Fréttablaðið - 07.03.2002, Page 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
("nnr pifm v anrtaniiTtv'in':;'
7. mars 2002 FIMMTUDAGUR
HASKOLABIO
HAGATORGI • SÍMI S30 1919 • STÆRSTA SÝNINGARTJALD LANDSINS
SPXaAME
ftpSCRT REDfORO
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
AMELIE
kl. 7.15 !
jVANILLA SKY
ELLING
jMONSTER m/ísl tali
kL 51
QUEST FOR FIRE
Sýnd kl. 10
[rFAÐMÍHAFSÍNS klTogTj
[ÍÖRRENTE 2 kL 71.
[regína
smnnnjgi bíó
^B^^tWCSAOU STÓRT
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10
LORD OF THE RINGS
Sýndkl. 5.30, 8 og 10.30
LORD OF THE RINGS kl. 5.30 og 9
NOT ANOTHER TEEN... kl. 4. 6, 8 ogio | [DON'T SAY A WORD kl. 8 og 10.30
□U Dolby ítQJ .r: Thx slMl 564 0000 - www.smarabio.ls
Sýnd kl. 5.50,8 og 10.15 vrr 34a
kl. 6 8 og 10.40 vrr 335
kl. 5.30, 8 og 10.40 vrr 335
jMONSTER m/ísl tali kL 350 og 5551
ÍMONSTER m/ens tali
;íít|s
[SPYGAME 14 5.35, 8 og 10.30 I [y]] iREGlNA
U-3-45: v".
IMADE
ki. 8~og 10.101 []3 lAILANnS m/ isL tali
OCEAN'S ELEVEN
kl. 10
IHARRY POTTER m/ Isl. tali
kL4 I
GORILLAZ Á TÓNLEIKUIM í CHICAGO
Breska teiknimyndahljómsveitin Gorillaz er
farin yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna á
tónleikaferðalag. Notuð eru Ijós, mynd-
bönd, skuggamyndir og fleira til að lífga
hinar tvívíðu persónur sveitarinnar við.
Aðhalds-
Gauja lifia
Ný námskeið að hefjast.
Komdu og vertu með.
Upplýsingar
og skráning í síma:
561 8585 & 561 8586
Það er aldrei
of seint að byrja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Fran Healy, söngvari Travis,
var handviss um að hljóm-
sveitin Oasis hlyti að vera í
næsta hótelherbergi við hliðina á
sínu þegar hann var staddur í
Los Angeles á dögunum. Slíkt var
partístandið klukkan fjögur um
morguninn. Hann ákvað því að
láta til skarar skríða og bankaði
upp á hjá ólátaseggjunum. Hon-
um til mikillar furður reyndust
þetta ekki hinir óþægu Gallag-
herbræður heldur liðsmenn
poppsveitarinnar S Club 7, popp-
arar geta því líka hagað sér eins
og rokkstjörnur.
Rafdúettinn Leftfield er klofn-
aður eftir 12 ára samstarf.
Liðsmenn sveitarinnar ætla sér
að halda áfram að
gera tónlist í sitt-
hvoru horninu.
Skilaboð þeirra til
aðdáanda eru þau
að engin ástæða
sé til þess að
verða leiður því í
raun sé þetta ný
byrjun á ferli sem
heldur stöðugt áfram. Leftfield
gaf út tvær breiðskífur á ferli
sínum og var þekkt fyrir að vera
ein háværasta tónleikasveit
Breta.
Samkvæmt erlendum frétta-
stofum er Pierce Brosnan
mættur aftur á tökustað nýju
James Bond myndarinnar. Hann
meiddist á hné á tökustað fyrir
tveimur vikum síðan. Hvort þetta
þýði að Bond sé á leið, eða sé
kominn hingað verður að koma í
ljós síðar.
Nýtt sýnishorn úr væntanlegri
kvikmynd Ali G hefur verið
bannað í Bretlandi. Ástæðan er
sú að þar sést Ali
kippa niður pilsi
Bretadrottningar
og dást að vissum
hluta drottningar-
innar sem hingað
til hefur verið al-
menningi hulinn.
Ali er því kominn
á hálann ís hjá
konungsfjölskyldunni og neyðist
til þess að klippa sýnishornið til,
ef hann ætlar að fá það sýnt í
Bretlandi.
