Fréttablaðið - 15.03.2002, Side 16
FRÉTTABLAÐIÐ
15. mars 2002 FÖSTUDACUR
Fösfudagskvöld:
Lauaardafiskvöíd:
Missið ekki af... Frábærir
BIO TRIO
Sönaskemmtun
i hæsfa
Tónleikarnir hefjasf
Örn
Tónleikarnir hefjasf
kl. 21:30.
Sissa Guðna sönsur
HJörfur Howser píanó/orael
Krisfián Edelsfein eífar
Maenús Einarsson stoðsifar
Eysfeinn Eysteinsson trommur
FriðÞjófur „Diddi"
Siaurðsson bassi
&
«ISS
HUómsveifin SÍN
ásamt sönakonunní Ester
Áfiústu á dansleikium
um helfiina eftir fónleikana.
Sérstakur
mafseðill
fyrir fónleika-
fíesfi bæði
kvöldin.
Pantið borð
tímanlefía.
Pantanasími
568-0878.
Dansleikur
að loknum
fónleikum
fram á nótt.
Sameiginleg námskynn-
ing skóla á náskólastigi:
Menntun er
mikilvæg
skólar Sameiginleg námskynning
skóla á háskólastigi verður haldin í
Háskóla íslands á sunnudaginn
kemur. Þeir skólar sem standa að
háskólakynningunni eru Háskóli ís-
lands, Háskólinn á Akureyri, Há-
skólinn í Reykjavík, Kennarahá-
skóli íslands, Landbúnaðarháskól-
inn á Hvanneyri, Listaháskóli ís-
lands, Tækniháskólinn og Við-
skiptaháskólinn á Bifröst.
Að sögn Jónu Jónsdóttur, kynn-
ingarfulltrúa Háskólans á Akur-
eyri, er ástæðan fyrir sameigin-
legri kynningu fyrst og fremst sú
að krafan um háskólanám sé sífellt
að aukast í atvinnulífinu og nem-
endum sem stundi nám á háskóla-
stigi fjölgi stöðugt. „Samstarfið
hefur staðið í nokkur ár og að und-
anförnu hafa allir háskólarnir tekið
þátt. Þetta árið hefur samvinna
milli skólanna verið aukin enn frek-
ar í þeim tilgangi að efla menntun í
landinu.“ Jóna segir að ákveðin
samkeppni ríki milli skólanna því
sumir bjóði upp á svipað nám, en
með ólíkum áherslum. Hægt sé að
fá nám metið á milli skóla sem
HÁSKÓLI fSLANDS
Allir háskólar landsins verða með sam-
eignlega kynningu á sunnudaginn kemur.
kenni sambærilegt nám. Það þýðir
að nemandi sem klárar t.d. eitt ár í
hjúkrun við Háskóla íslands getur
haldið náminu áfram í Háskólanum
á Akureyri og öfugt.
Á sunnudaginn verður ný deild
við Háskólann á Akureyri kynnt.
Deildin kallast auðlindadeild og
verður boðið upp á f jórar brautir til
B.Sc.-gráðu; fiskeldi, líftækni, sjáv-
arútvegsfræði og umhverfisfræði. ■
Kirkjudyrnar galopnar
gestum og gangandi
Opið hús í Vídalínskirkju í Garðabæ um helgina. Stefnt að aukinni
samvinnu kirkju og bæjar.
HANS MARKLIS HAFSTEINSSON
Hans Markús segir nauðsynlegt að koma kenningum Krists á framfæri án þess að
detta í einhverja stífni. Meiningin sé að fara snyrtilegan milliveg þannig að öllum líki.
opið hús „Tilgangurinn er að rétta
út höndina til fólksins, opna
kirkjudyrnar enn betur og vekja
fólk til umhugsunar um að kirkj-
an sé ekki einungis opin á sunnu-
dögum“, segir Hans Markús Haf-
steinsson, sóknarprestur í Garða-
bæ. Um helgina 16. og 17. mars
verður opið hús í Vídalínskirkju
með margskonar uppákomum,
s.s. kynning á starfi, málstofa,
tónleikar, leikir fyrir börn og ungl
inga og bænastund.
Hans Markús segist hafa orðið
vitni að hálfgerðu kraftaverki
þegar sóknin lét boð út ganga að
ætlunin væri að stofna nefndir til
að starfa að safnaðarmálum.
„Fimmtíu manns mættu á stofn-
fundinn hvaðanæva úr atvinnulíf-
inu og lýstu sig áhugasama um
þessa hluti. í kjölfarið voru stofn-
aðar sjö nefndir: Listanefnd, út-
gáfunefnd, fjölskyldunefnd,
fræðslunefnd, æskulýðsnefnd,
eldri borgara nefnd og kynningar-
og útbreiðslunefnd sem einmitt
sér um þessa opnu kirkjudaga."
