Fréttablaðið - 02.04.2002, Qupperneq 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ,
2. apríl 2002 ÞRIÐJUPACUR
Nær 400 björgunarsveit-
armenn við störf:
Mikið um
útköll yfir
páskcinna
samgöncur Um 390 björgunar-
sveitarmenn komu að aðgerðum
þessa páska. í samantekt Slysa-
varnarfélags Landsbjargar hafa
verið notaðir sex snjóbílar, 40
vélsleðar og um 48 mikið breyttir
björgunarsveitarjeppar.
Fyrsta aðgerðin var seint á
föstudaginn langa þegar jeppi féll
niður í gil við Þursaborgir. Tveir
menn slösuðust, hvorugur alvar-
lega. Farið var í nokkur útköll
vegna leitar að fólki. ■
Steinullarverksmiðjan í Skagafirði seld:
Helmingur söluverðs í samgöngubætur
skagafjörður Viðskiptaráðherra
mun á næstu dögum leggja fram
ályktun um sölu á 30.1% hlut rík-
isins í Steinullarverksmiðjunni í
Skagafirði. í allt verða seld 82%
af hlutafé verksmiðjunnar en
Skagafjörður og Paroc Group í
Finnlandi eiga tæpan helming í
henni. Kaupendur eru Kaupfélag
Skagfirðinga, Húsasmiðjan og
Byko. Áætlað söluverð á hlut rík-
isins er um 200 milljónir. Að sögn
Kristjáns Skarphéðinssonar,
skrifstofustjóri í Iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytinu, er samþykkt
tilboðsins bundin þeim skilyrðum
að Alþingi og sveitastjórn Skaga-
fjarðar samþykki söluna, sem og
núverandi eigendur. Samkeppnis-
STEIN ULL ARVERKSMIÐJAN
Hugmyndir eru uppi um sölu Steinullar-
verksmiðjunnar. Wlyndin er fengin á Skaga-
fjörður.net.
stofnun mun einnig rannsaka
hvaða áhrif sala hefur. Tillagan
gerir ráð fyrir því að helmingur
söluverðsins, um 110 milljónir,
renni til atvinnuuppbyggingar og
samgöngubóta á svæðinu. Þá er
aðallega átt við veg á milli Sauðár-
króks og Skagastrandar, sem
styttir vegalengdina til Reykja-
víkur um 30 kílómetra, en slíkar
ráðstafanir þurfa einnig sam-
þykkt Alþingis.
Kaupendur fyrirtækisins hafa
hug á að stofna nýtt fyrirtæki í
kringum Steinullarverksmiðjuna,
þar sem hvert þeirra mun fara
með fjórðung eignarhalds, starfs-
menn 15% og nýir aðilar um 10%.
Verði tillagan samþykkt má bú-
ast við að samningur verði undir-
ritaður í lok næsta mánaðar. ■
Farfuglarnir komnir:
Lóankom
fyrir páska
dýralíf „Miðað við síðustu ár, er
þetta nokkuð í samræmi við komu
þeirra þá,“ segir Yann Kolbeins-
son líffræði nemi. Hann segir að
nú séu margir farfuglanna komn-
ir þ.á.m. Sílamávurinn, Hettu-
mávurinn, Heiðlóatjaldurinn, grá-
gæsirnar og ýmsar andategundir.
„Lóan kom fyrst 24.mars. Allt að
30 stykki sem kom á austurland.
Yfirleitt koma bara 1 - 2 stykki
um þetta leitið.“
Yann segir að hagstæðir vindar
séu meginástæða þess að fuglarn-
ir komi hingað fyrr en þeir gerðu
fyrir nokkrum árum. ■
Fj árfestingarfélagið
Atgeir:
Skoða starfs-
grundvöll
félagsins
endurskoðun Ný stjórn Fjárfest-
ingarfélagsins Atgeirs er að skoða
hver framtíð þess verður. Félagið
var upphaflega stofnað af sveitar-
félögum á Suðurlandi, Byggða-
stofnun og Atvinnuþróunarsjóði
Suðurlands árið 1996 til að kaupa
fatagerðina Max og flytja á Hellu.
Rekstri hennar var hætt nokkrum
árum síðar. Félaginu var fljótlega
breytt í atvinnuþróunarfélag og
fjárfesti víðar á fyrstu árunum en
starfsemi félagsins hefur að
mestu legið niðri frá 1999.
