Fréttablaðið - 25.03.2002, Page 11
MÁNUDAGUR 25. mars 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Véfréttin í Delfí var í vímu:
Jarðsprungur fundn
ar undir hofinu
FORNLEiFflR Síðasta ráðgáta véfrétt-
arinnar í Delfí virðist vera leyst.
Fundist hafa jarðsprungur sem
skerast beint undir hofi hennar. Þar
með má telja líklegt að hún hafi
andað að sér gufum úr jörðinni og
komist í mátulega annarlegt ástand
til að geta mælt þau torræðu vís-
dómsorð sem hún er þekkt fyrir.
Forn-Grikkir báru öldum saman
mikla virðingu fyrir véfréttinni í
Delfí. í gömlum bókum stóð að hún
hafi andað að sér gufum sem gerðu
hana hálfruglaða. Talið var að guf-
urnar hafi komið úr jörðunni, þótt
óljóst væri hvers konar gufur það
væru.
Fyrir rúmri öld töldu franskir
jarðfræðingar sig hins vegar hafa
fullsannað að engar jarðsprungur
væru í Delfí. Því gætu engar tor-
kennilegar gufur komið þar úr
jörðu. Þetta hafa svo verið viðtekin
sannindi fram á síðustu vikur.
En hollenskur jarðfræðingur,
Jelle Zeilinga de Boer, hefur nú
skýrt frá því, að hann hafi fyrir
tveimur áratugum fundið jarð-
sprungu í Delfí. Fyrir skömmu
fannst svo önnur jarðsprunga þar.
Og það sem meira er, þær skerast
beint undir forna hofinu í Delfí.
HOF APOLLÓS f DELFf
Þarna sat véfrétt Appollós, sem var guð
spádóma, og útdeildi visku sinni eftir að
hafa andað að sér torkennilegum gufum
og nartað í lárvíðarlauf.
f ljósi þessarar nýju vitneskju er
talið líklegt að véfréttin hafi andað
að sér etýleni, litlausri loftegund
sem meðal annars hefur verið notuð
í svæfingarlyf.
Frá þessu var sagt í dagblaðinu
International Herald Tribune í síð-
ustu viku. Einnig verður fjallað um
málið í aprílhefti vísindatímaritsins
Clinical Toxicology. ■
Málefni Palestínu og ísraels:
Alþingi beiti sér fyrir friði
alþinci Þingflokkur Samfylkingar-
innar lagði fyrir helgi fram þings-
ályktunartillögu um sjálfstæði
Palestínu þar sem ríkisstjórninni
er falið að beita sér á alþjóðavett-
vangi fyrir brottflutningi ísraels-
hers frá hernumdum svæðum í
Palestínu og að sent verði alþjóð-
legt gæslu- og eftirlitslið á vett-
vang.
„Það er ljóst að hernáminu
verður skilyrðislaust að ljúka, án
þess er ekki hægt að semja um
neinn frið,“ sagði Þórunn Svein-
bjarnardóttir, flutningsmaður til-
lögunnar.
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra, sagði afstöðu þjóðarinn-
ar til málefna ísraels og Palestínu
skýra á alþjóðavettvangi. „Við höf-
um fordæmt ofbeldisverk beggja
aðila og krafist þess að deiluaðilar
semji vopnahlé og hefji friðarvið-
ræður sem leiði til stofnunar sjálf-
stæðs ríkis Palestínu um leið og ör-
yggi ísrael verði tryggt innan al-
þjóðlegra viðurkenndra
landamæra." Halldór taldi að nú
væri vonarglæta í Mið-Austur-
löndum fyrir atbeina Bandaríkja-
manna. „Við megum ekki gleyma
því að Vesturbakkinn, Gaza og
Austur-Jerúsalem eru hernumin af
ísrael og ísraelsmönnum ber að
skila þessum svæðum aftur sam-
kvæmt fjölmörgum ályktunum ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna,"
sagði hann og áréttaði að lausn
mála fyrir botni Miðjarðarhafs
gæti aldrei orðið hernaðarleg held-
ur pólitísk. „Lausnin liggur í að
tryggja landamæri þessara ríkja.
Hún liggur í að hætta öllu ofbeldi.
Hún liggur í að ísraelsmenn skili
hernumdum svæðum og þeir sem
hafa verið að byggja þau á þeirra
vegum snúi tafarlaust til annarra
heimkynna," sagði hann. ■
VIÐ VARÐSTÖÐ ÍSRAELA A CAZA
Mikil umræða varð á Alþingi um málefni
Palestínu sl. föstudag og tóku fjölmargir
þingmenn til máls. Utanríkisráðherra sagði
Ijóst hvað þyrfti að gerast til að tryggja frið
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Matarstell
Somerset og Emily
50% afsláttur
ath. framleiðslu hefur verið hætt HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Flott fataskinn
fyrir flestar
hvítlist saumavé|ar
Y ' LEÐURVÖRUDEILD
Krókhálsi 3 • 110 Reykjavlk • Slmi 569-1900 • Fax 569-1901 • hvitlist@hvitlist.is
30 min. Hleðslurakvél. 3 hnifar og bartskeri.
Fallega honnuösamstæoa
Viðarklæddir hátalarar. 2x20 W. Innbyggð vekjaraklukka
Philips 28" sjönuarp ^ 54.995 hr.
28" Steríó sjónvarp. 10 siðna textavarpsminm
Fullkomin fjarstýring. Plug & Play
Philips DUD-spilari 29.995 kr
DVD-spilari með Smart myndstýringu og frábæru valmyndakerfi
Spilar öll kerfi.
i ^ Philips rðkuél 8.995 kr
Philips heyrnartól tiþ Uerð frá 2.495 Kr
Philips harblásarari ÍJÖ 3.695 Kr