Fréttablaðið - 15.03.2002, Blaðsíða 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
15. mars 2002 FÖSTUDAGUR
MÁR WOLFGANG MIXA
ÓLÍK SJÓNARMIÐ
SIGURÐUR B. STEFÁNSSON
Meðmælin standa
„Það hafa ekki orðið nein slys hjá
þeim og bókfærðar tekjur eru að
aukast hraðar en kostnaður. Áætl-
anir hafa verið að ganga vel. Flest-
ir eru famir að átta sig á að fyrir-
tækið verður ekki gullnáma á ör-
skotsstundu,“ segir Már Wolfgang
Mixa hjá Sph verðbréfum. Þeir
mæltu með kaupum í fyrirtækinu
fyrir ári. Gengið var þá 10 dollarar
hluturinn. Már segir að þeir hafi
ekki viljað mæla með fyrirtækinu
fyrr en gengi þess hafi verið komið
niður í 10 dollara. „Við fengum
mjög sterk viðbrögð og skammir
við þessum meðmælum. Greinilegt
var að margir höfðu farið inn á háu
gengi og tapað verulega. Við horfð-
um hins vegar á að áhættan væri
minni á lægra gengi. Fyrirtækið er
Áfram sprotafyrirtæki
nær því að ná ár-
angri, en það var
þegar gengið var
sem hæst. For-
sendurnar eru
ennþá fyrir hendi.
Við stöndum við
þessi meðmæli
með sömu fyrir-
vörum og áður.
Þetta er mikil
áhættuf járfest-
ing.“ Már segir að
peningaleg staða
Decode sé góð.
Fyrirtækið hafi
því góðan tíma til að ná árangri.
„Nái menn árangri hef ég fulla trú
á því að fyrirtækinu gangi vel að
fjármagna sig áfram.“ ■
Decode genetics, móðurfé-
lag íslenskrar erfðagrein-
ingar, hefur birt uppgjör
síðasta árs. Niðurstaðan er
í samræmi við áætlanir.
Gengi féiagsins hefur hins
vegar farið lækkandi. Ekki
er fyrirsjáanlegt að stór-
kostlegar breytingar séu á
því í nánustu framtíð.
Sigurður B. Stef-
ánsson, fram-
kvæmdastjóri
eignastýringar
og einkafjár-
mála hjá ís-
landsbanka hef-
ur verið tals-
maður virðis-
f járfestingar.
Hann leggur
áherslu á fjár-
hagslega sterk
fyrirtæki sem
eiga farsæla
rekstrarsögu.
Sigurður segir að Decode upp-
fylli engin skilyrði slíkrar fjár-
festingarstefnu. Þetta sé
áhættufjárfesting. „Þeir sem
fjárfestu í fyrirtækinu hljóta að
hafa verið að horfa til fjögurra
eða fimm ára. Það var aldrei
nein dul dregin á það að það
tæki nokkur ár að koma því í
gang. Ég held að ef menn horfa á
stöðuna í dag, þá sé hún mjög
nálægt því sem menn voru að
spá fyrir urn fyrir þremur
árum.“ Sigurður segir að mark-
aðurinn og umhverfið hafi hins
vegar breyst talsvert á þessum
tíma. „Það eru til fleiri fjárfest-
ingastefnur en stefna virðisfjár-
festa, sem betur fer. Decode er
ekki farið að skila hagnaði. Enn
er ekki borðliggjandi að þeim
takist ætlunarverk sitt. í þeim
skilningi verður að líta á það
sem sprotafyrirtæki." ■
JÓNAS SKRIFAR:
Þéttbýlisflokk vantar
Fjórflokkurinn allur er andvígur hagsmunum íbúa
höfuðborgarsvæðisins, svo sem sést af athöfnum
hvers kyns ríkisstjórna og þingmeirihluta. Áratug-
um saman hefur mikið af orku slíkra aðila farið í að
reyna að hamla gegn þroska höfuðborgarsvæðisins
með fjárhagslegum aðgerðum af ýmsu tagi.
Einna lengst gengur þetta í vegagerð, þar sem
fáfarin göng gegnum afskekkt fjöll eru tekin fram
yfir lífshættulega fjölfarin gatnamót við þvergötur
Miklubrautar og Reykjanesbrautar. Núverandi
samgönguráðherra Sjálfstæðisflokksins gengur
raunar að þessari mismunun af mikilli ákefð.
íbúar höfuðborgarsvæðisins þurfa stjórnmála-
flokk, sem tryggir, að vegafé sé notað, þar sem
tekjurnar verða til. Þeir þurfa flokk, sem lætur
byggja mislæg gatnamót á höfuðborgarsvæðinu til
að fækka slysum, stytta ferðatíma, minnka elds-
neytiskostnað og draga úr loftmengun.
