Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 22

Fréttablaðið - 25.03.2002, Side 22
SAGA DAGSINS 6. NIAR'S Tungumálið er stóra SAGA DAGSINS 6. NIAR'S Samþykkt var að friðlýsa Vatnsf jörð í Barðastrandar- sýslu árið 1975. Friðlandið er um eitt hundrað ferkílómetrar. Hrafna-Flóki nam land í Vatns- firði „og nefndi landið ísland" eins og segir í Landnámu FegurðarsamkeppninUngfrú ís- land.is var haldin í Perlunni í fyrsta sinn árið 2000. Eva Dögg Melsted bar sigur úr býtum. Hin heimsfræga fyrirsæta Claudia Schiffer var í dómnefnd. Arið 1957 var Rómarsamning- urinn undirritaður. Þar með var Efnahagsbandalag Evrópu stofnað, sem síðar breyttist í Evr- ópusambandið. Rómarsamningur- inn er ennþá grunnurinn að lög- gjöf Evrópusambandsins Aron er fyrsti maðurinn af asískum uppruna sem tekur sæti á framboðslista hérlendis. Hann er frá Tælandi, 31 árs gam- all, og hefur verið búsettur hér síðan 1992. „Mig langaði að prófa að búa í öðru landi,“ segir Aron um ástæðu þess að hann kom hingað. Það var líka ástin sem dró hann því hann hitti íslenska stúlku í heimalandi sínu og kom hingað til að hefja búskap með henni. Þau eiga saman tvö börn, 10 og 7 ára en búa ekki lengur saman. „Það var mjög erfitt að búa her fyrstu árin,“ segir Aron. „Ég skildi ekki tungumálið, borðaði ekki sama matinn og skildi ekki reglur samfélagsins en það er ekkert erfitt núna.“ Aron segir ís- FRÉTTABLAÐIÐ lenskuna vera mjög erfiða fyrir fólk af asískum uppruna þannig að samskiptaörðugleikarnir geta orðið býsna miklir. Þetta er ein- mitt ástæða þess að Aron vill nú láta til sín taka í stjórnmálum. „Mig langar að hjálpa fólki,“ segir hann. „Ég á nokkur hundruð vini af tælenskum uppruna sem þekk- ja ekki lögin og reglurnar í land- inu. Þetta fólk á heilmikinn rétt en þekkir hann ekki.“ Aron segir tungumálaörðugleikana vera slíka að sumar tælenskar konur geti ekki einu sinni talað við eigin- menn sína nema með einhvers konar táknmáli. „Þetta fólk kemur úr gerólíku umhverfi, lögum og reglum og það tekur mörg ár að skilja íslenskt samfélag. Það tók málið _____________Persónan Songmuang Wongwan eða Aron skipar 17. sæti F-lista frjálslyndra og óháðra til borg- arstjórnarkosninganna í Reykjavík. mig nærri 10 ár og ég skil samt ekki allt.“ Aron hefur starfáð sem mat- reiðslumaður á Landspítalanum í þrjú ár. „Ég elda handa þúsund manns,“ segir Aron og hlær. „Og fleiri stundum. Það er rosalega gaman." ■ ARON Aron vinnur í eldhúsi Landspítalans og líkar mjög vel. Hann segir samstarfið við íslendingana ganga vel enda ríkir gagn- kvæmur skilningur. „Fólk er bara fólk," segir Aron. 25. mars 2002 MÁNUDAGUR TÍMAMÓT JARÐARFARIR FÓLK í FRÉTTUM ær raddir sem segja að Fram- sóknarflokkurinn sé að tala sig frá Sjálfstæðisflokknum ger- ast háværari. Halldór Ásgríms- son hefur lagt á það áherslu að hann sé utanríkisráðherra. Sem kunnugt er hafa hann og Davíð Oddsson talað hvor í sína áttina í Evrópumálum. Það er ekki bara Halldór sem hefur tjáð sig á ann- an hátt en Sjálfstæðismenn. Val- gerður Sverrisdóttir hikar hvergi og leggur jafnvel meiri áherslu á sérstöðu Framsóknarmanna inn- an ríkisstjórnarinnar um Evrópu- málin. Þeir ráðherrar Sjálfstæð- isflokksíns sem hafa tjáð sig um þessi mál keppast hins vegar við að koma í veg fyrir umræður. Nýjasta tilfellið er Árni M. Mathiesen. Þessi meiningamunur er talinn merki um að flokkarnir muni ekki vinna saman á næsa kjörtímabili. 13.30 Brynhildur Björnsdóttir, Norður- götu 34, Akureyri, verður jarð- sungin frá Akureyrarkirkju í dag. 15. 