Fréttablaðið - 25.03.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.03.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS 6 FRÉTTABLAÐIÐ 25. mars 2002 MÁNUDAGUR Mexíkóskir farandverkamenn í Bandaríkjunum: Fengu aldrei tíu prósent launa sinna í seinni heimsstyrjöldinni héldu þúsundir farandverkamanna frá Mexikó til Bandaríkjanna. Þeir hafa ekki enn fengið öll launin sín borguð. Færð þú páskaegg um páskana? Já, ég fæ páskaegg. Mamma gefur mér páskaegg, ég held númer þrjú eða fjögur. María Kristín Steinsson, listakona. washincton. ap Jose Ayela er orð- inn 66 ára. Hann segist hafa stað- ið við sinn hluta af samkomulag- inu, en Bandaríkin og Mexíkó hafi ekki staðið við sín loforð. Ayala var einn fjölmargra verkamanna sem streymdu til Bandaríkjanna frá Mexíkó í sein- ni heimsstyrjöldinni. Mikill skort- ur var þá á vinnuafli í Bandaríkj- unum vegna þess hve margir ung- ir menn fóru til þess að berjast í stríðinu. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Mexíkó gerðu með sér samkomu- lag um að halda eftir 10 prósent- um af launum „gestaverkamann- anna“ frá Mexíkó. Þetta fé áttu þeir svo að fá þegar þeir sneru aftur til Mexíkó. Fæstir þeirra sáu þó nokkurn tíma þessa pen- inga, sem dregnir voru af launun- um feirra. A síðasta ári var höfðað mál fyrir héraðsdómi í San Francisco fyrir hönd 300.000 mexikóskra verkamanna sem fengu ekki þessi tíu prósent launanna á árunum 1942 til 1949. Alls er talið að þeir eigi um það bil 500 milljónir bandarískra dala inni, bæði hjá stjórnvöldum í Mexíkó og Banda- ríkjunum sem og hjá nokkrum bandarískum bönkum. „Við unnum hörðum höndum fyrir þessu fé,“ sagði Ayala á mánudaginn. „Ef þeir láta okkur ekki fá það aftur, hvað segir það þá um stjórnvöld hér eða stjórn- völdin í Mexíkó?“ ■ Hefur 4 - 8 vikur til að úrskurða í kæru vegna starfsleyfis Reykjavíkurflugvallar. Reykj avíkurflugvöllur: Stjórn- sýslukæra vegna starfsleyfis stiórnsýsla Umhverfis- og heil- brigðisnefnd Reykjavíkur hefur fengið stjórnsýslukæru vegna starfsleyfis fyrir Reykjavíkur- flugvöll. Það eru Flugskóli ís- lands og Flugmálastjórn sem kæra. Flugskólinn kærir vegna æfingabanns við snertilending- ar á hvíldar- og orlofstímum. Forráðamenn skólans telja að sá tími henti einna best fyrir slíkar æfingar. Flugmálastjórn leggst gegn því að henni sé gert að framkvæma það sem hún telur vera hávaðamælingar. Stofnun- in telur einnig að umhverfis- og heilbrigðisnefnd hafi ekki laga- stoð til að setja reglur um há- vaða á vellinum. Örn Sigurðsson, skrifstofu- stjóri Umhverfis- og heilbrigð- isstofu, segir að í framhaldinu muni borgaryfirvöld senda um- sögn við kærunni til umhverfis- ráðherra sem úrskurðar síðan í málinu. Ráðherra hefur fjórar til átta vikur til að taka ákvörð- un í málinu. Sú tímalengd fer eftir því hvað málið telst vera umfangsmikið. ■ Mismunandi þjón- usta tölvufyrirtækja Tölvufyrirtæki bjóða viðskiptavinum sínum mismunandi þjónustu er kemur að vírusvörnum. Vírusar eru vaxandi vandamál. tölvur Starfsmenn fyrirtækja sem bjóða upp á netþjónustu eru á einu máli um að tölvuvírusar séu vax- andi vandamál. Ein helsta boðleið þeirra er með tölvupósti. Aðrar smitleiðir eru sýktar síður á Net- inu og svo sýktir disklingar og geisladiskar. Ef tölva sýkist af vír- us getur fylgt því töluverður kostnaður að hreinsa hana, allt að 15.000 krónur. Miklu máli skiptir að sögn sérfræðinga að vel sé haldið á spöðunum er kemur að vírusvörnum. Þjónustan sem net- þjónustufyrirtæki bjóða upp á er mjög mismunandi. Landssíminn skannar allan tölvupóst sem viðskiptavinum hans berst. Smituðum pósti er hent og kúnninn er látinn vita af því. Vírusvarnarforrit Landssím- ans er uppfært einu sinni á sólar- hring. Að sögn Veigars Freys Jök- ulssonar er kerfið þannig núna að viðskiptavinir geta ekki valið um hvort þeir njóta þjónustunnar eða ekki. Guðmundur Kr. Unnsteinsson, starfsmaður Hringiðunnar, bendir einmitt á að það vilji ekki allir njóta þessarar þjónustu. Hring- iðan skannar engan tölvupóst við- skiptavina en er reyndar að hugsa um að bjóða slíka þjónustu. „Við höfum mælt með því við okkar viðskiptavini að þeir séu með vírusvarnir í eigin tölvu.