Slík tilfærsla vegafjár er um leið þjóðhagslega
hagkvæm, því að reynslan sýnir, að vaxtarbroddur
nýrra fyrirtækja í atvinnugreinum framtíðar er
eingöngu á höfuðborgarsvæðinu. Greiðar sam-
göngur á því svæði stuðla að verndun byggðar á ís-
landi og draga úr atgervisflótta til útlanda.
Nýjasta dæmið um árás stjórnvalda á hagsmuni
höfuðborgarsvæðisins eru ráðagerðir um að ryk-
suga allt tiltækt fjármagn í landinu til að borga fyr-
ir álver á Reyðarfirði og orkuver við Kárahnjúka.
Þetta þýðir, að minna fjármagn verður til ráðstöf-
unar handa vaxtarbroddum atvinnulífsins.
Góðar hugmyndir á framtíðarsviðum munu ekki
verða að veruleika, af því að efnilegt fólk mun ekki
geta útvegað sér fjármagn til að koma tækifærum
sínum í gang. Sumir munu gefast upp, en aðrir
flytja sig til ríku landanna, þar sem menn taka at-
vinnuvegi framtíðarinnar fram yfir álver.
Ein birtingarmynd þessarar árásar er 2-2,5%
vaxtahækkun í landinu á byggingatíma álvers og
orkuvers samkvæmt tölum Seðlabankans. Þetta er
skattur, sem ryksugun fjármagns til 19. aldar
„Nýjasta dœmið um árás stjórnvalda á
hagsmuni höfuðborgarsvœðisins eru ráða-
gerðir um að ryksuga allt tiltœktfjármagn í
landinu til að borgafyrir álver á
Reyðarfirði og orkuver við Kárahnjúka. “
gæluverkefnis leggur á alla þá, sem þurfa að taka
lán, hvort sem er til húsnæðis eða verkefna.
Þetta kemur auðvitað mest niður á unga fólkinu
á höfuðborgarsvæðinu. Það þarf að byggja yfir sig
og skapa sér tækifæri til hátekjustarfa í greinum,
þar sem það hefur lært til verka. Byggðastefna ál-
vers á Reyðarfirði og orkuvers við Kárahnjúka er
bein fjárhagsleg árás á allt þetta fólk.
Hér hafa aðeins verið nefnd tvö afmörkuð at-
riði, þar sem núverandi stjórnvöld vinna gegn
hagsmunum íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þar fyrir
utan snúast heilir málaflokkar ríkisins um varð-
veizlu gamalla atvinnuvega til sjávar og sveita með
tilheyrandi ofurkostnaði skattgreiðenda.
Engum kemur á óvart, að Framsóknarflokkur-
inn sýni íbúum höfuðborgarsvæðisins óvild, þar
sem hann er fylgislítill á svæðinu. Undarlegra er,
að Sjálfstæðisflokkurinn skuli kjörtímabil eftir
kjörtímabil komast upp með að vinna markvisst
gegn hagsmunum kjósenda sinna á svæðinu.
Langvinnur stuðningur kjósenda á höfuðborgar-
svæðinu við aðalandstæðinga svæðisins, við ýmsar
birtingarmyndir hins pólitíska fjórflokks í landinu,
einkum við Sjálfstæðisflokkinn, er verðugt skoð-
unarefni fyrir sálfræðinga á sviðum langlundar-
geðs, sjálfseyðingar og sjálfsniðurlægingar.
Þegar kjósendur höfuðborgarsvæðisins samein-
ast um að kjósa sér fjölmenna sveit fulltrúa nýs
þéttbýlisflokks á Alþingi, munu loksins hætta póli-
tískar ofsóknir gegn höfuðborgarsvæðinu.
Jónas Kristjánsson
ORÐRETT
Fasteignasala
Sími
588 8787
BÆTIFLÁKAR
ÆA
Suðurlandsbraut 16
•ssnsnmm&
„Við erum mannleg“
FRETTABLAÐIÐ
Utgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjórar: Pétur Gunnarsson
og Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsfmi: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: (P-prentþjónustan ehf.
Prentun: (safoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fiéttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta altt efni
blaðsins (stafrænu formi og i gagnabönkum
án enduigjalds.
1 BRÉF TIL BLAÐSINS]
Glæpur
og refsing
Ámundi Loftsson skrifar:
Refsiþörf hefur lengi verið
manninum eiginleg.