Einar Pálsson, nýkjörinn
stjórnarformaður, segir að sam-
kvæmt síðasta ársreikningi sé
eiginfjárstaða félagsins jákvæð
um tólf milljónir króna. Nýja
stjórnin, sem skipuð var á fram-
haldsaðalfundi í síðustu viku, mun
nú skoða hvernig rétt sé að haga
starfsemi félagsins í framtíðinni.
„Það er ljóst að þetta félag, líkt
og bændur um allt land, er að tapa
fé út af gjaldþroti Goða,“ segir
Einar. Fjárfest var í Kjötvinnsl-
unni Höfn. Sú vinnsla gekk ekki
upp og féð sem sett var í fyrir-
tækið tapaðist. ■
Þriðjungur efstu manna
úr Vesturbænum
Vesturbærinn og 101 Reykjavík virðast gróðrarstía borgarfulltrúa ef
mið er tekið af frambjóðendum í efstu sætum á framboðslistum fyrir
borgarstjórnarkosningar. Kjalarnesið á fulltrúa meðal efstu manna en
Grafarholtið ekki.
framboð Vesturbær Reykjavíkur
á hug og hjörtu frambjóðenda við
komandi borgarstjórnarkosning-
ar ef mið er tekið af búsetu efstu
manna á framboðslistunum þrem-
ur sem þegar eru komnir fram.
Þriðjungur þeirra sem skipa tíu
efstu sætin á listum Sjálfstæðis-
flokks og Reykjavíkurlista og
fjögur efstu sætin á lista Frjáls-
lyndra og óháðra hafa valið sér
heimili vestan læks.
Til marks um yfirburði vestur-
bæjarins á næstu hverfi sést að
bæði Inga Jóna Þórðardóttir og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sem
skipa 8. sætið hjá stóru framboð-
unum koma úr vesturbænum. Það
gerir reyndar Árni Þór Sigurðs-
son, efsti maður Reykjavíkurlist-
ans einnig. Björn Bjarnason er
hins vegar eini frambjóðandinn
úr Hlíðunum. Ef litið er til ann-
arra hverfa borgarinnar kemur í
ljós að næst vesturbænum í vin-
sældum koma Breiðholtið og smá-
íbúðahverfi með þrjá frambjóð-
mi
YRIRTÆKJASALA
SLANDS UK?g&:L
rYHURTÆKI TIL SOLU
LÍTIÐ SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
Gissur V. Kristjánsson hdl. og
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
SÖLUSTJÓRI
GUNNAR JÓN YNGVASON
VINSÆLL POBB I MIÐBÆNUM á tveim
hæðum, góður líflegur staður með góða
veltu.
GRILL OG SJQPPA QPIÐ 8-18. Sæti fyrir
20 manns, góður rótgróin staður, Verð 2,9 m
BLÓMA OG GJAFAVÖRUV. með eigin litla
framleiðslu, góður þægilegur rekstur
MATSALA opið 7-17 aðeins virkadaga ,
sæti fyrir 50 manns, bakkamatur til fyrir-
tækja.
SPQRTBAR - KAFFIHÚS - VEITINGAST
velrekinn staður með fina afkomu í úthverfi
LÆRA VERÐ VEISLUÞ/FRAML.ELDH ,
mikill og góður búnaður, verð kr 3,5 m
BILALYFTUR OG STILLINGAVÉLAR inn-
flutningur og sala, mjög þekkt merki
HEILSUSTUDIO j GÓÐUM REKSTRI mikill
og fjölbreyttur búnaður, fínt að gera
FÓNDURVERSLUN OG HEILDSALA fyrir
skapandi aðila, vaxandi rekstur.
SNYRTISTOFA í MIÐBÆNUM glæsilegt
húsnæði, góður ört vaxandi rekstur.
SJÁLFSALAR AUKA TEKJUR góðir tekju-
möguleikar, verð 1,5 millj, ath öll skipti
BARNAFATAVERSLUN í ÚTHVERFI eigin
innflutnigur, traustur og arðbær rekstur
MJÖG ÞEKKT KVENNFATAVERSLUN ,
ekki í verslunarkjarna, mjög góð afkoma.