“ Slík forrit þarf að uppfæra reglulega. Snerpa á ísafirði notar vírus- varnarforrit sem uppfærist á 15 mínútna fresti. Þeir skanna allan tölvupóst viðskiptavina sinna, hreinsa hann ef hægt er en henda ef það er ekki hægt. Guðmundur Hjaltason hjá Snerpu bendir á að tölvuþrjótar hafi nýtt sér galla í internet explorer til að koma fyrir vírusum á netinu þannig að fólk geti ekki búist við því að vera ör- GAGNLEGAR SÍÐUR www.housecall.antivirus.com: hægt að athuga hvort tölvan manns er heilbrigð. www.antivirus.com: Fréttir af vírusum. ÞJÓNUSTA: Landssíminn: Allur póstur skannað- ur. Sýktum bréfum hent. Íslandssími: Póstur skannaður hjá þeim sem borga fyrir það. Margmiðlun-internet: Póstur skann- aður hjá þeim sem borga fyrir það. Hringiðan: Enginn póstur skannaður. Tal: Póstur skannaður út frá algeng- ustu vírusum. Snerpa: Allur póstur skannaður. Sýktur póstur hreinsaður, hent ef það er ekki hægt TOLVUR Sum fyrirtæki skanna allan póst viðskipta- vina sinna í leit að tölvuvírusum. uggt gagnvart vírusum þó að það skipti við fyrirtæki sem hreinsar póstinn. Sá usli sem vírusar valda er mjög mismunandi. Sumir gera stýrikerfin alveg óstarfhæf. Miklu fleiri vírusar hafa verið skrifaðir gegn Windows-kerfinu en Macin- tosh. Skýring þess er einkum sú að miklu fleiri nota Windows og því hægt að valda meira tjóni með því að ráðast á það. Tölvuþrjótar hafa líka verið duglegir að nýta sér galla í hugbúnaðarkerfi frá Microsoft sem eru fjölmargir. Hjá Tal einbeita menn sér að því að tékka á algengustu vírus- um. Íslandssími og Margmiðlun- internet bjóða viðskiptavinum upp á vírusvarnarþjónustu gegn gjal- di. Samkvæmt upplýsingum ís- landssíma er langmest um að fyr- irtæki nýti sér þessa þjónustu. ■ NIÐURSTAÐAN KYNNT Mikill munur á milli kynþátta kom vísinda- mönnunum á óvart. Kynþættir: Hvítir fá betri lækn- isþjónustu heilsa Minnihlutahópar í Banda- ríkjunum fá verri læknisþjónustu en hvítt fólk, hvort sem um er að ræða hjartaþræðingu, krabba- meinsmeðferð eða einfaldan sára- umbúnað. Þetta er helsta niður- staða nýrrar rannsóknar sem gerð var að beiðni Bandaríkjaþings á gæðum heilsugæslu út frá kyn- þáttum. „Við höfðum grunsemdir um að munurinn væri nokkur. Það kom okkur þó verulega á óvart að hann væri svona mikill," sagði dr. Alan Nelson, forsvarsmaður vís- indamannanna sem gerðu rann- sóknina. Flestir þættir læknisþjónustu sem voru kannaðir reyndust vera hvítum í hag. Sem dæmi leiddi rannsókn á 11.000 sjúklingum með lungnakrabbamein í ljós að aðgerð var framkvæmd á 76% hvítra en 64% svartra. Eftir fimm ár voru 26% svartra á lífi en 34% hvítra. Fram kemur í skýrslunni að munurinn haldist að nokkru leyti þegar aðeins eru bornir sam- an einstaklingar með svipuð laun, tryggingar, þjóðfélagsstöðu og svo framvegis. ■ AÐALFUNDUR Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn í dag kl. 19:30 á Grand Hótel Reykjavík. Dagskrá: • Venjuleg aóalfundarstörf • Lagabreytingar Tillögur um lagabreytingar þurfa að berast 4 dögum fyrir aðalfund. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Kosning utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga hefst eftir viku: Atkvæðagreiðsla hefst 2. apríl Borgarbúar sem verða erlendis á kjördag 25. maí nk. geta kosið hjá embætti sýslumanns strax á fyrsta virka degi eftir páska. sveitarfélöc Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kosninga til sveit- arstjórna hefst þriðjudaginn 2. apr- íl nk. Það er 8 vikum fyrir kjördag í samræmi við lög. Framboðsfrestur rennur hins vegar ekki út fyrr en á hádegi 4. maí nk. Þá er viðbúið að um 1.300 erlendir ríkisborgarar fái kosningarétt ef frumvarp félags- málaráðherra um breytingar á lög- um um kosningar til sveitarstjórna nær fram að ganga. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að erlendir ríkis- borgarar sem búið hafa hér sam- fellt í 5 ár fái að kjósa í vor. Norður- landabúum dugar að hafa átt heima á íslandi í 3 ár til að geta kosið til sveitarstjórna. Engin breyting er gerð á því ákvæði í frumvarpinu. Guðjón Bragason hjá félags- málaráðuneytinu segir að í mörgum sveitarfélögum viti kjósendur svona nokkurn veginn um þá lista sem helst verða í boði á kjördag, 25. maí nk. Hins vegar eiga kjósendur kost á því að kjósa aftur ef eitthvað hefur breyst í framboðsmálum í þeirra sveitarfélagi frá því þegar þeir kusu utan kjörfundar. Hann bendir á að það sé alltaf yngsta at- kvæðið sem telur. Þá geta menn líka mætt á kjörstað á kosningadaginn og kosið þótt þeir hafi áður kosið utan kjörfundar. Þá gildir ekki at- kvæðið sem greitt hafði verið áður utan kjörfundar. Það sé aftur á móti oftast í undantekningartilfellum að fólki kjósi utan kjörfundar tæpum átta vikum fyrir kjördag. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.