Fréttablaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.03.2002, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 5. mars 2002 ÞRIÐJUDAGUR I RH l \Bl ADIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalslmi: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Simbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta alft efni blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. 1 BRÉF TIL BLAÐSINS [ Heilræði handa þjóðinni Sigurður Sigurðarson skrifar: E' g hefi stofnað fyrirtæki sem heitir Heilræði ehf. í sam- keppni við „Góð ráð“ Friðriks Páls- sonar. Fyrstu ráðin mín til þjóðarinnar gef ég henni, en þau hljóða svo: Forstjóri og stjórnarformaður Símans verði reknir. Starfsmaðurinn sem rekinn var fyrir að segja sannleikann verði ráðinn sem forstjóri. Þórarinn Viðar Þór- arinsson fái ekki krónu vegna starfsloka. Hann skili hins vegar kr. 22.500.000 til baka sem of- greiddum launum. Þessa upphæð fæ ég þannig út: Þingmenn okkar hafa kr. 350.000 á mánuði. Þórar- inn hafði hins vegar kl 1.100.000 á mánuði. Þessi vanhæfi sjálfsbyrg- ingur skili því til þjóðarinnar mis- muninum á þingfararlaunum og þeim launum sem hann hafði hjá þjóðinni sem forstjóri Símans. Sem sagt 30 mánuðir ofgreiddir um 750 þúsund á mánuði. Auðvitað er það ofmat á Þórarni V. að meta hann til þingmanns. En við skulum - mín ágæta þjóð - vera rýmileg, því nú þarf hann að fara að borga fyrir sig sem annað fólk. Mikið verður flokksbróðir Þórarins V. feginn að fá þetta í hringlandi tóm- an ríkiskassann. ■ Sársaukamörk utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, brást einkennilega við niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins um fylgi stjórnmálaflokkanna. Fyrir fáum dögum birtust niður- stöður annarra könnunar um sama efni. Þar ...auðnaðist Fram- Hvað verður sóknarflokknum að um Halldór vera með rétt um þá? einu prósentustigi —♦— meira en í skoðana- könnun Framsóknarflokks- ins. Halldóri var greinilega ekki skemmt yfir að hafa fallið um eitt prósent og sagðist ætla að bíða næstu könnunar Gallup. Hægt er að skilja ráðherrann þannig að hann geri sér vonir um að endur- heimta prósentið og því geti hann tekið gleði sína á ný. Merkilegt er að sjá hversu skýr sársaukamörk Halldórs eru. Honum líður vel með fjórtán pró- senta fylgi en hefur allt á hornum sér nálgist fylgið þrettán prósent. Þegar Fréttablaðið bar honum þau tíðindi að fylgi Framsóknar- flokksins mældist rúmlega þrett- án prósent en ekki fjórtán eins og hjá Gallup byrjaði hann á að gera fyrirvara við könnunina. Hann sagðist kunna það mikið í tölfræði að ekki sé víst að flokkurinn hafi bara þrettán prósenta fylgi en ekki fjórtán. Segir samt að hann hafi orðið fyrir vonbrigðum. Halldór sér ljós í myrkrinu. „Ég bíð eftir næstu Gallupkönnun MáJ...manna Sigurjón M. Egilsson skrifar um viðbrögð sem ég held að verði fróðlegt að sjá.“ Fréttablaðinu þótti svar ráð- herrans einkennilegt og spurði hvað það væri í næstu könnun Gallup sem hann hlakkar svo til að sjá. „Þeir gera mánaðarlega kannanir sem ég tek mark á.“ Það var og. Fari svo að í næstu Gallup- könnun, sem Halldór segist taka mark á, mælist Framsóknarflokk- urinn með minna fylgi en síðast - hvað þá? Já, hvað þá? Hvað verð- ur um Halldór þá? Hættir hann þá að taka mark á Gallup og ber fyr- ir sig leikni sinni í tölfræði? Kannski færast sársaukamörk ráðherrans eitthvað til. Ljóst er að það getur verið sárt að missa pró- sentustig. Kannski tekur hann gleði sína á ný þegar í ljós kemur að hann nýtur fylgis persónulega. Nema leikni í tölfræði komi í veg fyrir gleðina. ■ KVIÐDÓMURINN: Bréf Ossurar til Baugsmanna Reiðibréf Össurar Skarphéðinssonar sem Hreinn Loftsson gerði opinbert hefur vakið upp taisverð viðbrögð. Össur hefur sagt að bréfið hafi verið persónulegt reiðibréf, vegna framkomu Baugsmanna