Fréttablaðið - 20.03.2002, Blaðsíða 16
Á HVAÐA TÍMUM LIFUM VIÐ
Meiri tækifæri en
nokkru sinni
Við lifum á tímum breytinga og framþróun-
ar. Þar sem tækifæri einstaklinganna eru að
öllum líkindum fleiri, en þau hafa nokkurn
tímann verið áður
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
m Stóra sviðið ki 20.00
► MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI - Marie Jones
Fim. 21/3 uppselt, lau. 13/4 nokkur sæti laus, lau. 20/4 örfá sæti laus.
► AWNA KARENINA - Lev Tolstoj
10. sýn. fös. 22/3 örfá sæti laus, 11. sýn. lau. 6/4 nokkur sæti laus,
12. sýn. fös. 12/4.
► SYNGJANDI í RIGNINGUNNI
Lau. 23/3 ki. 15:00 örfá sæti laus og kl. 20:00 uppselt.
70. sýning. Allra síðustu sýningar.
JÓN ODDUR OG JÓN BJARNI - Guðrún Helgadóttir
Sun. 24/3 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, sun 7/4 kl. 14:00 uppselt og
kl. 17:00 örfá sæti laus, lau. 13/4 kl. 13:00 uppselt og kl. 16:00
örfá sæti laus, sun. 14/4 kl. 14:00 uppselt, lau. 20/4 kl. 13:00 örfá sæti
laus og kl. 16:00 örfá sæti laus, sun. 21/4 kl. 14:00 uppselt, sun. 28/4
kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 17:00 nokkur sæti laus.
■ Litla sviðið kl 20.00
► HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? - Edward Albee
Aukasýningar fim. 21/3 uppselt, fös. 22/3. uppselt,
lau. 6/4 nokkur sæti laus, fös. 12/4.
Ekki er hægt að hleypa inn f salinn sftir að sýning er hafin!
Valgeir Sigurðsson, sjúkraþjálfari
Mhasölusimi: 551 1200 Netfang: midasala@leikhusid.ls Veffang: www.leikhusid.is
20. mars 2002 MIÐVIKUDAGUR
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR
Sveitina skipa menn úr ýmsum áttum og erfitt er að koma þeim saman á tónleika.
Kaffileikhúsið:
Stórsveit Reykjavíkur
tónlist Stórsveit Reykjavíkur efnir
til tónleika í Kaffileikhúsinu í kvöld
kl. 21.00. Sú hugmynd hefur verið á
lofti um hríð að koma á reglulegum
„klúbbtónleikum“ stórsveitarinn-
ari. Markmiðið er að ná mannskapn-
um saman undir óformlegri kring-
umstæðum en á hefðbundnum tón-
leikum og spila tónlist sem meðlim-
ir þekkja vel og geta flutt með með
lágmarks undirbúningi og fáum æf-
ingum. Að þessu sinni verður flutt
tónlist eftir ýmsa af stórsveitatón-
smiðum sögunnar. ■
INGA HULD HÁKONARDÓTTIR
er sagnfræðingur sem undanfarin ár hefur
einkum fengist við að draga fram sögu
kvenna og kristni.
Félag íslenskra fræða:
Helgar
meyjar og ver-
aldlegar frúr
fyrirlestur Félag íslenskra fræða
stendur fyrir rannsóknakvöldi í
Sögufélagshúsinu í Fischersundi í
kvöld kl. 20.30. Inga Huld Hákon-
ardóttir mun fjalla um konur á
Hólastað og í Skagafjarðarhéraði
á miðöldum, jafnt helgar meyjar
sem veraldlegar frúr, og segja frá
ýmsum munum og textum sem
þeim tengjast. í kynningu hennar
segir meðal annars: „Ef marka má
biskupasögur, einkum þeirra Jóns
helga og Guömundar góða, virðist
sem konur og skriftlærðir menn
hafi haft nokkra samvinnu. Jar-
teinaþættir, sem áður nutu lítillar
virðingar, varðveita miklar upp-
lýsingar um daglegt líf kvenna og
barna. Og frá þessum öldum hafa
geymst furðu margir góðir gripir
sem veita innsýn í tilveru jarðn:
eskra sem himneskra kvenna.“ í
erindinu tvinnast saman lista-
saga, kvennasaga og kristnisaga ■
MIÐVIKUPAGURINN
20. MARS
FUNDUR______________________________
16.30 Aðalfundur Verðbréfaþings fs-
lands er haldinn í dag á Grand
Hótel Reykjavík og er öllum op-
inn. Sérstakur gestur fundarins
verður John Quitter, stjórnarfor-
maður The Northern Partnership
Limited.
