Fréttablaðið - 20.03.2002, Side 2

Fréttablaðið - 20.03.2002, Side 2
KJÖRKASSINN Nærri þriðjungur lesenda visis.is segist vera flughræddur. Mikill meirihluti treystir sér vel til þess að fljúga. Ert þú flughrædd(ur)? Niðurstöður gærdagsins á www.vlsir.is 29% Spurning dagsins í dag: Ætlar þú að ferðast til útlanda um páskana? Farðu inn á vísi.is og segðu þína skoðun HALLDÓR BLÖNDAL Forseti Alþingis ræddi störf þingsins á AI- þingi í gær. Þingmenn Vinstri grænna: Vilja fresta umræðum um virkj- analeyfi alþinci Þingmenn Vinstri grænna vilja að umræðum á Alþingi um virkjanaleyfi við Kárahnjúka verði frestað þar og málið skoðað betur í iðnaðarnefnd þingsins þegar af- staða Norsk Hydro til aðkomu að byggingu álvers við Reyðarfjörð liggur fyrir. Árni Steinar Jóhanns- son, þingmaður VG, krafðist þess að iðnaðarráðherra upplýsti þingið um raunverulega stöðu mála áður en virkjanaleyfi yrði veitt. „Keyrsl- an á málinu hefur verið réttlætt með því að tímaáætlun þyrfti að standast," sagði hann og taldi að nú kynni að vera lag að skoða mál bet- ur enda væru væntanleg orkulög og rammaáætlun um nýtingu vatns- afls og jarðvarma forsenda þess að afgreiða málið. Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokks og formaður iðnaðarnefndar þingsins, sakaði Vinstri græna um að reyna með öll- um ráðum að reyna að koma í veg fyrir virkjanaframkvæmdir. „Þeg- ar þingmenn Vinstri grænna sjá að um gott mál er að ræða eru við- brögðin að reyna að gera vinnu iðn- aðarnefndar tortryggilega." Hann benti á að rekstrarleyfi til virkjana væri afgreitt af framkvæmdavald- inu og sagði nú liggja fyrir þinginu að heimila ráðherra að gefa slíkt leyfi að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum. ■ Mannslátið í Hamraborg: Gæslu- varðhald framlengt lögrecla Gæsluvarðhald yfir karlmanni á fertugsaidri og konu á sextugsaldri hefur verið fram- lengt um þrjár vikur í Héraðs- dómi Reykjaness. Fólkið er grun- að um að hafa veist að manni í íbúð í Hamraborg aðfaranótt sunnudagsins 10. mars, en sam- kvæmt krufningu lést hann af völdum innvortis áverka. Að sögn lögreglu miðar rann- sókn málsins ágætlega. Verið er að rekja alla þræði og tæknirann- sókn er enn í gangi. Vonast er til að rannsókn málsins Ijúki á næstu þremur vikum. ■ FRÉTTABLAÐIÐ 20. mars 2002 MIÐVIKUDACUR Viðbúnaður vegna NATÓ-fundar: Höfum sérstakan vara á okkur VORFUNDUR Starfsmenn Útlend- ingaeftirlitsins munu hafa sér- stakan vara á sér vegna vorfund- ar Atlantshafsbandalagsins í maí. Við höfum fengið almenn bréf frá dómsmálaráðuneyti og lög- regluyfirvöldum þar sem okkur er bent á að sýna varfærni, ekkert sérstaklega vegna mótmælaað- gerða heldur almennt“, segir Georg Lárusson, forstjóri Útlend- ingaeftirlitsins. „Við skoðum allar umsóknir um vegabréfsáritanir til íslands sérstaklega vel. Sér í lagi á þeim tíma sem er nálægt NATO-fundum. Við höfum sér- stakan vara á okkur varðandi þennan fund.“ Georg segir að það verði að hafa í huga að eftir að ísland gerð- ist aðili að Schengen komi fólk til landsins frá Evrópu án þess að Út- lendingaeftirlitið hafi af því spurnir. Því geti Útlendingaeftir- litið aðeins fylgst með því fólki sem kemur frá löndum utan Schengen-svæðisins. ■ GEORG LÁRUSSON Umsóknir um vega- bréfsáritanír í kringum NATÓ-fund skoðaðar sérstaklega vel. Nýtt deiliskipulag í Þing- holtunum: Húsin fá ad standa MIÐBORG Borgaryfirvöld sam- þykktu í gær nýtt deiliskipulag fyr- ir reiti sem afmarkast af Lækjar- götu, Bankastræti, Ingólfsstræti og Amtmannsstíg. Deiliskipulagið var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur. Með tillögunum