Fréttablaðið - 05.03.2002, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAUR 5. mars 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
7
Bandarísk þyrla skotin niður í Afganistan:
A1 Kaída veitir harða mótspyrnu
washington. ap Að minnsta kosti
sex bandarískir hermenn létust
þegar þyrla þeirra var skotin nið-
ur yfir austurhluta Afganistans.
Til skotbardaga kom eftir að þyrl-
an hrapaði. Þetta er mesta mann-
fall sem Bandaríkjamenn hafa
orðið fyrir í einu í stríðinu í
Afganistan.
Meira en þúsund bandarískir
hermenn og samherjar þeirra
hafa undanfarna daga barist við
liðsmenn al Kaída og Talibana-
hreyfingarinnar, sem safnað hafa
liði í austurhluta Afganistans.
Bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið sagði andstæðinga sína þarna
vera nokkur hundruð, ekki fimm
þúsund eins og fullyrt hafði verið
í fréttum. Flestir þeirra eru liðs-
menn al Kaída, samtaka Osama
bin Ladens.
Victoria Clarke, talsmaður
bandaríska varmarmálaráðuneyt-
isins, sagði Bandaríkjamenn hafa
mætt mikilli og harðri mótspyrnu.
„Þetta eru greinilega þeir sem
hafa kosið að berjast til þrautar,"
sagði hún.
Auk bandarískra hermanna
taka þátt í aðgerðunum hermenn
frá Astralíu, Danmörk, Frakk-
landi, Kanada, Noregi og Þýska-
landi. ■
BARIST í AFGANISTAN
Þessi afganski hermaður berst með bandaríska hernum gegn liðsmönnum al Kaída.
Héraðsdómur:
Bílaþjófur
fær sekt
PÓMSIVIÁL Karlmaður var í gær
dæmdur til að greiða 25 þúsund
króna sekt fyrir að hafa stolið bíl
sem hann fékk til reynslu á bíla-
sölu. Maðurin, sem er 32 ára gam-
all, fékk bílinn hjá Heklu hf. um
kaffileytið laugardag einn í maí í
fyrra. Hann skilaði ekki bílnum í
dagslok. Lögregla stoppaði mann-
inn nóttina eftir í Lönguhlíð.
Maðurinn sagðis hafa ætlað að
skila bílnum en komið að luktum
dyrum hjá Heklu. „Hafi hann þá
ekki vitað hvað gera skyldi við bif-
reiðina og tekið þann kost að hafa
hans til næsta dags,“ eins og segir
í niðurstöðu Héraðsdóms Reykja-
víkur. ■
efstir
er sterkastur stjórnar-
margt lík.
vandrasðum af formönnunum
fimm. Össur fær 4,6 í meðalein-
kunn hjá kjósendum allra flokka.
Útkoma Sverris er ennþá verri.
Hann fær aðeins 3,3 í meðalein-
kunn. Hvorugur þeirra myndi ná
prófi í skóla með þá meðaleinkunn
sem þeir fá hjá kjósendum í þess-
ari skoðanakönnun. ■
aSVERRIR
HERMANNSSON
3,3 5,6 3,2
Kolfallinn hjá
þjóðinni
Sverrir Hermannsson er sá
flokksformannanna fimm sem
lægsta einkunn fær hjá kjósend-
urn (3,3). Þetta gildir hvoru tvegg-
ja hjá stuðningsmönnum eigin
flokks (5,6) og öðrum kjósendum
(3,2).
Sverrir fær sömu meðalein-
kunn hjá karl- og kvenkjósendum
(3,3). Litlu munar á einkunnargjöf
hans hjá kjósendum á höfuðborg-
arsvæðinu (3,2) og landsbyggð-
inni (3,4). Lægsta meðaleinkunn
fær hann hjá körlum í suðurkjör-
dæmi (2,9) en hæsta hjá konum í
sama kjördæmi (4,0).
1,1% svarenda gefa Sverri 10 í
einkunn. Hann fær einkunn á bil-
inu 8 til 10 hjá 5,1% kjósenda.
Tveir af hverjum þremur gefa
honum falleinkunn. Einungis 15
kjósendur lýstu stuðningi við
Frjálslynda flokkinn í könnuninni.
Þriðjungur þeirra gaf Sverri fall-
einkunn. Meðaleinkunn hans er
5,6. ■
Úrtakið I könnuninni var valið úr síma-
skrá. 600 manns voru spurðir og skipt-
ust þeir jafnt á milli karla og kvenna.
Helmingur þátttakenda var úr kjör-
dæmunum þremur á höfuðborgar-
svæðinu og helmingur úr landsbyggð-
arkjördæmunum þremur; Suður-,
Norð-austur- og Vesturlandskjördæm-
um. Spurningin var: Hvaða einkunn
(heilar tölur frá O-IO) myndir þú gefa
eftirtöldum stjórnmálamönnum fyrir
frammistöðu sína í starfi?
Vær»tan\eg
meö þvi aö kaupa toivumar og rekstrarvö
fyrirtækisins þar sem þær em ódýrastar?
itanleg
líll Helios 1000 MHz
AMD DURON 1000 MHz. Örgjörvi. 17" TATUNG margmiðlunarskjár.
40 GB Ultra-DMA harður diskur, 256 MB vinnsluminni.
16 hraða DVD drif. 64 MB Geforce MX2 skjákort rneð TV Out.
56K fax mótald. Netkort. Windows XP. 2 USB tengi. Stór kassi
með miklum möguleikum. Tveggja ára ábyrgð.
Ath. Sýnd með flötum LCD skjá.
iru Intel P4 1,6 GHz örgjörvi
14" TFT skjár. Geislaskrifari og DVD. 256 MB minni. 20 GB harður
diskur. Margirtengimöguleikar. Vönduðtaska fylgir með. Windows
XP Home. Frábær kostur fyrir metnaðarfulla notendur.
FYRSTA P4 FARTÖLVAN Á ÍSLANDI
Innkaupastjóri!
■ ■ Helios Pentium IV
Intel Pentium 4, 1,6 GHz örgjörvi. 17" TATUNG margmiðlunarskjár.
40 GB Ultra-DMA harður diskur. 256 vinnsluminni. Vandaður 24x
NEC geislaskrifari.16 hraða DVD drif. 64 MB Geforce MX2 skjákort
með /TV Out. 56K faxmótald. Netkort. WindowsXP. 2 USB tengi.
Stór kassi með miklum möguleikum. Tveggja ára ábyrgð.
Ath. Sýnd með flötum LCD skjá.
iru Intel Cel 1000 örgjörvi.
128 MB minni. 20 GB harður diskur. 14“ TFT skjár. Geislaskrifari
og DVD. Margir tengimöguleikar.
Windows XP Home.
.1
IB *
Skrifstofumarkaður Opið virka daga 10-18
Skeifunni 11d • Sími 533 1010 laugardaga 12-16
GRIFFILL