Fréttablaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
. mars 2002 MÁNUDAGUR
] HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA
Hefur svipaðan smekk
og eiginkonan
ÉC ER RÉTT BYRJAÐUR A BÓKINNI „FÓTSPOR
A HIMNUM" EFTIR EINAR MÁR. HANN ER
ÞANNIG HÖFUNDUR AÐ MAÐUR GETUR VER-
IÐ ÖRUGGUR EF MAÐUR OPNAR BÓK EFTIR
HANN AÐ HÚN SÉ GÓÐ. VIÐ HJÓNIN ERUM
GREINILEGA MEÐ MJÖG SVIPAÐAN SMEKK
ÞVÍ VIÐ GÁFUM HVORT ÖÐRU NÝJU BÓKINA
HANS IJÓLAGJÖF._________________
Jón Stefánsson organisti
BYCCTÁ BÓKASÖLU t EYMUNDSSON
VIKUNA 1-8. MARS
A Ýmsír höfundar
SÁLMABÓK
M Niegel Nelsson
SKOÐAÐU LÍKAMA ÞINN
0 Astrid Lindgren
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
O Þórarinn Eldjám íslenskaði
MOLDVARPAN SEM VILDI
VITA HVER SKEIT Á HAUSINN
Á HENNI
Álfheiður S. og Guðfinna E.
SÁLFRÆDI EINKALÍFSINS
Cy Tove Jansson
ÓSÝNILEGA BARNIÐ
Guðrún Agnarsdóttir ofl.
AF BESTU LIST 1
Hildur Hermóðsd. valdi texta
TÖKUM LAGIÐ MEÐ BÖRNUM
0 Arnaldur Indriðason
MÝRIN KIUA
(f!) J.R.R. Tolkien
W HOBBITINN
Sálmabók í 1. sæti:
Fermingar á
næsta leiti
bækur Fermingar eru á næsta
leiti og ber metsölulisti Eymunds-
sonar keim af því. í fyrsta sæti á
listanum er Sálmabókin sem inni-
heldur sálma eftir ýmsa höfunda.
Þykir sýnt að margir ætli sér að
gefa bókina í fermingargjöf. ■
Menningarverðlaun DV:
Fulltrúar sjö listgreina
fengu verðlaun
MENNING Menningarverðlaun
DV voru afhent á fimmtudag í
24. skipti undir hádegisverði á
veitingahúsinu Apóteki við
Austurstræti. Verðlaunagrip-
irnir eru að þessu sinni sér-
kennilegir silfurskúlptúrar,
hannaðir af gullsmiðunum
Hörpu Kristjánsdóttur, Kjart-
ani Erni Kjartanssyni og Ástþór
Helgasyni hjá OR við Laugaveg.
Eftirtaldir listamenn hlutu
verðlaunin að þessu sinni: í bók-
menntum: Sjón fyrir skáldsög-
una Með titrandi tár. í leiklist:
Viðar Eggertsson fyrir þrjár
uppsetningar í þremur leikhús-
um. í byggingarlist: Arkitekta-
stofurnar Andersen & Sigurðs-
son I/S og Holm & Grut AIS í
Kaupmannahöfn í samstarfi við
Steinar Sigurðsson, Manfreð
Vilhjálmsson Arkitektar ehf.,
fyrir Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar, stækkun.
í listhönnun: Handverk og
hönnun fyrir sýningarhald og
kynningarstarf. í tónlist: Hörð-
MENNINARVERÐLAUN DV
Verðlaunahafar að lokinni afhendingu Menningarverðlauna DV.
ur Áskelsson, kantor Hallgríms- armyndina Lalli Johns. í mynd-
kirkju. í kvikmyndalist: Þor- list: Steingrímur Eyfjörð fyrir
finnur Guðnason fyrir heimild- sýningu sína í Gerðarsafni. ■
ÞRIDJUPAGUR
5. MARS
FUNDUR______________________________
12.05 Ragnheiður Kristjánsdóttir sagn-
fræðingur heldur í dag fyrírlestur f
hádegisfundaröð Sagnfræðinga-
félagsins sem hún nefnir
"(Ó)þjóðlegt fólk? Um viðhorf til
róttækrar vinstri stefnu". Fund-
urinn er haldinn í stóra sal Nor-
ræna hússins og lýkur stundvís-
lega kl. 13:00. Hann er opinn öllu
áhugafólki um sögu og menn-
ingu.
