Fréttablaðið - 20.03.2002, Qupperneq 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
20. mars 2002 MIÐVIKUDACUR
LÖGREGLUFRÉTTIRl
Tvö slys áttu sér stað í Bláfjöll-
um í fyrradag. Um hálffjög-
urleytið slasaðist kona á skíðum
þegar hún skíðaði í harðfenni og
lenti á skíðaskála. Var hún flutt á
slysadeild. 16 ára stúlka féll á
snjóbretti rétt fyrir klukkan hálf-
átta. Að sögn lögreglunnar í
Kópavogi var hún flutt á slysa-
deild með höfuðmeiðsl.
—*—
A' tök áttu sér stað í heimahúsi í
Reykjavík um þrjúleytið í
fyrrinótt á milli tveggja kvenna.
Kona sem var gestkomandi lamdi
þá húsráðandann í höfuðið með
hamri. Meiðsl voru minniháttar
og neitaði húsráðandinn allri að-
hlynningu. Að sögn lögreglunnar
gisti konan fangageymslur lög-
reglunnar um nóttina.
Áhrif hlýnunar á Suðurskautinu:
Risastór íshella
molnaði hratt
london. ap Stór íshella við Suður-
heimskautið hefur undanfarnar
vikur sundrast með ótrúlegum
hraða. íshellan, sem kallast
Larsen B. íshellan, var 200 metra
þykk og náði yfir 3.250 ferkíló-
metra stórt svæði. Hún er nú
ekki nema svipur hjá sjón, brotin
upp í smærri ísjaka og jaka-
hröngl.
Hitastig þarna hefur að meðal-
tali hækkað meira en annars
staðar á jörðinni undanfarna ára-
tugi. Fyrir þremur árum spáðu
breskir heimskautafræðingar því
að íshellur við Suðurskautið
myndu minnka. Það sem kom
þeim á óvart að þessu sinni var
hve hratt íshellan brast.
„Ástæða þess að við ættum að
veita þessu athygli er sú að við
sjáum hér mjög hröð og djúptæk
viðbrögð íshellunnar við hlýnun
sem hefur ekki átt sér stað nema
í fáeina áratugi," sagði Ted Scam-
bos, bandarískur vísindamaður
LARSEN B. (SHELLAN ER EKKI NEMA SVIPUR HJÁ SJÓN
Tvö hundruð metra þykk íshella sem náði yfir 3.250 ferkílómetra svæði hefur brotnað í
tætlur á fáeinum vikum.
sem tók myndir af íshellunni í um það sem á eftir að gerast ef
byrjun mars. „Og við getum not- hlýna fer víðar á Suðurskautinu
að þetta sem eins konar leiðarvísi vegna loftlagsbreytinga." ■
Norðmaður reyndi að
myrða árs uamal barn
sitt:
Tók
dauðastríð-
ið upp á
myndband
harmleikur Rúmlega þrítugur
Norðmaður hefur verið ákærður
fyrir að hafa að minnsta kosti sex
sinnum á síðasta ári reynt að
drepa dóttur sína, sem er á öðru
ári. Maðurinn er talinn hafa
blandað hættulegum lyfjum í
pela dótturinnar eða út í annan
mat.
í eitt skiptið tók hann upp á
myndband myndir af dóttur sinni
eftir að hann hafði byrlað henni
ólyfjan. Dóttirin var í kram-
pakasti meðan móðirin reyndi í
örvæntingu að vekja hana til
meðvitundar.
Frá þessu var sagt á vefútgáfu
norska dagblaðsins Verdens
Gang í gær. Blaðamenn Verdens
Gang segjast hafa séð mynd-
bandið, sem er átta mínútur að
lengd. Faðirinn segist hafa tekið
myndirnar til þess að sýna lækn-
um líðan dóttur sinnar.
Við húsleit heima hjá honum
fundust margs konar lyf, sem
læknar hafa gefið út lyfseðil fyr-
ir. Þar á meðal eru róandi lyf,
svefnlyf og verkjastillandi lyf.
Dóttirin býr nú hjá móður
sinni. Ekki er talið að hún beri
varanlegan skaða af þessum
hrakningum. ■
Fjórföld laun öryrkja
fyrir hjáverkin
Steingrímur J. Sigfússon í utandagskrárumræðum um launahækkanir
stjórnar Landssímans á Alþingi í gær. Samgönguráðherra segir heildar-
greiðslur lækka vegna afnáms aukagreiðslna.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Steingrímur benti á að laun stjórnarformanns Símans í dag næmu um fjórföldum þeim
launum sem einstæðum öryrkjum væri gert að lifa á.
alþingi Mikil hækkun launa
stjórnarmanna Landssímans var
harðlega gagnrýnd á Alþingi í
gær. Jón Bjarnason, þingmaður
Vinstri grænna, kallaði eftir skýr-
um svörum um hvort búast mætti
við ámóta launahækkunum í öðr-
um nefndum og ráðum á vegum
ríkisins. „Það kom þjóðinni í opna
skjöldu þegar samgönguráðherra
tók ákvörðun um að laun stjórnar-
manna skyldu tvöfölduð," sagði
hann. Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna benti á
að öryrkjum og öldruðum væri
gert að draga fram lífið á 75 til 80
þúsund krónum á mánuði. „Fjór-
föld slík laun fær stjórnarformað-
urinn fyrir að gera þetta viðvik í
hjáverkum," sagði hann.
