Fréttablaðið - 25.03.2002, Qupperneq 8
8
.,,.25..m,ar5 2002...MÁM»PfrftJUR
FRÉTTABLAÐIÐ Rfi
Flísar
útrýmingarsala!
Vegna flutnings Mílanó flisaverslunar, Ármúla 17a,
ætlum við að selja valdar tegundir á alveg ótrúlegu verði frá
699 kr. pr. fm. Fyrstir koma, fyrstir fá!
Mílanó flísaverslun, Ármúla 17a. sími 511-1660.
DDF -
bókhaldsþjónusta,
Hafnarfirði
Getum bætt við okkur viðskiptavinum,
einstaklingum og minni fyrirtækjum.
Bókhald, launaútreikningar, skattaskýrslur.
Upplýsingar í síma 555 6010, 895 0099
D D F
Vátryggingamiðiun
íbúðir á Spáni
Fasteignasalan K-SASA/enta de viviendes í
Torrevieja á Spáni hefur langa reynslu af sölu á
íbúðum til erlendra aðila. Aðstoðum við
fjármögnun og nauðsynleg leyfi.
Tölum íslensku. Hafið samband.
Sími og fax:34~965718824.
l\letfang:k-sas@neopro.com
Sími 533 1111
Fax 533 1115
Magnús Axelsson
löggiltur fasteignasali.
Einar Harðarson
sölustjóri.
Erum flutt í Kringluna 4-12 - stóri turn 9. hæð
VANTAfi EiGNíR
• Einbýlishús með sér íbúð.
• Einbýlishús með aðstöðu fyrir
nuddara á Fteykjavíkursvaeð-
inu.
• Einbýlishús, raðhús c.150 fm.
má þarfnast viðgerða.
RAÐ-PAR-HUS
• Raðhús, parhús í Árbæ,
v. 15-20 m.
• Einbýli, rað-, tvíbýli í Kópavogi.
4JA-HERB
• 4ra herbergja íbúð í Árbæ,
10-11 m.
• 4ra herbergja íbúð í hverfi
104 eða 108, 10-13 m.
GVegna mikillar eftirspurnar þá vantar að auki
allar tegundir eigna á skrá.
Komum og metum samdægurs án endurgjalds ef eignin er sett í sölu.
Mikið úrval eigna á skrá.
Höfum kaupendur og leigjendur að öllum tegundum af
fyrírtækjum, atvinnu og leiguhúsnæði.
• 3-4ra herbergja íbúð í Folda-
hverfi.
3JA-HERB
• 3ja herbergja íbúð í miðbæ
eða Vesturbæ.
• 3ja herbergja íbúð í voga-
hverfi.
• 3ja herbergja íbúö í Grafar-
vogk
2JA-HERB
• 2ja herbergja íbúð í 101 eða
105.
• 2ja herbergja íbúð á Reykja-
víkursvæðinu.
• Litla íbúð með sér inngangi
vegna hunds, helst í mið-
bænum (Snorrabraut).
Fyrirspurnir á Alþingi:
Skýrslur sjóslysa-
nefndar á netið
alpinci Skýrslur rannsóknar-
nefndar sjóslysa verða eftirleiðis
aðgengilegar á netinu á nýrri
heimasíðu nefndarinnar. Sturla
Böðvarsson, samgönguráðherra,
upplýsti í svari sínu við fyrir-
spurn Lúðvíks Bergvinssonar,
þingmanns Samfylkingar, að búið
væri að opna síðuna sem þó væri
enn í vinnslu og yrði opnuð form-
lega síðar. Slóðin er: www.rns.is.
Lúðvík gagnrýndi að ekki
hefðu enn verið birtar skýrslur
sjóslysanefndar fyrir árin 1998 til
2001 og spurði hvað liði útgáfu
þeirra. Samgönguráðherra sagði
að grundvallarbreytingar hefðu
orðið á störfum nefndarinnar með
nýjum lögum sem gildi tóku á
haustdögum árið 2000. Hann sagði
skýrsluna fyrir árið 1998 þegar
komna inn á heimasíðu nefndar-
innar og skýrslunnar fyrir árið
1999 væri að vænta fljótlega.
„Stefnt er að því að prentuð út-
gáfa ársins 1998 komi út fyrir
STURLA
BÖÐVARSSON
Samgönguráð-
herra upplýstí á
þingi í gær að ný
heimasíða sjó-
slysanefndar væri
í vinnslu og búið
væri að opna fyrir
aðgang að einni
skýrslu nefndar-
innar þar.
miðjan næsta mánuð og ársins ‘99
innan þriggja mánaða frá því.
