Fréttablaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 8. mars 2002 FÖSTUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Upplýsingar um aukaverkanir mikilvægar Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Cunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjórar: Pétur Gunnarssori og Sigurjón M. Egilsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavlk Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðbotgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. 1 BRÉF TIL BLAÐSInT] Hann heitir Jóhannes Ámundi Loftsson skrifar: Nú er haldið Bunaðarþing en það er sem kunnugt er raupsam- koma betur megandi bænda á ís- landi. Þar er mikið talað Bændur eru hnignandi stétt. Sveitirnar eru grafreitir deyjandi bændastéttar. Kvótakerfið í landbúnaði hefur gert bændur svo skuldsetta að þeir eru margir tekjulausir þrátt fyrir tugmilljóna veltu og algjöran þræl- dóm. Nú ræðst forysta þeirra í ang- ist sinni á verslunina og hrópar fá- keppni, fákeppni. Hatur á verslun hefur lengi verið landlægt í sveit- um landsins. Bændaforystan elur á þessu hatri meðal bænda til að draga athygli þeirra frá hversu illa hún hefur staðið sig. Hún talar hins vegar minna um fákeppni í úr- vinnslu búvara. Með tilkomu kaup- félaganna stefndu bændur að stofn- un stórveldis í verslun. Þar var nú ekki fákeppnin, ó nei. Nú eru þau söguminjar um félagslegan fárán- leika. Einn er þó sá maður sem sýnt hefur að hugsjónir eru fram- kvæmanlegar. Með frábærum verslunarrekstri og magninnkaup- um náði hann stórfelldum ávinningi sem hann skilaði út í samfélagið, eins og kaupfélögin ætluðu að gera. Hann heitir Jóhannes, gjarnan kenndur við Bónus. Hann fram- kvæmdi samvinnustefnuna. Bónus er í raun það stórveldi sem kaupfé- lögunum var ætlað að verða. Þess vegna eru bændur sárir og hata Jó- hannes. ■ Spurningin er alltaf sú hvar ábyrgðin og upplýsingaskyldan liggi,“ segir Rannveig Gunnarsdótt- ir, forstjóri Lyfjastofnunnar. „Það þarf að upplýsa konur sem eru að fá getnaðarvarnartöflur í fyrsta skipti um lyfió sem þær taka. Þessar upp- lýsingar eru í fylgiseðlum með lyfj- unum. Menn gera hins vegar aldrei nóg af því að koma upplýsingum á framfæri." Rannveig segir að hins vegar geti verið ákveðið vandamál að gera ungar konur meðvitaðar um áhættuþætti við töku getnaðar- varnarpillunnar. „Fólk sér að pró- sentan er lág og hugsar að ekkert komi fyrir það.“ Halldóra Bjarnadóttir hjúkrun- arfræðingur segir getnaðarvarn- arpillur dagsins í dag vera minna inngrip í líkamsstarfsemina en eldri tegundir. „Það er samt engin ástæða til að gera lítið út aukaverk- unum, þó fátíðar séu. Lífstíll og ættarsaga er náttúrlega eitthvað sem læknar eiga að fylgjast með þegar ávísað er á pilluna." Rann- veig segir umræðuna mjög þarfa, en ekki megi skapa óþarfa hræðslu. Hún segir að Lyfjastofnun hafi brugðist við um leið og fréttist af alvarlegum aukaverkunum í Sví- þjóð. Hún segir Lyfjastofnun Evr- ópu fylgjast vel með rannsóknum á þriðju kynslóð getnaðarvarnapilla. Halldóra segir að mikilvægt sé að gera ungum konum grein fyrir þeim áhættuþáttum