Fréttablaðið - 25.03.2002, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN
PÁSKAECC
Meginþorri
landsmanna kaupir
páskaegg.
Kaupirðu
páskaegg?
Niðurstöður gærdagsins
á vwwv.vísir.is
35%
Spurning dagsins í dag:
Ferðu í kirkju um páskana?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun
FRÉTTABLAÐIÐ
25. mars 2002 MÁNUDACUR
LANDSBYCCÐIN
Aurskriða féll yfir þjóðveginn
um Kambaskriður milli
Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarð-
ar í fyrrinótt. Skriðan var um
100-150 metrar að breidd og lok-
aði hún veginum fyrir allri um-
ferð. Samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerðinni var unnið að
hreinsunarstörfum í gærdag og
þótti ekki sýnt að vegurinn yrði
opnaður fyrir umferð.
Tveggja bíla árekstur varð í
Borgarnesi á föstudags-
kvöldið. Tildrög slyssins voru
þau að bíll sem var að koma úr
íbúðarhverfinu keyrði í veg fyr-
ir annan sem var á leið norður.
Tvennt var flutt á heilsugæslu-
stöðina með minniháttar meiðsl.
Bílarnir eru mikið skemmdir og
voru þeir fluttir í burtu með
kranabíl.
Bíll valt við afleggjarann við
Eystri-Sólheima um níuleytið
í gærmorgun. Eldri maður sem
var einn í bílnum missti stjórn á
bílnum í lausamöl með fyrr-
greindum afleiðingum. Læknir
varð vitni að slysinu og hlúði að
manninum þar til sjúkrabíll kom
og flutti hann á heilsugæslustöð-
ina í Vík. Að sögn lögreglunnar
var um minniháttar meiðsl að
ræða. Bíllinn er gjörónýtur og
var fluttur í burtu.
FÓRNARLAMBA MINNST
Svartklædd kona minnist fómadamba
árása NATO í athöfn í Belgrad í gær.
Stuðningsmenn
Milosevic safnast saman:
3 ár frá árás-
um NATO
belgrap. ap Um 7.000 manns söfn-
uðust saman í Belgrad í gær til að
mótmæla réttarhöldum yfir
Slobodan Milosevic, fyrrum
Júgóslavíuforseta, og til að lýsa
vanþóknun sinni á loftárásum
NATO sem hófust fyrir 3 árum
síðan.
NATO hóf þær til að koma Alb-
önum búsettum í Kosovo-héraði
til bjargar. Milosevic neyddist í
kjölfarið til að draga liðssveitir
sínar frá Kosovo. Héraðið til-
heyrði Júgóslavíu en er nú stjórn-
að af Sameinuðu þjóðunum. Marg-
ir mótmælendanna héldu á fánum
Serbíu og borðum sem gagnrýna
loftárásir NATO.
Yfirvöld í Júgóslavíu segja að
um 2.000 óbreyttir borgarar og
1.000 hermenn hafi látist í þeim. I
fyrra var 24. mars gerður að
minningardegi til heiðurs fórnar-
lömbum árásanna. Milosevic er í
haldi í Haag þar sem réttarhöld
vegna meintra stríðsglæpa hans
standa yfir. ■
Árni Mathiesen varar við umsókn í ESB á fölskum forsendum:
Umsókn gæti spillt samstarfi
esb Árni M. Mathiesen, sjávarút-
vegsráðherra, varar við því að
menn geri sér vonir um að ísland
fái undanþágur frá sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins eða
breytingar á henni við inngöngu í
ESB. „Eg á alls ekki von á því að
það yrði viðurkennt í einhverri
fyrirsjáanlegri framtíð hjá Evr-
ópusambandinu.“
Árni segir ljóst hvað býðst ef
ísland sækir um aðild. Það sé að-
lögunartími svipaður þeim sem
Norðmenn sömdu um og höfnuðu í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Undan-
þágur og breytingar séu ekki til
umræðu. Þetta hafi ráðamenn
ESB margoft sagt. „Við myndum
þá frekar spilla samskipt-
um okkar við Evrópusam-
bandið ef við værum að
sækja um aðild og byggð-
um það á einhverjum for-
sendum sem við vissum að
væru ekki fyrir hendi,“
segir Árni. Norðmenn telji
samskiptin við ESB stirð-
ari eftir að hafa hafnað
samningum í tvígang.
Rætt hefur verið um að
reglur Evrópusambands-
ins um hlutfallslegan stöð-
ugleika geti nýst íslend-
ingum við að ná samning-
um um stjórn fiskveiða.
Þessu er Árni ósammála.
ÁRNI
MATHIESEN
Ekki endilega
viðvarandi hald í
hlutfallslegum
stöðugleika.
„Það er nokkuð sem menn
hafa talað um að breyta.