Vinna við tvö seinni árin er í full-
um gangi og stefnt að því að
skýrslurnar verði komnar út ekki
síðar en næsta haust." Sturla
sagði nýtt vinnulag nefndarinnar
svo gera ráð fyrir að rannsóknir
verði birtar á vefnum jafn skjótt
og þeim lýkur. ■
Hálfur milljarður
í nýsköpun
KEA mun setja hálfan milljarð í nýsköpun í atvinnurekstri og menning-
arstarfsemi á félagasvæði sínu. Ætlunin að minnka eignarhlut í Kaldbaki.
KEA verður þátttakandi í menningarfélögum með Qárfestingu í huga.
AKUREYRI Kaupfélag Eyfirðinga,
samvinnufélag (KEA) mun ráð-
stafa rúmum hálfum milljarði
króna til nýsköpunar í atvinnu-
rekstri og í menningarstarfsemi á
félagssvæði sínu. Með formbreyt-
ingu, sem átti sér stað með stofnun
Kaldbaks um áramót og færslu
reksturs úr sjóðum samvinnufé-
lagsins, losnaði um lausafjármuni
sem ráðstafað verður til þessara
nýju verkefna.
Benedikt Sigurðarson, starfandi
stjórnarformaður KEA, segir að
hlutverk félagsins verði annars-
vegar að reyna að byggja upp nýja
atvinnustarfsemi og rekstur á fé-
lagssvæðinu en hinsvegar sé hlut-
—♦— verk félagsins að
sinna félagsmönn-
um þar sem fyrir-
tækið er hags-
munafélag.
„Við höfum ver-
ið að setja saman
skipulagsskrá sem
útfærir fjárfest-
ingastefnu félags-
ins. Þannig getum
við lýst fyrir sam-
hvernig við hyggj-
Hugsunin er
sú að við get-
um gert sem
mest úr þess-
um fjármun-
um og verð-
um sýnilegir á
félagssvæð-
inu.
—♦—
starfsaðilum
umst vinna að þátttöku í nýsköpun,
þ.e. atvinnurekstri og að einhverju
leyti í menningarstarfsemi á svæð-
inu.“ Benedikt segir yfirlýsta
stefnu félagsins vera að minnka
eignarhlut sinn í Kaldbaki, sem er
um 50%, í því trausti að það fái
samstarfsaðila til að fjárfesta á
svæðinu. Aðrir hluthafar eru Sam-
herji og Lífeyrissjóður Norður-
lands.
„KEA verður aldrei nema
minnihlutaaðili í nýjum fjárfest-
ingum og setjum við þannig skil-
yrði að við séum að vinna í sam-
starfi við aðra. Hugsunin er sú að
við getum gert sem mest úr þess-
um fjármunum og verðum sýnileg-
ir á félagssvæðinu."
Samvinnufélagið hefur í langan
tíma rekið lítinn menningarsjóð
sem hefur veitt styrki til félaga og
einstaklinga. Benedikt segir að
hugmyndin sé að efla slíka starf-
semi þannig að menn hugsi sér ekki
eingöngu styrkjaform heldur geti
KEA orðið þátttakandi í menning-
arfélögum með fjárfestingu í huga.
„í þeim tillögum sem unnið er
með er sett ákveðið hámark á það
hversu stórum hluta af fjármunum
félagsins verði ráðstafað með þeim
hætti. Hámarkið verður um 10% af
eigin fé.“
kristjan@frettabladid.is
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra:
Vill skoða kosti og galla evrunnar
alþingi Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
telur koma til greina að ísland
gangi í Evrópusambandið og
taki upp evru í stað krónu. Hún
lýsti þessari skoðun í umræðum
á Alþingi í gær og sagði nauð-
synlegt að útiloka ekki neina
kosti fyrirfram.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, gerði
pistil á heimasíðu ráðherra
(www.valgerdur.is) að umtals-
efni og taldi hann fallinn til að
grafa undan verðgildi krónunn-
ar. í pistlinum veltir Valgerður
fyrir sér kostum þess og göllum
að taka upp evru í stað krónu
hér á landi.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, tók
þó undir þau orð í pistli Valgerð-
ar sem lúta að meintu vaxtaokri
banka hér á landi. Þá taldi Össur
VALGERÐUR sverrisdóttir
Valgerður sagðist í pistlinum á heima-
síðu sinni ekki tala um mun evru og
krónu af mikilli tilfinningasemi. Hún
væri á praktískan hátt að velta fyrir sér
hvernig hagsmunum þjóðarinnar væri
best borgið og hvernig gera mætti iðn-
aðinn samkeppnisfæran.
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, jafnvel að
pistillinn kynni að hafa átt þátt
sinn í því að bankar lækkuðu
vexti í gær.
Valgerður vísaði gagnrýni á
skrif hennar á heimasíðunni á
bug. Hún sagðist þannig gerð
að hún segði hug sinn allan og
væri í raun ekki að gera annað
en fjalla um staðreyndir sem
sneru að stórum hagkerfum og
litlum. ■