sem fylgja pill- unni. „Þetta á ekki síst við um reyk- ingar sem eru mikill áhættuþáttur JÓNAS SKRIFAR: Önnur siónarmið Fréttablaðið hefur greint frá því að konur fá svokallaða þriðju kynslóð getnaðarvarn- arpillu, án þess að vera spurðar út í lifstíl og ættarsögu. Þættir sem hafa veruleg áhrif á aukaverkanir pillunnar. Aukaverkanir sem geta verið mjög alvarlegar.; varðandi aukaverkanir pillunnar." Þetta sé eitthvað sem læknar verði að hafa í huga. Rannveig telur að flestir læknar séu meðvitaðir um þetta. „Svo er spurning um hvort þéir fari í gegnum allan listann. Þetta eru mikið notuð lyf og auka- verkanir fátíðar, en geta vissulega verið mjög alvarlegar.“ Halldóra tekur undir þetta og segir hugsan- legt að mikið álag í heilbrigðiskerf- inu geri það að verkum að menn gæti ekki allrar varúðar með al- gengt lyf, þar sem aukaverkanir séu fátíðar. Hún segist hins vegar hlynnt því að ungar konur sem eru að byrja á pillunni komi í eftirlit. „ Ekki bara til að fylgjast með hugs- anlegum aukaverkunum af pill- unni, heldur til að kanna aðra þætti, eins og klamydíu." ■ | ORÐRÉTT 1 ALLIR EIGA SÉR MÁLSBÆTUR Til er bráðfyndin bók, The Joys of Yiddish, eftir Leo Rosten. Þar er nefnt þetta dæmi um chutzpah: Ungur maður myrti foreldra sína, en krafðist síðan sérstakrar miskunnar hjá dóm- stólnum vegna þess að hann væri munaðarleysingi. Þarf að segja meira um nýliðna atburði? Baldur Símonarson um blygðunarlausa forherðingu. Morgunblaðið 6. mars ATVINNUMIÐLUN ÞJÓÐHETJA Mér líst vel á þennan mann Eríkur Bragason sem vill ráða „flautar- ann" í Landssímanum til Línu.nets. DV. 7.mars RÓTTÆK AFSTÆDISHYGGJA Okkur finnst vont þegar verið er að gera stórmál úr einhverju sem er lítið miðað við eitthvað annað Haukur Valdimarsson, aðstoðarlandlækn- ir, um aukaverkanir getnaðarvarnarpillu. Fréttablaðið 7. mars FÆR ENGINN MANNLEGUR MÁTTUR SKILIÐ Ég geri mér grein fyrir því að það er afskaplega erfitt að hugsa sér eitthvert samráð í eintölu Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs um samráð olíufélaga: DV, 7. mars TELEBANAR Hver er það sem vill að Sturla beri ábyrgö á hryðju- verkamönnum frá Afganistan? Svanur Guðmundsson ver Sturlu Böðvarsson. Morgunblaðið, 7. mars Vestrið hefur klofnað Verndartollar Bandaríkjanna á stáli eru nýjasta skrefið af mörgum í átt frá stefnu samstarfs við Evrópu til einhliða aðgerða heimsveldis, sem telur sig geta farið fram á fjölþjóðavettvangi nákvæm- lega eins og því þóknast, af því að alls enginn geti staðizt snúning hernaðarmætti þess. Evrópusambandið hefur að vísu ákveðið, að svara ekki í sömu mynt, heldur sækja mál gegn Bandaríkjunum fyrir Heimsviðskiptastofnuninni. Þar hafa Bandaríkin á síðustu tveimur árum tapað fimm málum, sem varða stál, og töpuðu um daginn skattafríðindamáli fyrirtækja á alþjóðamarkaði. Evrópusambandið mun nota tækifæri stáltoll- anna til að hefja þær gagnaðgerðir, sem því eru heimilar samkvæmt reglum Heimsviðskiptastofn- unarinnar vegna þessara fyrri dóma. Sambandið hefur nóg af löglegum tækifærum til að setja háa tolla og hömlur á bandarískar vörur. Þannig