Þó það séu ekki uppi tillög-
ur um að breyta því núna
gæti það breyst í framtíð-
inni. Hlutfallslegur stöð-
ugleiki er ekki hluti af
Rómarsáttmálanum eins
og sameiginlega auðlinda-
nýtingin. Það eru miklu
meiri líkur á að því sem er
talað um sem haldreipi
fyrir okkur verði breytt í
framtíðinni og fótunum
hugsanlega kippt undan
okkur en því að þröskuld-
inum í fiskveiðistefnunni
verði breytt." ■
FRAMHALDSSKÓLAR
Lið Menntaskólans í Reykjavík
sigraði í tíunda sinn í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna,
Gettu betur, í úrslitakeppni í Sjón-
varpinu á föstudagskvöld. Liðið
bar sigurorð af liði Menntaskólans
við Sund og hlaut Hljóðnemann að
launum og vikuferð til Krítar. MS
hafði betur lengi framan af, en
MR seig framúr.
Sheep River Hook kölluðu þær
sig stúlkurnar úr Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á Sauð-
árkróki sem báru sigur úr býtum í
Söngvakeppni framhaldsskólanna
á laugardagskvöldið. í öðru sæti
var keppandi Kvennaskólans í
Reykjavík og þriðja sætinu skiptu
með sér Menntaskólinn á Laugar-
vatni og Menntaskólinn á ísafirði.
ÆTTINGJAR SYRGJA
Ættingjar Najy El Ajrami, 21, fylgdu honum til grafar í flóttamannabúðum í norðurhluta Gaza-svæðisins i gær. Ajrami var drepinn af her-
sveitum Israela eftir að hann hafði ráðist á landnemabyggðir gyðinga á Gaza-svæðinu.
Reynt til þrautar
að ná samkomulagi
Tíu drepnir í Mið-Austurlöndum í gær. Erindreki Bandaríkjastjórnar
reynir að koma á vopnahléi. Arafat vill til Beirút en Bandaríkjamenn
vilja að hann gangi að kröfum þeirra.
JERÚSALEM. WASHINGTQN. AP. Ant-
hony Zinny, erindreki Bandaríkja-
stjórnar fundaði með fulltrúum
fsraela og Palestínumanna, í gær-
kvöld. Hann er undir miklum
þrýstingi um að ná samkomulagi
um vopnahlé á milli stríðandi
fylkinga áður en leiðtogafundur
Arababandalagsins hefst í Beirút,
höfuðborg Líbanon, á miðvikudag.
Átök brutust margsinnis út á
milli ísraela og Palestínumanna í
gær. Hersveitir ísraela skutu
fjóra menn til bana við landamæri
ísrael og Jórdaníu, sem vanalega
eru friðsæl, aðfaranótt sunnu-
dags. Mennirnir ætluðu að laum-
ast inn í ísrael.
ísraelskir hermenn skutu
Pelstínumann í grennd við Gaza-
svæðiðið og ísrael og þrír Palest-
ínumenn voru skotnir í grennd við
landnemabyggðir gyðinga á Gaza-
svæðinu. ísraelsk kona var einnig
skotin til bana af Palestínumönn-
um. Skömmu síðar skutu ísraelsk-
ar hersveitir palestínskar lög-
reglumann til bana.
Fundur leiðtoga arabaríkjanna
hefst á miðvikudag. Yasser Ara-
fat, leiðtogi Palestínumanna, vill
sitja fundinn. Málefni ísrael og
Palestínu verða í brennidepli á
fundinum og friðartillögur Sádi-
Arabíu. ísraelar hafa ekki gefið
honum ferðaleyfi enn og svo gæti
farið að hann yrði enn í stofufang-
elsi á miðvikudag.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísrael, sagði ríkisstjórn sinni í
gær að hann vildi fara á fundinn í
Beirút til að útskýra afstöðu ísra-
ela. Sharon er mjög illa liðinn í
arabaheiminum og engar líkur
eru taldar á því að honum verði
boðið á fundinn í Líbanon. Sharon
var varnarmálaráðherra þegar
ísraelar réðust inn í Líbanon og
hefur verið sakaður um að bera
beina ábyrgð á fjöldamorðum á
Palestínumönnum í flóttamanna-
búðum í Beirút.
Bæði ísraelar og Palestínu-
menn hafa fallist á tillögur Banda-
ríkjamanna í stórum dráttum. Þá
greinir samt á um einstök atriði.
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, sagði í gær að hann hefði
engin áform um að hitta Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna,
fyrr en hann gengi að skilmálum
Bandaríkjamanna og hvetti sína
menn til að draga úr ofbeldi.
