Fréttablaðið - 20.03.2002, Side 6

Fréttablaðið - 20.03.2002, Side 6
6 FRÉTTABLAÐIÐ 20. rnars 2002 MIÐVIKUDAGUR SPURNING DAGSINS F-listi, frjálslyndra og óháðra: Grænar og mann vænar áherslur EFSTU SÆTI F-LISTANS Margrét K. Sverrisdóttir (2. sæti), Ólafur F. Magnússon (1. sæti) og Gísli Helgason(3. sæti) á kynningarfundi í gær. í öðrum sætum eru: Erna V. Ingólfsdóttir (4. sæti), Björn G. Jóns- son (5. sæti), Margrét Tómasdóttir (6. sæti) Þráinn Stefánsson (7. sæti) og Hrönn Sveins- dóttir (8. sæti). Verður byggt álver í Reyðarfirði? Ég held að það dragist að þeir hafi pening í þetta þeir i Norsk Hydro. En það kemur ör- ugglega á endanum, fyrir árið 2010 held ég. ívar Bjarnason, ellilífeyrisþegi kosningar F-listi frjálslyndra og óháðra var kynntur í gær. Ólafur F. Magnússon, læknir og borgar- fulltrúi, er í 1. sæti og Margrét K. Sverrisdóttir, kennari og fram- kvæmdastjóri Frjálslynda flokks- ins, í 2. sæti. „Segja má að við séum með grænar og mannvænar áherslur. Hér kemur að fólk úr ýmsum áttum sem sameinast um grundvallarmálefni,“ sagði Ólaf- ur. Meðal efstu manna eru fulltrú- ar öryrkja og eldri borgara, en Gísli Helgason, tónlistarmaður og formaður Blindrafélagsins, skip- ar 3. sæti listans og sjötug kona, Erna V. Ingólfsdóttir, hjúkrunar- fræðingur og blaðamaður, skipar 4. sætið. í 8. sæti listans er Hrönn Sveinsdóttir, dagskrárgerðar- kona, en hún hefur vakið nokkra athygli nýverið vegna heimildar- myndar sem hún gerði um fegurð- arsamkeppnina Ungfrú ísland.is. Heiðurssæti listans skipar Hall- dór Rafnar, lögfræðingur og fyrr- verandi formaður Blindrafélags- ins. Ólafur F. Magnússon, efsti maður á lista, vakti athygli á að í fyrsta sinn ætti maður af asískum uppruna sæti á framboðslista í borginni. Songmuang Wongwan, matreiðslumaður, er í 17. sæti á listanum. Ólafur F. Magnússon sagði að framboðið legði áherslu á málefni en ekki þann leiðtogaslag sem hin framboðin legðu upp með. ■ MILUÓNIR MANNA HAFA DÁIÐ ÚR ALNÆMI TVO ÞEIRRA ROGMAMMA hun sm\ SKULI VER Söfnunarsíminn er 907 2002 Afkoma Járnblendifélagsins: 210 milljóna tap uppgjör íslenska járnblendifélag- ið tapaði 210 milljónum króna á síðasta ári. Erlendar skuldir fé- lagsins hækkuðu um 600 milljónir króna á árinu sökum óhagstæðrar gengisþi’óunar. Aðrar markaðsað- stæður voru einnig óhagstæðar. Samanlagt tap síðustu tveggja ára er 825 milljónir króna. Þrengingar í stáliðnaði á heimsvísu á árinu eru sagðar hafa komið niður á félaginu. í Bandaríkjunum dróst stálfram- leiðsla t.a.m. saman um 11%. Þá varð mikil aukning framboðs á ódýru kísiljárni frá nokkrum fyrrum Sovétlýðveldum. Til að rétta efnahag félagsins við tóku hluthafar þátt í 650 milljóna króna hlutafjáraukningu í des- ember sl. í tilkynningu félagins til Verðbréfaþings er greint frá því að lítil vissa sé um framtíðar- horfur. ■ STUTT Ibúar í fjölbýlishúsi við Gull- smára heyrðu ýlfur í reyk- skynjara úr íbúð nágranna sinna og gerðu slökkviliði viðvart klukkan 9.50 í gærmorgun. íbúð- in var mannlaus. Pottur hafði gleymst á eldavél. Skemmdir voru litlar. 