mun Evrópa halda sig innan ramma al- þjóðalaga í viðskiptastríðinu við Bandaríkin og láta þau ein um að leika hlutverk hryðjuverkamannsins úr villta vestrinu. Það breytir því ekki, að Evrópa mun svara Bandaríkjunum. Viðskiptastríðið milli Vesturlanda mun því harðna á næstunni. Viðskiptalegur yfirgangur Bandaríkjanna gagn- vart Evrópu er eðlilegt framhald af yfirgangi þeirra á öðrum sviðum. Bandaríska þingið hefur lengi tregðast við að staðfesta fjölþjóðlega sátt- mála og nú hefur forsetaembættið sjálft tekið for- ustu um að hafna slíkum sáttmálum yfirleitt. Bandaríkin hafa lýst frati á Stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna. Þau neita að fara eftir Genfarsáttmálanum um meðferð stríðsfanga, þótt hann taki af öll tvímæli um, hvernig skuli fara með hvers kyns fanga frá Afganistan, þar á meðal þá, sem ekki eru beinlínis einkennisklæddir. Bandaríkin neita að taka þátt í banni við sölu á jarðsprengjum, sem hafa gert tugþúsundir barna örkumla í þriðja heiminum. Þau hafna fjölþjóða- samstarfi um hert eftirlit með framleiðslu efna- „Þannig mun Evrópa halda sig innan ramma alþjóðalaga í viðskiptastríðinu við Bandaríkin og láta þau ein um að leika hlutverk hryðjuverka- mannsins úr villta vestrinu. “ vopna. Þau rituðu ekki undir Kyoto-bókunina. Þau hafa unnið leynt og Ijóst gegn öllu þessu. Til viðbótar við yfirgang vegna sinna eigin hags- muna hafa Bandaríkin tekið að sér að halda hryðju- verkaríkinu ísrael uppi fjárhagslega og hernaðar- lega og gera utanríkisstefnu þess að sinni. Öxullinn milli Bandaríkjanna og ísraels er núna hinn raun- verulega illi öxull heimsins. Svo náið eru þessi tvö ríki tengd, að ekkert þingmannsefni nær kosningu í Bandaríkjunum, ef það efast opinberlega um, að stuðningurinn við ís- rael sé réttmætur. Þetta er mikilvægasta rótin að einbeittum áhuga múslima á hryðjuverkum í Bandaríkjunum og víðar á Vesturlöndum. Evrópa þarf að greina sig betur frá þessum öxli Bandaríkjanna og Israels, svo að múslimar átti sig betur á, að Evrópa er ekki aðili að ofbeldi öxulsins gegn Palestínumönnum og öðrum þjóðum íslams. Engin ástæða er fyrir Evrópu að taka á sig meðsekt af heljartökum ísraels á Bandaríkjunum. Evrópa hefur enga hernaðarlega burði til að hamla gegn ofbeldi Bandaríkjanna í þriðja heimin- um. Eigi að síður hefur hún næga efnahagslega og viðskiptalega burði til að láta hart mæta hörðu í til- raunum Bandaríkjanna til að knýja Evrópu til að lúta einbeittri hagsmunagæzlu í viðskiptum. Klofningur Evrópu og Bandaríkjanna er orðinn raunverulegur og á eftir að magnast. Viðskipta- hagsmunir íslands eru í Evrópu. Verndun þeirra hagsmuna mun ráða pólitískri afstöðu okkar. Jónas Kristjánsson KAUPENDAÞJÓNUSTA - SÍMI 533 3444 Opið um helgina á milli 11:00 -14:00 Við á Þingholti höfum fjölda fólks á skrá sem bíður eftir réttu eigninni. 