20.00 Fundur verður haldinn í Vinstri
hreyfingunni - grænu framboði í
Reykjavík í kvöld. Fundurinn
verður í Rúbrauðsgerðinni, Borg-
artúni 6. Á dagskrá fundarins er
uppstilling í sæti Vinstri hreyfing-
arinnar - græns framboðs á
Reykjavlkurlistanum.
MYNPLIST____________________________
Hlaðgerður (ris Björnsdóttir myndlist-
arkona sýnir portrait málverk í
Húsi Málarans. Sýníngin stendur
til 23. mars.
Listasafn fslands hefur opnað sýningu
á Diabolus, verki Finnboga Pét-
urssonar sem hann hannaði og
smíðaði fyrir íslenska sýningar-
skálann á myndlistar-tvíæringnum
í Feneyjum á Ítalíu 2001 en þar
var hann fulltrúi íslands. Diabolus
er innsetning í formi hljóðskúlpt-
úrs. f öðrum enda verksins eru
orgelpípa og hátalari sem geta
myndað kölska-tóninn (diabolus
in musica) sem kaþólska kirkjan
bannaði um skeið á miðöldum.
Sýningunni lýkur 14. apríl. Lista-
safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl 11-17. Okeypis að-
gangur er á miðvikudögum.
Daði Guðbjörnsson sýnir olíumálverk í
Baksalnum í Gallerii Fold við
Rauðarárstíg. Sýninguna nefnir
Slagsmálin og vatnsbyssu-
stríðið lang skemmtilegust
Þjóðleikhúsið frumsýndi leikritið um Jón Odd
og Jón Bjarna síðustu helgi. Strákarnir fjórir sem leika tvíburabræð-
urna segjast vera orðnir miklir vinir.
JÓN ODDUR OG JÓN BJARNI
Andri Már Birgisson, Matthías Sigurbjörnsson, Sigurbjartur A. Atlason og Benedikt
Clausen.
leikrit Sögupersónurnar uppá-
tækjasömu, tvíburabræðurnir Jón
Oddur og Jón Bjarni, stigu sín
fyrstu spor á leiksviði um síðustu
helgi. Það gerðu einnig fjórir
sprækir strákar sem fara með
hlutverk bræðranna. Þetta eru
þeir Benedikt Clausen og Andri
Már Birgisson, sem fara með hlut-
verk Jón Odds og Sigurbjartur A.
Atlason og Matthías Sigurbjörns-
son sem leika Jón Bjarna. Blaða-
maður hitti þessa stórskemmti-
legu stráka daginn fyrir frumsýn-
ingu og voru þeir allir sammála
um að þeir væru pínulítið stress-
aðir. Þegar þeir voru spurðir hvort
þeim þættu tvíburabræðurnir
skemmtilegir játuðu þeir einróma
og sögðust vera jafn miklir prakk-
arar.
Strákarnir fjórir eru á aldrin-
um átta til tíu ára og sögðust þeir
vera orðnir miklir vinir. Þeir voru
í engum vafa þegar blaðamaður
spurði þá hvert væri uppáhaldsat-
riðið í leikritinu, slagsmálin og
vatnsbyssustríðið. Það væri mikill
hasar í gangi og viðurkenndu þeir
skömmustulega að þeir gleymdu
sér stundum í hita leiksins. „En við
stöndum okkur með mikilli prýði,“
gall í Benedikt.
Þórhallur Sigurðsson, leik-
stjóri, tók undir þau orð og sagði
strákana hafa staðið sig afskap-
lega vel. „Þetta er búið að vera sér-
stakt verkefni. Æfingar hafa farið
fram tvisvar á dag. Þegar annar
hópurinn hætti á hádegi þurftu
leikararnir að ganga í gegnum
aðra eins æfingu eftir hádegi.“
Þórhallur segist hafa valið efni úr
bókunum þremur sem Guðrún
Helgadóttir, rithöfundur, skrifaði
um þá Jón Odd og Jón Bjarna fyr-
ir um þrjátíu árum síðan. Hafi
hann að því loknu lagt það í hend-
urnar á Guðrúnu sem síðan skrif-
aði handritið. Hann segir alla ald-
urshópa hafa gaman að leikritinu,
ekki síst þá fullorðnu sem á tíðum
væri þeir sem hæst skelltu upp úr.
kolbrun@frettabladid.is
Austurströnd 8 • sími 511 1200 • peturp@islandia.is
É T
L J
UR
Ó S M
PÉTURS
YNDASTÚD
SON
í ó
Daði BBB, eða Bátar, Beib og Bí-
bar. Sýningin stendur til 24.
mars. Gallerí Fold er opið daglega
frá kl. 10.00 til 18.00, laugardaga
frá kl. 10.00 til 17.00 og sunnu-
daga frá kl. 14.00 til 17.00.