IWÁNI í K-LAN
Staðurinn var opnaður í
byrjun janúar og segir Máni
að nú þegar sé um 30
manna hópur sem mæti
nánast daglega.
Sýndarveruleikasjoppur
I Reykjavík eru tvö Netkaffihús þar sem lítið er selt af kaffi og gestir
fara ekki mikið á Netið. Þó er alltaf troðfullt á þessum stöðum. Ef til
vill er kominn tími á að taka nýyrðið Tölvuleikjamiðstöð í notkun.
menning Það væri ef til vill hægt
að komast upp með það að ganga
nakinn inn í tölvuleikjamiðstöð-
ina K-Lan á Laugarvegi 103, án
þess að nokkur tæki eftir því.
Þar er oft fullmannað í þær 20
tölvur sem almenningi er boðið
upp á að leigja og eru allir með
andlitið það langt inn í skjánum
að það sem gerist fyrir utan
hann er óséð. Meira að segja af-
greiðslumaðurinn afgreiðir
kúnnanna um eitt súkkulaði-
stykki þess á milli sem hann
bjargar persónu sinni á tölvu-
skjánum á afgreiðsluborðinu úr
hættu. Tölvuleikjamenningin
hefur opnað útibú í miðbænum.
„Þetta er Netkaffi nema það
eru mestmegnis spilaðir tölvu-
leikir hérna,“ útskýrir Máni
Ólafsson starfsmaður K-Lan.
„Ég held að það eigi að fara
setja upp kaffivél hérna.“
K-Lan opnaði í janúar og varð
þar með önnur tölvuleikjamið-
stöðin í Reykjavík því
Gamedome í Kringlunni var
stofnað í fyrra. Elstu miðstöðina
er þó að finna í Vestmannaeyj-
um. Á þessum stöðum er gestum
boðið upp á að leigja afnot á öfl-
ugum tölvum. Á K-Lan borga
menn 300 kr. fyrir hálftíma, 500
kr fyrir klukkutíma og 1000 kr.
fyrir þrjá tíma. Boðið er upp á
tölvu með brennara, öfluga
nettenginu og aðgang að öllum
vinsælustu tölvuleikjunum. Á
stöðunum er áfengislaus veit-
ingasala.
Hörðustu spilararnir geta svo
hópa sig saman og leigt mið-
stöðvarnar yfir nótt um helgar.
Máni segir einnig að ferðamenn
noti staðinn mikið til þess að
komast á Netið, enda sé skortur á
Netkaffihúsum í miðbænum. Það
eru ef til vill margir hér sem
spyrja sig afhverju spilararnir
eru ekki bara að spila heima hjá
sér?
„Við erum með mjög góðar
tölvur og svo er það bara sú til-
finning að vilja vera í kringum
annað fólk. Hérna getur fólk
öskrað á þann sem drepur það í
leikjunum og það myndast góð
stemning." Máni er varla búinn
að sleppa orðinu þegar einn
spilaranna stendur upp frá tölvu
sinni og bölvar öðrum spilaran-
um hinum megin £ salnum. Glott-
ið á andliti hans gefur þó til
kynna að allt sé sagt í mesta
bróðerni. „Fyrir nokkrum árum
voru fullt af fólki sem sagði að
aðeins „nördar“ spiluðu tölvu-
leiki. í dag er þetta er að verða
eins og íþróttir. Fólk iðkar þetta
meira, heldur sér í æfingu til að
verða gott.“
Máni segir að að 30 manna
hópur, á aldrinum 8 - 30 ára,
mæti daglega og býst við að svip-
aður hópur safnist í Kringluna.
Opið er frá 10 á morgnana til 22 á
kvöldin en aðeins þeir eldri fá að
leika á kvöldin. Reglulega eru
haldin mót í miðstöðvunum auk
þess sem spilarar leigja íþrótta-
sal fjórum sinnum á ári og halda
stærri mót. Aðallega er keppt í
leikjunum Counterstrike, Quake
3 og Empire Earth. Á K-Lan geta
yngri spilarar skorað á einn eig-
andann í skák. í vinningsverð-
laun er frír aðgangur að tölvu í
nokkra tíma. Gamedome hefur
það á dagskránni að flytja inn
fyrsta sýndarveruleikaspilakass-
ann.
biggi@frettabladid.is