikið réttlætismál
að menn fái að stunda þessa
íþrótt sem síst hættulegri en aðr-
ar íþróttir, nema að síður sé.
Þetta er mjög góð íþrótt upp á
líkamsrækt, aga og allt annað að
gera. Svo er það náttúrulega rétt-
lætismál að fá að velja sér
íþróttagrein að stunda.“ Gunnar
segist aðeins þekkja til hnefa-
leikanna sem hann hafi fiktað við
þegar hann var ungur. „Ég held
þetta verði hið besta mál. Þetta
er ólympíuíþrótt og við vorum
eina þjóðin í heiminum sem bönn-
uðum áhugamannahnefaleika. En
nú er það búið,“ sagði Gunnar. ■
SKEUATANGI 9
Of margar stallanir áttu að vera á gólfplötum í fyrirhuguðu húsi Kára Stefánssonar. Þá var það of háreist til að falla að ákvæðum
deiliskipulags.
Kári stefhir borginni
vegna Skeljatanga
Kári Stefánsson krefst þess aö úrskurður um að afturkalla byggingar-
leyfi hans fyrir einbýlishúsi á Skeljatanga 9 verði felldur úr gildi. Emb-
ætti borgarlögmanns neitar að afhenda Fréttablaðinu stefnuna á grund-
velli vinnureglna sem embættið getur þó ekki framvísað.
dómsmál Kári Stefánsson, for-
stjóri Islenskrar erfðagreiningar,
hefur stefnt Reykjavíkurborg og
úrskurðarnefnd skipulags- og
+ byggingarmála.
Stefndi Kári krefst ó8ild'
Kárinæstu ingar á þeim úr-
nágrönnum
sínum að
skurði úrskurðar-
nefndarinnar að
.... , honum sé óheimilt
Skildingatanga að reisa einbýlis.
6 og Fatnis- s samkvæmt
nesi 4. fyrirliggjandi og
áður samþykktum
teikningum á lóðinni númer 9 við
Skejjatanga.
Útilokað reyndist að fá afrit af
stefnu Kára hjá borgarlögmanni í
gær. Lögmenn Kára svöruðu ekki
erindi Fréttablaðsins. Anton
Björn Markússon, lögfræðingur
hjá embætti borgarlögmanns,
segir að þar sem stefna Kára hafi
ekki enn verið þingfest, neiti emb-
ættið að afhenda afrit af stefn-
unni.
„Málið getur fallið niður áður
en málið er þingfest. Þá kemur
ekki til kasta þessarar stefnu og
þá fer ég ekkert að sýna þér hana.
Þá er hún ekki orðin opinberlegt
plagg," segir fulltrúi borgarlög-
manns.
Anton segir að nú sé verið að
fara yfir stefnuna hjá borgarlög-
manni. Á meðan sé hún aðeins
gagn sem unnið sé með innanhúss
hjá embættinu. „Þetta er aðeins
vinnuskjal sem við höfum undir
höndum," segir hann.
Að sögn Antons byggist synjun
hans á að afhenda stefnuna á
vinnureglum sem stuðst sé við hjá
embætti borgarlögmanns. Að-
spurður neitar hann hins vegar að
afhenda þær reglur: „Ég er ekki
með neinar vinnureglur. Þú færð
bara ekki þessa stefnu hjá okkur -
það er klárt mál,“ segir hann.
Auk áðurgreindra aðila stefndi
Kári næstu nágrönnum sínum að
Skildingatanga 6 og Fáfnisnesi 4.
Þetta fólk lagði fram kæru vegna
þess að Kára hafði verið veitt
byggingarleyfi á lóðinni við
Skeljatanga 9. Úrskurðarnefnd
skipulags og byggingarmála
komst að þeirri niðurstöðu að of
margar stallanir ættu að vera á
gólfplötum í fyrirhuguðu húsi. Þá
væri það of háreist til að falla að
ákvæðum deiliskipulags.
gar@frettabladid.is
Sala Símans:
Engin ákvörðun um frestun
einkavæðinc „Það hefur engin
ákvörðun verið tekin um að fresta
sölu Símans. Áður en það verður
gert verður hún rædd af einka-
væðingarnefnd", sagði Davíð
Oddsson, forsætisráðherra, á Al-
þingi í gær. Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður VG, hafði þá beðið
forsætisráðherra um að skýra
fyrri orð sín um að þess væri ekki
að vænta að Landssíminn yrði
seldur á næstunni.
