Fréttablaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS Hvað finnst þér um bréfið sem Össur sendi ráðamönnum Baugs? „Mér finnst þetta nú ansi heiftarleg við- brögð hjá honum." Helga Hilmisdóttir, háskólanemi og stundakennari í H.í. Hvað segja kjósendur? • • „Ossur skaut sig í fótinn“ könnun „Össur fær bara 2 í ein- kunn eftir nýjasta útspilið,“ sagði maður á miðjum aldri, sem tók þátt í skoðanakönnu Fréttablaðs- ins. Þar vísaði hann til bréfa- skrifta Össurar Skarphéðinssonar til stjórneda Baugs. Bréfamál Össurar og Baugs var fleiri svarendum ofarlega í huga, þegar skoðanakönnunin var framkvæmd á sunnudag: „Össur lækkar í áliti út af bréf- inu til Baugs; það er algjört hneyksli," sagði karl í Reykjavík. „Össur skaut sig í fótinn með bréfinu," sagði kona í Reykjavík. „Hefðirðu hringt í gær hefði Össur fengið hærri tölu,“ sagði maður á Suðurlandi. „Össur er kjaftaskur, sagði karl á Reykjanesi. „Hann fær núll - sérstaklega í dag,“ sagði karl á höfuðborgar- svæðinu. En Össur á líka harða stuðn- ingsmenn: „Össur hleypur stundum á sig en er hreinskilinn og með gott hjarta. Hann fær þess vegna góða einkunn," sagði maður á Vestur- landi. Aðdáendur Davíðs Oddssonar tala lofsamlega um sinn mann og gefa honum áberandi oftar 9 eða 10 en fylgjendur annarra flokka sínum foringjum. Andstæðingar sjálfstæðismanna eru ekki jafn- hrifnir: „Mér finnst Davíð hafa komið á óvart fyrir hve ómálefnalega hann svaraði fyrir mistök sinna manna í símamálinu. Hann svar- aði með hálfgerðum skætingi á Alþingi," svarði karl á höfuðborg- arsvæðinu. „Davíð þyrfti í sama bekk aftur því hann fellur gjörsamlega á prófinu.“ sagði karl í Reykjavík. „Mér finnst Davíð tala alltof mikið niður til fólksins,“ sagði karl í Reykjavík. „Davíð fær átta - því miður; Maður verður að vera heiðarleg- ur,“sagði kona sem ætlaði að kjósa Samfylkinguna. „Þetta er bara „á móti-stefn- an“,“ sagði kjósandi Framsóknar í Reykjanesi um Steingrím J. Sig- fússon. „Steingrímur er skeleggur en hann hefur bara svo lítil völd,“ sagði karl á Reykjanesi. „Halldór vill vel en hann hefur lítið vit á utanríkismálum,“ sagði framsóknarmaður á Norðurlandi vestra um Halldór Ásgrímsson. „Sverrir Hermannsson stendur sig vel í sjávarútvegsmálum, það má hann eiga umfram aðra,“ sagði aldraður stuðningsmaður Frjáls- lyndra í Vesturkjördæmi. „Sverrir Hermannsson. Ég þarf bara að rifja upp hver það er - ég gef honum fjóra,“ sagði karl í Reykjavík. „Er hann enn á lífi? Hann fær fimm fyrir að láta fara lítið fyrir sér,“ sagði karlmaður á Reykja- nesi. ■ 6 FRÉTTABLAÐIÐ 5. mars 2002 ÞRIÐJUDAGUR Landskosningar í Bæjaralandi: Sósíaldemókratar vinna á berlín. ap Edmund Stoiber, forsæt- isráðherra Bæjaralands og kansl- araefni kristilegra demókrata í Þýskalandi, gerði í gær lítið úr dræmri kosningu Kristilega fé- lagsbandalagsins (CSU) í kosning- unum, sem fram fóru í Bæjara- landi á sunnudaginn. Sósíalde- mókratar, sem unnu á í mörgum smærri bæjum landsins, sögðu fyrstu niðurstöður kosninganna hins vegar vera áfall fyrir Stoi- ber. Þær gefi óneitanlega vísbend- ingu um hvernig kristilegum muni farna í sambandskosningun- um næsta haust, þegar Þjóðverjar kjósa sér þing og kanslara. Þá etur Stoiber kappi við Gerhard DEMUND STOIBER Kanslaraefní kristilegra kannar hvað tím- anum líður. Schröder, núverandi kanslara Þýskalands og leiðtoga Sósíalde- mókrataflokksins. „Þegar á allt er litið er ég mjög ánægður," sagði Stoiber. „Ég sé engin bein tengsl við kosningar til sambandsþingsins." Þýskaland er sambandsríki sextán landa. Eitt þeirra er Bæj- araland. Þar hefur Kristilega fé- lagsbandalagið, systurflokkur Kristilega demókrataflokksins, verið ráðandi stjórnmálaafl ára- tugum saman. Endanlegar niðurstöður kosn- inganna liggja ekki fyrir fyrr en á miðvikudag. Síðast hlaut flokkur Stoibers 43 prósent í Bæjaralandi. Sósíaldemókratar tæp 26 prósent og Græningjar tæp sjö prósent. ■ SKOÐANAKÖNNUN Iskoðanakönnun DV frá því í gær kemur fram að ef gengið yrði til borgarstjórnarkosninga nú fengi Reykjavíkurlistinn 9 borgarfulltrúa og listi sjálfstæð- ismanna einungis 6. 