Fréttablaðið - 02.04.2002, Side 16
HVERJU MÆLIR ÞU MEÐ?
Færeysk tónlist
„Ég mæli með færeyskri tónlist þessa dag-
ana. Þá sérstaklega hljómsveitinni 200%,
fyrstu færeysku pönksveitinni, og söngkon-
unni Eivör Palsdottir. Þetta er 18 eða 19 ára
gömul stelpa og eín sú besta sem ég hef
heyrt í lengi. Hún nær Björk, Fitzgerald og
öllum þeim bestu."
Kristinn Sæmundsson, Hljómaiind.
Broadway:
Liam berar
bringuna
leiklist írski leikarinn Liam Neeson
er að gera allt vitlaust á Broadway
þessa dagana. Hann leikur aðalhlut-
verkið í leikritinu I deiglunni eftir
höfundinn Arthur Miller. Nesson
hefur fengið
feiknagóða dóma
gagnrýnenda fyrir
frammistöðu sína.
Hingað til hefur
verið uppselt á
allar sýningar. En
það er ekki einung-
is tilfinningarík
frammistaða
Neesons sem hefur
verið að vekja upp
öll þessi miklu við-
brögð. Hann berar nefnilega bringu
sína á einum stað í leikritinu við
mikla hrifningu kvenfólksins. Jafn-
vel þó að atriðið taki ekki nema 30
sekúndur þykir þetta einn hápunkt-
ur kvöldsins.
Af leikaranum er það annars að
frétta að hann lék síðast í kvik-
myndinni K:19 The Widowmaker á
móti Ingvari E. Sigurðarsyni.
Myndin verður frumsýnd í Banda-
ríkjunum 19. júlí. Næsta kvikmynd
á dagskrá hjá honum er Exorcist
4:1. Sú gerist á undan gömlu
Exorcist-myndinni. Neeson leikur
sömu persónu og Max von Sydow
gerði, föður Lankester Merrin.
Hann er staddur í Afríku og hittir
sama djöful og í Exorcist í fyrsta
skipti. ■
LIAM NEESON
Hrífur kvenfólkið
á Broadway með
bringuhárunum.
16
FRETTABLAÐIÐ
2. apríl 2002 ÞRIÐJUPACUR
Útgáfa í írak:
Saddam
skrifar bækur
bækur Tvær bækur eru um það bil
að koma út í írak. Dagblöð í
Bagdad hafa verið að gefa í skyn
að þær séu ritaðar af leiðtoga
þjóðarinnar, Saddam Hussein.
Talið er að Hussein hafi þegar
gefið út tvær bækur undir dul-
nefni.
Önnur þeirra, al-Qala’ah al-
Hasinahan, fékk gríðarlega góðar
viðtökum í írak. Bókin gerist í
Persaflóastríðinu og fjallar um
hermann sem tekst að flýja fang-
elsi í íran og snúa til höfuðborgar-
innar Bagdad þar sem hann sest á
skólabekk. Sagan, sem er með
pólitískum undirtón, er einng ást-
SADDAM LAUMUSKRIFAR
Talið er að tvær bækur, sem eru að koma
út í l'rak, séu eftir Saddam Hussein.
arsaga. Hermaðurinn fellur nefni-
lega fyrir kúrdískri stúlku sem
flúið hefur frá Norður-írak. ■
Hlálegar ástir komin út:
Húmor í húmors-
lausu samfélagi
bækur Út er komin bókin Hlálegar
ástir eftir Milan Kundera en hún
inniheldur sjö smásögur í þýð-
ingu Friðriks Rafnssonar.
í sögunum skoðar Kundera
margar viðkvæmustu hliðar
mannlífsins í spéspegli en meðal
viðfangsefna hans eru ást og
kynlíf, sýnd og reynd, einstakl-
ingsbundinn húmor í húmors-
lausu samfélagi og sjáfsvirðing
einstaklingsins.
