Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN ~JL Wíí Einkarekstur er ekki svarið við vanda Land- spítalans að mati les- enda. Eingöngu 24% telja að svo sé en 76% eru þeirrar skoðunar að einkarekstur myndi ekki leysa neinn vanda. Er einkarekstur í heilbrigðis- kerfinu lausnin á vanda Land- spítalans Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is 24% Spurning dagsins í dag: Eru íslendingar fordómafullir í garð útlendinga? Farðu inn á vísi.is og segðu þfna skoðun Baugur og Arcadia: Ekki fjand- samleg yflr- taka viðskipti Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir að fregnir í breskum fjölmiðlum í gær um yfir- vofandi fjandsamlega yfirtöku Baugs á Arcadia séu ekki á rökum reistar. Daily Mail hafði það eftir ónefndum heimildarmönnum úr bresku viðskiptalífi að Baugur hefði í hyggju að hrifsa til sín völd- in í Arcadia innan skamms, með eða án stuðnings stjórnar félagsins. Jón Ásgeir sagði Baug enn hafa áhuga á Arcadia. Ekkert hefði breyst varðandi það frá því greint var frá viðræðuslitum félaganna í síðasta mánuði. „Við höfum átt gott samstarf. Ef við færum fram aftur þá yrði það gert á vinalegum nót- um.“ Hann sagðist telja að verið væri að mistúlka orð Stuart Rose, forstjóra Arcadia, frá því á aðal- fundi félagsins í byrjun febrúar. Þegar Rose greindi frá því að sam- komulag myndi ekki nást við Baug hafði hann þann fyrirvara á að ekki væri hægt að útiloka fjandsamlega yfirtöku. Gengi Arcadia hefur hækkað úr 260 pensum í 304 undanfarinn mán- uð, en viðræður um yfirtöku Baugs byggðust á genginu 300. Bresk ráð- gjafafyrirtæki telja líklegt að gengi Arcadia hækki á næstunni. ■ Skólavörðuholtið: Endurbætur fyrir níutíu milljónir borgin Reykjavíkurborg áformar að verja um 90 milljónum króna til endurbóta á Skólavörðuholtinu í sumar. Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri segir að m.a. sé stefnt að því að ljúka við hellulagn- ingu og^ malbika lóð Hallgríms- kirkju. í þessari framkvæmd er ráðgert að ljúka vinnu við bílastæði austan og vestan við kirkjuna. Hins vegar verður einhver bið á framkvæmdum við bílastæðin sem eru á milli kirkjunnar og Iðnskól- ans. Þessi stæði eru í sameign borg- ar, kirkju og skólans. Gatnamála- stjóri segir að áður en ráðist verði í endurbætur á þeim bílastæðum þurfi að skoða þessa sameign betur með tilliti lóðamarka. í þeirri skoð- un þarf einnig að fást niðurstaða hvernig kostnaður vegna þeirra framkvæmda skiptist á milli þess- ara þriggja aðila áður en hafist verður handa við þennan hluta Skólavörðuholtsins. ■ I ERLENT I Þrír danskir og tveir þýskir hermenn létust í sprengjuslysi í Kabúl, höfuðborg Afganistan í gær. Mennirnir voru í Afganistan á vegum alþjóðlegr- ar friðargæslusveitar. Mennirnir létust er þeir voru að eyðileggja tvær rússneskar eldflaugar. Sjö aðrir hermenn særðust í spreng- ingunni, þar af þrír alvarlega. FRÉTTABLAÐIÐ 7. mars 2002 FIMMTUDAGUR 4.500 manns í nefndum ríkisins: 417 milljónir í launakostnað stjórnsýsla Fjöldi nefnda á vegum ríkisins á árinu 2000 voru 910. í þeim störfuðu 4.456 einstaklingar og þáðu fyrir það 417 milljónir króna. Þetta kemur fram í nýrri út- tekt Ríkisendurskoðunar. Til sam- anburðar er hægt að segja að allir íbúar Seltjarnarness hafi setið í nefndum á vegum ríkisins árið 2000. Frá árinu 1985 hefur nefndum fjölgað um 52 prósent. Nefndum hefur fjölgað frá þeim tíma um samtals 63. Flestar starfa