00 Svanhildur Vigfúsdóttir, Hæða- garði 56, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju í dag. 15. OO Guðvarður Hákonarson, Mið- hólti 11, Mosfellsbæ, verður jarð- sunginn frá Háteigskirkju í dag. AFMÆLI_________________________________ Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri, er 57 ára I dag. Sigurður Karlsson, leikari, er 56 ára í dag. Leó Löve, lögfræðingur, er 54 ára í dag. Þórir Jónsson, fyrrum knattspynumaður með FH, er 50 ára I dag. POKTOR______________________________ Einar Jón Ásbjörnsson varði doktorsrit- gerð í verkfræði við Háskólann í IMoth- inghám. Hún fjallar um dreifingu á kornasmækkunarefni í bráðnuðu áli. María Ólafsdóttir, sérfræðingur í heim- ilislækningum, varði doktorsritgerð sína við Linköpings Universitet í Svfþjóð 31. maí sl. ANPLÁT______________________________ ísleif Ingibjörg Jónsdóttir, Bjarkarlandi Vestur- Landeyjum lést á Lundi á Hellu þann 20. mars. Hulda Jónsdóttir Dvalarheimilinu Höfða Akrananesi lést 20. mars. Margrét ÞórðardóttirHrafnistu Reykja- vfk, lést 20. mars. Þorbjörg Jónsdóttir, Grandavegi 47, Reykjavík, lést 20. mars. Heimilisdagar gólfefni 10-40% afsláttur málning hreinlætistæki mikið úrval af gæða parketi LAMELLA mikið úrval Parket Verð frá 1.690 kr. nf HÚSASMIDJAN FÓR SEINT I LAGANÁM Áslaug Þórarinsdóttir sér ekki eftir að hafa farið í nám liðlega fertug. Nú telur hún sig komna þangað sem hún vill vera. Mannlífið með öðrum brag Aslaug Þórarinsdóttir lögfræðingur er nýráðin sýslumaður Strandasýslu. Hún þekkir til á Hólmavík og er full eftirvæntingar að taka við skemmtilegu og íjölbreyttu starfi. stöðuveiting Áslaug Þórarins- dóttir, lögfræðingur í dóms- málaráðuneytinu, hefur nýverið tekið við embætti sýslumanns á Hólmavík af Bjarna Stefáns- syni. „Þetta starf leggst ákaf- lega vel í mig og ég hlakka til að takast á við það.“ segir Áslaug sem er um þessar mundir að setja sig inn í starfið. Hún kveðst vera mjög ánægð með að hafa fengið þetta embætti enda verið því kunnug. „Ég leysti af hér á Hólmavík fyrir nokkrum árum og var þá hér um þiggja mánaða skeið. Ég þekki vel að- stæður og veit út í hvað ég er að fara.“ Áslaug segist hafa leyst af á Neskaupstað eftir að hafa verið á Hólmavík og verið þar í rúmt ár. „Eftir að hafa kynnst því að búa á iandsbyggðinni vaknaði áhugi minn á að starfa þar. Það má segja að ekki hafi verið aftur snúið. Ég var algjört borgarbarn og þekkti ekki ann- að en mölina áður en ég fór hingað í fyrsta sinn. Ég varð sannarlega ekki fyrir vonbrigð- um því hér er yndislegt að vera.“ Áslaug segir mannlífið með öðrum brag en hún á að venjast frá Reykjavík. „Fólk hefur tekið mér afbragðs vel og ég horfi björtum augum til framtíðar- innar hérna. Ég er ein og á hvorki mann né börn en þrátt fyrir það leiddist mér síður en svo þann tíma sem ég var hér og í Neskaupstað." Hún segist hafa verið gift kona úti á vinnumark- aðinum þegar hún ákvað liðlega þrítug að aldri að hefja nám í lagadeildinni í háskólanum. „Það voru mikil viðbrigði en ég sé ekki eftir því og eftir laga- próf fór ég til starfa í dóms- málaráðuneytinu og í gegnum starf mitt þar bauðst mér að leysa af úti á landi." Faðir Áslaugar er látinn fyrir mörgum árum en hún á full- orðna móður sem býr í Reykja- vík. „Það er það eina sem skygg- ir á að móðir mín skuli vera fjarri. Ég býst þó við að hún geti komið og dvalið hjá mér þegar hún vill. Við höfðum þann hátt- inn á þegar ég var í Neskaup- stað og kunni hún afskaplega vel við sig. Ég á ekki von á öðru en henni verði vel tekið hérna líka. Á landsbyggðinni finnur maður betur fyrir nærveru manna en í Reykjavík. Það eru góðir möguleikar á að taka þátt í félagslífi hér á staðnum. Ég var til að mynda í kirkjukórnum og Rotaryklúbbnum á Neskaup- stað.“ Áslaug segir starf sýslu- manns á Hólmavík vera mjög fjölbreytt og enginn dagur eins. „Hér er ekki fulltrúi sýslu- manns og er ég því eini lögfræð- ingurinn og þarf að ganga í öll mál. Starfsviðið er breitt og óvissan um hvað dagurinn kunni að bera í skauti sér gerir starfið skemmtilegt og fjölbreytt. bergljot@frettabladid.is Guðjón örn Jóhannsson, Hátúni 10, Reykjavík, lést 20. mars Guðmundur Bjarnason, Laufskógum 18, Hveragerði, lést 5. mars. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Margrét Sigurðadóttir, Hrafnistu, Reykjavík, áður til heimilis í Hvassaleiti 58, lést 21. mars. jnús Torfi Sighvatsson frá Ási í Vest- Kristín Jónsdóttir, Dalbraut 27, Reykja- vík, lést 22. mars. Aðalbjörn Aðalbjörnsson, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis á Skólavörðustíg 24A, Reykjavík, lést 21. mars. Ingiríður Guðmundsdóttir, fyrrum hús- vörður í Menntaskólanum í Reykjavík, er látin.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.