Smásögurnar komu fyrst út í
Prag árið 1968 og gerast allar á
sjöunda áratugnum, því skeiði
sem nefnt hefur verið Vorið í
Prag, skeiði frelsis og léttlyndis
sem lauk snarlega þegar Rússar
gerðu innrás í Prag, skömmu eft-
ir að þessi bók kom út.
Auk Óbærilegs léttleika til-
verunnar er Hlálegar ástir sú
bók Kundera sem mestra vin-
sælda hefur notið víða um heim.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 205 bls., prentuð í Odda
hf. Robert Guillenette gerði
kápu. ■
ÞRIÐJUDACUR
2. APRÍL
TÓNLEIKAR
20.00 Bandaríska hljómsveitin The
Strokes heldur tónleika á Broad-
way. Upphitun er í höndum
hljómsveitarinnar Leaves.
FUNDUR
20.30 Aukaaðalfundur Alliance
fran^aise í Reykjavík verður hald-
inn í húsakynnum félagsins, 3.
hæð f J.L húsinu. Á dagskrá er
kynning og atkvæðagreiðsla um
kauptilboð í húsnæði fyrir félag-
ið.
20.30 Á Kaffi Krók á Sauðárkróki boða
Máki, Hólaskóli, Háskóli íslands
og Atvinnuþróunarfélagið Hringur
til opins kynningarfunds. Þessir
aðilar og erlendir samstarfsmenn
eru styrktir af Evrópusambandinu
til að þróa aðferðir við eldi í stór-
um endurnýtingarkerfum. Fjallað
verður um framkvæmd verkefnis-
ins og framtíðaruppbyggingu
Máka hf. Erlendir þátttakendur f
verkefninu mæta.
MYNPLIST___________________________
Daði Guðbjörnsson sýnir olíumálverk í
Baksalnum í Galleríi Fold við Rauðar-
árstig. Sýninguna nefnir Daði BBB, eða
Bátar, Beib og Bíbar. Sýningunni lýkur
I dag.
Myndlistarmaðurinn Hjörtur Hjartarson
sýnir nýjar myndir í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Á
sýningunni verða bæði teikningar og
málverk sem unnin eru á síðustu tveim-
ur árum. Sýningin er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og hún
stendur til 14. apríl.
Tilkynningar sendist á
ritstjorn@frettabladid.is
„Hvar á fiskur í ljóði
að draga andann?“
Sýning Margrétar og Eyglóar í Nýlistasafninu gerir kröfur á gestina
um að vera virkir og opnir.
myndlist í nýju húsnæði Nýlista-
safnsins við Vatnsstíg stendur nú
yfir sýning á verkum myndlistar-
kvennanna Margrétar H. Blöndal
og Eyglóar Harðardóttur. Yfir-
skrift sýningarinnar er Skynjanir
sem sýnast, en þær stöllur sýna
hvor í sínu lagi og segja sýning-
arnar í rauninni tvær. Þær geti þó
tengst innbyrðis ef áhorfendum
sýnist svo. „Verkin vísa í ýmsa
heima og þannig hvor í aðra,“
segir Margrét, en samt er hægt
að koma hér inn og horfa á þær
sem tvær aðskildar sýningar. Við
unnum þetta sitt í hvoru lagi, en
höfðum samt samráð þannig að
ég held að hvor um sig hafi verið
áhrifavaldur í verkum hinnar.“
Eygló segir nýja rýmið á Vatns-
stígnum einmitt bjóða upp á að
tvær sýningar séu í gangi sam-
tímis. Hún segir kveikjuna að sín-
um verkum vera blöð, tímarit og
bækur og hvatann að hverju
verki megi finna í því sjálfu. Ut
frá því vísi hún í víðari heim.
Eygló segir verkin gera þá kröfu
á áhorfandann að hann skapi sína
eigin sögu. „Ég skil verkin eftir
MARGRÉT BLÖNDAL OG EYGLÓ HARÐARDÓTTIR
Aðalmuninn á verkum þeirra segja þær felast í að Margrét leiti inn á við að efniviði
meðan Eygló leiti meira út I umhverfið í sínum verkum.
svolítið opin,“ segir Eygló, sem
gerir kröfu um virkan skoðanda.