þær und- ir menntamálaráðuneytinu, eða 237 talsins. Að meðaltali eru fimm nefndarmenn í hverri nefnd. í úttekt Ríkisendurskoðunar á 51 nefnd kom í ljós að 18 prósent þeirra störfuðu ekkert á árinu 2000 og skiluðu engum árangri. Stofnunin beinir þeim tilmælum til ráðuneyta að yfirfara árlega hvort þörf sé á tilteknum nefndum. Á árinu 2000 var hæsti launa- kostnaðurinn í menntamálaráðu- neytinu enda mestur fjöldi nefnda starfandi þar. Þegar kostnaður er metinn er borgun fyrir sérfræði- þjónustu ekki tekinn með. Ríkisendurskoðun telur að kanna þurfi betur hvort starfs- menn ríkisins eigi að fá greitt sér- staklega fyrir setu í nefndum. Oft megi líta á nefnd- arsetu sem hluta af starfi ríkis- starfsmanna. Embættismaður fær ekki greitt fyrir nefndarsetu ef verkefni tengist ráðuneyti hans. Ríkisendur- skoðun telur að halda þurfi betur utan um launa- kostnað vegna nefndar- og stjórn- arlauna þannig að hægt sé að nálg- ast heildarnefndarlaun án mikillar fyrirhafnar. ■ MENNTAMÁLA RÁÐHERRA 237 nefndir starfa undir hans stjórn. INNLENT Landbúnaðarráðherra og f jár- málaráðherra ásamt samninga- mönnum Bændasamtaka íslands skrifuðu í gær undir nýjan samn- ing um verkefni samkvæmt búnað- arlögum og framlög ríkisins til þeirra á árunum 2003-2007. Búnað- arsamningurinn var undirritaður á Búnaðarþingi á Hótel Sögu. Fram- lög ríkisins á tímabilinu nema alls rúmurn 2,8 milljörðum króna. Kaupþing hefur selt tæpan helming af eignarhlut sínum í Búnaðarbanka íslands. Söluvirðið er um 735 milljónir króna. Eftir söluna á Kaupþing 3 prósent í Bún- aðarbankanum. í tilkynningu Verð- bréfaþings er ekki tilgreint hver keypti hlut Kaupþings. SKODANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS Karlar vilja sömu stjórn, konur vilja breyta til Helmingur kjósenda vill áframhald á stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir kosningar. Hinn helmingurinn vill breyta til. Sjöundi hver stuðningsmaður Samfylkingar vill óbreytta stjórn og þar með Samfylkinguna í stjórnarandstöðu. könnun Landsmenn skiptast í tvo álíka stóra hópa í afstöðu sinni til þess hvort þeir vilji að Sjálfstæð- isflokkur og Framsóknarflokkur endurnýi stjórnarsamstarf sitt eftir næstu þingkosningar sam- kvæmt skoðanakönnun Frétta- blaðsins. 49,4% þeirra sem taka afstöðu eru fylgjandi því að flokk- arnir starfi áfram saman í stjórn eftir næstu þingkosningar. 50,6% eru andvígir því að núverandi stjórn sitji áfram að völdum eftir næstu kosningar. Líkt og við var að búast eru það stuðningsmenn stjórnarflokkanna sem hafa mestan áhuga á því að Könnunin var gerð sunnudaginn 3. mars. Úrtakið í könnuninni var valið úr símaskrá. 600 manns voru spurðir og skiptust þeir jafnt á milli karla og kvenna. Helmingur þátttakenda var úr kjördæmunum þremur á höfuðborgarsvæðinu og helmingur úr landsbyggðarkjördæmunum þremur. 84,0% aðspurðra svöruðu spurningunni: Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) því að nú- verandí stjórnarflokkar, Sjálfstæðisflokk- ur og Framsóknarflokkur, myndi áfram ríkisstjórn eftir næstu kosningar? flokkarnir haldi stjórnarsam- starfi sínu áfram. Sjálfstæðis- menn eru nokkuð einhuga. 89,1% þeirra vill áframhaldandi stjórn- arsamstarf við Framsókn en 10,9% hafna því. Framsóknar- menn eru ekki jafn sannfærðir þó mikill meirihluti vilji halda stjórnarsamstarfinu áfram. Þrír af hverjum fjórum stuðnings- mönnum flokksins eru hlynntir áframhaldandi samstarfi. Fjórð- ungur vill breyta til. Meirihluti annarra kjósenda vill breyta til. 98,1% stuðnings- manna Vinstri-grænna vilja sjá nýja ríkisstjórn. 