Fréttablaðið - 07.03.2002, Qupperneq 6
SPURNING DAGSINS
Ætlar þú til sólarlanda
i sumar?
Nei, alls ekki. Það er mun betra að vera á
íslandi á sumrin. Sérstaklega ef farið er á
hálendið.
Sigurður Ingi Sveinsson er trésmiður.
Stefnumörkun
borgarinnar:
Strætó og
sorpbílar
knúðir
af metangasi
reykjavik Endurnýja á sorpbíla-
flota Reykjavíkurborgar á
næstu árum og eiga bílarnar að
geta gengið fyrir metangasi. Er
þetta í samræmi við stefnu-
mörkun starfshóps um nýtingu
metans á ökutæki sem borgar-
ráð samþykkti á þriðjudaginn.
Jafnframt ætla borgaryfir-
völd að leita eftir því við stjórn
Strætó bs. að skoðaðir verði
möguleikar á því að hluti þeirra
strætisvagna, sem fyrirtækið
rekur, noti metangas.
Stefnumörkunin á að miða að
því að minnka loftmengun í
borginni. í greinagerð starfs-
hópsins kemur fram að mjög
umhverfisvænt sé að nota
metangas á ökutæki. Með því sé
verið að nýta orku sem annars
sé sóað og spara innflutt elds-
neyti.
Mengun vegna útblásturs
kolmónoxíðs, köfnunarefnis-
oxíðs og brennisteinssýru muni
einnig minnka til muna. ■
| ERLENT I
Enginn sáttartónn er í Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísr-
aels. Hann sagði í gær að ísrael-
ar myndu halda uppi árásum á
sjálfstjórnarsvæði Palestínu-
manna, þangað til árásum harð-
línumanna úr hópi Palestínumann
linnti. „Við eigum í hörðu stríði,"
sagði Sharon við hermenn í Jer-
úsalem í gær. Shimon Peres, ut-
anríkisráðherra sagði hins vegar
að átök væru ekki svarið.
ísraelar gerðu sína hörðustu
árás frá því að átökin hófust fyr-
ir 17 mánuðum. Sjö Palestínu-
menn féllu í árásinni sem yar
gerð á Gaza-svæðið. Þrír ísraelar
féllu sömuleiðis. Þrír aðrir
Palestínumenn féllu í öðrum
árásum.
llÖGREGLUFRÉTTIRj
Brotist var inn í þrjá bíla í
vesturbæ Kópavogs í fyrr-
inótt. Að sögn lögreglu var
hljómflutningstækjum stolið úr
bílunum. Þjófarnir hafa ekki
náðst. Yfirleitt eru rúður brotn-
ar í bílum þegar brotist er inn í
þá en í þessum tilvikum stóðu
bílarnir ólæstir. Það gerði þjóf-
unum auðvelt um vik og vill
lögreglan brýna fyrir fólki að
læsa ávallt bílunum þegar það
skilur við þá.
Brotist inn í golfskálan hjá
golfklúbbnum Kili í Mos-
fellsbæ í fyrrinótt. Að sögn lög-
reglu er ekki er ljóst hvort eða
hversu miklu var stolið. Þjófa-
varnarkerfi í húsinu fór í gang
en þegar lögreglan kom á vett-
vang var þjófurinn á bak og
burt. Unnið er að rannsókn
málsins.
FRETTABLAÐIÐ
7 rnars 2002 FIMMTUDAGUR
Assad Sýrlandsforseti:
Styður friðartilboð
Sádi-Arabíu
RÍAD. ap Bashar Assad Sýrlands-
forseti hefur ákveðið að styðja
friðartilboð til ísraelsmanna
sem barst frá Abdúlla krónprins
í Sádi-Arabíu nýverið. Frá þessu
skýrði opinber fréttastofa í Sýr-
landi á þriðjudaginn.
Þeir Assad og Abdúlla rædd-
ust við á þriðjudaginn í Jedda í
Sádi-Arabíu. Að loknum fundi
þeirra lýsti Assad forseti yfir
„stuðningi sínum við hugmyndir
Abdúllas krónprins, sem miða
að því að ná fram sanngjörnu og
víðtæku samkomulagi í þessum
heimshluta," að því er sýrlenska
fréttastofan segir.
Báðir leiðtogarnir sögðu
nauðsynlegt að stofnað verði
sjálfstætt Palestínuríki. Höfuð-
borg þess verði Austur-Jerúsal- ^
em. s
Friðartilboðið felst í því að |
ísraelsmenn afhendi allt það g
landsvæði sem þeir hertóku árið |
1967, það er að segja Vestur- <
ístaksmenn neita ekki
ad hafa verid ásakaðir
Mál Arna Johnsen og meintra sökunauta hans fór til ríkissaksóknara í
gær. Forstjóri Istaks segir sína menn ekkert rangt hafa gert. Hann tjáir sig
hins vegar ekki um það hvort ríkislögreglustjóri hafi borið þá sökum.
