Fréttablaðið - 20.03.2002, Page 22
Carvingskíði
30-50% afsl.
Eldri skíði
50-90% afsl.
Lange skíðaskór
30% afsl.
Snjóbretti
og snjóbrettavörur
30-50% afsl.
30-70% afsl.
Gönguskíðapakkar
30% afsl.
Þúfærðmikið
fyrirlítið!
í'l/erslunin^H
I/M4RKID
i|. Ármúla 40 • Sími: 553 5320 • www.markid.is
Arfleiddi Öryrkjabandalagið að 60 milljónum
Olafur Gísli Björnsson, inn-
heimtumaður og blaðberi, lést
í Reykjavík 15. janúar síðastlið-
inn. Ólafur Gísli ánafnaði Ör-
yrkjabandalagi íslands allar eigur
sínar, um 36 milljónir króna í
reiðufé og þrjár litlar íbúðir. Gjöf
Ólafs er því metin á nærri 60
milljónir króna. „Við vissum að
þetta væri að minnsta kosti þrjár
íbúðir og eitthvað meira,“ segir
Lýður Björnsson sagnfræðingur,
bróðir Ólafs heitins. „En að þetta
væri svona mikið vissum við
ekki.“
Ólafur var alla tíð afar spar-
samur og eyddi litlu í sjálfan sig.
„Við vorum að segja honum eftir
að við vissum að hann væri orðinn
sæmilega efnaður að hann ætti að
fara utan og sjá sig um í veröld-
inni en þá sagði hann að hann
langaði ekkert út,“ segir Lýður.
Ölafur fæddist í Bakkaseli í
Bæjarhreppi í Strandasýslu árið
1934. Hann veiktist ungur af skar-
latssótt og í framhaldi hennar
fékk hann heilahimnubólgu sem
leiddi til lömunar og flogaveiki.
Með lyfjum tókst að halda flogun-
um í skefjum en lömunin háði
honum alla tíð.
Ólafur var afar vinnusamur
alla tíð. Ungur vann hann sveita-
störf og eftir að hann kom til
Reykjavíkur starfaði hann fram-
an af í prentsmiðjunni Gutenberg
og á Kópavogshæli. Hann fór síð-
an að bera út blöð og innheimta
gjöld fyrir ýmis félög og varð það
hans aðalstarf síðustu þrjá ára-
tugina.
Persónan
Ólafur Císli Björnsson arfleiddi
Öryrkjabandalagið að stærrí gjöf en
nokkur einstakiingur hefur áður latið af
hendi rakna til bandalagsins.
Flestir þeir sem búið hafa í
Vesturbænum muna eftir Ólafi
sem sinnti störfum sínum óháð
veðri og færð. Hann ferðaðist um
með innheimtu- og blaðburðar-
töskur, á hækjum og mannbrodd-
um þegar færð var slæm. Oft
hlaut hann þó byltur en reis upp
og hélt ótrauður áfram. ■
ÓLAFUR GÍSLI BJÖRNSSON
Ólaf Gísla mátti sjá á ferð um bæinn,
aðallega Vesturbæinn, í öllum veðrum.
Alltaf bar hann með sér slitna innheimtu-
tösku sína og oftast hafði hann blaðapoka
yfir hina öxlina.
13.30 Jónína Elíasdóttir frá Hesteyri,
Kópavogsbraut 1 b,
14.00 Ás.ta Tlieódórsdóttir, Fjólugötu
23 Vestmannaeyjum, verður jarð-
sungin frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum.
15.00 Gunnar J. Júlíusson frá Hrappsey,
verður jarðsunginn í dag frá Há-
teigskirkju.
AFMÆLI
Valgarður Egilsson, læknir, er 62 ára í
dag.
Gisli Rúnar Jónsson, leikari, er 49 ára í
dag.
STÖÐUVEITINGAR
Nathalie Jacqueminet hefur verið ráðin
í stöðu deildarstjóra listaverkadeildar
Listasafns íslands.
ANDLÁT
1 AFMÆLI
Margfalt
afmæli í ár
Gísli Rúnar Jónsson leikari á afmæli í dag.
Honum finnst ekki mikið til þess koma enda
eiga hann og fjölskylda hans mun merkilegri
afmæli síðar á árinu.
afwiæli „Ég er ekki vanur að brey-
ta út af daglegum venjum þó ég
eigi afmæli en ég veit ekki hvað
mínir nánustu hafa hugsað sér,“
segir Gísli Rúnar Jónsson leikari
sem er 49 ára í dag. „Mér finnst
miklu skemmtilegra að vera í af-
mæli hjá öðrum og hef ekki mjög
gaman af mínum eigin afmælum.