er gert ráð fyrir að öll hús á svæðinu fái að standa en fyrir nokkru lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram tillögu um róttækar breytingar á skipulagi miðborgarinnar. Lögðu þeir til að heimiluð yrði uppbygg- ing á reitunum þar sem eigendum yrði leyft að rífa allt að 17 hús á svæðinu óskuðu þeir þess. ■ Salan stóð ekki undir auglýsingaherferð Þórsbrunnur leitar nauðasamninga við lánardrottna. Býður 12,5% af um 500 milljóna heildarkröfum. Auglýsti ThorSpring og Iceland Spring grimmt á Bandaríkjamarkaði en varð undir í samkeppni. Olgerðin keypti vélarnar og vörumerkin. nauðasamningar Vatnsfram- leiðslufyrirtækið Þórsbrunnur leit- ar nú nauðasamninga við lánar- drottna og helstu viðskiptamenn. Heildarskuldir eru um 500 milljón- ir króna og hafa kröfuhafar fengið tilboð um að fá ,, Z77. 12,5% greidd. Jon Diðrik Brynjar Níelsson Jónsson, fram- hrl., skipaður um- kvæmdastjóri sjónarmaður, sagði Olgerðarinnar, aðspurður að svo sagði félagið lágt hlutfall væri ekki með sjaldséð í nauða- áform um að samningum. Stór flytja út til hluti krafnanna Bandaríkj- kemur frá erlend- anna, enda um fyrirtækjum. markaðurinn Þórsbrunnur flutti þar erfiður. meðal annars út —— gosvatn til Banda- ríkjanna, Bret- lands, Singapúr og Hong Kong. Út- flutningur til Ástralíu og Japans var í bígerð. Brynjar segir að gangi kröfu- hafar að tilboðinu gætu á bilinu 60 til 70 milljónir komið til greiðslu. Áformað er að þeir sem eiga lægri kröfur en 100.000 krónur fái greitt að fullu. Þórsbrunnur lagði mikið undir við markaðssetningu í Bandarfkj- unum. Ljóst er að Vífilfell, Kaup- þing, Pétur Björnsson, fyrrum Víf- ilfellseigandi, Orkuveita Reykja- víkur, Nýsköpunarsjóður og Hag- kaupsfjölskyldan, helstu eigendur, tapa fjárfestingu sinni að mestu leyti. Fá teikn voru á lofti um að félag: ið væri á leið í þrot síðasta haust. í október vann félagið t.a.m. til femra verðlauna fyrir markaðs- setningu á ársfundi samtaka vatns- framleiðenda. Þá var haft eftir Þóri Kjartanssyni, fyrrum fram- kvæmdastjóra Þórsbrunns, í Morg- unblaðinu að félagið væri að ná vatnsrisanum Evian að útbreiðslu á vissum svæðum í Bandaríkjunum. BRYNJAR NÍELSSON Mjög lágt hlutfall af heildarskul- dum í boði fyrir kröfuhafa PÉTUR BJÖRNSSON Einn þeirra hluthafa sem sem tapar á Þórsbrunni. Nýr framkvæmdastjóri tók við skömmu síðar. Þórsbrunnur hætti reglulegri starfsemi í janúar og skömmu síð- ar keypti Ólgerðin Egill Skalla- grímsson vélar þess og vörumerk- in Iceland Spring og ThorSpring. Jón Diðrik Jónsson, fram- kvæmdastjóri Ölgerðarinnar, THORSPRING Fór illa á gríðarlegu markaðsátaki i Bandaríkjunum. ÖlgerðinEgill Skallagrímsson keypti vörumerkin Thor- Spring og lceland Spring en hyggur ekki á útflutning í það minnsta um sinn. sagði félagið ekki með áform um að flytja út til Bandaríkjanna, enda vatnsmarkaðurinn þar erfið- ur. Áhugi væri þó fyrir hendi ef samstarfsaðilar kæmu fram sem þekktu vel til slíks. Brynjar segir að nauðasamn- ingarnir séu forsenda viðskipt- anna við Ölgerðina. Gangi kröfu- hafar ekki að tilboðinu fái Þórs- brunnur aftur til sín vélarnar og fari þá að líkindum í hefðbundin gjaldþrotaskipti. Þess mun nú freistað að koma ýmsum óefnis- legum eignum í verð svo sem við- skiptavild. mbh@frettabladid.is Þjóðhagsstofnun: Spá stuttu samdráttarskeiði EFNAHAGSMÁL Ný spá Þjóðhags- stofnunar gerir ráð fyrir að yfir- standandi samdráttarskeið verði stutt og hagvöxtur taki við sér strax á næsta ári. Gert er ráð fyrir um 3% meðalhagvexti á ár- unum 2003-2006. „Þetta er töluvert minni vöxt- ur en í síðustu uppsveiflu, en hagvöxtur var