Fréttablaðið - 08.03.2002, Side 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
8. mars 2002 FÖSTUDAGUR
Körfubolti karla:
Keflavík
efstir
KÖRFUBOiTi Mikil spenna var í loka-
umferð Epson-deildarinnar í gær-
kvöldi, enda var skorið úr um hvor-
ir yrðu deildarmeistarar Keflavík
eða KR. Keflavík vann Blika með
tveggja stiga mun og réði það úr-
slitum. Leikur KR og Njarðvíkur
fór í framlengingu og unnu Njarð-
víkingar 106-102 og urðu í öðru
sæti. Átta efstu lið halda áfram í úr-
slit en það eru Keflavík, KR, Njarð-
vík, Tindastóll, Grindavík, Hamar,
Breiðablik og Haukar. Tvö neðstu
liðin eru Skallagrímur og Stjarnan.
Þá vann ÍBV Aftureldingu 32-28
í æsispennandi leik í Essodeildinni í
handbolta karla. ■
Fjölmiðlar Brasilíu um landsleikinn við ísland:
T öldu Islendinga aukaatriði
FÓTBOITI Islendingar mættu Bras-
ilíu á Verdao leikvellinum í Ciu-
aba í nótt. Mikið var fjallað um
undirbúning leiksins í brasilísk-
um fjölmiðlum undanfarna daga.
Það sem einkenni umræðuna er
hversu lélegt lið fslands er. í raun
telja Brasilíumenn íslendinga
aukaatriði. Margir sögðu Rom-
ario, sem var ekki í liðinu, vera
andstæðing brasilísku leikmann-
anna. Augu annarra beinast að
þeim sem enn eiga möguleika á
því að vera valdir af Luis Felipe
Scolari þjálfara í HM-hópinn í
sumar. í dagblaðinu Oglobo stóð
að íslendingar næðu því ekki einu
sinni að kallast forréttur fyrir að-
KAKÁ
Rísandi stjarna. Einn af þeim leikmönnum
sem á möguleika á plássi í HM-liði Brasilíu.
alréttinn, leikinn á móti
Júgóslavíu seinna í mánuðinum.
Þá verður hópur Scolari nær full-
komnaður.
Þeir fimm sem enn eiga mögu-
leika eru Kaká, Kleberson,
France, Alex og Washington.
Kaká þykir mjög líklegur í fram-
línunni í sumar. Kleberson einnig.
íslandsleikurinn var hinsvegar
síðasta hálmstrá France, Alex og
Washington, sem sagði hann mik-
ilvægasta leik lífs síns.
Scolari sagðist ætla að fylgjast
vandlega með því hvernig leik-
mennirnir bregðast við andlegri
pressu áhorfenda, sem heimtuðu
markaveislu á móti íslendingun-
um. Hann sagði þessa pressu litla
miðað við HM í sumar. Á meðan á
æfingum stóð þjöppuðu aðdáend-
ur liðsins sér í kringum æfinga-
völlinn með gjallarhorn og heimt-
uðu að fá Romario í liðið. Scolari
bjóst við því að mikið yrði öskrað
ÁRNI í ELDLÍNUNNI
Leikmenn Brasilíu sögðust ætla að senda
stórskotahríð á Árna Caut Arason í marki
íslendinga.
á Romario á meðan á leiknum
stóð. Það eina sem gæti lækkað
rostann í þeim var markaveisla á
kostnað íslendinga. Hann lét ein-
nig alla leikmenn læra þjóðsöng-
inn vandlega því áhorfendur elska
að sjá leikmenn syngja hann. ■
Lyfjapróf í Salt Lake:
Tveir falla
ólympíuleikar Íshokkíleikmaður
frá Hvíta-Rússlandi, Vasily Pankov,
greindist með stera í blóðinu í lyfja-
prófi á Vetrarólympíuleikunum.
Þessu var greint frá á miðvikudag.
Bretinn Alain Baxter, sem nýlega
var greint frá að hefði einnig fengið
jákvæða niðurstöðu, kennir nefúða
um. Ef báðir íþróttamennirnir eru
fundnir sekir er fjöldi þeirra sem
féllu á lyfjaprófi í Salt Lake City
fimm, jafnmikið og á öllum fyrri
Vetrarólympíuleikum samanlagt.
Þrír gönguskíðamenn voru dæmdir
úr keppni. Tveir þeirra misstu gull-
verðlaun. Hvít-rússneski íshokkím-
aðurinn fór í lyfjapróf eftir 7-2 tap
liðs síns á móti Rússlandi í Ieik um
bronsverðlaun. Liðið kom gífurlega
á óvart þegar það vann Svíþjóð 4-3 í
fjórðungsúrslitum. Annar Hvít-
Rússi, skautahlauparinn Yulia
Pavlovic, féll á prófi en það var ógilt
vegna lélegs innsiglis. ■
IÍÞRÓTT1R f DAG
18.00 Sýn
Heklusport
18.30 Sýn
íþróttir um allan heim
19.30 Sýn
Alltaf í boltanum
20.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn
20.00 Eurosport
Ungfrú Fitness mót í Evrópu
20.00 Handbolti
ÍR tekur á móti Stjörnunni í
Austurbergi. ÍR gengur vel, er í
þriðja sæti ESSO-deildarinnar
með 24 stig en Stjarnan i 12.
sæti með 13 stig.
20,00 Handbolti
Fram fer i heimsókn til HK í
Digranes. Fram er í tiunda sæti
ESSO-deildarinnar með 18 stig.
HK er í næstneðsta sæti, 13.
með 12 stig.
21.00 Eurosport
Kraftakeppni í Póllandi
Stefni á ad leika
í Þýskalandi
Guðmundur Stephensen borðtennisleikari er aðeins nítján ára og hefur
verið nær ósigrandi í mörg ár. Hann hefur æft frá fimm ára aldri og
hugsar sér til hreyfings til útlanda í framtíðinni.
