Fréttablaðið - 08.03.2002, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
8. mars 2002 FÖSTUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
Launaþróun
milli ára
Á vef Þjóðhagsstofnunar má sjá hver þró-
unin launa var hjá fólki milli áranna 1999
og 2000. Borin eru saman laun fólks sem
var með atvinnutekjur bæði árin. Allar töl-
ur eru ( þúsundum króna.
1999 2000 Breyting milli ára
Konur 1.321 1.475 11,6%
Karlar ~2.415 2.647 9,6°/o
Giftar konur 1.449 1.577 8,8°/o
Kvæntir karlar 3.169 3.381 6,7%
Hjón/Sambýlis-
fólk saman 4.253 4.553 7,1%
Einhleypir Einstæðir 1.345 1.566 16,5%
foreldrar 1.412 1.633 15,7%
Barnlausir 1.337 1.559 16,6%
Allir 1.862 2.055 10,40/o
írar hafna stjórnarskrárbreytingu naumlega:
Vilja ekki herða lög
um fóstureyðingar
fóstureyðincar Afar mjótt var á
mununum þegar talið var upp úr
kjörkössunum á írlandi í gær. I ljós
kom að rétt um 51 prósent kjósenda
hafnaði því að herða fóstureyðinga-
löggjöfina frá því sem nú er.
Á írlandi hafa fóstureyðingar
því aðeins verið leyfðar, að líf móð-
urinnar sé í hættu. í kosningunum í
gær voru írar beðnir um að taka af-
stöðu til stjórnarskrárbreytingar,
sem myndi koma í veg fyrir að fóst-
ureyðing verði leyfð ef barnshaf-
andi kona hótar því að fremja
sjálfsmorð. Bertie Ahern forsætis-
ráðherra studdi stjórnarskrár-
breytinguna. Stjórn hans er háð því
að andstæðingar fóstureyðinga á
þingi veiti henni stuðning. Ahern
sagði ófært að barnshafandi konur
geti í raun krafist fóstureyðingar
með því einu að hóta sjálfsvígi.
Kosningaþátttakan var ekki
nema 42 prósent, sem er þó heldur
meira en þegar írar greiddu at-
kvæði um Nice-samning Evrópu-
sambandsins. Slæmt veður á kjör-
dag kann að hafa dregið úr kjör-
MARIA MEY Á KJÖRSTAÐ
í bænum Drogheda á írlandi er þessi stytta af Maríu mey staðsett rétt fyrir utan kjörstað.
Irar kusu í gær um hvort herða eigi reglur um fóstureyðingar.
sókn. Margir írar lýstu hins vegar
óánægju sinni með að stjórnvöld
skuli bera þessa tillögu undir þjóð-
aratkvæði.
„Þeir eru í rauninni hugleysingj-
ar. Þeir ættu að setja lögin sjálfir,"
var haft eftir einum kjósanda á vef-
síðu írska dagblaðsins. „Irish
Times“. „Það skiptir engu máli
hvernig niðurstöðurnar verða,“ var
haft eftir öðrum kjósanda í sama
blaði. „Allir sem vilja fóstureyð-
ingu halda bara áfram að fara til
Englands." ■
Anægja med ádur
ónýtcin björgunarbát
Slökkvilið gerði alvarlegar athugasemdir við björgunabát sem Flug-
málastjórn lét því í té til bráðabrigða í fyrrasumar til að nota á Reykja-
víkurflugvelli. Báturinn, sem áður var dæmdur ónýtur, var lagfærður
eftir endurteknar aðfinnslur. Flugmálastjórn segir ástandið viðunandi.
Kaupa á fullkominn bát síðar.
ZODIAC BJÖRGUNARBÁTUR REYKJAVlKURFLUGVALLAR
„Það er ekki út af engu sem við höfum áhyggjur af því að vera að lagfæra búnað sem
menn hafa slæma reynslu af og setja það í hendur á þeim sem þurfa að bregðast við á
neyðarstundu," segir Birgir Finnsson, deildarstjóri útkallsdeildar slökkviliðssins, í bréfi til
flugvallarstjóra Reykjavíkurflugvallar. Birgir segir bátinn nú hafa verið lagfærðan.
GRÉTAR ÞORSTEINSSON
Segir að flutningskostnaður á innfluttum
vörum hafi lækkað í samræmi við styrk-
ingu krónunnar.
