Fréttablaðið - 08.03.2002, Side 2

Fréttablaðið - 08.03.2002, Side 2
KJÖRKASSINN Tveir þriðju lesenda telja fordómar i garð útlendinga vera mikla hjá (slendingum. Einn þriðji telur hins vegar að svo sé ekki. Eru íslendingar fordómafullir í garð útlendinga? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is 77% Já Nei 33% Spurning dagsins í dag: Þarf að upplýsa betur um aukaverkanir lyfja? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun SAMVINNUFERÐIR LANDSYN í vikunni endurgreiddi ríkið 16 milljónir til þeirra sem urðu fyrir fjárhagsskaða vegná gjaldþrots ferðaskrifstofunnar. Samvinnuferðir Landsýn: Sumir fá ekki endurgreitt endurgreiðslur Hluta þeirra 400 krafna sem bárust samgöngu- ráðuneyti frá einstaklingum sem urðu fyrir fjárhagsskaða í tengsl- um við gjaldþrot Samvinnuferða Landsýnar hefur verið hafnað. Friðjón Örn Friðjónsson, tilsjón- armaður ráðuneytisins í málinu, sendi í liðinni viku bréf til allra kröfuhafa. Alls voru kröfur að upphæð 16 milljónum króna sam- þykktar. Sumir voru hins vegar beðnir um frekari upplýsingar og öðrum hafnað. Þeim sem var hafnað gefst kostur á að gera at- hugasemd til ráðuneytis. Friðjón segist t.a.m. hafa hafn- að nokkrum handhöfum gjafa- korta fyrirtækisins sökum þeirr- ar túlkunar að slíkt uppfylli ekki skilyrði laga um skipulag ferða- mála sem fara verði eftir. Gjafa- kortshafar eiga því að líkindum ekki aðra kosti en að gera venju- lega kröfu í þrotabúið. Þá hefur hann hafnað nokkrum sem aðeins höfðu keypt ferðir með áætlunar- flugi á vegum SL. Friðjón segir að það komi til vegna þeirrar túlkun- ar á lögunum að aðeins þeir sem keyptu svonefndar pakkaferðir eigi réttmæta kröfu. a_____ IlögreglufréttirI Stjórnarformaður Skeljungs gagnrýndi vinnuaðferðir Sam- keppnisstofnunar harðlega á að- alfundi félagsins í dag. Hann tel- ur margt benda til að úrskurður héraðsdómara um húsleit hjá ol- íufélögunum hafi verið kveðinn upp á röngum forsendum. Rúv sagði frá. FRETTABLAÐIÐ 8. mars 2002 FÖSTUDAGUR Skipulagsstofnun fellir úrskurð um umhverfismat úr gildi: Landfylling í Arnarnesi í lagi skipulagsmál Skipulagsstofnun hefur fellt úr gildi úrskurð sinn frá 20. september um mat á um- hverfisáhrifum vegna 7,5 ha land- fyllingar í Arnarnesvogi. Stofn- unin hafði heimilað landfylling- una en úrskurður hennar hafði verið kærður til umhverfisráð- herra sem hafði ekki skilað sínum úrskurði. Byggingarfyrirtækin Björgun og BYGG, sem standa að fram- kvæmdum í Arnarnesvogi, ósk- uðu eftir því að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi. Þetta gerðu þau vegna breyttra byggingaráforma á staðnum. í stað 7,5 ha landfyll- ingar er nú gert ráð fyrir 2,5 ha ARNARNESVOGUR Deiliskipulagstillaga fyrir nýja hverfið í Arnarnesvogi hefur verið til kynningar á bæjarskrifstofu Garðabæjar. landfyllingu. Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum þárf aðeins að gera mat í umhverfisá- hrifum þar sem áætluð uppfylling er 5 ha eða stærri. Fyrirhuguð landfylling fellur því ekki undir ákvæði laganna. Deiliskipulagstillaga fyrir nýja hverfið í Arnarnesvogi hefur ver- ið til kynningar á bæjarskrifstofu Garðabæjar. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir 560 almennum íbúð- um og 200 íbúðum fyrir eldri borgara á svæðinu. Flestar bygg- ingarnar verða tveggja til þriggja hæða og á hæð þeirra að trufla sem minnst útsýni frá núverandi íbúðahverfum. Reiknað er með að framkvæmdir við fyrsta áfanga hverfisins hefjist næsta vetur. ■ Vilja mat á um- hverfisáhrifum Náttúruvernd ríkisins leggur til að farið verði út í mat á umhverfis- áhrifum við Eiðsgranda. 3-400 manns skrifuðu undir lista til að mótmæla fyrirhuguðum framkvæmdum á svæðinu. aðalskipulag Frestur til að skila inn athugasemdum vegna aðal- skipulags Reykjavíkur 2001-2024 rann út í gær. Höfðu 3-400 undi- skriftir borist aðalskipulagi frá íbúum í nágrenni Eiðsgranda út af landfyllingu sem gert er ráð fyrir á svæðinu. Árni Bragason, for- stjóri Náttúruverndar ríkisins, sagði í samtali við Fréttablaðið að stofnunin sé búin að gera athuga- semdir við aðalskipulagið. Leggur hún þar til að farið verði út í mat á umhverfisáhrifum á við Eiðs- granda. Sagði Árni að þarna væri fæðisvæði fugla og að þó aðeins væri búið að raska ströndinni væri þarna grunnsævi sem skipti máli. í athugasemdum Náttúru- verndar ítrekar hún umsögn sem hún gerði um drög að svæðis- skipulagi höfuðborgarsvæðisins. Þar segir að stofnunin sé almennt séð ekki hlynnt landfyllingum einkum ef um er að ræða svæði þar sem náttúra er tiltölulega ósnert. Fer stofnunin fram á að mörkuð verði heildarstefna í land- notkun við strandlengjuna. íbúar við Eiðsgranda mótmæla því að fyllt verði upp í fjöruna fyrir framan Eiðsgranda. Eru þeir ósáttir við að útivistasvæði í fjör- unni verði eyðilagt auk þess sem þeir vilja vita hvort að akst- ursleiðir á svæðiö verði lagaðar nú þegar ný byggð eigi þar að rísa. í umhverfismati Aðalskipu- lags Reykjavíkur sem unnið var af ráðgjafafyrirtækinu Alta um sjálfbæra þróun byggðar á svæð- inu, er stefnt að því að farnar verði nýjar leiðir í samgöngumál- um og bílastæðamálum, með því m.a. að leggja áherslu á gangandi og hjólandi vegfarendur. Þar er gert ráð fyrir færri bílastæðum á íbúð á landfyllingunni og að jafn- vel yrði aðeins leyfð umferð í út- jaðri byggðar. Gert er ráð fyrir því að reistar verði 900 íbúðir á landfyllingunni, sem verður 40 hektarar að stærð. Er efnisþörf áætluð um 3-400 milljónir rúmme- tra. Tilkynna þarf framkvæmdirn- ar til Skipulagsstofnunar ríkisins þar sem uppfyllingin er stærri en fimm hektarar. Fellur fram- kvæmdin því undir lög um mat á umhverfisáhrifum. Að sögn starfsmanns Skipulagsstofnunar Hæstiréttur: Skokkari fær skaðabætur dómsiviál Rúmlega fertug kona sem fótbrotnaði þegar hún hljóp á og féll um plaströr frá Pósti og síma á að fá greiddar tæpar 2 milljónir króna bætur frá Landssímanum. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar. Verið var að endurnýja síma- lagnir í Rofabæ í júní 1997. Plaströr sem átti að fara undir götuna hafði verið lagt á gangstétt. Konan kom skokkandi, uggði ekki að sér og féll um rörið. Hæstiréttur taldi að konan hafi ekki sýnt næga aðgæslu og bæri helming sakarinnar sjálf á móti Landssímanum sem ekki hafi varað nægilega við hættunni. ■ EIÐSGRANDI íbúar í nágrenni Eiðsgranda, sem staðið hafa fyrir undirskriftasöfnun, mótmæla því að fyllt verði upp í fjöruna fyrir framan Eiðsgranda. hefur stofnunin ekki fengið mörg landfyllingarmál á borð til sín. Dæmi eru þó um landfyllingu í í Arnarnesvogi þar sem ákveðinn framkvæmdaraðili ákvað að