Ilefnigirnin er sömu ættar og er
merkjanleg meðal margra dýra-
tegunda. Þessi þörf er í eðli sínu
frumstæð eða öllu heldur forn-
eskjuleg. Þegar glæpur er fram-
inn þarf að sönnu að hafa hendur í
hári þess sem hann hefur framið.
Refsidómar koma þó ekki í veg
fyrir afbrot. Ríkissjónvarpið
sýndi í haust heimildarmynd um
síbrotamann sem er glöggt dæmi
um gagnslausar aðferðir sem
sporna ekki við glæpum. Þá var
fyrir skömmu fjallað um annan
ógæfumann í sama miðli, marg-
dæmdan fyrir afbrot gagnvart
börnum. Þar hefur þjóðfélagið
sóað fúlgum fjár í vonlaust verk.
Eiturneysla er skelfilegt böl sem
kemur við sögu í flestum afbrot-
um. Stór hluti afbrota er einnig
framin af andlega vanheilu fólki
sem þarf á hjálp að halda, en á
ekkert erindi í fangelsi. Eitur-
neysla og glæpir munu áfram
fylgja manninum þrátt fyrir
harða refsidóma. Sú staðreynd
kallar á nýja hugsun þar sem
beina verður fluginu hærra og
horfa víðar, en hingað til hefur
verið gert, og miða að því að koma
í veg fyrir hvort tveggja. Taka
verður á afbrotum á þann hátt að
gagn sé að, bæði fyrir þann sem
af sér brýtur og samfélagið allt. ■
Engjasel, 109 R
Ca 55 fm snyrtileg tveggja
herbergja íbúð á jarðhæð, í þriggja
hæða húsi, bílskýli, laus strax.
Grýtubakki, 109 R
80 ím á jarðhæð, laus strax.
Gnoðarvogur, 104 R
Ca 90 fm 3. herb. a annarri hæð.
Laus strax.
Flétturimi, 112 R
114 fm 4ra herb. á 3. hæð Glæsileg
íbúð á tveimur hæðum að hluta.
Enjateigur, 108 R
108 fm á tveim hæðum. Sér inn-
gangur. Laus fljótl.
Ljósheimar, 104 R
Ca. 95 fm á annarri hæð.Laus fljótl.
Hveragerði, Réttarheiði
[ byggingu 122 fm raðhús með inn-
byggðum bílskúr. Mjög hagstæð
kaup.
Nýbýlavegur, 200 Kóp
Ca. 125 fm skrifsofuhúsnæði á ann-
arri hæð. 5 rúmgóð herb. með eld-
húsi og snyrtingu, laust strax.
Hlíðarsmári, 200 Kóp
160 fm á 1 hæð. Hentugt fyrir versl-
un eða annarskonar þjónustu. Á
annarri hæðer 270 fm skifstofuhús-
næði.
Hlíðarsmári, 200 Kóp
Til leigu ca.195 fm á fyrstu hæð
(jarðhæð). Húsnæði skiptist í 100
fm fullbúið eldhús með tækjum og
afgreiðsluborði, einnig fullbúin kæli-
klefi ca.60 fm. Veitingaaðstaða + 30
fm lagerhúsn. Húsnæðið er tilbúið
til allrar matvælaframleiðslu. Laust
strax.
Borgartún, 105 R
Ca. 450 fm skrifstofuhúsnæði á 3.
hæð. Fullbúið eldhús og kaffiað-
staða karla og kvenna, snyrting.
Góð lýsing, lagnir fyrir tölvur, laust
strax.
Sérhæft trésmíðaverk-
stæði
Vorum að fá í einkas. Vel tækjum
búið, hentar vel fyrir 2-4 starfsm.
Björt og vel skipulögð aðstaða. Til
afh. mjög fljótlega.
Selbrekka, 200 Kóp
Ca. 190 fm einbýlishús, bein sala.
etta gerðist ekki á einum degi,
að ástandið varð eins og það er
í dag. Við höfum reynt að ræða við
Palestínumenn til að sannfæra þá
um að hætta hryðjuverkum. Við
höfum reynt að sannfæra þá um
að setjast aftur að samningaborð-
inu. Svarið hefur alltaf verið nei-
kvætt.
Ég held að hvert það land, sem
hefur vitneskju um mann sem
ætlar sér að drepa einhverja rík-
isborgara þess hljóti að gera eitt-
hvað til þess að koma í veg fyrir
það. En jafnvel þótt við höfum
slíka vitneskju, þá grípum við
ekki alltaf til aðgerða. Við viljum
ekki valda óbreyttum borgurum
tjóni. Palestínumenn stunda það
hins vegar kerfisbundið að skjóta
frá skólum, sjúkrahúsum og á
götum íbúðarhverfa eins og Beit
Jalla. Þeir reyna að njóta skjóls af
fólkinu sem þar er. Þeir fara inn í
fjölmennustu flóttamannabúðirn-
ar og koma sér fyrir þar vegna
þess að þeir vita að til þessa höf-
um við ekki farið þangað inn á
þessa staði vegna mannlegu hlið-
arinnar á málinu. Þeir notfæra
sér þetta vegna þess að þeir vilja
sjá myndir af því í sjónvarpinu
ykkar.
