Fréttablaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
15. mars 2002 FÖSTUDACUR
Nýr forstjóri til þriggja mánaða:
Endurskipulag í
undirbúningi
FUNPARHÖLP
Omar S. Kittmitto, forstöðu-
maður aðalsendinefndar
Palestínu í Noregi og á íslandi
með aðsetur í Ósló, verður heið-
ursgestur á aðalfundi félagsins
Ísland-Palestína á sunnudaginn.
„Hann ávarpar fundinn á Lækjar-
brekku á sunnudaginn klukkan
þrjú og þá verður farið yfir stöðu
mála í hans heimalandi. Það hef-
ur átt að berja Palestínumenn til
hlýðni og Sharon [forsætisráð-
herra ísraels] hefur lýst því yfir.
Það er bara enginn uppgjafar-
bragur á Palestínumönnum,"
sagði Sveinn Rúnar Hauksson,
formaður félagsins Ísland-Palest-
ína.
stofnanir Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar, lætur af
störfum um mánaðamótin. Hann er
að skipta um starfsvettvang og
tekur við starfi framkvæmda-
stjóra Verðbréfaþings íslands.
Forsætisráðherra hefur sett Sig-
urð Guðmundsson, skipulagsfræð-
ing, til að taka við embætti af Þórði
um þriggja mánaða skeið. Sigurður
var áður forstöðumaður byggða-
þróunarmála hjá stofnuninni.
Ráðning Sigurðar er tímabund-
in meðan unnið er að viðamikilli
endurskipulagningu í forsætis-
ráðuneytinu sem lýtur að því að
færa verkefni stofnunarinnar til
annarra stofnana. „Þegar ljóst er
hvernig því verður hagað í einstök-
um atriðum verður frumvarp þar
að lútandi lagt fyrir Alþingi," segir
í tilkynningu forsætisráðuneytis-
ins.
„Það var skipaður starfshópur
sl. haust um málið og síðan hefur
verið unnið áfram að því í ráðu-
neytinu," sagði Ólafur Davíðsson,
ráðuneytisstjóri í forsætisráðu-
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN ER í HÚSNÆÐI SEÐLABANKA ÍSLANDS
Forstjóraskipti verða hjá Þjóðhagsstofnun um mánaðamótin en innan forsætisráðuneytis-
ins er unnið að því að leggja stofnunina niður.
neytinu. Hann taldi að fyrirhugað-
ar breytingar ættu ekki að hafa
áhrif á starfsemi stofnunarinnar
að svo komnu máli. „Það sem
mestu skiptir er að niðurstaða fáist
í hvernig þessu verði hagað í fram-
tíðinni og unnið er að undirbúningi
þess,“ sagði hann. ■
Vinstrihreyfingin í Hafnarfirði:
Ekki nóg að gert
í atvinnumálum
framboð „Við leggjum mikla áher-
slu á að rífa upp atvinnulífið hér í
Hafnarfirði. Það er mál sem hefur
sofið nokkuð hjá hinum flokkun-
um“, segir Sigurbergur Árnason,
sem leiðir framboðslista Vinstri-
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs í Hafnarfirði við sveitar-
stjórnarkosningar. Meðal annars
vilji framboðið átak í ferðamál-
um. Þannig sé ráðlegra að byggja
stórt hótel á Norðurbakkanum en
íbúðabyggð sem girði fyrir að
hægt sé að þróa miðbæinn.
„Við leggjum einnig áherslu á
að það verði byggt ódýrt húsnæði
fyrir fólk sem vill leigja, unga og
aldna,“ segir Sigurbergur. Þá vill
framboðið efla almenningssam-
göngur og styrkja samgöngur við
Reykjavík.
„Við stefnum á að minnsta
kosti einn mann í bæjarstjórn,"
segir Sigurbergur. „Við vörum
mjög við því að einn flokkur fái
hreinan meirihluta eins og hefur
verið stillt upp undanfarið. Við
teljum það hreinlega ólýðræðis-
leg vinnubrögð ef sjónarmið allra
fá ekki að koma fram.“
í öðru sæti listans á eftir Sigur-
bergi er Gestur Svavarsson, son-
ur Svavars Gestssonar, sendi-
herra og fyrrum formanns Al-
þýðubandalagsins. Oddrún Ólafs-
dóttir er í þriðja sæti, Jón Þór
Ölafsson í því fjórða og Gréta
Pálsdóttir skipar fimmta sætið. ■
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ
kl. 09:00 -18:00
OG 13:00 -15:00
SUNNUDAGA.
FASTEIGNA
Síðumúla 11 • 108 Reykjavík
Sími: 575 8500 • Fax: 575 8505
Veffang: www.fasteignamidlun.is
Netfang: brynjar@fasteignamidiun.is
EINBÝLISHÚS
BÆJARGIL - GB.