ASI og verðlagsþróun:
Auglýsinga-
herferð til að
efla verðskyn
verðlac Grétar Þorsteinsson for-
seti ASÍ segir að í viðtölum við
birgja og skipafélög hafi komið
fram að flutningskostnaður á inn-
fluttum varningi hafi lækkað á liðn-
um mánuðum í samræmi við styrk-
ingu krónunnar. Þessi lækkun hef-
ur numið allt að 8-9%. Af þeim sök-
um séu engar forsendur fyrir verð-
hækkunum á innfluttum vörum
heldur verðlækkunum. Hann bend-
ir þó á að verð á ýmsum vörum hafi
verið að íækka eins og fram hefur
komið í verðkönnunum. Hann gerir
ráð fyrir því að undir lok mánaðar-
ins muni ASÍ fara í auglýsingaher-
ferð til að efla enn frekar verðskyn
almennings og fyrirtækja. Þá sé
verið að vinna að því að verðlags-
eftirlit ASÍ beini sjónum sínum að
verðþróun á fleiri vörutegundum
og þjónustu en verið hefur.
Guðmundur Þorbjörnsson hjá
Eimskip segir að flutningsgjöld séu
að verulegu marki tengd erlendum
myntum eins og t.d. dollar, pundi og
evru. Þegar gengi þeirra lækkar í
framhaldi af styrkingu krónunnar,
þá hefur það almennt samsvarandi
áhrif til lækkunar á flutningsgjöld-
um. Á sl. tíu árum hefur flutnings-
kostnaður lækkað um 40-50% að
raunvirði. Það sé m.a. vegna hag-
ræðingar og betri nýtingar á flutn-
ingstækjum. ■
REYKJAVÍKURFLUCVÖLLUR Flugmála-
stjórn telur að málefni björgunar-
báts við Reykjavíkurflugvöll séu
nú í viðunandi horfi. Hins vegar
sé áformað að kaupa fullkominn
björgunarbát.
Að sögn Heimir Más Péturs-
sonar, upplýsingafulltrúa Flug-
málastjórnar, hafa kostir verið
skoðaðir með fulltrúum Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins og
fleiri aðila. Svo geti farið að byg-
gja þurfi sérstakt bátaskýli og
sjósetningaraðstöðu nýja bátsins.
í fyrrasumar lét Flugmála-
stjórn gera upp gamlan Zodiac
björgunarbát og var hann fenginn
slökkviliðinu til afnota þar til nýr
bátur hefur verið keyptur. Að
auki er til reiðu annar minni
björgunarbátur, sem m.a. var not-
aður við björgun fórnarlamba úr
Skerjafjarðarslysinu.
Fyrir utan björgunarbátana
tvo sem þegar eru í notkun og
áformin um nýja bátinn gerði
Flugmálastjórn samkomulag við
Slysavarnarfélagið-Landsbjörgu
um að skip og bátar björgunar-
sveita á höfuðborgarsvæðinu
verði hluti af viðbragðsáætlun
Reykjavíkurflugvallar. „Það felur
í sér að eitt björgunarskip, þrír
stórir björgunarbátar og sjö Zodi-
ac bátar eru til reiðu ef á þarf að
halda,“ segir Heimir Már.
Eftir að slökkviliðinu, sem sér
um björgunarstarf við flugvöll-
inn, hafði verið afhentur Zodiac
báturinn gerðu liðsmenn þess al-
varlegar athugasemdir við ástand
hans. Þeir furðuðu sig á því að
bátur sem dæmdur hefði verið
ónýtur fjórum árum áður væri
aftur kominn í umferð. Síðast
þegar gert hefði verið bátinn
hefði viðgerðaraðilinn sagt að að-
eins ætti að nota hann sem leik-
tæki. Eftir reynslusiglingu
slökkiliðsmanna sögðu þeir hann
liðast allan til. Margar tilraunir
hefði þurft til að koma bátnum í
gang og að hann hefði dreþið á
sér á siglingu. Talstöð virkaði
ekki sem skyldi. „Þá verður að
gæta að keyra bara hæga ferð og
genf. ap Evrópusambandið hefur
formlega hafið kæruferli hjá
Heimsviðskiptastofnunni vegna
verndartolla sem Bandaríkjamenn
ætla að leggja á innflutt stál.
Anthony Gooch, talsmaður Evr-
ópusambandsins, staðfesti það í
gær að Evrópusambandið hafi lagt
fram beiðni til stofnunarinnar um
viðræður við Bandaríkin. Slík
formleg beiðni er fyrsta skrefið í
kvörtunarferlinu.
Ef Evrópusambandinu og
Bandaríkjunum tekst ekki að kom-
ast að samkomulagi innan tvggja
mánaða getur Evrópusambandið
falið Heimsviðskiptastofnuninni að
fela nefnd sérfræðinga að úrskurða
í deilunni. Sá úrskurður er bind-
andi.
betra væri ef veður væri gott,“
sagði í athugasemd þeirra.