1 LEIÐRÉTTING | Kári Þorgrímsson, bóndi í Garði við Mývatn, hefur tví- vegis verið rangfeðraður í Fréttablaðinu undanfarna daga. Sem sagt: Kári er Þorgrímsson, ekki Steingrímsson. Cheney og Sharon leggja hart að Arafat Arafat fær ferðafrelsi ef honum tekst að halda árásum Palestínumanna í skeQum. Samt óvíst hvort hann fái að snúa aftur. Israelsher bíður enn í viðbragðsstöðu umhverfis afmörkuð yfirráðasvæði Palestínumanna. jerúsalem Palestínumenn ætla að leggja fram í dag hugmyndir sínar um framkvæmd vopnahlés. ísra- elsmenn lögðu fram sína áætlun á mánudaginn og sögðust þurfa um það bil mánuð til að koma sínum hluta samkomulags um vopnahlé í framkvæmd. Anthony Zinni, sendi- fulltrúi Bandarjkjanna, leggur nú hart að bæði ísraelsmönnum og Palestínumönnum að komast að samkomulagi um vopnahlé svo hægt verði að setjast að samninga- borði á ný. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, hefur lofað því að ef Jasser Arafat tekst að halda árásum Palestínumanna á ísraelsmenn í skefjum fái hann að ferðast út fyr- ir herteknu svæðin. Hann geti þá meðal annars farið á leiðtogafund Arababandalagsins í Beirút í næstu viku þar sem friðartilboð frá Sádi- Arabíu verður til umræðu. Hins vegar gaf Sharon í skyn að Arafat fengi ekki að snúa aftur til ísraels ef hann gætir ekki orða sinna í Beirút. Palestínumenn gagnrýndu Dick Cheney, varaforseta Bandaríkj- anna, mjög fyrir að vilja ekki hitta Jasser Arafat í gær. Cheney sagðist þó reiðubúinn að gera það um leið og vopnahlé Palestínumanna og ísraelsmanna yrði að veruleika. Hann sagði að Arafat yrði að gera allt sem í hans valdi stæði til að í GÆR BRUTUST ENN ÚT ÁTÖK í þorpinu Beit Omar á Vesturbakkanum brutust ( gær út átök milli Palestínumanna og ísraelskra hermanna. Þessi kona hættir sér yfir götuna meðan fsraelskur hermaður leitar skjóls á bak við vegg. koma í veg fyrir árásir á ísraels- menn. Næsta vika muni ráða úrslit- um um framhaldið. Cheney sagði að Bandaríkin myndu áfram „taka mjög virkan þátt“ í tilraunum til þess að halda uppi vopnahléi milli Palestínu- manna og ísraelsmanna. Anthony Zinni, sendifulltrúi Bandaríkjanna, hefur undanfarna daga lagt hart að þeim til að koma á vopnahléi. Þótt ísraelskt herlið sé farið frá þeim svæðum sem Palestínumenn eiga að hafa óskoruð yfirráð yfir samkvæmt fyrri samningum við ísrael, þá er langt frá því að ísra- elski herinn sé farinn frá öllum herteknu svæðunum. Palestínu- menn hafa aðeins yfirráð yfir nokkrum afmörkuðum svæðum á Vesturbakkanum og Gazaströnd. ísraelski herinn er enn í viðbragðs- stöðu umhverfis þessi svæði auk þess sem Palestínumönnum er enn bannað að aka milli yfirráðasvæða sinna eftir þjóðvegunum á Vestur- bakkanum. Cheney lauk í gær ferðalagi sínu um Miðausturlönd og hélt til Tyrk- lands, þar sem hann reyndi eins og í öðrum áfangastöðum ferðarinnar