við nákominn ættingja. Umræðan snýst hins vegar um stjórnmálamanninn Össur Skarphéðinsson og áhrif þessa á stöðu hans. LÚÐVÍK BERGVINSSON SAMFYLKINGUNNI Ovíst hver áhrifin verða „Ég held að menn verði að átta sig á því að þetta eru hans persónulegu við- brögð vegna uppákomu í hans fjölskyldu. Ég held að það dyljist engum að hann upplifði þetta á þann hátt að hann reiddist. Öll okkar verk hafa einhver áhrif. Hvort að þetta hafi einhver pólitísk áhrif er mjög erfitt að segja til um. Menn geta auðvitað velt fyrir sér hver eru krossáhrif svona uppá- koma milli persónu og stjórnmálamanns. Ég held að framtíðin ein muni skera úr um það.“ ■ GUÐNI ÁGÚSTSSON LANDBÚNAÐAR- RÁÐHERRA Þarf að læra af frumhlaupinu „Þetta er auðvitað framið í mikilli bræði. Sagt var að menn ættu að láta blóð- l næturnar líða og vera ekki f svona skjótir til reiði; j Hann hleypur á sig. Ég held að þegar upp er stað- ið eigi þetta ekki að skaða hann. Hann þarf hins veg- ar að læra af þessu frum- hlaupi." ■ ÁSTÞÓR JÓHANNSSON (MYNDARRÁÐGJAFI Brást rétt við í íjölmiðlum „Orð manna sem hafa sterka ásýnd vega alltaf þungt til góðs eða ills. Óssur er umdeildari sem stjórnmálamaður en sem líffræðingur. Það er mjög erfitt fyrir hann að ætla | að bregða sér úr kápu stjórnmálamannsins og í kápu líffræðingsins í svona máli. Maður veit hins vegar ekki hversu lengi kjósendur muna svona atburð. Hann brást hins vegar rétt við þegar málið var komið upp. Þeg- ar menn lenda í krísu, þá er mikilvægast að koma strax fram og játa mistök. Sannleikurinn er sagna bestur. Ég held að með réttum viðbrögðum hafi hann dregið úr langtímaá- hrifum af þessu.“ ■ ÓSKAR GUÐMUNDSSON RITHÖFUNDUR Bréfið leið mistök Þessi bréfaskrift Össur- ar er eins og hann seg- ir sjálfur leið mistök. En pólitískt samhengi þessa bréfs er hins vegar mar- grætt. Mér finnst um- hugsunar vert að við skul- um búa í þjóðfélagi þar sem er mjög ískyggileg einokunarmyndun. Þar sem bankar, tryggingafé- lög og matvörukeðjur eru að hrúgast upp í auðhring. Einhvern veginn tengi ég óljóst saman þann gjörn- ing Hreins Loftssonar, ríkiskommissars Sjálf- stæðisflokksins í einka- væðingarferlinu, að birta bréfið, við viðburði um helgina í viðskiptaheimin- um. Þar var verið að ver- sla með bréf Trygginga- miðstöðvarinnar og ítök í íslandsbanka. Ég held að sé eitthvert samhengi hér á milli.“ ■ HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON PRÓFESSOR Neikvæð áhrif • • á Ossur „Þetta hefur eflaust nei- kvæð áhrif á pólitíska framtíð Össurar. Vinstri- menn segja mér að ljóst sé að Ingibjörg Sóirún verði að taka að sér leiðtogahlut- verk í Samfylkingunni eft- ir ár. Þetta ýtir undir það að nú sé verið að kjósa í borgarstjórnarkosningun- um milli Stefáns Jóns Haf- stein og Björns Bjarnason- ar i stöðu borgarstjóra. Þetta er auðvitað ekki í fyrsta skipti sem Össur missir stjórn á skapi sínu eða bregst furðulega við. Margir muna þegar hann flutti embætti Veiðistjóra norður á land af því að honum mislíkaði við einn starfsmann embættisins. Enn muna margir eftir furðulegum viðbrögðum hans þegar Ingibjörg Pálmadóttir hneig í yfirlið. Allt þetta hefur orðið til þess að minnka traust á honum sem stjórnmála- manni.“ ■ Fasteignasala /\ s Sími “ 588 8787 m Suðurlandsbraut 16 zmiBCEmi -Laugavegur. 101 R. Selbrekka. 200. Kóp ORÐRÉTT 55 fm. jarðhæð ny standsett. ^ein sala Irabakki 109 R 94 fm. endaíbúð m. herb. í kj. Laus fljótl. Grýtubakki 109 R. 80 fm. á fyrstu hæð. Laus strax. Ljósheimar. 104. R. Ca. 95 fm. á annari hæð. Laus fljótl. Nökkvavogur 104. R. 80 fm. jarðhæð. Laus fljótl. Bein sala. Laugavegur101. R. 102 fm. á tveim hæðum. Ný standsett. Hvassaleiti 108. R. 250 fm. Raðhús á tveim hæðum m/bílskúr fæst í skiptum fyrir einbýli á stór Reykjav.svæðinu 190 fm. einbýli beÍQ sala. Hákotsv. 