20.30 Sjálfstæðisfélag Kópavogs og
Sjálfstæðiskvenfélagið Edda
bjóða eldri borgurum í Kópavogi
til Vorfagnaðar í kvöld í Félags-
heimili Kópavogs. Þar mun dr.
Gunnar I. Birgisson, alþingis-
maður og formaður bæjarráðs,
flytja ávarp, Kór eldri borgara
syngur, boðið verður upp á harm-
onikkuspil og kaffihlaðborð.
FYRIRLESTUR_________________________
12.30 Geraldo Conceicao fatahönnuður
flytur í dag fyrirlestur í LHÍ Skip-
holti I, stofu T13. Conceicao er
mjög vel þekktur í tískuheiminum
og einn helsti hönnuðurinn hjá
hinu fræga tískuhúsi Yves Saint
Laurent í París. (fyrirlestrinum
fjallar hann um eigin feril í fata-
hönnun.
17.15 Yair Sapir flytur fyrirlestur í dag í
boði fslenska málfræðifélagsins.
Fyrirlesturinn er í stofu 422 i
Árnagarði og nefnist „lcelandic
Neologisms since 1780". Fyrirlest-
urinn er öllum opinn og aðgangur
ókeypis.
17.00 Alliance Francaíse, franska
sendiráðið, Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur og Háskóli ís-
lands standa fyrir sýningu sem
haldin er til minningar um tveggja
alda afmæli fæðingar Victors
Hugo. Sýningin er í aðalbyggingu
Háskóla íslands. Hún hefst á mál-
stefnu Torfa Tulinius sem ber
nafnið „um Victor Hugo og Frakk-
land 19. aldar" (á frönsku og ís-
lensku).
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabladid.is
sölu
Fartölvur
Fujitsu-Siemens, 450 Mhz, 12,2" skjár, 198 Mb
minni, 7 Gb HDD, innbyggt CD, FDD, og 56,6K
modem, Nl MH rafhlaða. Kr. 85.000,
70.000 stgr. án vsk.
Dell Latitude CPt. 650 Mhz, 14,1" skjár, 198 Mb
minni, 10 Gb HDD, CD, FDD, 56,6K modem, taska.
Lithium rafhlaða. Kr. 155.000,
140.000 stgr. með vsk.
Nánari upplýsingar veitir Jón Víkingur Hálfdánarson
í símum 577 1888 eða 892 1316.
Leður til heimilisprýði
Jwítilst
LEÐURVÖmjDEILD
í púða, dúka
á húsgögn
eða á gólfið
Krókhálsi 3 • 110 Reykjavlk • Simi 569-1900 • Fax 569-1901 • hvitlist®hvitlist.is
Ekkert skemmtilegra
en að leika fyrir börn
Alþjóðlegi barna- og unglingaleikhúsdagurinn er í dag. A Islandi eru
starfandi fimm atvinnuleikhópar sem helga sig eingöngu börnum.
HALLVEIG HEILLAR BÖRNIN
Miðað við fólksfjölda segir Hallveig það nánast kraftaverk hvað margir leikhópar séu
starfandi á fslandi, ekki síst miðað við önnur lönd. Ein af skýringunum sé sterk hefð
fyrir sögum og þörfin fyrir að segja sögur. „Það mætti segja að barnaleikhóparnir hafi
sprottið óbeint upp úr þessum frjósama jarðvegi."
leiklist ASSITEJ, Alþjóðlegu
barna- og unglingaleikhússamtök-
in, hafa valið 20. mars sem alþjóð-
legan barna- og unglingaleikhús-
dag. Á íslandi hefur þróun barna-
leikhúsa síðustu tuttugu árin verið
mjög hröð. í dag eru starfandi
fimm atvinnuleikhópar, fyrir utan
stóru leikhúsin, sem helga sig ein-
göngu börnum: Brúðubíllinn,
Möguleikhúsið, Leikhúsið 10 fing-
ur, Stoppleikhúsið og Sögusvunt-
an. Fréttablaðið hafði samband
við Hallveigu Thorlacius, brúðu-
leikara og einn aðstandenda Sögu-
svuntunnar, og leitaði svara við
þessari miklu grósku. „Það sem
liggur sjálfsagt að baki er að það
er ekkert skemmtilegra en að
leika fyrir börn. Fólk sem á annað
borð byrjar á erfitt með að hætta.