BÍLAUMBOÐ í FULLUM REKSTRI ásamt
varahlutasölu og þjónustuverkstæði
HÚSGAGNAVERSLUN sérhæfð með gegn-
heil glæsileg húsgögn , miklir möguleikar
FEGRUNAR OG NUDDSTOFA með góð
tæki í hentugu húsnæði á góum stað Verð
2,5
LYFTARAÞJÓNUSTA innflutningur, sala, og
viðgerðir. eitt elsta fyrirtækið í sinni grein.
SÓLBAÐSSTOFA í Kópavogi, 7bekkir, góð
aðstaða, góður rekstur sem skilar fínum
gróða.
SÉRVERSLUN RITFÖNG. LEIKFÖNG
gjafavöru, bækur og fl, í verslunarkjarna.
DEKKJAVERKSTÆÐI. INNFLUTNINGUR
og sala ádekkjum, felgum, aukahlutum og fl
HÓTEL Á AUSTURLANDI 7 herb, bar, veit-
ingasalur, verð 15 millj, athuga öll skipti,
ÚTIVISTARVERSL OG HEILDSALA mjög
þekkt, mjög góð velta , góð kjör
BLÓMABÚÐ M/ EIGIN FRAMLEIÐSLU fal-
leg verslun og rekstur með mikla möguleika
VIDEOSJOPPA MIKILL HAGNAÐUR velta
70-80 millj, nettó hagnaður 6-9 millj
BYSSUHEILDSALA , ÞEKKT MERKI
ásamt sjónaukum.skotum.hreinsivörum, og
fl
ÍBÚÐARHÓTEL 18 ÍBÚÐIR í Reykjavík
samtals um 1.100 fm , vel búnar íbúðir, vax-
andi rekstur verð 150 millj
VINNULYFTA JLG 660 SJ árg 1996 gefur
góðar leigutekjur, vélin er mikið endurnýjuð.
HEILDSALA hárskraut, skrartgripir, undirföt,
gjafavara, töskur, snyrtivörur og fl
MIKIL SALA, VANTAR ALLAR GERDIR
FYRIRTÆKJA Á SKRÁ
ATVINNUHÚSNÆDI
BORGARTÚN til leigu 130 fm innkbil
SMIÐSHÖFÐI 276FM iðanarhúsnæði
SKÚTUVOGUR 350 fm laust
SKEMMUVEGUR 2 bil samtals 240 fm
ENGJATEIGUR 61+ sameign
LÆKJAGATA 300 fm í útleigu 10 ára
DALVEGUR 280 fm lager og skrifstofa
BÆJARFLÖT 1437 fm iðnaðrhúsnæði
HYRJARHÖFÐI ca 600 fm + 150 fm millil
STÓRHÖFÐI 80 fm innkeyrslubil
SKÚTUVOGUR leiga 200 fm innkeyslubil
ESJUMELAR 92 fm + milliloft
STÓRHÖFÐI nýbygging , skrifstofa, verslun
Fjölbreytt ATVINNUHÚSNÆÐI Á SKRÁ
smsfcass
REYKJAVl'K
Af 24 frambjóðendum í efstu sætum framboðanna sem hafa kynnt lista sína eru átta bú-
settir í vesturbænum. Enginn annar bæjarhluti kemst nálægt hvað frambjóðendur varðar.
á flesta frambjóðendur. Þaðan
koma sex af þeim efstu, með öðr-
endur hvort um sig. Nær öll hver-
fi borgarinnar eiga sinn fulltrúa
ofarlega á framboðslistum. Eina
undantekning er Grafarholtið.
Miðborgin hefur verið mikið í
umræðunni um skipulagsmál. Það
þarf ekki að koma á óvart í ljósi
þess að næsta nágrenni, 101
Reykjavík, er það póstnúmera-
svæði borgarinnar sem býður upp
BÚSETA FRAMBJÓÐENDA EFTIR PÓSTNÚMERUM
101
103 Enginn
104
105 Þrlr
107
108 Þrfr
109 Enginn
110
111 Þrír
112
113
116 Einn
um orðum einn af hverjum fjór-
um þeirra sem skipa efstu sæti
listanna. Næst fjölmennast er
póstnúmer 107 með fjóra fram-
bjóðendur. Þrír frambjóðendur
eru búsettir í póstnúmerum 108
og 111 en færri í öðrum. Engir
frambjóðendur koma úr póstnúm-
erum 103,109 og 113.
