Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 11
í FIMMTUDAGUR 7. mars 2002 Marijuananotkun: Minni tapast og athyglis- gáfa minnkar heilsa Langtímanotkun eiturlyfsins marijuana getur leitt til þess að minni fólks tapast og athyglisgáfa þess minnkar. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem gerð var á hópi marijuana-reykinga- manna í Bandaríkjunum. Rannsóknin, sem birtist í tíma- ritinu „The Journal of the American Medical Association," sýndi fram á að þeir sem reykja marijuana á degi hverjum eiga það á hættu að eiga í meiri erfiðleikum en aðrir í skólan- um, í vinnunni og í samskiptum sín- um við annað fólk. ■ Þrjú innbrot í Reykjavík: Hárframleng- ingum og áfengi stolið innbrot Þrjú innbrot voru fram- in í Reykjavík í fyrrinótt og m.a. stolið áfengi og hárfram- lengingum. Að sögn lögreglu er búið að upplýsa tvö innbrotanna en eitt er óupplýst. Brotist var inn á veitinga- staðinn Senor á Lækjargötu um klukkan 2 og stolið áfengi. Lög- reglan sagðist ekki vita hversu miklu magni hefði verið stolið eða hvers konar áfengi. Þjófur- inn, sem braut rúðu bakatil í húsinu, er ófundinn. Um klukkan 3.30 brutust tveir menn inn í Hafnarhúsið. Þeir komust inn í port inn um ólæstar dyr og þaðan inn í stiga- gang í húsinu. Vaktmaður varð var við mennina og hringdi í lögreglu. Þegar hún kom á vett- vang voru mennirnir enn í hús- inu og voru þeir handteknir án þess að hafa náð að stela ein- hverju. Klukkan 5 um nóttina var brotinn sýningargluggi á hár- snyrtistofu og ýmsu stolið, m.a. hárframlengingum. Tvær stúlkur sáust flýja frá vett- vangi og handtók lögreglan þær þar sem þær voru á leið í bíl sem beið þeirra. Ökumaður bílsins var einnig handtekinn. Að sögn lögreglunnar hafa þre- menningarnir áður komið við sögu lögreglu. ■ REYKJAVÍK Tillaga um að borgarlandið verði friðlýst fyrir umferð og geymslu kjarnorku- efna- og sýklavopna var lögð fyrir borgar- ráð á þriðjudaginn. Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur samþykkti tillöguna í febrúar en borgarráð frestað afgreiðslu hennar. r~>' r afsláttur afsláttur Póstkröfusími 575 5156 af skíðum og brettavörum af Burton snjóbrettum af skíða- og kuldafatnaði Drífðu þig á staðinn og skelltu þér á skíði! NANOQ* lífið er áskoran! iTtTi rí * i ——. • 390 gorma • sérstyrktar á köntunum. • mjög vel bólstraðar og mjúkar. • mjög slitsterkt áklæði. Afbragðsgóð miðlungsstíf dýna. Tvöfalt gormalag. Með dýnunni fylgir þykk og góð yfirdýna. Grindin er úr sterkri ofnþurrkaðri fum. Verð án fóta. 120x200 sm. ;?.900,- nú 35.000, 140x200 sm. 45.500,- nú 39.900. msöaS 32181 90x200 sm w | # fh Hl

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.