Fréttablaðið - 20.03.2002, Síða 12

Fréttablaðið - 20.03.2002, Síða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 20. mars 2002 MIÐVIKUDACUR búnaður Úrslitakeppnin: KR burstaði Hamar körfubolti KR gjörsigraði Hamar 99-56 í oddaleik liðanna í átta liða úrslitum Epson-deildarinnar í gær. KR mætir Njarðvík í undan- úrslitum ef Njarðvík sigrar Breiðablik í kvöld, annars mætir KR Grindavík. í Keflavík tóku heimamenn á móti Haukum. Keflvíkingar höfðu betur og sigruðu 94-84 og mæta Breiðablik eða Grindavík í undan- úrslitum. ■ MALARINNim Bæjarlind 2 • Kópavogi • Slmi: 581 3S00 T vö laus sæti Bein markaðssókn óskar eftir að ráða hörkuduglegt starfsfólk í sölu og úthringiverkefni á daginn. Góð verkefni og góðir tekju- möguleikar. Hríngið í síma 5908000 eða sendið tölvupóst á fritz@bm.is til að fá viðtal. www.bm.is Bein markaðssókn er leiðandi upplýsingafyrirtæki sem veitir sérhæfða þjónustu í markaðs-, sölu og upplýsingamálum. Markmið fyrirtækisins er að aðstoða viðskip- tavini sína við að ná settu marki í upplýsinga- og markaðsstarfi. Meistardeild Evrópu: Liverpool komið áfram fótbolti Spennan var öll í B-riðli í gær þar sem Manchester United og Bayern Munchen voru þegar komin áfram úr A-riðli. Þau unnu engu að síður leiki sína í gær og enduðu bæði með 12 stig og enga tapaða leiki. Öll lið- in í B-riðli áttu hinsvegar mögu- leika fyrir leikina. Liverpool komst áfram í fjórðungsúrslitin með góðum sigri á AS Roma. Liðið var í neðsta sæti riðilsins fyrir leik- ina og hefði sigur með einu marki ekki nægt þeim. Jari Lit- manen kom Liverpool yfir með marki úr víti í upphafi leiks og SIGURSKALLI Heskey gerði annað mark Liverpool. Ger- ard Houllier knattspyrnustjóri liðsins var mættur á bekkinn I fyrsta sinn frá veikind- unum í haust. Almennar Bíla- viðgerðir Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík Sími: 577 4500 velaland@velaland. is í kvöld fara fram Qórir leikir í Meistaradeild Evrópu. í D-riðli berjast Arsenal og Bayer Leverkusen um laust sæti í átta liða úrslitum. Panathinaikos og Porto keppa um laust sæti í C-riðli. fÓtbolti Deportivo de La Coruna er búið að tryggja sig í átta liða úrslit. Arsenal og Bayer Lever- kusen eru jöfn að stigum og á höttunum eftir hinu sæti D-riðils. í kvöld fer Arsenal til Juventus. Leverkusen sækir Deportivo heim í Coruna. Real Madrid er öruggt í fyrsta sæti C-riðils. í kvöld tekur gríska liðið Panathinaikos á móti Madrid. Grikkirnir eiga möguleika á því að komast áfram. Sama er að segja um FC Porto, sem er í þriðja sæti riðilsins. Liðið fer til Sparta Prag, sem er dottið úr keppni. Arsenal er á flugi og á mögu- leika á meistaratitli í ensku deild- inni og enska bikarnum. Knatt- spyrnustjórinn Arsene Wenger þakkar markafjöldanum og styrk framherjanna Dennis Bergkamp, Thierry Henry og Robert Pires. „Við erum búnir að skora í 31 leik í röð. Það eru merki um gæði. Nú er mars og við erum enn inni í öll- um keppnum. Ég sé enga ástæðu fyrir þvi að við vinnum þær ekki,“ segir Wenger. Henry getur spilað með á móti Juventus í kvöld. Hann er í leikbanni á Englandi. Bergkamp situr heima í London. Hann hreyfir sig ekki vegna flug- hræðslu. Juventus á enga mögu- leika á að komast áfram. Liðið er aðeins einu stigi á eftir AS Roma og Inter Milan í ítölsku deildinni. okkur áfram. Ég er handviss um að það tekst,“ segir markvörður Leverkusen, Joerg Butt. Auk þess að verja mark liðsins tekur hann gjarnan vítaspyrnur. Það gæti reynst Þjóðverjunum í Lever- kusen vel að Deportivo er komið áfram og þarf aðeins eitt stig til að tryggja fyrsta sætið í D-riðli. Margir leikmenn fá hvíld í kvöld, þ.