Á sunnudag kl. 14.30 verður
málstofa um Jón Vídalín. Hans
Markús segir flest bæjarfélög
eiga sér eitthvert sameiningar-
tákn en það hafi vantað í Garða-
bæ. Meiningin sé að kirkjan og
bærinn efni til samtarfs á hverju
ári á fæðingardegi Vídalíns 21.
1 'ilU" « 1 Ui ,:i 1« LSíi !-,!S.
mars með þátttöku fyrirtækja og
skóla. „Þetta markar vonandi
upphaf enn betri samvinnu á
komandi árum,“ segir Hans
Markús og hvetur fólk til að líta
inn um helgina. ■
I ii i m iiiii ,i _ . —........ ..
A USTFIRÐINGABALL
hæðln fyrlr neðan Plzza Hut
og Islandsbanka.
Föstudags og laugardagskvöld
hljómsveitin Vax frá Egilsstöðum.
Langþráð Austfirðingaball
laugardagskvöld!
Allar upplýsingar á www.champions.is
Viltu halda einkasamkvæmi, afmæli eða.... • Sími 567 3100
FÖSTUDACUR
15. MARS
FUNDUR____________________________
16.00 Líffræðiskor og Umhverfisstofn-
un HÍ boða til fyrirlesturs til
meistaraprófs í umhverfisfræði i
dag. Björn H. Barkarson fjallar
um beitarnýtingu afrétta á mið-
hálendi Islands. Björn lauk B.Sc.
gráðu í búvísindum frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri 1993.
Hann hóf meistaranám sitt í um-
hverfisfræðum haustið 1999 en
hluta námsins stundaði hann við
Montana State University í Banda-
ríkjunum. Umhverfisstofnun Há-
skóla íslands hefur umsjón með
meistaranámi í umhverfisfræðum
en Björn vann lokaverkefni sitt
innan líffræðiskorar, raunvísinda-
deild. Fyrirlesturinn er haldinn í
stofu 101 í Lögbergi. Hann er op-
inn öllum meðan húsrúm leyfir.
20.00 Samstarfsnefnd átthagafélaga
stendur fyrir spurningakeppni
átthagafélaga í kvöld. Þetta er
önnur keppni af fjórum sem hald-
in er I Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14.
TÓNLEIKAR_________________________
21.00 Janis Joplin-tónleikar verða haldn-
ir á Kringlukránni í kvöld. Ferill
Joplin verður rakin í tónum og
flytjendur eru: Sigga Guðna söng-
ur, Hjörtur Howser píanó/orgel,
Kristján Edelstein gítar, Magnús
Einarsson stoðgítar, Eysteinn Ey-
steinsson trommur, Friðþjófur
„Diddi" Sigurðsson bassi. Sérstak-
ur matseðill fyrir tónleikagesti.
Dansleikur að loknum tónleikum.
Hljómsveitin Sln leikur fyrir dansi
SKEMMTANIR________________________
22.00 Sænsk/íslenska hljómsveitin
Broad leikur á Kaffi Amsterdam í
kvöld.
22.00 Stuðmeistarinn dj. Óli Palli leikur
tónlist á Vídalín v/lngólfstorg.
22.00 Hljómsveitin Papar heldur uppi
stuði á Kaffi Reykjavík í kvöld.
22.00 Á skemmtistaðnum Players í
Kópavogi leikur hljómsveitin
Hálft í hvoru.
22.00 Dj. Johnny sér umtónlistina á
Club 22 i kvöld. Frítt inn til kl.
2.30. 22ja ára aldurstakmark.
LEIKHÚS______________________________
20.00 Leikritið Anna Karenina er sýnt í
Þjóðleikhúsinu í kvöld.
20.00 Hver er hræddur við Vírginiu
Woolf er sýnt á Litla sviði Þjóð-
leikhússíns í kvöld.
20.00 íslenska leikhúsgrúbban sýnir
gamanleikinn Leikur á borði í
Gamla bíói i kvöld.
20.00 I leikhúsinu Vesturport er sýning
á leikritínu Lykill um hálsinn.
20.00 Boðorðin níu verða sýnd í Borg-
arleikhúsinu í kvöld.
20.00 Leikritið Fyrst er að fæðast er
sýnt á Nýja sviði Borgarleikhúss-
ins í kvöld.
SÝNINGAR_____________________________
Ljósmyndarafélag íslands og Blaða-
Ijósmyndarafélags íslands halda sýn-
ingu í Gerðasafni, Listasafni Kópavogs.
Einnig er á sýningunni gestasýning
Sigurðar Jökuls „Leitin að Enska sjentil-
manninum." Sýningin stendur til og
með 30. mars nk. Gerðarsafn er opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 11.00
til 17.00 .
Tilkynningar sendist ó netfangið
ritstjorn@frettabladid.is