Cheney sagði þetta áður en fund-
ur fulltrúa ísraela og Palestínu-
manna hófst í gærkvöld. ■
Frestun framkvæmda:
Dauflegt sumar í jarðvinnu
iðnaður Frestun undirbúnings-
framkvæmda vegna stóriðju á
Austurlandi er bakslag fyrir jarð-
vinnuverktakafyrirtæki sem gert
höfðu ráð fyrir þeim í sumar. „Það
var búið að kynna á útboðsþingi
núna í janúar að það yrði af
þessu,“ sagði Sveinn Hannesson,
framkvæmdastjóri Samtaka iðn-
aðarins. „Miðað við hvernig verk-
efnastaðan hefur verið hjá þeim
máttu þau síst við að slegið yrði á
frest framkvæmdum sem búið
var að ráðgera." Sveinn sagði fyr-
irtækin þó hafa verði meðvituð
um að lokaákvörðunar varðandi
virkjun hafi ekki verið að vænta
fyrr en í september og þau því
ekki búist við neinum stórfram-
kvæmdum á árinu. „En það eru
mikil vonbrigði fyrir
þau að þessum hliðar-
framkvæmdum skuli
vera frestað," sagði
hann og bætti við að lítið
væri um önnur verkefni
í staðinn. „Nú virðist
draga meira saman og
það eru ákveðin von-
brigði. Þetta lítur út fyr-
ir að verða heldur dauf-
legt sumar hjá þeim.“
Sveinn taldi þó ekki
að verktakafyrirtækin
hafi lagt úti í kostnað
vegna fyrirhugaðra
framkvæmda í sumar
sem nú gangi ekki eftir.
„Það er frekar samdrátt-
ur í fjárfestingu í þess-
SVEINN HANNESSON
Sveinn segir að frestun
undirbúningsfram-
kvæmda á Austurlandi
vegna stóriðju komi illa
við verktakafyrirtæki
í þeim geira. Meðal
stórtækra fyrirtækja
í slíkum verkum má
nefna ístak og (slenska
aðalverktaka.
ari grein eins og staðan
er núna. Menn rjúka
ekki til og fjárfesta í
tækjum fyrr en þeir vita
hvaða verkefni þeir
hafa,“ sagði hann.
Að sögn Sveins
standa vonir manna í
iðnaði til þess að fljótt
verði farið í stækkun á
Grundartanga, fyrst
bakslag hafi komið í
Noral-verkefnið. „Það
eru verkefni af því tagi
sem maður reiknar með
að íslensk jarðvinnufyr-
irtæki ráði vel við og
muni fá. En allt tekur
þetta tíma að koma af
stað,“ sagði hann. ■
Reykjavík:
Tvö innbrot
í fyrrinótt
innbrqt Tvö innbrot voru tilkynnt
til lögreglunnar í Reykjavík í
fyrrinótt. í fyrra tilfellinu var
brotist inn í bíl við Sóltúni og
stolið hljómflutningstækjum.
Lögreglan fékk tilkynningu um
innbrotið um hálftvöleytið.
Skömmu síðar voru tveir menn
handteknir, grunaðir um innbrot-
ið. í fórum sínum höfðu þeir
hljómflutningstækin. Þeir voru
vistaðir í fangageymslu um nótt-
ina og yfirheyrðir í gærdag. Þá
var brotist inn í kaffihús við Vita-
stíg. Höfðu þjófarnir á brott með
sér skiptimynd sem var í peninga-
kassa. Málið er í rannsókn. ■
Svínadalur:
17 innbrot í
sumarbústaði
innbrot Brotist hefur verið inn í
að minnsta kosti sautján bústaði á
sumarbústaðasvæðinu við Svína-
dal og Skorradal að sögn lögregl-
unnar í Borgarnesi. Tilkynning-
arnar hafa verið að berast síðustu
þrjár vikurnar og tvö innbrot til
viðbótar voru tilkynnt nú um
helgina.
Talið er líklegt að um sömu að-
ila sé að ræða og innbrotin hafi
verið framin í sömu hrinu. Engin
vegsummerki eru við bústaðina
sem bendir til að langt sé síðan
brotist var inn. Þjófarnir hafa lát-
ið greipar sópa og haft á brott
með sér ýmislegt lauslegt, sjón-
vörp, hljómflutningstæki og
fleira.
„Sumarbústaðaeigendur eiga
sjálfsagt margir eftir að vakna
upp við vondan draum nú þegar
tekur að vora og þeir leggja leið
sína í bústaðina,“ sagði talsmaður
lögreglunnar. Hann telur ekki úti-
lokað að um enn fleiri bústaði sé
að ræða. ■
iLÖGREGLUFRÉTTIRj
Krapaflóð féll úr Reynisfjalli í
Vestur-Skaftafellssýslu um
níuleytið á laugardagsmorgun.
Flóðið sem var um 50-100 metra
að breidd lenti niður að þjóðveg-
inum. Vegurinn er nú opinn fyrir
umferð. Miklir vatnavextir hafa
verið í Mýrdalnum. Flætt hefur
yfir þjóðveginn og heimreiðar að
bæjum. Að sögn lögreglunnar á
Vík vann Vegagerðin að því að
laga vegi á svæðinu.
Maður réðst á konu sem var á
gangi í Þingholtsstræti um
þrjúleytið í fyrrinótt. Kastaði
maðurinn konunni í götuna og
beit hana síðan. Konan var flutt á
slysadeild með áverka á höfði
sem hún hlaut við fallið. Árás-
armaðurinn er enn ófundinn. Þá
var ráðist á tvo lögreglumenn að-
faranótt laugardagsins þegar þeir
gengu á milli í slagsmálum í
Hafnarstræti. Einn slagsmála-
hundanna skallaði annan lög-
regluþjóninn og beit hinn. Mikil
ölvun var í borginni.