í næstu þingkosningum verður
í fyrsta skipti kosið eftir nýrri
kjördæmaskipan þar sem Reykja-
vík skiptist í tvö kjördæmi,
Reykjavík norður og Reykjavík
suður. Frambjóðendur í efstu sæt-
um skiptast jafnt á milli þessara
tveggja kjördæma. Helgast sú
jafna skipting að nokkru af þvi að
allir efstu frambjóðendur Frjáls-
lyndra og óháðra koma úr suður-
hluta borgarinnar.
brynjolfur@frettabladid.is
Stofnun Umhverfis-
stofnunar:
Umbylting
á stjóm um-
hverfismála
stjórnmál Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstri-grænna, gagn-
rýndi Siv Friðleifsdóttui', um-
hverfisráðherra, harkalega á Al-
þingi vegna áforma Sivjar um að
sameina fimm
umhverfis-
stofnanir í eina
undir nafni
Umhverfis-
stofnunar. Kol-
brún sagðist
tortryggja ráð-
herra varðandi
öll þau mál sem
hún legði fi’am
og kallaði nýja
vídd í umhverf-
ismálum.
„Það lítur út
fyrir að hér sjá-
ist í hornið á
risastórum
áformum sem
umbylta stjórn-
málaflokksins," sagði Kol-
„Þá tel ég þingmenn, starfs-
menn viðkomandi stofnana og
þjóðina eiga rétt á að fá að vita
meira um það sem býr hér að
baki.“
Umhverfisráðherra sagði að við
sameiningu Hollustuverndar, Nátt-
úruverndar, Dýraverndarráðs,
Hreindýi’aráðs og Veiðistjóraemb-
ættisins yrði til ein öflug stofnun.
„Við teljum að við náum meiri ár-
angri þannig fyrir umhverfismálin
til frambúðar heldur en með því að
vera með margar veikburða."
Stjórnsýslan yrði einfölduð og efld
auk þess sem skattpeningar nýtt-
ust betur. ■
FRAMBOÐ
SIV FRIOLEIFS-
DÓTTIR
Tími kominn á end-
urskoðun uppbygg-
ingar stofnana um-
hverfisráðuneytisins.
kerfi
brún.
Baldur Kristjánsson, sóknar-
prestur í Þorlákshöfn, leiðir
lista Framsóknarmanna í Ölfusi
við komandi kosningar. Hann tek-
ur við efsta sætinu af Sigurði
Þráinssyni, bæjarfulltrúa flokks-
ins, sem leiddi listann fyrir fjór-
um árum en gefur ekki kost á sér
nú. Páll Stefánsson dýralæknir
skipar annað sæti listans, Val-
gerður Guðmundsdóttir skrif-
stofustjóri það þriðja og Ásgeir
Ingvi Jónsson verkstjóri það
fjórða.
Deilt um ESB-aðild á þingi:
Upptaka evru efnahagsleg nauðsyn
Skoðaðu heimasíðuna www.fyrirtækjasala.is
esb Formenn Samfylkingar og
Vinstri-grænna tókust á um aðild
að Evrópusamstarfinu á Alþingi í
gær þegar skýrsla utanríkisráð-
herra um utanríkismál var til um-
ræðu.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingar, varði ræðu
sinni í þörfina á aðild og sagði
þrennt skipta mestu máli. Aðild
yrði til þess að ísland endur-
heimti hluta fullveldisins sem
glataðist með þátttökunni í EES-
samningnum. Það væri orðin
efnahagsleg nauðsyn að taka upp
evruna sem skilaði vaxtalækkun
og kaupmáttaraukningu. Þriðja
atriðið sneri að sjávarútvegi sem
væri alls ekki sú hindrun í vegi
aðildar sem andstæðingar vildu
meina.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-grænna, andmælti
orðum Össurar um og sagði
reynsluna sýna að ísland fengi
hvorki undanþágu né breytingu á
sjávarútvegsstefnu Evrópusam-
bandsins. Hann fann einnig að
orðum Össurar að Samfylkingin
ein hefði sett ESB-aðild í ákvarð-
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON
Sagði aðild að
ESB og upptöku
evru skila al-
menningi mikl-
um hagsbótum.
anatökuferli innan flokksins.
Þetta hefðu Vinstri-grænir gert
veturinn 1998 til 1999 og komist
að niðurstöðu þó Samfylkingin
ætti það enn eftir. ■