EÖGRECLUMÁi Gögn vegna máls
Arna Johnsen, fyrrverandi al-
þingismanns, og tólf annarra
manna sem lögregla grunar um
saknæmt athæfi í tengslum við
mál Árna bárust ríkissaksóknara
í gær.
Starfsmenn ríkislögreglu-
stjóra segja að refsiverð háttsemi
hafi átt sér stað í 32 tilvikum.
Hins vegar sagði
lögfróður maður
„En það hvísl- sem Fréttablaðið
aði því að mér ræddi við í gær að
lítill fugl að tilvikin væru ör-
honum hefði ugglega fleiri en
verið boðið 32. „Það er örugg-
starf. Það er lega ýmislegt
hjá fyrirtæki dregió saman.
sem einnig er Dæmi getur verið
með starfsemi samfelldur þjófn-
erlendis." aður úr sama
q sjóðnum, sem tal-
að er urn sem eitt
tilvik, en er í raun margir aðskild-
ir verknaðir. Þetta eru því í raun
32 kaflar,“ sagði þessi heimildar-
maður.
Sagt er að tólf menn hafi stöðu
sakbornings í málinu. Ríkislög-
reglustjóri heldur því vandlega
leyndu hverjir þeir eru. Þó menn-
irnir hafi stöðu sakborninga er
alls óvíst að þeir sæti ákæru.
Þetta geti t.d. átt við í tilfelli ljós-
myndarans sem Árni virðist hafa
látið innrétta starfsaðstöðu fyrir
án vitneskju ljósmyndarans.
Ljósmyndarinn gæti hafa hagnast
á meintu broti Árna. Það þurfi þó
ekki að leiða til ákæru. Til örygg-
is fái hann þó stöðu sakbornings
HÚS RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA
Sagt er að tólf menn hafi stöðu sakbornings í máli Árna Johnsen. Ríkislögreglustjóri held-
ur því vandlega leyndu hverjir þeir eru. Þó mennirnir hafi stöðu sakborninga er alls óvíst
að þeir sæti ákæru.
því ella gætu skýrslur sem af
honum er teknar ónýst kæmi til
málsóknar gegn honum.
Mál Árna Johnsen hafa tengst
verktakafyrirtækinu ístaki. „Ég
veit ekki til þes að mínir menn
hafi gert neitt rangt," sagði Páll
Sigurjónsson, forstjóri ístaks, í
gær. Páll vildi hins vegar ekkert
segja um það hvort ríkislögreglu-
stjóri hefði borið sakir á starfs-
menn ístaks. „Ég get ekkert tjáð
mig um það á þessu stigi,“ sagði
hann.
Margir telja mál Árna Johnsen
varpa skugga á Ríkisendurskoð-
un. „Hún kemst orðið ekki að
nokkrum sköpuðum hlut. Þetta
hefði allt rúllað í gegn ef ekki
hefði verið þessi blessaði Byko-
maður. Það er bara veruleikinn,"
sagði alþingismaður sem ekki
vildi láta nafns getið.
Árni Johnsen lét af þing-
mennsku í fyrrasumar. Hann þáði
biðlaun frá Alþingi í sex mánuði
þar á eftir. Einn heimildarmanna
Fréttablaðsins í Vestmannaeyjum
segir Árna ekki hafa stundað
fasta vinnu frá því hann hætti á
þingi. „En það hvíslaði því að mér
lítill fugl að honum hefði verið
boðið starf. Það er hjá fyrirtæki
sem einnig er með starfsemi er-
lendis. Ég held að það sé ekkkert
annað fyrir hann að gera,“ segir
heimildarmaðurinn.
gar@frettabladid.is
Indverski rithöfundurinn Arundhati Roy:
Hlaut dóm fyrir að sýna Hæsta-
rétti Indlands fyrirlitningu
nýju-delhí, ap Indverski rithöf-
undurinn Arundhati Roy hlaut í
gær stuttan fangelsisdóm, einn
dag, fyrir að hafa sýnt Hæsta-
rétti Indlands „glæpsamlega fyr-
irlitningu". Það var Hæstiréttur
Indlands sem kvað upp dóminn.
Að dómsuppkvaðningu lokinni
var hún strax flutt í fangelsi til
að afplána dóminn.
Henni var einnig gert að
greiða 2000 rúpíur í sekt. Upp-
hæðin samsvarar um það bil
4.200 krónum. Greiði hún ekki
sektina þarf hún að sitja þrjá
mánuði í viðbót í fangelsi.
Dóminn hlaut hún fyrir að
segja að Hæstiréttur Indlands
reyni að „þagga niður í andstæð-
ingurn" stórvirkra stíflufram-
kvæmda á Indlandi, sem krefjast
þess að hundruð þúsunda manna
þurfi að yfirgefa heimili sín. Roy
hefur mótmælt þessari stíflugerð
ARUNDHATI ROY Á LEIÐ FYRIR RÉTT
Hefur mótmaelt harðlega virkjunaráformum á Indlandi, sem þröngva hundruð þúsundum
manna til þess að flytjast búferlum.
harðlega og verið í fararbroddi
andstæðinga hennar.