179 fm einbýlishús sem er hæð og
ris ásamt 39 fm bílskúr eða samtals
213 fm. Húsið m.a. rúmgóð stofa,
borðstofa og arinstofa, rúmgott
eldhús, sjónv.hol, 4 rúmgóð svefn-
herb. o.fl. Áhv. 4,2 m. Byggsj. Verð:
24,9 m.
RAÐ-PARHUS
HRAUNTUNGA-AUKA-
ÍBÚÐ
Gott og mikið endurnýjað 214 fm
raðhús á tveimur hæðum. í húsinu
em tvær aukaíbúðir, ein tveggja
herb. og ein stúdíóíbúð. I aðalíbúð
em þrjú svefnherb. baððherb., nýtt
eldhús með fallegri innréttingu og
falleg og björt stofa með útgangi út
á mjög stórar suður-svalir. Áhv.
10,3 m. V.21,5 m.______
SÉRHÆÐIR
GARÐASTRÆTI-BÍLSKÚR
Mjög falleg 5 herb. 114 fm sérhæð
ásamt 25 fm bílskúr. Sérinngangur,
þrjú rúmgóð svefnherb., tvær bjart-
ar og fallegar stofur með parketi á
gólfi, nýlegt flísalagt baðherb. og
gott eldhús. Eign í mjög góðu
ástandi jafnt að utan sem innan.
Nánari uppl. á skrifstofu.
HÁTEIGSVEGUR-BÍL-
SKÚR
3ja herb. 80 fm íbúð á 1. hæð með
sérinngangi í fjórbýlishúsi ásamt 24
fm bílskúr. íbúðin er Tvær samliggj-
andi stofur, svefnherbergi, eldhús,
bað o.fl. Parket á gólfum. Hús klætt
að utan með stení-klæðningu. Ekk-
ert áhv. Verð 14,2 m.
4JA HERBERGJA
ARNARSMÁRI
4ra herb. 100 fm íbúð á 2. hæð í ný-
legu fjölbýli. íbúðin er stofa, borð-
stofa, 3 svefnherb. rúmgott eldhús,
flísalagt bað, þvottaherb. í íbúð.
Parket á gólfum. Áhv. 6,0 m. hús-
bréf. Verð 13,7 m.
3JA HERBERGJA
REYKJAVÍKURVEGUR -
HF.
Góð 2ja til 3ja herb. íbúð í tvíbýli
rétt við miðbæ Hafnarfjarðar. 1 til 2
svefnherb, rúmgott eldhús með
góðu borðplássi, 1 til 2 stofur. íbúð-
inni fylgir hálfur kjallari sem ekki er
inn í fm tölu eignar. Áhv. 8,0 m. V.
9,2
2JA HERBERGJA
KLEPPSVEGUR
V/BREKKULÆK
2ja herb. íbúð á 3. hæð í nýmáluðu
fjölbýli v/Kleppsveg en gengið er
inn frá Brekkulæk. Rúmgóð stofa,
svefnherbergi, uppgert eldhús,
flísalagt bað o.fl. Parket. Áhv. 4,2
m. húsbréf og byggsj. Verð 7,9 m.
Vildi verja
dóttur mína
Francois Scheefer fór til Frakkland með dóttur sína því hann vill að for-
sjármálið sé tekið upp þar. Hann sakar móðurina um vanrækslu. ,,Eg get
ekki tekið áhættu,“ segir hann og braut því sína eigin kröfu um farbann.
forsjárdeila „Ég fór til Frakk-
lands til að verja dóttur mína,“
segir Francois Scheefer, sem tók
dóttur sína til Frakklands þrátt
fyrir að óheimilt væri að fara með
hana úr landi. Kona hans Caroline
—4— Lefort krafðist í
fyrrasumar skiln-
aðar og forsjá yfir
dóttur þeirra fyrir
íslenskum dóm-
stólum. Meðan
dæmt yrði í málinu
var henni veitt
bráðabirgðafor-
„Einn daginn
mun Laura
verða nógu
gömul til að
skilja hvað
gerðist."
—♦....
ræði. Francois bað þá um farbann
á barn þeirra.
Francois segir að dóttir sín hafi
sætt vondri meðferð hjá Caroline.
Hann hafi tjáð dómstólum á ís-
landi það ásamt vitnum. „En það
kom ekki fram í skýrslum.“ Hann
segir réttarstöðu mæðra á íslandi
sterka og feður gleymist þegar
forsjármál koma upp. Því vill
hann höfða mál fyrir frönskum
dómstólum. „Við erum öll fransk-
ir ríkisborgarar og franskir dóm-
stólar hafa lögsögu í málum sem
þessum.“ Lögfræðingar Francois
hafa lagt fram gögn sem eiga að
styðja það.