setja fyllinguna í umhverfismat. Huga þarf að ýmsu þegar landfylling er sett í umhverfismat. Meta þarf t.d. út frá staðsetningu, stærð og eðli svæðisins hvaða áhrif land- fylling þar kemur til með að hafa í för með sér og hvort að svæðið þoli að slík fylling komi á svæðið. freyr@frettabladid.is FINNBOGI SIGURÐSSON Segist ekki líta á formennskuna sem stökk- pall fyrir sig út í stjórnmálin. Félag grunnskólakennara: Finnbogi vann for- mannskjörið FÉLAGSMÁL Finnbogi Sigurðsson var kjörinn formaður Félags grunnskólakennara á aðalfundi félagsins í gær. Hann hlaut 48 at- kvæði en Agla Ásbjörnsdóttir fékk 42 atkvæði. Einn seðill var auður. Það munaði því aðeins sex atkvæðum á milli þeirra tveggja. Finnbogi tekur við af Guðrúnu Ebbu Olafsdóttur sem ætlar að hasla sér völl í borgarpólitíkinni. Athygli vekur að kennarar hafa valið karl til formennsku í félagi þar sem 70-80% félagsmanna eru konur. Finnbogi gegndi áður emb- ætti varaformanns í félaginu. Finnbogi segir að efst á baugi hjá sér sé að halda áfram að vinna á þeirri braut sem félagið hefur gert frá því það var stofnað fyrir tveimur og hálfu ári. Þau verkefni snúa einna helst að innra starfi fé- lagsins og uppbyggingu þess til hagsbóta fyrir félagsmenn. Að- spurður hvort hann hefði ein- hverja skýringu á því að félags- menn velja sér karl til forustu með hliðsjón af kynjahlutfallinu í félaginu segir hann að það sé vegna þess að grunnskólakennar- ar láta yfirleitt ekki kynferði hafa áhrif á afstöðu þeirra og skoðanir. í þeim efnum séu kennarar mjög lýðræðislegir og frjálslegir. ■ Formaður KI andvígur lagabreytingatillögu fyrir þingi sambandsins: Starfandi kennarar ekki í stjórn? Opið í Austurveri frá 8:00 á morgnana fil miðnættis ^J?Lyf&hefea KENNARASAMBAND ÍSLANDS Á þingi Kennarasambands íslands yerða gerðar tillögur að lagabreyting- um. Helstu breytingarnar fela í sér að í stjórn sambandsins sitji formenn aðildarfélaganna, sem hefði jafnvel í för með sér að al- mennir kennarar væru útilokað- ir frá stjórnarsetu. Einnig hefur laganefnd gert tillögu að því að varaformaður verði kjörinn með svipuðum hætti og verið hefur. Félag grunnskólakennara, félag framhaldsskólakennara og félag stjórnenda í framhaldsskólum hafa gert tillögu að því að for- menn aðildarfélaganna gegni varaformennsku til skiptis. Að EIRÍKUR „Mun ekki beita mér gegn hugmyndum að formannastjórn. Það verður að vera mál félagsmanna. sögn Eiríks Jónssonar, for- manns Kenn- arasambands fslands, ríkir ágreiningur um tillöguna. „Ég er sjálfur á móti henni og skil ekki á hvaða rökum byggir," Eiríkur. tel að hún segir „Ég ákveðin laus- ung skapist ef alltaf er verið að skipta um varaformann." Hann segist ekki geta gert sér grein fyrir hvaða fylgi hugmynd að formannastjórn fái. Einstak- lingsbundið sé hvernig félags- menn líti á þá tillögu. „Þegar hugmyndin kom fram lýsti ég yfir efasemdum á henni. Eg hef enn vissar athugasemdir við þessa tillögu því ég tel að um of mikla valdasamþjöppun yrði að ræða. Ég tel, einnig;, að ræða eigi hvort formannastjórn haldi sjýnarmiðum frá.“ segir Eiríkur. „Ég hef beitt mér gegn breyting- um á varaformennskunni. Eg mun ekki beita mér gegn hug- myndum að formannastjórn. Það verður að vera mál félags- manna.“ ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.