Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ 7. mars 2002 FIMMTUDACUR HRÓSIÐ Hrósið fær Anna Heiða Pálsdóttir fyrir að hvetja íslenska barnabókahöfunda að hætta að einfalda efnistök bóka sinna. Jafnframt er henni hrósað fyrir að benda rithöfundum barnabóka á að börn á aldr- inum 10-14 ára séu reiðubúin að taka á móti flóknari bókum. TÍMAMÓT JARÐARFARIR______________________ 13.30 Stefán H. Sigfússon, Sæviðarsundi 4, Reykjavik, verður jarðsunginn í dag frá Fossvogskirkju STÖÐUVEITINGAR_____________________ Þóra Ákadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, hefur verið kjörin forseti bæj- arstjórnar Akureyrar. Vigdís Jakobsdóttir hefur verið ráðin til að veita fræðsludeild Þjóðleikhússins forstöðu. AFMÆLI_______________________________ Anna Kristine Magnúsdóttir er 49 ára í dag. Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur er 54 ára í dag. Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir er 54 ára í dag. ANPLÁT______________________________ Kristfn Cisladóttir, Sóltúni 2, lést 22. febrúar. Jarðaförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. María Jóhannsdóttir, Garðarsbraut 43, Húsavik, lést 3. mars. Þórir Jón Jensson, Heiðargerði 54, Reykjavík, er látinn. Gunnar Cuðmundsson, lést 3. mars. Hulda S. Fjeldsted, lést 23. febrúar. Leslie John Humphreys, lést 3. mars. Sigurður Þórir Jónsson, lést í Dan- mörku 2. febrúar. Jarðaförin hefur farið fram. Konan og dæturnar undirbúa kvöldið Eg hafði hugsað mér að láta þennan dag líða hjá rétt eins og aðra daga ársins,“ segir Aðal- steinn Ingólfsson listfræðingur sem er afmælisbarn dagsins. „Kona mín og dætur hafa hins vegar hugsað sér eitthvað annað og hef ég grun um að þær undirbúi eitthvað skemmtilegt í kvöld.“ Að- alsteinn er fæddur á Akureyri árið 1948. Hann nam við Menntaskól- ann á Laugarvatni en sótti fram- haldsnám í bókmenntum og lista- sögu til Bretlands og Ítalíu. „Á Ítalíu kynntist ég eiginkonu minni Janet Ingólfsson sem er bresk og eigum við þrjár dætur á aldrinum 19-24 ára. Þegar ég var í námi í bókmenntum vaknaði áhugi minn á að vita hversvegna fólk væri alltaf að búa til myndlist. Ég lauk því bókmenntanáminu og fór síð- an í framhaldsnám listasögu á Ítalíu og Bretlandi." Aðalsteinn er nýráðin forstöðumaður Hönnunar- safnsins í Garðabæ og segir hann það vera skemmtilegt verkefni að koma undir það fótunum. „Því hef- ur verið mjög vel tekið og það er nokkuð um að menn hringi og biðji okkur að líta á gripi og meta. Það verður oft til þess að við tökum þá til varðveislu." Aðalsteinn segist eiga fjölmörg áhugamál og líklega sé það fremur tímaleysi en nokkuð annað að þau séu ekki fleiri. „Ég hef mjög gam- an af austurlenskri matargerð og dunda stundum við að elda. Þá les ég talsvert það sem viðkemur fag- _______________Persónan „Lék forvitni á að vita hversvegna fólk væri alltaf að búa til myndlist" inu auk annarra bókmennta og hlusta á góða tónlist. Á sumrin geri ég talsvert af því að klifra á fjöll. Það er af nógu að taka og helst er að klukkustundirnar séu ekki nægilega margar í sólahring- um.“ Aðalsteinn er á því að seint yrði hann í vandræðum með að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. „Afmælisdagar og það sem þeir merkja í lífinu skelfa mig ekki þess vegna,“ segir Aðal- steinn. ■ Á FJÖLMÖRG ÁHUCAMÁL Aðalsteinn Ingólfsson telur að, að ósekju mættu vera fleiri stundir í sólahringnum 1 AFMÆLI | T vöfalt afmæli Anna Kristine Magnúsdóttir átti fyrir skömmu 25 ára blaðamannsafmæli. Hún hóf störf á Vikunni en síðan hefur hún víða komið við. Nú stýrir hún vinsælum þætti á Bylgjunni og fyrir jólin kom út hennar fyrsta bók. AFMÆLI í DAG Anna Kristine Wlagnúsdóttir er 49 ára I dag Eg á tvöfalt afmæli um þessar mundir því fyrir nokkrum dögum hélt ég upp á að 25 ára eru síðan ég hóf störf í blaða- mennsku. Af því tilefni komu nokkrar vinkonur til mín og ein þeirra færði mér fyrstu blöðin sem ég ég átti í efni,“ segir Anna Kristine Magnúsdóttir sem er 49 ára í dag 7. mars. „Það var alveg ótrúlega skemmtilegt að lesa mín fyrstu skrif og við skemmtum okkur konunglega vinkonurnar." Anna Kristine verður í upptöku á Bylgjunni siðar í dag og því ekki víst að hún geti haldið uppá af- mælið. „Ég býst þó við að ég sjái smugu til að taka á móti móður minni, dóttur og systrum ef stund gefst á milli stríða," segir hún. Anna býr með Geir Ólafssyni söngvai’a og á von á að Geir komi henni á óvart. „Honum tekst alltaf að gleðja mig með gjöfum sínum. Ég hef fengið frá honum fallega skartgripi en uppá síða- kastið hefur hann verið að gefa mér eitthvað fallegt til að klæð- ast. Hann er mikill smekkmaður og ég veit að hann kemur á óvart á afmælisdaginn eins og hann er vanur. Dóttir mín er líka lagin við að gleðja mig með mörgum pökk- um sem innihalda jafnan fallega hluti.