Bæði eru börnin þakklát og kröfu-
hörð í senn. Þau eru einlæg og á
móti verður að vera einlægni. Þau
halda manni stíft við efnið."
Hallveig segir það koma æ bet-
ur í Ijós hvað leikhús barna séu
gífurlega nauðsynleg frá uppeld-
is- og sálfræðilegum sjónarmið-
um. „Börn eru alltaf að glíma við
sömu vandamálin. Þau eru með
sektarkennd yfir ákveðnum hlut-
um og berjast öll við að skilja
sömu grundvallarspurningarnar.
Sögurnar sem mannkynið hefur
komið sér upp eru í raun svar full-
orðinna við spurningum barn-
anna. Það má því segja að ekki
einungis felist mikið skemmtana-
gildi í því að fara með börnin í
leikhús heldur sé það þeim afar
hollt."
Náið samstarf er milli Norður-
landanna í gegnum ASSITEJ.
Hallveig segir miðstöð samtak-
anna undanfarinn áratug hafa
verið í Danmörku og nú í Svíþjóð.
„Norðurlandabúar eru virkari en
aðrar þjóðir og vægi þeirra er
mjög mikið. Hvergi í heiminum er
eins vel hlúð að barnaleikhúsum.
Þar eru í gangi óskráð lög sem
kveða á um að 25% allra styrkja
sem renna til leikhúsa fari til
barnaleikhúsa. Forsendan er sú að
25% þjóðarinnar eru börn og þeim
ber að sinna. Þetta á ekki við um
ísland. Ég veit að löngun ráða-
manna fyrir aukinni aðstoð er fyr-
ir hendi og vonandi líður ekki á
löngu þar til hlutirnir breytast til
batnaðar."
„Sveinbjörn Baldvinsson sagði
í pistli fyrir nokkru og var þá að
tala um kvikmyndagerð á íslandi,
að það væri vísindalega sannað að
býflugur gætu ekki flogið, bæði
væru þær loðnar og of þungar.
Þær fljúgi nú samt og hafi enga
hugmynd um að þetta eigi að vera
þeim ómögulegt. Eins er með
barnaleikhúsið, við höldum áfram
hvað sem tautar og raular," sagði
Hallveig að lokum, bjartsýn um
framtíð barnaleikhúsa.
kolbrun@frettabIadid.is
TRIO
ROMANCE
Á efnisskrá
kvöldsins
eru verk eft-
ir Franz
Doppler,
Ferruccio
Busoni,
Dmitri
Sjhosta-
kovitsh, Petr
Eben,
Grigoras
Dinicu,
Jules Dem-
ersseman
og Félix
Charles
Berthélemy.
Salurinn í Kópavogi:
Trio Romance á Tíbrá-tónleikum
tónleikar Trio, Romance heldur
tónleika í TÍBRÁ tónleikaröð
Salarins í Kópavogi í kvöld og
hefjast þeir kl. 20.00. Tríóið er
skipað hjónunum og flautuleik-
urunum Guðrúnu S. Birgisdóttur
og Martial Nardeau, og píanó-
leikaranum Peter Máté.
Martial og Guðrún hafa spilað
saman á flautur frá því árið 1980
og hlotið mikið lof fyrir samleik
sinn, m.a. hafa þau unnið til 1.
verðlauna í kammermúsíkk-
eppni franskra listakvenna í
París. Peter Máté er fæddur
1962 í Tékkóslóvakíu. Hann
lærði hjá Ludmilu Kojanová í
Kosice og Valentinu
Kameníková við Tónlistaraka-
demíuna í Prag.
Hann hefur unnið til fjölda
verðlauna fyrir píanóleik sinn -
1980 í Hradec Královék, 1986 í
Vercelli, 1989 í Enna. Peter Máté
hefur starfað hér íslandi frá ár-
inu 1990 og er nú kennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík. ■