að meðaltali um 4,5% frá 1995-2001,“ segir í spánni sem gefin var út í gær. Þjóðhagsstofnun spáir því að verðbólga á þessu ári verði 2,6% og að kaupmáttur eigi eftir að aukast um tæpt 1%. Gert er ráð fyrir að vöxtur innflutnings vöru og þjónustu verði heldur meiri en vöxtur útflutnings á tímabil- inu, eða tæplega 3,5% á ári á móti 3% vexti útflutnings. Engu að síður er gert ráð fyrir afgangi á viðskiptum með vöru og þjón- ustu allt tímabilið. „Jöfnuður þáttatekna er hins vegar meiri en sem nemur af- ganginum og því er gert ráð fyr- ir að viðskiptahalli verði að með- altali 0,5 til 1% af landsfram- leiðslu frá 2003-2006.“ Það er bati frá árunum 1998 til 2000 þegar hallinn nam að meðaltali 8% af landsframleiðslu. „Með minni viðskiptahalla nánast stöðvast skuldasöfnun erlendis," segir í spánni og búist er við að erlendar skuldir þjóðarbúsins lækki úr 104,5% af landsfram- leiðslu á þessu ári í 94% á árinu 2006. Þá er spáð 2 til 3 prósenta at- vinnuleysi á þessu ári. Gert er ráð fyrir að það dragi úr því at- vinnuleysi á næstu árum og það verði um 2% á spátímabilinu. ■ Atlantsál til Reyðarfjarðar: Erum reiðubúnir stóriðja „Ef svo færi að Norsk Hydro hætti við þátttöku eru okkar rússnesku samstarfsaðilar reiðu- búnir að fara inn í viðræður við ís- lenska aðila, sem hafa áhuga á að halda þessu áfram, ásamt iðnaðar- ráðuneytinu og Landsvirkjun," seg- ir Jón Hjaltalín Magnússon, stærsti íslenski eigandinn í Atlantsáli. Atl- antsál undirbýr að reisa álver á Norðurlandi. Hann hefur þó fulla trú á að Norsk Hydro standi við áætlanir varðandi byggingu álvers á Reyðarfirði. Ef af þessu yrði segir Jón að það myndi flýta framkvæmdum Atl- antsáls um eitt til tvö ár. Rússnesku álframleiðendurnir höfðu áður kannað lauslega aðkomu að bygg- ingu Reyðaráls og þekkja verkefn- ið. Þeim var hins vegar ekki boðið að koma inn í það á sínum tíma. Jón segir áform Atlantsáls tæknilega ekki ósvipuð því sem fyrirhugað er á Reyðarfirði. Þó yrði byggt upp í smærri áföngum. Það henti íslenskum aðstæðum betur. Vinna við byggingu álversins yrði jafnari og samhliða aukinni orku- öflun Landsvirkjunar. Ólíklegt væri að það þyrfti að fara aftur í umhverfismat vegna þessara breytinga. ■ Ilögreclufréttirí T ögreglan verst allra frétta af -Lirannsókn smyglmálsins sem kom upp í síðustu viku. Á föstu- daginn var 37 ára gamall maður úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald þegar 30 kg af hassi fundust í skipi Eimskipa sem var að koma frá Skandinav- íu. Maðurinn tengist ekki fyrir- tækinu á nokkurn hátt. Þriggja bíla árekstur varð á nýju brúnni við gatnamót Ný- býlavegar og Reykjanesbrautar klukkan níu í gærmorgun. Far- þegi og ökumaður einnar bifreið- arinnar voru fluttir með sjúkra- bifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Farþeginn kenndi eymsla í baki en ökumaðurinn meiddist í andliti. Bílarnir eru töluvert skemmdir og voru þeir fluttir með kranabíl af slysstað. Lettneskt frystiskip sigldi á höfnina á Seyðisfirði í gær. Nokkrar skemmdir urðu á bryggjunni og voru matsmenn frá tryggingarfélagi að meta þær í gær. Eldur kom upp í sorpgeymslu í fjölbýlishúsi við Hagamel 31 síðdegis í gær. Engan sakaði. Slökkviliðinu gekk greiðlega að slökkva eldinn en talið er að ein- hverjar reykskemmdir hafi orðið í stigagangi hússins. Að sögn slökkviliðs er ekki vitað um elds- upptök. | STUTT I Mikil sjósókn var um allt land í gær. Samkvæmt Tilkynn- ingaskyldunni voru 612 bátar og skip á sjó í hádeginu sem er mjög mikið miðað við árstíma. Mjög gott veður var á miðunum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.