2ja Höfum kaupanda af 2ja herb. ibúð i skipt- um fyrir 72 fm 3ja herb. íbúð í Austurbæn- um. Sölum. Örn Leikskólakennari leitar að notalegri 2ja herbergja íbúð í austurborginni má vera risíbúð eða litið niðurgrafin kjallaraibúð. Sölum. Steinbergur. Höfum kaupendur að litlum 2ja herbergja ibúðum og einstaklingsíbúðum, bæði samþykktum og ósamþykktum. Tölvufræðingur leitar að ca. 55-70 fm 2ja til 3ja herb. íbúð á jarðhæð í Grandahverfi, helst með sér garði. Sölum. Þórður 3ja Einkaþjálfari óskar eftir amk. 70 fm íbúð í góðu húsi i efra Breiðholti. Sölum. Stein- bergur Ung kona sem er búin að selja stærri fast- eign óskar eftir 3-4 herbergja íbúð i Graf- arvogi fyrir allt að.11 M. Sölum. Þórður. Erlendur ríkisborgari leitar að 3ja herbergja íbúð í Reykjavik vestan við Elliðaár. Þarf að vera á 1. h. eða i lyftuhúsi. Sölum. Geir. Starfsmaður Orkuveitu Vestfjarða óskar eftir íbúð í Reykjavík, Seltjarnarnesi. eða Kópavogi, með 2-3 svefnherbergjum. Söl- um. Þórður Þjónustufulltrúi óskar eftir 3ja herb. íbúð i Þingholtunum eða í gamla vesturbæ, Hringbraut kemur til greina. Ekki kjallari. Sölum. Þórður Einstæð móðir með gott greiöslumat ósk- ar eftir amk. 65 fm 3ja herb, íb. vestan við Elliðaár. Sölumaður Steinbergur. Hjón leita að 3ja til 4ra herbergja íbúð i lyftuhúsi í Reykjavik. Gott hjólastólaað- gengi nauðsynlegt, lyftudyr þurfa að vera a.m.k. 80 cm breiðar. Best væri ef eigninni fylgdi stæði i bílageymslu og innangengt væri í það. Sölum. Þórður. 4ra til 5 Yfirmatreiðslumaður á rótgrónum veitinga- stað i miðborg Reykjavikur óskar eftir góðri ibúð í gömlu Reykjavík. Sölum. Steinbergur. Ung hjón, lögmaður og sagnfræðingur sem eru nýbúin að selja eign sína á Sel- tjarnarnesi óska eftir góðri ibúð, helst ný- legri eða nýlega standsettri, með sérinn- gangi og amk. 3 svefnherbergjum. Söium. Þórður Hjón sem vinna hjá traustu fyrirtæki i Höfðahverfi vantar 4-5 herbergja íbúð i ná- greninu, td. í Grafarvogi, Árbæ, Kvislum, Voga eða Bústaðahverfi. Sölum. Örn Vélstjóri leitar að góðri 4-5 herb. íbúð i hverfum 104 og 105, má gjarnan vera fal- leg risíbúð, ekki blokk eða kjallari. Sölum. Örn. Hæðir Yfirmaður í banka leitar að góðri sérhæð 120 n 160 fm á svæðum 170-108. Bilskúr skilyrði. Til greina kemur að kaupa eign sem þarfnast einhverrar endurnýjunar. Sölumaður Þórður Góðan kaupanda vantar hæð með góðum bílskúr vestan Elliðaáa. Sölum. Örn Höfum fjársterkan kaupanda að sérhæð i Vesturbæ, aðeins mjög góð eign kemur til greina. Sölum. Steinbergur Hjón með dýr sem eru að minka við sig vantar hús eða sérhæð í 104 með svölum, sérinngangi og bílskúr. Sölum. Örn Sérbýl Hjón sem eru búin að selja og eru með góða greiðslugetu vantar einbýlishúsi i Breiðhoiti eða Árbæ. Húsið þarf helst að vera á einni hæð. Sölum. Örn Fjölskylda utan af landi leitar að einbýlis- húsi eða stóru raðhúsi með aukaibúð. Nýbyggingar Rafvirkja vantar 3ja til 4ra herbergja íbúð helst fokhelda á Höfuðborgarsvæðinu. söl- um. Örn Hjón sem eru að flytja i bæinn vantar rað / parhús fokhelt eða lengra komið í Garða- bæ eða Kópavogi. Sölum. Örn Salarhverfi Kópavogi, höfum góðan kaup- anda af c.a. 150 fm rað-par eða hæð sem lengst komna. Sölum. Steinbergur. Læknishjón leita að 140 fm einbýli, helst á svæðum 108, 105 og 200. Sölum. Steinbergur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.