Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 7

Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 7
MÁNUDAGUR 25. mars 2002 FRETTABLAÐIÐ 7 Alþingisumræður: • • Ossur vill í ESB alþinci Össur Skarphéðinsson, for- raaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir aðildarumsókn að Evrópu- sambandinu á Alþingi fyrir helgi. Hann sagði þjóðina eiga tvo kosti í tengslum við Evrópu, annað hvort að sækja um aðild, eða dragast hægt og bítandi aftur úr öðrum þjóðum Evrópu. Össur spurði utanríkisráðherra hvort ríkisstjórnin hafi skilgreint samningsmarkmið sem grípa mætti til ef ganga þyrfti til aðild- arviðræðna við Evrópusambandið með stuttum fyrirvara. Hann taldi ekki ólíklegt að sú staða kynni að koma upp og vísaði í því sambandi til breyttra aðstæðna í kjölfar stækkunar Evrópusambandsins og innri þróunar. „Tími EES-samn- ingsins er hægt, en bítandi, að renna út og þess vegna erum við í þessari umræðu,“ sagði hann. Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra, lagði ríka áherslu á að aðildarviðræður væru ekki á stefnuskrá ríkisstjórnarinnar og því ekki farið að undirbúa umsókn að Evrópusambandinu. Hann sagði ákveðnar pólitískar forsend- ur hafa breyst síðan samningurinn um Evrópska efnahagssvæði var gerður. Hann sagðist starfa að því að styrkja þær forsendur í ljósi ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Össur telur að sífellt dragi úr vægi samn- ingsins um Evrópska efnahagssvæðið. pólitísks umboðs frá Alþingi. Hall- dór sagði ríkjandi skilning á nauð- syn þess að endurskoða EES samninginn. „En það liggur líka fyrir að Evrópusambandið er ekki tilbúið til viðræðna fyrr en að lok- inni stækkun," sagði hann og áréttaði að yrði það niðurstaðan liðu mörg ár þar til samningar næðust. ■ REYKJAVlK Vel er bókað á stóru hótelunum í höfuð- borginni um páskana. Fullbókað um páskana: Irar og Bretar fylla hótelin ferðpjónusta Fullt er á hótel Loftleiðum um páskana. Það eru mestmegnis írar sem fylla hót- elið að sögn Þorsteins Helgason- ar, bókunarstjóra Flugleiðahót- elanna. Hann segir nokkuð hafa verið um að írar hafi komið í hópferðir til íslands á síðustu árum. Þær ferðir haldast í hend- ur við pakkaferðir íslendinga til írlands. Hótel Esja er 70-80% bókuð, mest af erlendum ferða- mönnum. Alls eru um 400 her- bergi á þessum hótelum, flest tveggja manna. Það þýðir að um 700 ferðamenn eru þar yfir páskana. Sölustjóri Radisson SAS hót- elanna, Harpa Einarsdóttir, seg- ir fullbókað á föstudeginum langa og á laugardeginum um páskana. 330 herbergi eru á hót- elunum tveimur, Hótel Sögu og Hótel íslandi. Það þýðir að á sjö- unda hundrað ferðamenn eru á þessum hótelum þegar fullbók- að er. Lang mest er um breska ferðamenn á þessum hótelum. Hins vegar eru laus herbergi á skírdegi og páskadag. Harpa segir miklu meira bókað í ár um páskana en undanfarið. Skýring- in kunni að vera pakkaferðir sem bjóðast erlendum ferða- mönnum. ■ INNLENT Flugleiðahótel á landsbyggð- inni eru sæmilega bókuð um páskana að sögn Þorsteins Helgasonar, bókunarstjóra Flugleiðahótelanna. Hótelin sem eru opin eru í Keflavík, á Flúðum, á Kirkjubæjarklaustri og á Egilsstöðum. Um 40 her- bergi eru á hverju fyrir sig og 50-60% þeirra eru bókuð. Það eru íslenskir sem erlendir ferðamenn sem eiga pantað á hótelunum. Ibúatala ísafjarðar margfald- ast um páskana. Að lang- mestu leyti er um brottflutta ísfirðinga að ræða sem gista í heimahúsum að sögn Áslaugar Alfreðsdóttur, hótelstjóra á Hótel ísafirði. Hún segir að eft- ir að farið var að moka á hverj- um degi verði það sífellt al- gengara að fólk aki vestur um páskana, í stað þess að fljúga. Mikil breyting hafi orðið á þessu á síðustu tíu árum. EINA P4 FARTÖLVAN Á ÍSLANDI pentium pentium íj iru Helios Pentium IV AMD DURON 1000 MHz örgjön/i. 17" TATUNG margmiðlunar- skjár. 40 GB Ultra-DMA harður diskur. 256 MB vinnsluminni. 16 x DVD drif. 64 MB Geforce MX2 skjákort með TV out. 56 K faxmótald. Netkort. Win XP. 2 USB tengi. Stór kassi með miklum möguleikum. Tveggja ára ábyrgð. iru Intel P4 1,6 GHz örgjörvi Intel Pentium 4, 1,6 GHz örgjörvi. 14" XGATFT skjár. 20 GB Ultra-DMA harður diskur IBM. DVD Rom og geislaskrifari. 256 MB vinnsluminni. 8-32 MB skjákort „shared memory". 56 K faxmótald. Netkort 10/100. Infrarautttengi. Fire wire. USB tengi o.fl. Win XP. Allir sem kaupa tölvu í Griffli fram að páskum fá páskaegg nr. 7 frá Nóa Síríusi. ■ QA p-nhum Ij ■ ■ Helios Pentium IV Intel Pentium 4, 1,6 GHz örgjörvi. 17” TATUNG margmiðlunarskjár. 40 GB Ultra-DMA harður diskur. 256 MB vinnsluminni. Vandaður 24 x NEC geislaskrifari. 16 x DVD drif. 64 MB Geforce MX2 skjákort með TV out. 56 K faxmótald. Netkort. Windows XP. 2 USB tengi. Stór kassi með miklum möguleikum. Tveggja ára ábyrgð. Ath. Sýnd með flötum LCD skjá. iru Intel Cel 1000 MHz örgjörvi 128 MB minni. 20 GB harður diskur. 14" TFT skjár. DVD. Margir tengimöguleikar. Windows XP Home. \i \ 1 ■;1§ '* 1 \ V Skrifstofumarkaður Opið virka daga 10-18 Skeifunni 11d - Sími 533 1010 laugardaga 12-16 GRIFFILL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.