56,9% aðspurðra sögðust myndu kjósa R-listann en 39,5% D-listann og 3,6% önnur framboð ef litið er til þeirra sem tóku afstöðu sem voru 83,35. Tæp 52% karla í Reykjavík styðja R-listann og tæp 63% kvenna. Tæp 45% karla styðja D- listann en 34% kvenna. Niður- stöður Dagblaðsins eru svipaðar niðurstöðum skoðanakönnunar Gallup sem gerð var í febrúar og voru birtar um sl. helgi. Þar mældist fylgi R-listans 58% en fylgi Sjálfstæðisflokksins 40%. ISKOÐANAKNNUN FRÉTTABLAÐSINS Oddvitar stjórnarinnar Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fá hæsta einkunn hjá kjósendum. Steingrímur J. andstöðuformannanna. Ossur og Sverrir fá falleinkunn. Staða Steingríms og Davíðs um KÖNNUN Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson bera höfuð og herðar yfir aðra formenn stjórnmála- flokka í einkunnagjöf kjósenda samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Báðir fá þeir 6,3 í meðaleinkunn hjá kjósendum. Steingrímur J. Sigfússon nýtur mests trausts sem leiðtogi stjórn- arandstöðunnar samkvæmt ein- kunnagjöf kjósenda. Hann fær 5,6 í meðaleinkunn. Einum meira en Össur Skarphéðinsson sem fær 4,6 í meðaleinkunn. Sverrir Her- mannsson fær lægsta einkunn kjósenda, einungis 3,3. Þegar mið er tekið af því hvaða einkunn forystumennirnir fá hjá eigin flokksmönnum annars veg- ar og öðrum kjósendum hins veg- ar vekur athygli að Davíð og Steingrímur J. njóta um margt svipaðrar stöðu hjá kjósendum. Þeir fá hæsta einkunn eigin flokksmanna af formönnunum fimm. Davíð fær 8,5 í meðalein- kunn hjá sjálfstæðismönnum. Steingrímur fær 8,2 hjá stuðn- ingsmönnum VG. Davíð fær 5,5 í meðaleinkunn hjá öðrum kjósend- um, Steingrímur J. fær 5,4. Niður- staðan endurspeglar því stöðu þeirra sem óumdeildra forystu- manna flokka sem hafa náð mikl- um árangri á sitt hvorum enda pólitíska litrófsins. Davíðs hefur haldið flokki sínum í stjórn í nær ellefu ár og Steingrímur byggt upp sterkan flokk á þremur árum. Halldór er sá formaður stjórn- málaflokks sem nýtur mests trausts utan raða stuðningsmanna eigin flokks. Hann fær 6,1 í með- aleinkunn hjá þeim kjósendum sem ekki kjósa Framsókn. Davíð og Steingrímur J. koma næstir. Sú einkunn sem Halldór fær hjá öðr- um en kjósendum Framsóknar er litlu lægri en sú meðaleinkunn sem stuðningsmenn Samfylkingar gefa formanni sínum. Össur fær 6,3 í meðaleinkunn hjá eigin flokksmönnum, 0,2 hærri en Hall- dór fær hjá stuðningsmönnum annarra flokka. Össur og Sverrir eru í mestum flSTEINGRÍMUR J SIGFÚSSON Sterkasti formaðurinn Davíð Oddsson er sá formaður sem fær hæsta meðaleinkunn hjá stuðningsmönnum flokks síns (8,5). Stuðningsmönnum annarra stjórnmálaflokka þykir hins veg- ar sínu minna til hans koma. Þeir gefa honum 5,5 í meðaleinkunn. Hann fær 6,3 í meðaleinkunn hjá kjósendum allra flokka. Davíð er heldur vinsælli á höf- uðborgarsvæðinu en landsbyggð- inni. Hann fær 6,6 í einkunn á höf- uðborgarsvæðinu en 6,0 á lands- byggðinni. Ekki er mikill munur á einkunn Davíðs eftir kynferði kjósenda. Athygli vekur þó að konur á höfuðborgarsvæðinu (6,7) eru mun hrifnari af honum en kynsystur þeirra á landsbyggð- inni (5,7). 16,8% aðspurðra gefa Davíð 9 eða 10 í einkunn. 64,1% gefa hon- um einkunn á bilinu 5 til 8. Davíð fær hins vegar falleinkunn hjá 19,1% aðspurðra. Sem fyrr segir eru sjálfstæðismenn mjög hrifnir af Davíð. 