Okkur þykir til dæmis mjög
leitt að sjúkraflutningafólk hafi
orðið fyrir tjóni eins og átti sér
stað. Hins vegar er ég ekki viss
um að fólk á íslandi viti að Palest-
ínumenn nota sjúkrabifreiðar til
þess að flytja vopn og hryðju-
Israel hefur sætt gagnrýni síð-
ustu daga, meðal annars af
hálfu framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna og banda-
rískra ráðamanna. George W.
Bush segir harða framgöngu
ísraels gagnvart Palestínu-
mönnum „ekki hjálplega“.
Kofi Annan bendir meðal ann-
ars á ólöglegt hernám, árásir
óbreyttra borgara, launmorð,
eyðileggingu húsa og daglega
auðmýkingu venjulegra Palest-
ínumanna. Hvernig skyldi ný-
bakaður sendiherra Israels
svara þessari gagnrýni?
verkamenn. Enginn talar um það
og enginn skrifar um það. Þetta
þýðir ekki að það sem gerðist sé
réttlætanlegt. En um þetta er ekk-
ert talað.
Ákveðnir hópar meðal Palest-
ínumanna hafa aldrei viljað neitt
samkomulag við ísrael. Hið sorg-
lega er að Arafat hefur nú gengið
til liðs við þá. Það er enginn mun-
ur lengur á hryðjuverlcastarfsemi
Hamas og Fatah, eða á íslamska
Jíhad og Force 17. Þeir eru allir að
gera það sama. Stundum vinna
þeir meira að segja saman. Ég
vildi ganga einu skrefi lengra og
segja að palestínska lögreglan,
sem hefur fengið vopn til þess að
HVAÐ MEÐ ÚTI-
BÚ Á ÓLAFS-
FIRÐI?
„Það kostar ein-
ungis tuttugu
milljónir að leysa
brýnasta vand-
ann.“
Jóhanna Sigurðardóttir um vanda
Greiningarstöðvar rikisins þar sem ÍOO
börn bíða úrlausnar.
FRÁLEITT HJÁ
FRIÐRIKI
„Mér finnst með
ólíkindum að
hlusta á mann,
sem ætti að líta í
eigin barm og
skoða sína eigin ábyrgð, varpa á
þennan hátt ábyrgðinni yfir á
stjórnarandstöðu, fjölmiðla og
aðra sem að málinu hafa komið
og hafa gagnrýnt það réttilega að
mínu mati. [...] Ég þekki ekki
dæmi þess að þingmenn hafi ver-
ið að skýla [sér] á bak við þing-
helgina og sagt eitthvað í ræðu-
stóli sem þeir treysti sér ekki til
að ræða utan þings.“
Bryndís Hlöðversdóttir, alþingismaður,
Mbl., 13. mars.
ÁHÆTTUFJÁRFESTING
„Reynslan hefur á hinn bóginn
sýnt að kaup á hlutabréfum í ís-
landsbanka, sem liður í valdabar-
áttu og stórmennskudraumum,
geta reynst áhættusöm svo ekki
sé meira sagt.“
Óðinn í Viðskiptablaðínu, 13. mars.
vinna gegn hryðjuverkamönnum
og halda friði og stöðugleika á yf-
irráðasvæðum Palestínumanna,
hefur þess í stað notað þessi vopn
gegn ísraelsmönnum innan
landamæra ísraels.
Mér finnst það mjög dapurlegt
að Palestínumenn skilja ekki að
það eru mjög margir ísraels-
menn sem vilja styðja stofnun
Palestínuríkis, sem vilja binda
enda á þetta ástand þar sem við
hersitjum svæði þeirra. Við vilj-
um að Palestínumenn fái eigið
ríki. Við erum mannleg og okkur
líður ekki vel að ráða yfir annarri
þjóð. En þeir gefa okkur ekki
færi á að binda enda á þetta. ■
Aðstoðum viðskiptavini og aðra við gerð leigusamninga
— og fasteignasamninga. Traustir fagmenn að verki. _
mmmmmmmwmmmmmmmmsfmmmmm
www.h-gaedi.is - netfang: sala@h-gaedi.is