í svari sínu sagðist Davíð hafa
lýst þeirri skoðun sinni í viðtali
við Ríkisútvarpið sem hann hefði
áður lýst. Ef ekki fengist viðund-
LANDSSÍMINN
Yfirlýsingar Daviðs I gærmorgun komu
andi boð í Símann yrði fyrirtækið
ekki selt. Slíkt boð hefði ekki
borist. „Þess vegna finnst mér
meiri líkur en minni á að ekki
verði af sölu Símans að þessu
sinni. Síminn getur út af fyrir sig
verið áfram til sölu ef viðunandi
boð berst.“
Steingrímur vildi að stjórnvöld
ákveddu að fresta sölu Símans um
eitt til tvö ár. Ljóst væri að að ekki
væru að bjóðast viðunandi tilboð í
Símann. Rétt væri að nota tímann
í að byggja upp fyrirtækið. Slíkt
væri ekki hægt meðan óvissa ríkti
um stöðu þess.
BÓKMENNTAVERÐLAUN
NORÐURLANDARÁÐS
Hans Skei og Oskar Stein Björlykke, fulltrú-
ar Noregs í dómnefndinni, tilkynna hver
hlotið hefur bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs í ár.
Bókmenntaverðlaun
N orðurlandaráðs:
Fjarlægð,
missir, kímni
og vinátta
BÓKMENNTAVERÐLAUN Norski rithöf-
undurinn Lars Saabye Christen-
sen fær bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs í ár. Verðlaunin
hlýtur hann fyrir skáldsöguna
Hálfbróðurinn. Lars gaf út fyrstu
bók sína, Sagan um Gly, árið 1976.
Hann hefur síðan gefið út fjölda
bóka, bæði ljóðabækur og skáld-
sögur. í greinargerð dómnefndar
er Hálfbróðurnum lýst sem mar-
græðri skáldsögu, sem segi sögu
fjögurra kynslóða. Grunntónninn
sé fjarlægð, missir og sorg. Sagan
rúmi einnig sátt með kímni og vin-
áttu. Frásögnin sé ýmist raunsæ
eða í anda töfraraunsæis. Haft
hefur verið eftir höfundinum, að
þetta sé stórvirki hans á ferlinum.
Hann hafi lengi haft hug á að skri-
fa bókina. Það hafi ekki verið fyrr
en nú, sem hann var tilbúinn til
þess. Dómnefndin segir Lars
Saaby Christensen vera einn af
fremstu rithöfundum sinnar kyn-
slóðar. Hann hefur fengið fjölda
verðlauna fyrir bækur sínar. Alls
voru þrettán bækur tilnefndar til
bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs. Af íslenskum höfund-
um, hlutu Mikael Torfason og
Gyrðir Elíasson tilnefningu. Verð-
launin, 350 þúsund danskar krón-
ur, verða afhent í Helsinki í októ-
ber. ■
I STJÓRNMÁL I
Ossur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir orða-
skipti ráðamanna í fjölmiðlum um
evrópumál til marks um að stjórn-
arsamstarfið sé farið að morkna
innan frá. „Davíð spyr hvað vanti í
EES-samninginn og segist í frétt-
um ekki hafa fengið svör um það
frá utanríkisráðherra. Þetta er
auðvitað ekkert annað en van-
traust á utanríkisráðherra," sagði
Össur og taldi óeðlilegt að forsæt-
isráðherra bæri Halldóri á brýn að
geta hvorki skýrt fyrir honum né
þjóðinni hvað vantaði í EES-samn-
inginn þannig að hann gagnaðist til
frambúðar. „Utanríkisráðherra
hefur oft lýst sínum viðhorfum og
forsætisráðherra þess vegna að
storka honum opinberlega. Hvað
ætlar Halldór Ásgrímsson lengi að
vera skotspónn pólitískra háðs-
glósa Davíðs Oddssonar?" spyr
Óssur.