Málið hefur nú hins vegar ver-
ið leyst að sögn Birgis Finnsson-
ar, deildarstjóra útkallsdeildar
slökkviliðsins. „Við gerðum viss-
ar athugasemdir nokkrum sinn-
um. Þeir hlutir voru lagaðir. Síðan
hefur báturinn verið notaður á
æfingum. Það hafa komið upp
smáatriði en þau hafa verið lag-
færð. Þannig að við teljum að
hann sé nothæfur til bráða-
birgða,“ segir Birgir.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti kynnti á þriðjudaginn ákvörð-
un sína um að leggja allt að 30 pró-
sent verndartolla á innflutt stál. Til-
gangurinn er að verja stáliðnað 1
Bandaríkjunum gegn innflutningi
frá ríkjum þar sem stálframleiðsla
nýtur ríkisstyrkja eða er seld undir
markaðsverði.
Evrópusambandið heldur því
fram að þessir tollar brjóti í bága
við reglur Heimsviðskiptastofnun-
arinnar. Innflutningur á stáli til
Bandaríkjanna hafi dregist saman
á síðustu árum, þannig að erfiðleik-
ar í bandan'skum stáliðnaði geti
ekki stafað af honum. Fleiri ríkja
hafa boðað kærur til Heimsvið-
skiptastofnunarinnar vegna banda-
rísku verndartollanna. ■
Hæstaréttardómarar einn
og átta:
Bara einn
hæfur fyrir
Jón Steinar
dómsmál Aðeins einn hæstar-
réttardómari af níu telur sig
hæfan til að dæma í máli stúlku
gegn Jóni Steinari Gunnlaugs-
syni hæstaréttarlögmanni sem
varði föður hennar í kynferðis-
brotamáli.
Jón Steinar var dæmdur í
héraðsdómi fyrir að brjóta gegn
góðum lögmannsháttum. Það var
talinn hafa gert með því að
skýra frá málsgögnum sem ekki
áttu að vera opinber.
Fimm af dómurunum átta
sem sögðu sig frá málinu nú
dæmdu í sjálfu kynferðisbrota-
málinu á sínum tíma. Tveir dóm-
aranna eru persóulegir vinir
Jóns Steinars. Sá áttundi mun
vera tengdur verjanda stúlkunn-
ar.
Staðgenglar hafa verið fengn-
ir í dómarasæti til að dæma í
málinu. ■
♦—
Seðlabanki Islands:
Viðskipta-
hallinn 48
milljörðum
lægri
þjóðhacsreiknincar Samkvæmt
bráðabirgðauppgjöri Seðlabank-
ans var hallinn á viðskiptum við
útlönd í fyrra 48 milljörðum
minni en árið áður. Þá er áhrif-
um gengislækkunar krónunnar
eytt. Viðskiptahallinn var 33
milljarðar í fyrra en tæpir 68
milljarðar árið 2000. Síðustu
þrjá mánuði ársins var við-
skiptaafgangur en það hafði ekki
gerst síðan 1993.
Síðast var viðskiptaafgangur
á fyrstu þremur mánuðum árs-
ins 1996. Mun sjaldnar er af-
gangur af viðskiptum við útlönd
á síðustu mánuðum ársins.
Minni viðskiptahalli stafar af
hagstæðari vöru- og þjónustu-
viðskiptum við útlönd en jöfnuð-
ur þáttatekna var talsvert lakari
á árinu 2001 vegna aukinna
vaxtagreiðslna af erlendum
skuldum.
Viðskiptahallinn árið 2001 er
mun minni en spáð var í desem-
ber s.l. og er frávikið mest á
vöruviðskiptum við útlönd. ■
IlögreglufréttirI
Tveir ísraelsmenn yfirbuguðu
Palestínumann í gær þegar
hann hugðist fara inn á vinsælan
veitingastað í Jerúsalem. Sáu
þeir bakpoka sem vírar héngu út
úr. Reyndist það vera sprengja.
Maðurinn er grunaður um að
hafa ætlað að sprengja veitinga-
staðinn. Mick Levy, lögreglu-
stjóri í Jerúsalem, sagði að menn-
irnir hefðu aftengt sprengjuna.
Bifreiðinni RK-501
Volkswagen Passat silfurgrár var stolið
Góð fundarlaun í boði
Upplýsingar í síma
660-5382 Helgi og 897-1017 Guðmundur.
gar@frettabladid.is
Verndaitollar Bandaríkjanna:
Evrópusambandið
byrjar kæruferli