Roy hlaut bresku Booker-
verðlaunin árið 1997 fyrir skáld-
sögu sína „Guð hins smáa“, sem
komið hefur út á íslensku. Ilún
hefur einnig gagnrýnt harðlega
hernað Bandaríkjanna í
Afganistan og stríð þeirra gegn
hryðjuverkum. ■
FORSETAR SÝRLANDS OG LÍBANONS
Stuðningur Assads Sýrlandsforseta við frið-
artilboð Sádi-Arabíu gæti ráðið miklu um
afdrif þess. Assad, sem stendur fjær á
myndinni, sést þarna með Emile Lahoud,
forseta Líbanons.
bakkann, Gazaströnd og Gólan-
hæðir ásamt austurhluta Jer-
úsalem. Það eina sem er nýtt við
þetta tilboð, er að það kemur frá
Sádi-Arabíu, sem hingað til hef-
ur ekki ljáð máls á því að viður-
kenna Ísraelsríki fyrr en það
hafi samið um frið við Palest-
ínumenn. Jafn mikið nýmæli er
að Sýrlendingar styðji þetta til-
boð. Vænta má þess að Líbanon
muni einnig styðja hugmyndir
Abdúllas, þar sem Sýrlendingar
hafa mikil áhrif á allar pólitísk-
ar ákvarðanir í Líbanon. Þar
með hafa tvö voldugustu
arabaríkin boðið ísraelsmönn-
um sátt. ■
Ný aðferð við
einkavæðingu:
Hlutur ríkis-
ins seldur í
gegnum
kerfiVÞÍ
einkavæðing Ólafur Davíðsson, for-
maður einkavæðingarnefndar,
sagði á fundi Verslunarráðs íslands
um einkavæðingu í gær, að fram til
tessa hefðu stjórnvöld verið að
selja fyrirtæki
sem ekki væru
skráð á hlutabréfa-
markaði. Það væri
nú að breytast. Nú
væri mögulegt að
selja hlut ríkisins í
félögum í gegnum
Verðbréfaþing ís-
lands.
„Ein aðferð er
að miðla hlutabréf-
um ríkisins út á
markað í gegnum
kerfi Verðbréfa-
þings íslands. Það
gæti til dæmis átt
við um bankana og
seinna um Landssímann,“ sagði
Ólafur. Með þeirri aðferð þyrfti að
gæta sérstaklega að stöðu ríkisins
sem innherja og meðferð trúnaðar-
upplýsinga.
„Ef undirbúa á slíka sölu á mark-
aði í gegnum Verðbréfaþingið þarf
að líta sérstaklega til tímasetningar
tilkynningar um söluna. Hversu
mikið eigi að selja og hve langt út-
boðstímabilið eigi að vera. Einnig
þarf að ákveða hámarkshlut sem
hver og einn getur keypt.“
Ólafur sagði að selt yrði á því
gengi sem markaðurinn ákveði á
hverjum tíma. Ríkisvaldið þyrfti að
setja lágmarksverð á hlut sinn og
veita heimild til að selja á markaði
þegar viðunandi verð fæst. „Kostur
við slíka aðferð er að selt er á skipu-
lögðum markaði með þeim leikregl-
um sem þar gilda," sagði Ólafur. ■
ÓLAFUR
„Það verður
áfram unnið aó
sölu hlutabréfa í
bönkunum og
það kemur til
álita að selja um
sölukerfi Verð-
bréfaþingsins."
Pharmaco samsteypan:
Hagnaður
fimmfaldast
afkoma Hagnaður Pharmaco sam-
steypunnar eftir skatta á síðasta
ári var 1.5 milljarðar króna. Það
er 75 prósent meiri hagnaður en
árið áður. Á síðustu tveimur ái’um
hefur hagnaðurinn fimmfaldast.
Gengi hlutabréfa í félaginu hækk-
að um 33 prósent á árinu. Gert er
ráð fyrir frekari bata á þessu ári.
Rekstrartekjur hækkuðu um
36 prósent á milli ára og námu
tæpum 15 milljörðum. Gengi
hlutabréfa félagsins í árslok var
49,7 og markaðsverðmæti þess
því um 20.657 mkr.
Uppbygging hefur verið mikil
hjá fyrirtækinu í Búlgaríu á ár-
inu. Þar er starfrækt rannsóknar-
og þróunardeild. 15 ný lyf voru
markaðssett í Búlgaríu á síðasta
ári. Nýski’áningar utan Búlgaríu
voru 237 í 19 löndum. Balkanp-
harma átti í árslok 982 skráningar
í 26 löndum. ■