49% gefa honum 9 eða 10 í einkunn. 94% gefa honum ein- kunn á bilinu 7 til 10. Einungis 1,9% sjálfstæðismanna gefa hon- um falleinkunn. 25,8% kjósenda annarra flokka gefa Davíð fallein- kunn. 2,3% gefa honum 9 eða 10 í einkunn. 70% gefa honum ein- kunn á bilinu 5 til 8. ■ Nýtur víð- tækari stuðn- ings en aðrir Halldór Ásgrímsson fær, ásamt Davíð Oddssyni, hæsta ein- kunn kjósenda fyrir frammistöðu sína í starfi, 6,3. Hann er einnig sá stjórnmálamaður sem fær hæsta einkunn frá stuðningsmönnum ann- arra flokka og þeirra sem ekki taka afstöðu til flokka (6,1). Hann fær 7,9 í meðaleinkunn hjá stuðnings- mönnum Framsóknarflokksins. Lítill munur er á meðaleinkunn Halldórs eftir því hvar kjósendur búa. Hann fær 6,4 í meðaleinkunn hjá kjósendum á höfuðborgar- svæðinu en 6,1 hjá landsbyggðar- kjósendum. Konur gefa honum 6,1 í meðaleinkunn en karlar 6,5. Halldór fær 9 eða 10 í einkunn hjá 13,6% aðspurðra. 16,7% gefa honum falleinkunn. 69,6% gefa honum einkunn á bilinu 6 til 8. 44,7% framsóknarmanna gefa Halldóri 9 eða 10 í einkunn. 87,3% þeirra gefa honum einkunn á bil- inu 8-10. 6,4% þeirra gefa honum falleinkunn. 18,8% þeirra sem ekki kjósa Framsókn gefa Hall- dóri falleinkunn. 10,8% gefa hon- um 9 eða 10. Flestar einkunnir fær hann á bilinu 5-8 eða 71,6%. ■ Rambar á barmi fallsins Af formönnum fjögurra stærstu stjórnmálaflokkanna fær Össur Skarphéðinsson áber- andi slakasta útkomu. Hann fær 4,6 í meðaleinkunn hjá kjósend- um. Sé gefið í hálfum tölum þýðir það í raun falleinkunn hjá kjós- endum. Aðeins Sverrir Her- mannsson fær lakari útkomu. Össur fær 6,3 í meðaleinkunn hjá stuðningsmönnum Samfylkingar. Hann fær falleinkunn hjá öðrum kjósendum (4,4). Ekki er mikill munur á einkunn fólks eftir kynferði og búsetu. Hann fær 4,5 í meðaleinkunn hjá karlmönnum og landsbyggðar- fólki. Hjá konum og kjósendum á höfuðborgarsvæðinu fær hann 4,8. Hæstu meðaleinkunnina fær hann hjá konum á höfuðborgar- svæðinu, 5,0. össur fær 9 eða 10 í einkunn frá 3,3% kjósenda. 44% gefa hon- um falleinkunn. 33,5% gefa hon- um einkunnina 5 eða 6. 23,2% gefa honum 7 eða 8. Fleiri stuðnings- menn Samfylkingar gefa Össuri falleinkunn (16,5%) en 9 eða 10 (12,3%). 71,2% gefa honum ein- kunn á bilinu 5 til 8. Hjá öðrum kjósendum en Samfylkingarfólki fær Össur falleinkunn í 48,2% til- fella. Tíu fær hann hjá 0,8% og níu hjá einu prósenti. Þriðjungur gefur honum 5 eða 6. 16,7% 7 eða 8. ■ JF'- Oumdeildur í eigin röðum ó Steingrímur J. Sigfússon fái lægri meðaleinkunn (5,6) hjá kjósendum en Davíð Oddsson eru einkunnir þeirra mjög líkar þegar kemur að stuðningi flokksmanna og annarra kjósenda. Steingrímur fær 8,2 í meðaleinkunn meðal eig- in flokksmanna. Aðeins Davíð á meiri stuðning meðal kjósenda síns flokks. Hjá öðrum kjósendum en VG fær Steingrímur 5,4 í með- aleinkunn. Lítill munur er á meðaleinkunn Steingríms eftir því hvar fólk býr. Hann fær 5,6 í meðaleinkunn hjá landsbyggðarkjósendum, 5,7 hjá kjósendum á höfuðborgarsvæð- inu. Konur gefa honum eilítið hærri einkunn en karlar, 5,8 á móti 5,5. Hæst er einkunn hans hjá konum í vesturkjördæmi (6,4) en lægt hjá körlum í suðurkjör- dæmi (5,1). Steingrímur fær 9 eða 10 í ein- kunn hjá 9,4% kjósenda. 62,6% kjósenda gefa honum einkunn á bilinu 5 til 8 og skiptast svipað á hverja einkunn. 27,9% kjósenda gefa honum falleinkunn. 44,7% kjósenda VG gefa Steingrími 9 eða 10 í einkunn. 46,5% gefa honum 7 eða 8. Aðeins fimm stuðnings- menn flokksins gefa honum 5 eða 6 í einkunn. Enginn gefur honum falleinkunn. 31,2% annarra kjós- enda gefa honum hins vegar fall- einkunn. 5,3% annarra kjósenda gefa honum 9 eða 10 í einkunn. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.