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, sagði tímabært að brey-
ta því viðhorfi að gera lítið úr setu
í stjórnum og ráðum. Hann sagði
breytingarnar hjá Símanum í
samræmi við verkefnin sem við
blöstu. Jafnframt taldi Sturla að
heildargreiðsla til stjórnarmanna
yrði lægri en verið hefur þegar
upp væri staðið því ekki kæmu til
aukagreiðslur. Hann sagði að laun
í öðrum nefndum og ráðum
myndu ekki hækka. „Verkefni
stjórnar Símans eru óvenjuleg og
um þessar mundir ekki sambæri-
leg við verkefni annarra stjórna
eða nefnda á vegum ráðuneytis-
ins,“ sagði Sturla.
Pétur H. Blöndal, áréttaði þá
skoðun sína að til að fá sem hæf-
ast fólk til stjórnarsetu þyrfti að
greiða góð laun. Einar Már Sig-
urðarson, þingmaður Samfylking-
arinnar, benti hins vegar á að
fyrri stjórnarformaður hafi alls
verið með um 600 þúsund krónur
á mánuði og spurði hvort rökin
um hæfasta fólkið fyrir mesta
peninga hafi þar ekki átt við. ■
Sænski seðlabankinn:
Hækkar
fyrstur vexti í
Evrópu
HAGKERFi Sænski seðrabankinn var
fyrstur seðlabanka í Vestur-Evr-
ópu til þess að hækka vexti á
þessu ári en vaxtaákvörðunar-
fundur bankans var haldinn í
fyrradag. Vextir voru hækkaðir
um 25 punkta, úr 3,75 prósent í 4
prósent. Verðbólga er nú umfram
2 prósent markmið bankans og
því eitt helsta áhyggjuefnið hjá
frændum vorum segir í morgun-
punktum Kaupþings.
í fréttum Landsbréfa segir að
þetta gefi vísbendingu um að
seðlabankar hækki stýrivexti sína
þegar efnahagslegur vöxtur hefj-
ist á nýjan leik. Það gera þeir til
að koma í veg fyrir ofþenslu og ná
verðbólgumarkmiðum sínum. ■
—♦— '
Verðlag hækkar í EES:
Lækkar
á Islandi
verðbólga í gær birtist samræmd
vísitala neysluverðs í EES ríkjun-
um fyrir febrúar og hækkaði hún
um 0,2 prósent.
Á íslandi lækkaði vísitalan
hins vegar um 0,2 prósent.Ý Þrátt
fyrir verðhjöðnun í febrúar hér á
landi er verðbólga á íslandi engu
að síður 9,5 prósent síðustu tólf
mánuði. Það er mesta verðbólga í
EES ríkjunum en næst hæst er
hún á írlandi 4,9 prósent. Lægst
var verðbólgan síðustu tólf mán-
uði í Bretlandi 1,6 prósent. ■
NIDUR FYRIR
RAUÐA STRIKH)
Við leggjum okkar af mörkum til að halda verðbóigunni
niðri og veitum 4% afslátt af völdum bílum.
DIANE PRETTY OG EIGINMAÐUR HENNAR, BRIAN
Hún fór með mál sitt til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasborg í gær.
Renault Laguna II
fólksbíll
Renault Scénic
fólksbíll
23449
Renault Mégane Beriine
fólksbíll
Bílalán, afborgun á mán.
Rekstrarleiga: 39.299
Verðáður 2.090.000
Verð nú 2.006.000
23.008
Bílalán.afborgunámán.
Rekstrarleiga: 38.627
18.332
Bílalán.aftiorgunámán.
Rekstrarleiga: 31.731
Verðáður 1.630.000
Verðnu 1.565.000
Verðáður 2.050.000
Verðnú 1.968.000
Gfjótháli 1 . Sfmi 575 1200
Söludeild 575 1220.www.bl.ii
Rekstrarteigan er til 36 mán., m.v. við 20.000 km á ári og erienda myntkörtu. Rekstrarieiga er aðeins i boði til rekstraraðiía (fyrirtæíga).
Biialán miðast við 30% útborgun og 84 mán. samning. Allar tölur eru með vsk. Tifboðið gildir út mars
Konan sem vill fá aðstoð eiginmanns síns til að deyja:
Fór með mál sitt fyrir
Mannréttindadómstólinn
STRASBORG. ap Bresk kona, sem vill
að eiginmaður hennar megi veita
henni líknardauða, fór í gær með
mál sitt til Mannréttindadómstóls
Evrópu í Strasborg.
Diane Pretty er 43 ára. Hún er
haldin ólæknandi sjúkdómi og
lömuð upp að hálsi. Hún vill að
eiginmaður sinn, Brian, geti
óhræddur hjálpað henni til að
deyja án þess að hann eigi yfir
höfði sér málsókn.
Breskir dómstólar hafa hafnað
kröfu hennar. Þeir telja sig ekki
hafa lagalega heimild til að veita
manni hennar grið af neinu tagi,
ef hann sviptir hana lífi.
Hún kom með sjúkrabifreið til
Mannréttindadómstólsir.s í Stras-
borg í gær. Lögfræðingar hennar
héldu því fi’am í málflutningi sín-
um að afstaða breskra dómstóla
og stjórnvalda feli í sér mannrétt-
indabrot, vegna þess að hún sé
þvinguð til að sæta „niðurlægj-
andi meðferð eða refsingu".
Talið er að Mannréttindadóm-
stóllin muni innan fárra vikna
taka afstöðu til þess, hvort hann
taki málið fyrir. ■