Glerlistasýningin Birta hefur verið opn-
uð í Listasal Man Skólavörðu-
stíg 14. Sýningin er liður i Vetrar-
hátíð Reykjavíkurborgar, Ljós í
myrkri. Á sýningunni eru borð-
lampar, vegglampar, Ijósker.skúlp-
túrar og skálar. Þær sem sýna eru
glerlistakonurnar Ingibjörg Hjart-
ardóttir, Kristín J. Guðmunds-
dóttir og Rebekka Gunnarsdótt-
ir. Sýningin stendur til 10. mars.
Opið verður mánudaga til laugar-
daga kl.10 - 18.
Þórey Eyþórsdóttir hefur opnað mynd-
listarsýningu f Ráðhúsi Reykja-
víkur. Sýninguna nefnir hún "Frá
þræði til heildar" og byggir hana
einkum á vefnaðar- og textílverk-
um sem hún hefur unnið að á
undanförnum árum. Auk sýning-
arinnar í Ráðhúsi Reykjavíkur sýnir
Þórey olíu- og vatnslitamyndi I
Veitingahúsinu Horninu við
Hafnrstræti. Báðar sýningarnar
standa til 10. mars.
Ingibjörg Klementzdóttirleirlistamaður
hefur opnað Stuttsýningu i Gall-
erí Reykjavik. Sýninginn ber yfir-
skriftina "Ljósbrot „ og er á dag-
skrá vetrarhátíðar Reykjavíkur „
Ljós í myrkri" Ingibjörg sýnir Ijós
og lampa úr postulíni. Sýningin
stendur til 12. mars.
Guðfinna Hjálmarsdóttir heldur mynd-
listarsýningu í sýningarsal Gallerís
Reykjavíkur Skólavörðustíg 16.
Yfírskrift sýningarinnar er Ylur &
Afl. Verkin eru raflýst og sýnd í
myrkvuðu rými. Sýningin er hluti
dagskrár vetrarhátíðar Reykjavíkur
„Ljós í myrkri". Hún er opin virka
daga kl. 12-18, laugardaginn 2.
mars kl. 11-22, sunnudaginn 3.
mars kl. 14-22. Aðra laugardaga
er opið kl. 11-16 og lokað sunnu-
daga. Sýningunni lýkur 20 mars.
Vatn, grjót, hrosshár, útsaumur, Ijós-
myndir og olíumálverk, þetta er
allt eitthvað sem sjónvarpskonan
Eva María Jónsdóttir vill sjá á
samnefndri sýningu í Gerðubergi.
Fjölbreytnin er mikil í sýningarröð-
inni og fjölmörg splunkuný mynd-
verk auk eldri verka sem ekki hafa
komið fyrir augu almennings í
bland við þekktari verk. Fjölmargir
listamenn eiga verk á sýningunni
Þetta vil ég sjá. Hún stendur til
23. mars.
Tvær sýningar eru nú í Listasafni AS(. (
Ásmundarsal sýnir Inga Sólveig
Friðjónsdóttir Ijósmyndaseríu
sem ber titilinn Lífvana. Myndirnar
eru sviðsettar dauðasenur og fjal-
la um endalok nokkurra kvenna. f
Gryfjunni sýnir iris Elfa Friðriks-
dóttir. Kveikjan að verkunum er
sótt í prjónaaðferðir og fatamerki.
Sýningarnar standa til 10. mars.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 14-18.
EUn Guðmundsdóttir sýnir I gallerfi
Nema hvað. Sýninguna kallar Elín
"mæðgur nema hvað". Þar sýnir
hún teikningar eftir sjálfa sig og
dóttur sína sem hún hefur breytt
með tilliti til rýmisins í gallerfinu.
Opið er mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 16-18.30 og um
helgar kl. 13-17.
í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni
stendur sýningin Carnegie Art
Award 2001. Liðlega 20 lista-
menn frá Norðurlöndunum fimm
taka þátt í sýningunni. Meðal
þeirra er einn Islendingur, Krist-
ján Guðmundsson.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabladid.is