“ Anna Kristine er tékknesk að uppruna en faðir hennar var Tékki og gekk ævinlega undir nafninu Mikki Tékki hérlendis. íslenska nafnið hans var Magnús Rafn Magnússon og er hann lát- inn fyrir nokkrum árum. „Fyrstu sex ár æfi minnar bar ég tékk- neska föðurnafnið hans, Mikulcahová. Ég stóð fyllilega undir því þó erfitt væri og gæti vel hugsað mér að fá það aftur.“ Móðir Önnu Kristine er Elín Kristjánsdóttir ættuð frá Stóra- Hrauni á Snæfellsnesi. „Mamma er dóttir Ingunnar Árnadóttur, dóttur séra Árna Þórarinssonar prests og er séra Árni því langafi minn. Anna segir að þrátt fyrir það sé hún algjör miðbæjarrotta og hafi búið þar alla sína tíð. „Þar líður mér best og vil helst hvergi annarstaðar búa,“ segir hún. Um jólin kom fyrsta bók Önnu Kristine út hjá Vöku Helgafelli og var vel tekið að hennar sögn. „Ég er í það minnsta búin að gera annan bókasamning og byrja þann 14. mars á þeirri bók með því að taka fyi’sta viðtalið. Þessi bók vei’ður frábrugðin hinni að því leyti að karlmenn verða í nýju bókinni.“ Þátturinn hennar Önnu sem liún er að taka upp í dag fjallar um siðferði í íslensku þjóðfélagi. „Það er tímabært að tala um það eins og umræðan hefur verið að undanförnu. Tæknimaðurinn minn hann Ragnar á líka afmæli sama dag og ég. Kannski að ég komi öllum á óvart og haldi uppá afmælið með honum," segir Anna Kristine Magnúsdóttir afmælis- barn dagsins. 2 fyrir I af eldri vörum (borgar fyrir dýrari flíkina) hr 11.900 Nýjar vörur mokkajakkar stuttir og síðir með og án hettu \(#HÉI5IÐ Mörkinni 6, sími 588 5518 Ylirhafnír í miklu úrvali fyrir ungu stúlkuna 09 langömmuna SAGA DAGSINS 7. MARS Hinn 29 ára gamli Alexander Graham Bell hafði sótt fast að fá einkaleyfi fyrir uppgötvun sinni sem hann hafði mikla trú á að myndi reynast stórfengleg. Reyndist Bell hafa veðjað á réttan hest því þessi uppgötvun reyndist vera síminn. Einka- leyfið fékk hann síðan útgefið 7. mars 1876. Þrem- ur dögum síðar tókst honum að hringja á milli hæða í húsinu sem hann bjó í. Bell átti eftir að eiga lengi í lagalegum útistöðum vegna einaleyfisins. Stóð hann af sér þá orrahríð og féllu dómar honum í hag. Fyrsta vel heppnaða lang- línusímtalið varð 7. mars 1926 þegar samband komst á milli London og New York. Bandaríski kvikmyndagerðar- maðurinn Stanley Kubrick lést 7. mars 1999. Kubrick var 70 ára þegar hann lést og átti að baki stórmyndir á borð við Dr. Strangelove, 2001: A Space Odyssey, Clockwork Orange, The Shining og síðast Eyes Wide Shut. Bandaríska kvikmyndaleik- kona Joan Crawford vann til Óskarsverðlauna 7. mars 1946 fyrir aðalhlutverkið í myndinni Mildred Pierce. Eftir því sem aldurinn færðist yfir leikkonuna varð fátt um bitastæð hlutverk. Þrátt fyrir það er hún talin hafa leikið í sínu bestu myndum á þeim árum. Má nefna, auk Mildred Pierce, myndirnar Possessed árið 1947 og Sudden Fear árið 1952 sem báðar hlutu tilefningu til Óskarsverðlaunanna. 58.000 Bretar gengu á land í Grikklandi 7. mars 1941. Þessi ákvörðun breska forsætisráð- herrans, Winston Churchill, að kalla hluta breska herliðsins frá Egyptalandi heppnaðist ekki. í apríl réðust Þjóðverjar á Grikk- land og náðu yfirtökunum. Þús- undir breskra hermanna voru teknir höndum. 7. mars 1950, viku eftir að bres- ki eðlisfræðingurinn Klaus Fuchs var dæmdur í 14 ára fang- elsi sakaður um að hafa laumað upplýsingum um atómsprengjuna til Sovétríkjanna, sendu yfirvöldin þar í landi frá sér yfirlýsingu. Neituðu yfirvöld vitneskju um Fuchs og aðild að uppátækjum hans. Þrátt fyrir yfirlýsinguna leiddi handtaka Fuchs til þess að upp komst um njósnahring sem starfaði í þágu Sovétríkjanna í seinni heimstyrj- öldinni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.