BORÐTENNIS „Ég býst við að ég
hafi ekki verið eldri en fimm ára
þegar ég byrjaði að æfa borð-
tennis og hef æft síðan,“ segir
Guðmundur Stephensen, nítján
ára menntaskólanemi sem varði
íslandsmeistaratitil sinn um síð-
ustu helgi. Guðmundur vann þre-
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag
og breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík
Kvos/Grjótaþorp, breyting á deiliskipulagi Kvosarinnar og nýtt deili-
skipulag fyrir Grjótaþorp.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar og nýtt
deiliskipulag fyrir Grjótaþorp.
Skipulagssvæðið afmarkast af Aðalstræti í austur, Túngötu í suður, Garðastræti í vestur og
Vesturgötu í norður. Tillagan tekur þó einnig til hluta Fógetagarðsins austan Aðalstrætis,
sunnan við húsið að Aðalstræti 9. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að Grjótaþorpið verði
hverfisverndað, nokkrar breytingar verði á lóðamörkum og töluverðar breytingar á
byggingaráformum á lóðinni nr. 16 við Aðalstræti (áður Aðalstræti 14-18/Túngata 2-4). Þá
gerir tillagan ráð fyrir niðurrifi og nýbyggingum á lóðunum nr. 4 og 10 við Aðalstræti,
viðbyggingum við húsið að Grjótagötu nr. 5, nr. 23 við Garðastræti og Mjóstræti 4, ásamt
frekari takmörkun á landnotkun á miðborgarhluta Grjótaþorpsins. Óheimilt verði að setja á
stofn eða starfrækja þar; næturklúbba, dansstaði, skemmtistaði og spilasali. Verði tillagan
samþykkt fellur eldra deiliskipulag Grjótaþorps úr gildi svo og hluti deiliskipulags Kvosarinnar,
þ.e. sá hluti sem tekur til húsanna vestan Aðalstrætis og Fógetagarðsins.
Tillagan hefur áður verið auglýst en er nú auglýst að nýju þar sem gerðar hafa verið á henni
nokkrar breytingar. Helstu breytingarnar frá áður auglýstri tillögu eru þær að hús, sem gert er
ráð fyrir að rísi á ióðinni nr. 16 við Aðalstræti, hækkar nokkuð. Bílakjallari undir því húsi er
felldur niður en í staöin er gert ráð fyrir sýningarsal í kjallara vegna fornminja sem þar er að
finna. Aðkoma að kjallaranum verði í Fógetagarðinum um undirgöng/kjallara undir Aðalstræti.
Þá er gert ráð fyrir að húsið við Aðalstræti 4 hækki, þakform þess breytist og byggingarmagn
á þeirri lóð aukist í samræmi við það. Bætt hefur verið við viðbyggingarmöguleika við hús nr.
4 við Mjóstræti.
Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 8. mars - til 19. apríl 2002. Eru hagsmunaaðilar hvattir til að kynna sér
hana ítarlega. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til skipulags- og
byggingarsviðs, merkt skipulagsfulltrúa, eigi síðar en 19. apríl 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 8. mars 2002.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
HEIMA HEFUR ÁHUGINN VERIÐ MIKILL
Bæði faðir Cuðmundar og afi hafa verið miklir áhugamenn um borðtennis. Faðir hans
Pétur Stephensen er formaður deildarinnar hjá Víkingi.
faldan sigur á mótinu, í tvennd-
ar-, tvíliða- og einliðaleik.
Fyrir skömmu sigraði Guð-
mundur einnig í Borgarkeppni
TBR á milli Reykjavíkur og Car-
diff. Hann sigraði Walesbúann
Ryan Jenkis örugglega 4-1. Hann
sigraði einnig í Grand Prix móti
Lýsingar um þarsíðustu helgi
þar sem úrslit urðu ekki ljós fyrr
en í síðasta leik. Faðir Guðmund-
ar er Pétur Ó. Stephensen for-
maður borðtennisdeildar Vík-
ings og afi hans Ólafur Stephen-
sen var einnig kunnur fyrir
áhuga sinn á íþróttinni. „Heima
hjá pabba var borðtennisborð því
afi hafði svo mikinn áhuga á
íþróttinni. Það sama var heima
hjá mér og ég þekki ekki annað.
Yngri bróðir minn er einnig á
fullu í borðtennis svo segja má
að þetta hafi fylgt fjölskyld-
unni,“ segir Guðmundur. Hann
hefur tekið þátt í deildarkeppn-
inni í Danmörku undanfarin ár
og gengið velv „Það er gróska í
borðtennis á íslandi um þessar
mundir og ég hef orðið var við
aukin áhuga. Ég þjálfa yngri
borðtennisleikara hjá TBR og
hef mikla ánægju af.“ Guðmund-
ur mun ljúka stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund í vor
og hyggst þá flytja sig um set til
Danmerkur og spila þar næsta
ár. „Það er hægt að lifa á að spila
borðtennis í Danmörku en mestir
peningarnir eru í Þýskalandi og
Italíu.“ Yngri bróðir Guðmundar,
Ólafur er farinn að láta að sér
kveða í íþróttinni en hann er að-
eins fimmtán ára. „Heima höfum
við notið mikillar hvatningar og
það er stutt vel við bakið á okkur.
Ég ætla að halda áfram og stefni
á að spila í Þýskalandi eða ftalíu
í framtíðinni. Þar er gróska og
mikil áhugi fyrir boötennis."
bergljot@frettabladid.is
FjÖRÐUR
Handverksinarkaður
miöbœHqfmrjjarðar á morgUll laugardag kl. 11-16 lÓttU/Vw!