Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 16
rx T x* r rt rrrr rm* rrrv nr 16 FRÉTTABLAÐIÐ *,;r Norræna húsið: Farandsali í norrænni angurværð ____i_____________________________n A HVAÐA PLÖTU ERTU AÐ HtUSTA? [ Athyglisvert elektrópopp Ég er að hlusta á nokkrar plötur. Ein þeirra er mjög athyglisverð, Scary World Theory með Lalípuna. Melódískt elektrópopp frá Morr útgáfunni._______________________________ Birgir Hilmarsson, meðlimur Ampop menning Bókmenntakvöld með sænska rithöfundinum Bengt Berg og bókmenntafræðingnum Sarah Ljungquist verður haldið í Norræna húsinu í kvöld og hefst það kl. 20.30. Sænska rithöf- undafélagið styrkir dagskrána. Aðgangur er ókeypis. Bengt Berg (f. 1946) hefur gefið út rúmlega 25 bækur, aðal- lega Ijóðabækur, síðan fyrsta bók hans kom út 1974. Auk þess að skrifa rekur hann Heidruns Bok- & Bildcafð 'og—samnefnt forlag. Þessi rekstur segir éín- nig nokkuð um metnað Bergs að sameina það staðbundna því heimsborgaralega og hafa í því norræna vídd. Hann er alvöru- gefinn spaugari, háðskar at- hugasemdir um samfélagið geta komið innan um hressilega gam- ansemi, leikur að orðum skiptist á við alvarlegri hugleiðingar. Dagskrá hans gerist austan við sól og sunnan við mána, þar sem skiptast á ljóð og viðkvæmnis- leg endurspeglun annarsvegar og vermsk kímni hins vegar. Sarah Ljungquist heldur í Filmundur: Leitin að eldinum kvikmynd Mynd vikunnar hjá Fil- mundi er La Guerre du Feu eða Leitin að eldinum frá 1981 eftir leikstjórann Jean-Jacques Annaud. Myndin gerist fyrir 80.000 árum og segir frá þjóðflokki sem er í mikl- um vandræðum þar sem eldurinn hefur slokknað í helli þeirra og þau kunna ekki að kveikja hann aftur. Þrír menn fá það hlutverk að finna eld og eftir langa mæðu finna þeir annan þjóðflokk sem er þróaðri og kann að kveikja eld, en hefur ekki í hyggju að láta hann af hendi. Leitin að eldinum verður sýnd í Háskóla- bíói í kvöld kl. 22.30. ■ FIIVIIVITUPAGUR 7. IVIARS FUNPUR_______________________________ 09.00 Steingrímur Hermannsson fyrr- verandi forsætisráðherra er meðal fyrirlesara á námskeiði um stöðu aldraðra í nútímasamfélagi sem haldið verður hjá Endurmenntun HÍ í dag. Leitað verður svara við því hvaða áhrif aldraðir muni hafa á nýrri öld með tilliti til atvinnu- þátttöku, stjórnmálaþátttöku, fjöl- skyldulífs, aldursfordóma, einstak- lingsfrelsis, sjálfræðis og fleiri þátta. 12.30 Fræðslufundur verður haldinn í dag á Keldum. Fyrirlesari er Þóra J. Jónasdóttir dýralæknir, íslenskri Erfðagreiningu. Titill erindis: „Rannsóknir á erfðasjúkdómum í dýrum - með áherslu á hunda og krabbamein." Fræðslufundir eru haldnir í bókasafni Keldna í húsi 2. 16.00 Dr. Hólmfríður Garðarsdóttir, bókmenntafræðingur og aðjúnkt í. spænsku við Heimspekideild Há- skóla íslands heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í kvenna- fræðum í dag i Norræna húsinu. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina "Sjálfsmynd og sjálfsmat kvenna við árþúsundalok og pólitískt hlut- verk samtímarithöfunda I löndum Rómönsku Ameríku". (fyrirlestrin- um greinir Hólmfríður frá niður- stöðum rannsóknar sinnar á argentínskum bókmenntum eftir konurÝ á síðasta áratug. 16.00 Málstofa i læknadeild verður haldin í dag í sal Krabbameinsfé- lags (slands, efstu hæð. Steinþóra Þórisdóttir ræðir um Genatján- ingu i æðavef. 20.00 Siðfræðistofnun efnir til málþings í Borgarleikhúsinu um leikritið Gestinn sem nú er sýnt á Litla sviði leikhússins. Á málþinginu tala þau prófessorarnir Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræð- l’ÁI I ÓSKAR MONIKA ABFNDRC) 111 í VÍDISTAÐAKÍRK|U, I lAPNARI IRDI SLINNPIDAGINN 10. MARS KL.20.30 J;l rc, SOFNAI KKI í NÓ I I hefura.lli lilað bera til að ná þeim efursókiiarverða árangri aðverða gripur sem hlustað verðui á afttii ogafun “ .STFINUNN HAItALDSDÖ r I IR. MORCUNBLAÐlÐ HiMNASÖNG LÍKA-ST Xinlaegni ogunaður flytjenda skin i gegnum hvern einasta tón og hrifur fólk með sér. Samspil baritónsraddar l’áls Óskars og liörpu Moniku er himnasöng Ifkast." KRISTJAN HIAI.MARSSON I RÉT1ABLADIÐ J yrsui þi|ú lögin voru Svo fögur að ég hugsaði með mér: .11 liann helilur svona áfram fer ég að hágrenja" ANI )IU A lÓNSDélT IIR. 1 (>MI IS1 ARtíl Al >11) SÁNI) Sl 11 )|R I VII)|slAI)AKIRK|U A lONIIIKADI GI UigefíiÍHli t'OIMii DRIII IN(. 