Hann segir þó eina undantekn-
ingu þar á en á árinu eigi hann
þrjátíu ára leikafmæli. „Það
finnst mér miklu merkilegra og
ætla að halda upp á það. Edda
Björgvins á líka leikafmæli en í
ár eru tuttugu og fimm ár síðan
hún lék í fyrsta sinn. Hún á líka
enn merkilegra afmæli því hún
verður fimmtug á þessu ári. Son-
ur okkar Björgvin Frans sem út-
skrifaðist fyrir einu ári úr Leik-
listarskólanum á líka leikafmæli
en hann var fimm ára þegar hann
kom fyrst fram. Þessi tímamót
finnst mér miklu merkilegri og
ætlum við að halda veglega upp á
þau,“ segir Gísli. Hann kom fyrst
fram með Júlíusi Brjánssyni í
gervi kaffibrúsakarlanna og þeir
félagar ætla að gleðja sína aðdá-
endur með því að endurvekja þá
mætu menn. „Við Júlíus voru
ungir og ferskir fyrir þrjátíu
árum og komum fram í eitt ár
sem karlarnir. Við getum ekki
minnst þeirra tímamóta á
skemmtilegri hátt en vekja þá
upp á árinu. Við Edda og Björgvin
Frans ætlum að minnast tíma-
móta okkar með nokkru sem ekki
verður upplýst strax. En það mun
alveg örugglega vera í okkar
anda og mjög líklega farsi ekki
ósvipaður „Sex í sveit“ sem sýn-
dur var fyrir nokkrum árum.“
Gísli er fæddur í Reykjavík,
sonur hjónanna Jóns Björnsson-
ar fyrrverandi kaupmanns, og
konu hans Guðrúnar Gísladóttur.
Hann segir fæðingu sína þennan
dag fyrir fjörutíu og níu árum
hafa borið að á ósköp hversdags-
legan hátt. „Það var ekkert sem
benti til að þessi litli karl sem þá
fæddist myndi fást við það sem
ég hef verið að fást við. Mér
finnst ég alltaf jafn ungur. Ég
horfi enn á eftir sætum stelpum
en ætli aldurinn segi ekki til sín á
þann hátt að ég hafi gleymt hvers
vegna.“
ÖLL FJÖLSKYLDAN Á AFMÆLI
Gísli á þrjátíu ára leikafmæli á árinu. Þau
Björgvin Frans sonur hans og Edda Björg-
vins eiga einnig merkileg leikafmæli auk
þess sem Edda á fimmtugsafmæli.
Nýliðin tvö ár hefur Gísli ver-
ið í algjöru fríi frá leiklistinni og
haldið sig við skriftir. Bók hans
um Björgvin Halldórsson kom út
seint á síðasta ári og um þessar
mundir vinnur hann að öðru
verki. „Ég veit ekki hvenær ég
sný mér að leiklistinni aftur en
vafalaust á ég eftir að gera það í
einhverri mynd,“ segir hann.
Gísli á tvo syni með Eddu
Björgvinsdóttur leikkonu og
tvær stjúpdætur. ■
TÍMAIVIÓT
JARÐARFARIR
FRÉTTABLAÐIÐ
20. mars 2002 MIÐVIKUDAGUR
Margrét Strand, Lindargötu 57, Reykja-
vík, lést 17. mars. Útför hennar hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Helgi Andrésson, forstöðumaður dreif-
ingar rafmagns á Akranesi, Esjubraut 26,
Akranesi, lést 15. mars.
Aðalbjörg Júliusdóttir frá Seyðisfirði,
Hrafnistu, Reykjavík, lést 15. mars.
Helga Kristjánsdóttir frá Eskifirði lést 7.
mars. Útför hennar hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Brynhildur Björnsdóttir, Norðurgötu
34, Akureyri, lést 16. mars.
Magnús Þ. Sigurðsson, Hjallaseli 45,
Reykjavík, lést 18. mars.
HRÓSIÐ
Hrósið fær Þorsteinn Ingólfsson
fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum,
sem virðist vera búinn að finna
málamiðlun sem leysir áralanga deilu
um skipan IMannréttindaráðs SÞ.
1970 sigraði bandaríski leikar-
inn Steve McQeen í kappakst-
urskeppni í Flórída. Hann var þá
enn með fótinn í gifsi eftir mót-
orhjólaslys sem hann lenti í
skömmu áður.
Arið 1995 frömdu nokkrir með-
limir japanska trúarsafnaðar-
ins Aum Shinri Kyo hryðjuverk
með því að dreifa
banvænu gasi á
járnbrautarlestar-
stöð í Tókýó. Tólf
manns létu lífið og
meira en fimm þús-
und veiktust af
völdum gassins.
Leiðtogi safnaðar-
ins, Shoko Asahara, var handtek-
inn nokkru síðar og kærður fyrir
morð ásamt fjölmörgum öðrum
leiðtogum.
Þýsk sendinefnd kom til
Reykjavíkur 20. mars árið
1939, tæpu hálfu ári áður en síð-
ari heimsstyrjöldin hófst. Ósk
Þjóðverja um að fá að koma upp
flugbækistöð á íslandi var hafn-
að.
Arið 1952 hlaut
Humphrey Bog-
art Óskarsverðlaun
fyrir leik sinn í Afr-
íkudrottningunni.
Þetta var í eina skiptið
sem Bogart fékk Óskarinn.
Asgeir Hannes Eiríksson hélt
stystu ræðu í sögu Alþingis
árið 1991: „Virðulegi forseti. Ál-
verið rísi!“ Þá stóðu yfir umræð-
ur um byggingu álvers á Keilis-
nesi.
SAGA PAGSINS
20. MARS