á m. framherjinn Diego Tristán. Hann skoraði þrjú mörk á móti Osasuna á laugardaginn. Real Madrid hvílir væntanlega einnig leikmenn á móti Pan- athinaikos. Vicente de Bosque þjálfari gerði það í 3-0-sigri á móti Sparta Prag í síðustu viku. Real er í fyrsta sæti spænsku deildarinn- ar. Grikkirnir þurfa á stigi að halda til að komast áfram. Annars þarf Sparta Prag að vinna eða gera jafntefli á móti Porto. Þjálf- ari Grikkjanna segir það ekki skipta öllu að stjörnur Real verði hvíldar. „Real er Real, sama hvérjir spila. Því má ekki gleyma,“ segir hann. I Portúgal er Brasilíumaðurinn Deco kominn aftur í lið Porto eft- ir meiðsli. Markvörðurinn Vitor Baia er frá og Carlos Secretario í banni eftir leikinn á móti Pan- athinaikos í síðustu viku. Sparta spilar án framherjans Libor Sion- ko. Hann braut tönn og fékk heila- hristing í tékkóslavnesku deild- inni á sunnudaginn. ■ THIERRY HENRY í leikbanni Í Englandi. Má spila utan lands- ins. Verður að pllum líkindúm með í kvöld. Sterkustu leikmennirnir verða ef- laust hvíldir. „Það er okkur sjálf- um að kenna að við komumst ekki áfram. En við spilum í kvöld og vöndum okkur við það, þó leikur- inn sé þýðingarlaus," segir Marcello Lippi, þjálfari Juventus. Bayer Leverkusen verður að vinna Deportivo til að komast fram fyrir Arsenal og áfram í átta liða úrslitin. „Það er ekkert vit í öðru. Það er það eina sem kemur JOHANN MUEHLEGG Margoft hefur komið fram á lyfjaprófum í vetur að hann notar lyf til að auka getu sína. Spænski Þjóðverjinn: Undir smásjá í allan vetur skíði Skíðagöngumaðurinn Johann Muehleg, sem var sviptur gull- verðlaunum á vetrarólympíuleik- unum eftir að falla á lyfjaprófi, er búinn að vera undir smásjá hjá World Anti-Doping Agency, sem sér um lyfjapróf í ýmsum keppn- um, í allan vetur. Oft hefur komið fram á prófum að hann notaði lyf til að auka frammistöðu sína. Sömu sögu er að segja um tvær rússneskar skíðagöngukonur, sem féllu einnig á lyfjaprófi á leikun- um, Larissa Lazutina og Olgu Danilova. Muehlegg, sem er þýskur en keppir fyrir hönd Spánar, missti gullverðlaun fyrir 50 km göngu. Hann fékk að halda tveimur verð- launum, sem hann vann áður. Sví- inn Bengt Saltin hjá WADA segir það ekki hafa verið erfitt að góma Muehlegg. „Við erum búnir að taka blóðprufur frá fjölda skíða- manna í kringum heimsbikar- keppnir £ vetur. Það voru greini- leg merki um lyf í blóði hans og Rússanna tveggja. Við gátum meira að segja séð að hann hætti að taka lyfin í lok janúar," sagði Saltin. Öll þrjú notuðu lyf sem eykur fjölda súrefnisríkra rauðra blóðfruma. ■ 1ÍP1ÓTTIR l' PAC| 19.00 Sýn Leiðin á HM (Danmörk og Senegal). 19.00 Krull Lokaumferð íslandsmótsins í krulli í Skautahöllinni á Akureyri. 19.30 Sýn Meistaradeild Evrópu (Juventus - Arsenal). 20.00 Körfubolti Njarðvík og Breiðablik mætast i oddaleik um sæti í fjögurra liða úrslitum Epson- deildarinnar í Njarðvík. 20.00 Körfubolti KR og Keflavik mætast i úrslitakeppni fyrstu deildar kvenna í KR-húsinu. 21.40 Sýn Meistaradeild Evrópu (Deportivo - Leverkusen) 22.15 RÚV Handboltakvöld 23.30 Sýn Heklusport A RIPILL__________ B RIÐILL Úrslit Úrslit BOAVISTA - MAN.UTD. 0-3 LIVERPOOL - ROMA 2-0 BAYERN M. - NANTES 2-1 GALATAS. - BARCELONA 0-1 LIÐ L STIG LIÐ L STIG Man. United 6 12 Barcelona 6 9 Bayem 6 12 Liverpool 6 . 7 Boavista 6 5 Roma 6 7 Nantes 6 2 Gaiatasaray 6 5 Emile Heskey kom liðinu áfram með skallamarki um miðjan síð- ari hálfleik. Þá tryggði Barcelona sig áfram með sigri gegn Galatasaray í Tyrklandi . Luis Enrique gerði eina mark leiksins. ■ VELALAIMD VÉLASALA • TURBÍWUR VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR Mim Gonguskiði og búnað Snjobretti og bunaður Kulda- og: fyri g snjobretta ' lí ' s>' v'i NANOQ+ - lífiö er áskonin!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.