Aðspurður af hverju hann
braut sína eigin kröfu um farbann
sagðist Francois hafa haldið að
Caroline myndi flýja land. Þegar
hann var þá spurður hvort það
hefði þá ekki auðveldað honum að
höfða málið í Frakklandi, ef bæði
Caroline og dóttirin væru þar, var
svarið að þær hefðu getað farið til
hvaða lands sem er.
„Ég get ekki tekið áhættu með
Lauru,“ segir hann. Caroline hefði
ekki heimsótt dóttur sína og lækn-
ar í Frakklandi sögðu hana hafa
verið vanrækta. Sérfræðingar á
spítalanum sáu sig tilneydda til að
gera þarlendum yfirvöldum við-
vart um vanrækslu að sögn
■Marvör-
Pfósent.
F'uc), /and
™Mpii>ou u °e u,nnuvcitenTr mædur s,
;«k„„Mé ITakk,anh«» lil
- .. kvadd/ ,rra undanr ra-‘ó‘r‘(’un.if!f K há>fs
0% 4**
as*i3f »i & stsss
sc/ caSL4 „??' “»• M
,ömmunnár á'‘,.a í'ðUru tii JllT. í'UUru í k%\lð'
iurn. í/áir viidi trevsin Francois fór frl^'
Jr8un hringlríy 6 Pnðju. tavnafl datl aJdr'cf/hrbann
5SS spjg jíB?
r~m , ...íW'
með dóttur h,
kk!to »> yf,
önco/s JSf* «Jdrn- 7-ern tí/nar
I Frakkjahnn‘K hefur /n ?afnan &'
,rTauruá m
-Fg er bi.nr,„.-._ .
r&s
ólð ?fst0PD. WðiSffl-
!,,a hangað
,1ura e
að>trokay™n!ta*
, frönsk s>‘:
Lauru ti' ' n
öómstón
kröfu han
Janúar sl.
VIÐTAL FRÉTTABLAÐSINS VIÐ MÓÐUR LAURU
Francois segir Caroline ekki hafa sagt sér að hún væri að koma til Frakklands yfir jólin.
„Hún vissi að ég ætlaði í ferðalag með Lauru. Því hvarf ég ekki þegar hún kom út."
Francois.
í viðtali við Fréttablaðið sagði
Caroline að Francois hefði borið
þessar ásakanir á hana. Þær væru
ekki sannar. Hér er því orð á móti
orði. Annars vegar snýst deilan
um ásakanir þeirra beggja um
meint ofbeldi og hins vegar hvar
eigi að höfða forsjármálið.
Caroline hefur höfðað mál hér á
íslandi en Francois segir að málið
heyri undir franska dómstóla.
„Ég hef ekki reynt að láta
mömmu hennar Lauru hverfa,"
segir hann. Hann gæti alltaf að
hlutleysi þegar talað er um
Caroline fyrir framan dótturina.
„Hún hefur líka mynd af henni í
herberginu sínu.“
bjorgvin@frettabladid.is
Hækkun lyfjakostnaðar kemur illa niður á öldruðum og öryrkjum:
Mánaðarlífeyrir fer í lyfjakaup
lyfjakostnaður „Það hefur fjöldi
lífeyrisþega haft samband við
mig. Fólk finnur mikið fyrir
hækkun lyfjakostnaðar," segir Jó-
hanna Sigurðardóttir, alþingis-
maður Samfylkingarinnar. Hún
hefur lagt fram fyrirspurn til
heilbrigðisráðherra um meðal-
lyfjakostnað sl. tvö ár hjá lífeyris-
þegum og meðalafslátt þeirra hjá
lyfjaverslunum.
„Lyfjakostnaður hefur vaxið
mjög mikið á undanförnum fimm
til tíu árum. Það kemur þungt nið-
JÓHANNA SIG-
URÐARDÓTTIR
Ekki óalgengt að
lífeyrisþegar greiði
sem svarar eins
mánaðar lífeyris-
greiðslu í lyfja-
kostnað.
ur á lífeyrisþegum," segir Jó-
hanna.
í kjölfar fyrirspurnar hennar í
nóvember sl. um þróun lyf javerðs
komst hún að því að hlutur sjúkl-
inga í lyfjaverði hefur vaxið um
80% síðan 1995, fór úr tveimur
milljörðum í 3,6 á tímabilinu. „Ég
fór að skoða málið nánar og þar er
ljóst að lyfjakostnaður kemur
miklu þyngra niður á öldruðum og
öryrkjum en fyrr. Það er ekki óal-
gengt að lífeyrisþegar greiði 50-
70 þúsund í lyf á ári. Það er eins
mánaðar lífeyrisgreiðsla," segir
Jóhanna. Hún bendir einnig á að
lífeyrisgreiðslur hafi ekki haldist
í hendur við launavísitölu, það
vanti 5,3% upp á það þegar litið sé
til síðasta árs.