86,1% stuðnings- manna Samfylkingar eru sömu skoðunar. 13,9% þeirra sem myndu kjósa Samfylkinguna kjósa þó áframhaldandi samstarf núverandi stjórnarflokka. Það myndi útiloka Samfylkinguna frá stjórnarsetu. Kjósendur Frjáls- lynda flokksins eru sáttastir stjórnarandstæðinga við ríkis- stjórnina. Þriðjungur þeirra vill óbreytt stjórnarsamstarf eftir næstu kosningar. Tveir þriðju RÍKISSTJÓRNIN Landsmenn skiptast í tvo nær jafn stóra hópa í afstöðu sinni til þess hvort þeir vilja áframhaldandi stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir næstu þing- kosningar. STUÐNINGUR VIÐ ÁFRAMHALDANDI STJÓRNARSAMSTARF FRAMSÓKNARFLOKKS OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKS STUÐNINGUR VIÐ AFRAMHALDANDl STJORNARSAMSTARF FRAMSOKNARFLOKKS OG SJÁLFSTÆÐISFLOKKS SKIPT EFTIR STUÐNINGI VIÐ STJÓRNMÁLAFLOKKA 49,4o/o 50,6% 55,3o/o 44,7o/o 43,00/o 57,0% Allir Karlar Konur FYLGJANDI ANDVÍG(UR) vilja breyta til. 59,8% óákveðinna kjósenda og þeirra sem ekki gefa upp hvað þeir myndu kjósa vilja sjá nýtt stjórnarmynstur. 40,2% vilja halda í núverandi stjórn. Athygli vekur að mikill munur er á afstöðu kynjanna til þess hvort stjórnin eigi að sitja áfram eftir næstu kosningar. 55,3% karla vilja óbreytt stjórnarsam- starf. 57% kvenna vilja sjá á bak stjórninni. Kjósendur á höfuð- borgarsvæðinu eru mun hlynntari stjórninni en landsbyggðarkjós- endur. 52,2% fólks á höfuðborgar- svæðinu vill að Sjálfstæðisflokk- ur og Framsókn sitji áfram í stjórn eftir næstu kosningar. 53,3% kjósenda á landsbyggðinni vilja nýtt stjórnarmynstur. ■ Rannsóknarnefnd skoði Símann: Stjórnarliðar höfnuðu tillögunni alpingi Sturla Böðvarsson, sam- gönguráðherra segir kröfu þing- flokks Samfylkingarinnar um að rannsóknarnefnd 9 þingmanna fari yfir stjórnsýslu og einkavæð- ingu Landssímans vera vindhögg. Stjórnarliðar höfnuðu tillögunni alfarið í útvarps- og sjónvarps- umræðum sem fram fóru á þingi í gær. „Með tillögunni sem er hér til umræðu í dag er ekkert annað á ferðinni en pólitískur loddara- leikur, til þess eins fallinn að koma höggi á ráðherra, draga úr trausti almennings á fyrirtækinu og sniðganga þann lögmæta vett- vang sem Alþingi hefur sjálft ákveðið að sé eðlilegur í máli sem þessu, sem er meðferð Ríkisend- urskoðunar," sagði samgönguráð- herra. „Skipan rannsóknarnefndar er það vald sem stjórnarskráin fær- ir þingmönnum til að rannsaka mál af þessum toga,“ sagði Jó- hanna Sigurðardóttir, sem mælti fyrir tillögu Samfylkingarinnar. Hún sagði megintilgang tillög- unnar að stjórnsýsla stjórnenda Símans, einkavæðingarnefndar og valdhafa sem ábyrgð bæru á meintum óeðlilegum rekstrar- og viðskiptaháttum og klúðri í einka- væðingu Símans yrði rannsökuð. „Stærstu einkavæðingaráform sögunnar hafa beðið alvarlegt skipbrot og stórskaðað hagsmuni almennings. Ábyrgðin liggur hjá ráðherrum, stjórnendum fyrir- tækisins og einkavæðingar- nefnd,“ sagði hún. ■ JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Jóhanna mælti fyrir þingsályktunartillögu þingflokks Samfylkingarinnar um að rann- sóknarnefnd 9 þingmanna fari yfir Síma- málið. Stjórnarliðar drógu i efa að nefnd þingmanna gæti komist að niðurstöðu í slíku hitamáli.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.