„Það má segja að minn hluti sýn-
ingarinnar sé einn heimur," segir
Margrét. „Hann samanstendur af
ellefu þrívíðum verkum og einni
ljósmynd. Ljósmyndin virkar
eins og gluggi að þessum heimi.
Sýningin vísar í forgengileikann
og óhætt að segja að ákveðið um-
komuleysi sé yfir verkunum, sem
er með ráðum gert.“
Margrét og Eygló segja báðar
að ekki sé lífvænlegt fyrir mynd-
listarmenn hér á landi. „Ég hugsa
að engin listgrein sé eins útundan
og myndlist, hvað varðar skiln-
ing,“ segir Margrét. „Það er eig-
inlega engin hvatning," segir hún,
„en það er að sjálfsögðu hægt að
sækja um starfslaun."
Sýning Margrétar og Eyglóar
stendur til 14. apríl og er opin
miðvikudaga til sunnudag klukk-
an 13-17.
edda@frettabladid.is
ALLT A AÐ SEUAST
áður en við flytjum á Strandgötu 37
Jakkaföt frá 5.900,-
Allir seltsem leðurjakkar á 3.900,-
Allir mittisjakkar á 1.990,-
Buxur frá 990,-
Bolir frá 590,-
Vorum nýjar vörur á markaðinn!
Herra Outlet
herrafatamarkaður Herra Hafnarfjaröar
REYKJMKURIII6Í 68 ■ SÍMl 564 2080
TARAF DE
HAÍDOUKS
Fjórtán manna
sígaunasveit frá Rúm-
eníu spilar sína óvið-
jafnanlegu tónlist fyrir
fólk á öllum aldri á
Listahátíð í Reykjavík.
Sveitin nýtur gríðar-
legra vinsælda um all-
an heim og er ein
frægasta sígauna-
hljómsveit sögunnar.
Listahátíð í Reykjavík:
Miðasala hefst í dag
listahAtIð Miðasala Listahátíðar í
Reykjavík hefst í dag kl. 11.00 í
Bankastræti 2. Sala miða á Lista-
hátíð hefur aldrei hafist svona
snemma en í ljósi sívaxandi áhuga
á hátíðinni og þess að fólk vill
hafa tímann fyrir sér var tekin sú
ákvörðun að hefja miðasölu strax
í byrjun apríl, rúmum mánuði
áður en hátíðin hefst.
Heildardagskrá Listahátíðar er
komin út og mun liggja frammi í
miðasölunni og á helstu listastofn-
unum landsins. Þar er að finna all-
ar upplýsingar um viðburði jafnt
innlenda og erlenda, staðsetning-
ar, dagsetningar og verð. Mikil
fjölbreytni einkennir hátíðina og
koma listamennirnir frá öllum
heimshornum, allt frá Japan til
ísrael og í fyrsta sinn í sögu Lista-
hátíðar koma hingað stórir hópar
frá Argentínu, Rúmeníu og Kúbu.
Allir hafa þessir listamenn vakið
heimsathygli hver á sínu sviði. Af
innlendum vettvangi eru margir
merkir viðburðir þeirra á meðal
stórtónleikar Sigur Rósar, Hilm-
ars Arnar Hilmarssonar, Stein-
dórs Andersen og fleiri í Laugar-
dalshöll. Þar hefja þeir til vegs og
virðingar Hrafnagaldur Óðins eitt
af Eddukvæðunum sem legið hef-
ur óbætt hjá garði í mörg hundruð
ár.
Á heimasíðu Listahátíðar
www.listahatid.is er að finna allar
upplýsingar um miðasölu og við-
burði. Miðasala á tónleika Sigur
Rósar, Kammersveitar Reykja-
víkur og Hafnarhússkvöld hefst 9.
apríl. ■