225. Alftan. Ca. 190 fm. einbíli m/ 67 fm. bílsk. Gott verð Bein sala. Borgartún. 105. R 440 fm. Skrifstofuhúsnæði. Laust strax. Bíldshöfði. 110. R. 250 fm. Skrifstofuhúsn á annari hæð. Laus strax. Þykkvibær / 851 Hella. 160 fm. Parhús ásamt 140 fm. bílsk og iðnaðarhús- næði. Góð kjör og gott verð. Þverbrekka. 200 Kóp. Ca. 50 fm. 2. Jarðhæð Laus strax Fróðengi 112 R 117 fm. 4-5 herb. Laus strax. Atvinnuhúsnæði Hverfisgata 115 m2 á götu- hæð. Verð 13.500,- HVAÐ MEÐ BLÝANTANAGAR- ANA? Unglingar sem mældust með mest blý í blóðinu í fyrsta bekk frömdu að meðaltali 4,5 sinnum fleiri afbrot síðustu tólf mánuð- ina heldur en börn með lægsta blýmagn í blóði í fyrsta bekk. Svo virðist sem áhrif þessa umhverf- issjúkdóms á taugaþroska séu ekki eingöngu bundin við hnign- un greindarvísitölu eða náms- getusegir Kim Dietrich, einn vísindamannanna við barna- sjúkrahús í Cincinatti, þar sem rannsóknin var gerð. Fréttablaðíð 4. mars YOU AIN'T SEEN NOT- HING YET Það hlýtur að sæta furðu að Sjálfstæð- isflokkurinn bæti við sig fylgi á lands- vísu nánast í sömu viku og mál Landssímans og Þjóðmenningarhúss náðu há- mæli. Ef til vill þótti þjóðinni Davíð Oddsson standa sig svona vel í að „kasta syndunum bak við sig“, svo notuð séu hans eigin orð. Þó er líklega nærtækara að líta til stjórnarandstöðunnar í þessu sambandi. Það sýnir sig nefnilega enn og aftur hvað hún er veik, hún er sama og engin ógn við Sjálfstæðisflokkinn. Egill Helgason á strik.is 4. mars EKKI BENDA Á MIG Ég tel hins vegar að ráðuneytið hafi unnið í þessu máli eins og efni stóðu til og eðli- legt var. Þannig að þegar þessu fári linnir og fólk hefur fengið tækifæri til að meta allar aðstæður mun staðan verða önnur en þessi. Þetta er niður- staða sem kemur í kjölfar mjög óvenjulegrar umræðu; óvenju- legrar aðfarar að ráðherra. Sturla Böðvarsson í Fréttablaðinu 4. mars GÓÐ MENNTUN OPNAR ÝMSAR DYR Við höfum starf- að saman á ýms- um öðrum svið- um en í útvarpi. Það var alveg búið að liggja í loftinu að við myndum hætta með þáttinn eftir að samningi okkar við Norðurljós lyki. Það átti að vera á þessu ári. Við tókum bara smá forskot á það. Þetta var allt í hinu mesta bróðerni. Hann vill fara að sinna einhverju öðru. Ég get ekkert sagt um hvað það er, hann verður bara að svara fyrir það. Ilann finnur sér alltaf eitthvað til strákurinn. Hann er með meira- próf og svona. Sigurjón Kjartansson um félaga sinn Jón Gnarr. Fréttablaðið 4. mars INNHERJAR Hefnt í hér- aði sem hall- ast á Alþingi Innherjar á visi.is velta fyrir sér niðurstöðum skoðanakannana sem sýna sterka stöðu Sjálfstæðis- flokksins á landsvísu. Staða hans er hins vegar veik í borginni. Einn spjallara telur að Davíð Oddsson eigi að boða til alþingiskosninga núna og nýta sér meðbyrinn. Undir þetta tekur næsti maður. „Ég tek undir með þér að það væri snjall leikur njá Davíð Oddssyni að boða til þingkosninga á þessu ári. Ég tel réttast að hafa þær kosningar sam- hliða sveitarstjórnarkosningunum í maí.“ Næsti skiptir um umræðu- efni og segir könnun Fréttablaðsins sýna að íslendingar séu sauð- heimskir. Hann furðar sig á góðri útkomu Sjálfstæðisflokks. „Þó mér líki ekki við xB þá finnst mér harla skrýtið að kjósendur hegni þeim fyrir það sem xD gerir“ Menn furða sig á því að staða Sjálfstæðis- flokksins sé svona misjöfn milli landsmáia og borgarmála. Einn inn- herji hefur skýringar á því hvers vegna flokknum sé refsað fyrir erf- ið mál í borginni. „Aukinheldur þá hiýtur svona skandall að hafa meiri áhrif á kosningar sem eru að skella á, frekar en eitthvað sem er á döf- inni í fjarlægri pólitískri framtíð." Innherjar eru umræðuvettvangur á vefnum visir.is. Aðstoðum viðskiptavini og aðra við gerð leigusamninga g^fa steiginas am^imga^ Traustir^igm e nn^aðn/e www.h-gaedi.is - netfang: sala@h-gaedi.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.