7. mars 2002 FIMMTUPAGUR BENGT BERG Bengt Berg hefur fengið bókmenntaverð- laun Sænsk-finnska menningarsjóðsins, verðlaun forlagsins „En bok för Alla" fyrir að örva lestur með þjóðinni og Ijóðaverð- laun Gustav Fröding-félagsins. Hann er kunnur fyrir að vera alvörugefin spaugari. kvöld stutt erindi sem kallast: And-alræðis distópía í sænskum bókmenntum á 20. öld, með sér- stakri áherslu á Karin Boyes Kallocain (1940) Segir í stuttu máli frá útópíu og distópíu í sænskum bókmenntum frá fyrri hluta 18. aldar til loka síðari heimstyrjaldar. Hún varði dok- torsritgerð sína í október á síðasta ári. Sarah Ljungquist er doktor í bókmenntafræðum, búsett í Umeá og er lektor við háskólann í Gavle. ■ en Islenski kvendjasspíanistinn Sunna Gunn- laugsdóttir leikur á tónleikum í Kaffileikhús- inu í kvöld. Er á leiðinni í tónleikaferðalag um Evrópu. tónlist Sunna Gunnlaugsdóttir er íslenskur kvendjasspíanisti sem vakið hefur verðskuldaða athygli erlendis. Hún er nú stödd á íslandi en er á leiðinni í hljómleikaferðalag um Evrópu með kvartett sinn. Sunna held- ur tónleika í kvöld á vegum djassklúbbsins Múlans í Kaffi- leikhúsínu, Hlaðvarpanum. Síð- asti diskur Sunnu „Mindful" var valinn á meðal 10 bestu diska ársins af stærsta dagblaði Virginíu, the Virginian Pilot, eftir að kvartettinn kom fram fyrir.íslands hönd á Azalqa há- tíðinni árið 2000. „Ég sá aldrei fyrir að vera komin í þau spor sem ég er í núna. Ég byrjaði sem barn að læra á orgel í Tón- skóla Emils Adolfssonar þar sem ég lék polka og bítlalög. Það heillaði mig aldrei að fara í klassískt píanónám þrátt fyrir endalausa hvatningu frá kenn- ara mínum. Trúlega voru það mistök af minni hálfu eftir á að hyggja, ég hefði einmitt haft mjög gott af því.“ Sunna tók þá ákvörðun 18 ára gömul að skip- ta ýfir á píanó og læra djass í FÍH: „Ég vildi halda áfram að læra og var að leita að ein- hverju öði’u en klassík. Djass- inn hafði alltaf heillað mig og varð hann því fyrir valinu." Eftir að námi lauk í FÍIJ árið 1993 fór Sunna í skóla William Paterson í New Jersey í Banda- ríkjunum. Þar kynntist hún nú- verandi eiginmanni sínum Scott McLemore sem leikur með henni á trommur. „Eftir að námi lauk fluttum við yfir ána til New York þar sem ýmis spennandi tækifæri tóku á móti okkur. Ég hafði alltaf ætlað mér áð flytja strax heim aftur en komst að því að tónlistarum- hverfið í New York var hollt fyrir ungan hljóðfæraleikara." Sunna er búsett í Bandaríkjun- um þess á milli sem hún flakk- ar um heiminn og spilar. Eins og fyrr segir er hún á tónleika- ferðalagi um Evrópu. Mun kvartettinn koma fram í Þýska- landi, Frakklandi, Austurríki og Tékklandi. Fjölmiðlar hafa sýnt íslensku djasskonunni tölu- verðan áhuga. Tímaritin JazzZeitung og JazzPodium í Þýskalandi, Concerto í Austur- ríki og Jazzman í Frakklandi ætla að fjalla um diskinn Mind- ful af þessu tilefni, einnig mun viðtal við Sunnu birtast á þýsku síðunni stereo.de í þessu mán- uði. „Ég ætla ekki að flytja heim alveg strax heldur nýta þau tækifæri og sambönd sem mér hafa áskotnast. Eftir nokkur ár þegar ég er búin að mynda góð sambönd í Evrópu get ég búið hvar sem er og þá er aldrei áð' vita. Það má segja að ég sé komin í hörkuna og nú er að duga eða drepast," segir þessi þrjátíu og tveggja ára gamli djassari að lokum. kolbrun@frettabladid.is ■ SUNNA GUNNLAUGSDÓTTIR Kvartettinn hennar Sunnu leikur rómantískan og lyrískan djass með krafti og sveiflu. Hann hefur þegar komið fram í 10 fylkjum Bandaríkjanna og þess má geta að hann fór í tónleikaferð um ísland árið 2000. Kvartettinn skipa auk Sunnu þeir Ohad Talmor á saxofón, Matt Pavolka á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.