Fréttablaðið - 20.03.2002, Síða 9

Fréttablaðið - 20.03.2002, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 20. mars 2002 FRÉTTABLAÐIÐ SKEIFUNNNI 6 • 108 REYKJAVÍK Seðlabankinn: Fylgist rækilega með evrunni EFNAHAGSMÁL Birgir Isleifur Gunn- arsson Seðlabankastjóri segir að bankinn fylgist rækilega með þró- un evrunnar og áhrifum hennar á íslenska hagkerfið. Hann býst við að fljótlega verði hafist handa við að endurskoða skýrslu um evruna sem bankinn gaf út á sínum tíma. Það sé hins vegar ekki hægt að segja neitt til um það hvenær því verki lýkur. Hann segist ekki vilja tjá sig um það hvort upptaka á evru hér á landi sé leið til að lækka raunvexti. Það er vegna þess að „þetta er svo flókið mál“. Hann segir að bankinn skoði alla þá þætti hagkerfisins sem evran getur haft áhrif á. Birgir ísleifur segir að ef endurskoðun á þessari fyrri skýrslu gefi tilefni til ein- hverra nýrra ályktana þá verði það gefið út. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sagði á Iðnþingi á dögun- um að flest benti til þess að þau aðildarríki ESB sem standa utan evrunnar verði hluti hennar innan fárra ára. Hann sagði að við þær aðstæður færu tveir þriðju hlutar útflutnings íslands til evrusvæð- isins. Af þeim sökum væri ljóst að evran muni leika stórt hlutverk í íslensku efnahagslífi. ■ BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON Segist ekki vilja tjá sig um það hvort upp- taka á evru sé leið til að lækka raunvexti. Hæstiréttur um málsókn gegn Rekstrarfélagi Kringlunnar: Héraðsdómur fjalli um rúllustigana dómstólar Hæstiréttur leggur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að taka efnislega afstöðu til kröfu níu af eigendum Kringlunnar um að tveir rúllustigar, sem Rekstrar- félag Kringlunnar lét fjarlægja í fyrra, verði komið fyrir að nýju. Héraðsdómur hafði áður vísað kröfunni frá dómi. Aðilarnir níu eiga samtals tæp 8% í Kringlunni. Þeir krefjast þess m.a. að ákvörðun Reykjavík- urborgar um að veita leyfi fyrir framkvæmdinni verði felld úr gildi. Einnig að rekstrarfélaginu verði gert að koma rúllustigunum fyrir aftur innan 30 daga eftir dómsuppkvaðningu. Þá er þess krafist að Reykjavíkurborg hlut- ist til um að rúllustigarnir verði settir upp á ný. Héraðsdómur hafði talið að kröfunum ætti að beina að hverjum eiganda hússins fyrir sig en ekki aðeins rekstrar- félaginu. Hæstiréttur segir hins vegar að rekstrarfélagið eitt hafi UR KRINGLUNNI Hér voru áður tveir rúllustigar, annar gekk upp en hinn niður. Nokkrir eigendur Kringlunn- ar krefjast þess að þeim verði komið fyrir aftur. tekið ákvörðunina og eigi því að svara til saka í málinu. Einnig taldi héraðsdómur að vísa bæri kröfum á Reykjavíkur- borg frá dómi. Hæstiréttur er á öndverðri skoðun. Hann segir að- ilana níu geta haft lögvarða hags- muni af því að fá borgina skyld- aða til að ljá atbeina sinn til að koma stigunum á sinn stað á ný. ■ verö frá A bretti,A bindingar, 3 manna kúlutjald verð frá crrnn /\ k ^ JL jL upplestrarkeppnin Úrslit í Hafnarfirdi ÍLLL ' m Hafnarfitði verður hahlin i day, miúviku (htíjínn 20. mars, kl.l/ U\ t Uafnarbory AHír eru vefkomnir Við athöfnina lesa nemendur sögur og Ijóð að viðstöddum forseta íslands, bæjarstjóranum í Hafnarfirði og fleiri góðum gestum. Dómnefnd velur þrjá bestu upplesarana og veitt verða verðlaun en það er Sparisjóður Hafnarfjarðar sem gefur aðalverðlaun keppninnar í Hafnarfirði og Edda miðlun og útgáfa veitir bókaverðlaun. Eiimig verða tilkynnt úrslit í smásagnasamkeppni 8.-10. bekkja og veittar viðurkenningar. Veitingar í boði Mjólkursamsölunnar. HAFNARFJARÐARBÆR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.