að afla Bandaríkjunum stuðnings við frekari hernað gegn hryðju- verkum, þar á meðal hugsanlegra hernaðaraðgerða gegn írak. ■ Ferðaskrifstofan Sól hættir: Auglýst eftir kröfum til öryggis ferðaþjónusta Samgönguráðuneytið hefur auglýst eftir kröfum í trygg- ingafé ferðaskrifstofunnar Sólar. Ferðaskrifstofan er að hætta sjálf- stæðum rekstri og starfar nú undir merkjum Terra nova - Sól. „Þetta er gert foi’msins vegna því ferðaskrifstofurnar sameinuð- ust,“ segir Anton Antons- son, fram- kvæmdastjóri Terra nova - Sólar. Þá ber ráðuneytinu skylda til að auglýsa eftir kröfum í tryggingafé fyrirtækisins ef einhverjar slíkar eru. „Þetta er gert öryggisins vegna,“ segir Anton. Tryggingaféð stendur meðal annars undir ferðakostnaði einstaklinga sem eru á vegum Sólar í útlöndum. Antoni er ekki kunnugt um hvort einhver geri kröfu í tryggingaféð. „Það hefur enginn gert neina kröfu ennþá en þær fara til samgöngu- ráðuneytisins.“ Hann segir að hér eftir muni tryggingafé Terra nova standa undir skuldbindingum ferða- skrifstofunnar gagnvart ráðuneyt- inu. Fyrirtækin starfi undir sama hatti og þetta hafi verið liður í því sameiningarferli. ■ ANTON ANTONSSON Þetta er formleg leið. Aukið atvinnuleysi: Uppsagnir hluti af auknu atvinnuleysi GEGN ALNÆMI HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR VINNUMARKAÐUR Samdráttur í bygg- ingariðnaði, verslun og þjónustu og í ferðatengdum at- vinnugreinum er ein helsta ástæðan fyrir því að skráð atvinnuleysi var mun meira í sl. mán- uði en á sama tíma í fyrra. Karl Sigurðsson, forstöðu- maður vinnumálasviðs hjá Vinnu- málastofnun, segir að hluta til sé þarna einnig um að ræða afleiðing- ar af þeim uppsögnum sem mörg fyrirtæki gripu til á seinni hluta síð- astliðins árs í framhaldi af minnk- andi þenslu og áhrifa frá hryðju- verkunum í Bandaríkjunum. Þetta fólk hefur síðan verið að koma inn á atvinnuleysisskrá í janúar og í febr- úar þegar uppsagnirnar hafa verið að koma til framkvæmda. Hann gerir ráð fyrir að atvinnuleysið auk- ist kannski eitthvað á milli febrúar BYGGINGARIÐNAÐUR Samdráttur eftir mikla þenslu er leitt hefur til aukins atvinnuleysis I ár. og mars og geti þá jafnvel aukist úr 2,6% í 2,8%. í síð- asta mánuði voru að meðaltali um 3.556 manns á atvinnu- leysisskrá á landinu öllu. Athygli vekur að undanfarinn áratug hefur atvinnuleysið minnkað að meðaltali um 10,8% á milli janúar og febrúar nema í ár. Þá jókst það um 7,6%. Þá hefur at- vinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu aukist umtalsvert, eða um allt að 114%. Þessi þróun er einnig athygl- isverð í samanburði við skráð at- vinnuleysi í febrúar í fyrra miðað við sama tíma í ár. Aukning nemur alls um 67,4%. Þá hefur atvinnu- leysi aukist umtalsvert, eða um rúm 28% hjá þeim sem eru 24 ára og yngri. Fólk á þessum aldri er yfir- leitt með litla starfsreynslu og geld- ur fyrir það á samdráttartímum. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.