Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.04.2002, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 03.04.2002, Qupperneq 1
FRÉTTABLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 70.000 eíntök 65% fólks les blar' MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SAMKVÆMT FiÚLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I OKTÖBER 2001. 63. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 3. apríl 2002 NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ Reyðarál rætt á Alþingi alþinci Þingheimur ræðir um virkj- analeyfi til Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar í dag. Áður en þingfundur hefst ætlar Ögmund- ur Jónasson að kref ja iðnaðar- og viðskiptaráðherra svara við því hvers vegna viðeigandi nefndir fengu ekkert að vita af frestun Reyðaráls. Þarfir vímuefna- neytenda málþinc Reykjavíkur Akademían, Sagnfræðifélag íslands og Lög- fræðingafélag íslands boða tii mái- þings í húsnæði Akademíunnar, JL- húsinu við Hringbraut 121, 4. hæð, í kvöld klukkan 20.00. Málþingið fjallar um þarfir vímuefnaneyt- enda og úrræði refsivörslukerfis- ins. Erindi halda: Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur, Er- lendur S. Baldursson, afbrotafræð- ingur, og Benedikt Bogason, hér- aðsdómari. jVEÐRIÐ í DAC| REYKJAVÍK Austlæg átt 6 m/s og skýjað. Hiti 2 til 6 stig. Isafjörður VINDUR © 8 ÚRKOMA É! HITI Qo Akureyri O 8 Súld Q6 Egilsstaðir O 9 Rigning Q5 Vestmannaeyjar O 10 Rigning 05 Fjórða framboðið í borginni kynnt BORGARSTJÓRNARKOSNINCAR ForSVarS- menn Höfuðborgarsamtakanna kynna í dag stofnun samtakanna sem munu bjóða fram í borgar- stjórnarkosningunum í maí. Tveir leikir í hand- boltanum handbolti Tveir leikir fara fram í ESSO-deildinni í handbolta í kvöld. KA menn sækja Framara heim og Valsarar taka á móti Eyjamönnum. KVÖLDIÐ í KVÖLD Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 18 Útvarp 21 Meðallestur 25 til 49 ára á miðvikudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2001 Hvaða blöð lesa 25 til 49 íbúar á höfuð- borgarsvæð- inu ■ dag? ára GOLF 8?. bls 13 bls 15 Tiger Woods kvennagolfsins KVIKMYNPIR Styttist í köngulóna bls 16 Þjóðhagsstofnun lögð niður: Frumvarp til þings í næstu viku efnahagsmál Þess er vænst að rík- isstjórnin ljúki meðferð sinni á frumvarpi til laga um að leggja niður Þjóðhagsstofnun á föstudag. Stjórnarflokkana hefur greint á um meðferð málsins og hafa ráð- herrar unnið að því að setja niður ágreininginn undanfarna daga. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins hefur Framsóknarflokk- urinn gefið eftir og frumvarpið verður tekið til meðferðar á Al- þingi í næstu viku. Ágreiningur varð um málið á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag fyrir páska þegar forsætisráð- herra lagði fram frumvarpsdrög til kynningar. Framsóknarmenn felldu sig ekki við drögin og hitt- ust oddvitar stjórnarflokkanna á fundum um páskana til að ná lend- ingu í málinu. Á ríkisstjórnar- fundi í gær, sem Halldór Ásgríms- son stýrði sem starfandi forsætis- ráðherra þar sem Davíð Oddsson er nú í heimsókn í Víetnam, kom í ljós að Halldór og Davíð hafa náð samkomulagi um flesta þætti. Endanlegri útfærslu er þó ekki lokið, t.d. hvað varðar þau ýmsu verkefni sem Þjóðhagsstofnun hefur sinnt fyrir önnur ráðuneyti en forsætisráðuneytið. ■ I ÞETTA HELST I Fangi á Litla Hrauni er aðalsak- borningur í máli sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna fíkniefnasmygls. bls. 2 Ariel Sharon segist reiðubúinn að hleypa Jasser Arafat úr herkví ef hann hverfur á braut og snýr ekki aftur til Palestínu. bls. 4 Stjórnarmaður í Einstökum börnum segir sjálfsmynd barna sem eru á biðlista eftir þjónustu Greiningarstöðvar skerðast dag frá degi. bls. 4 >000 fermetra verslunarrými er .enn óráðstafað í Smáralind. bls. 2 Islendingur varð vitni að aðgerðum ísraelshers í Ramallah: Spennuþrungið andrúmsloft palestína „Undanfarna daga hefur ástandið farið hríðversnandi," seg- ir Aðalsteinn Þorvaldsson, annar tveggja íslendinga sem standa mannréttindavakt í Palestínu á vegum íslensku þjóðkirkjunnar. „Allt hefur stefnt niður á við frá því Israelsher fór inn í Ramallah og hóf umsátur um borgina." Aðalsteinn fór til Ramallah á sunnudaginn. „Það sem ég sá þar var hræðileg eyðilegging, her- menn og vopnuð ökutæki út um allt. Andrúmsloftið var eins spennuþrungið og hægt er. Ég átti hræðilega reynslu þar sem í raun er ekki hægt að lýsa með orðum.“ íbúarnir í Ramallah eru í raun og veru innilokaðir á heimilum sínum. ísraelski herinn hefur lýst AÐALSTEINN ÞORVALDS- SON „Ástandinu í Ramallah verður ekki með orðum lýst," segir Að- alsteinn, sem er á mannrétt- indavakt á herteknu svæðunum í Palestínu. yfir hernaðarástandi í borginni og útgöngubann er í gildi. I gær var Aðalsteinn kominn til Jerúsalem, þar sem hann sat á skrifstofum World Vision. Þar heyrði hann starfsfólk samtak- anna í Beit Jalla, Betlehem og Ramallah lýsa ástandinu í gegnum síma. „Þetta fólk býr þarna og kemst ekki út. Vegna þess að útgöngu- bann hefur aðra merkingu í Palestínu, þá þýðir það í raun og veru stofufangelsi. Állir sem fara út eiga á hættu að vera skotnir. Frásagnir fólks eru hryllilegar," segir Aðalsteinn. ■ TRÚBAPOR Hörður túlkar Laxness FRAMFERÐI ISRAELA MÓTMÆLT Víða um heim hafa stuðningsmenn Palestínumanna farið í göngur til að mótmæla framgöngu ísra- ela. Þúsundir komu saman í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í gær. Mótmæli voru víða í arabaríkjum auk nokkurra Evrópuríkja. Ronaldo snýr aftur SÍÐA 12 FÓLK Landspítalinn braut á beinbrotnu barni Landspítalinn lét barnaverndarnefnd ekki vita af óútskýrðu handleggs- broti átta mánaða stúlku. Stúlkan var í vist hjá dagföður sem síðar var dæmdur fyrir að bana níu mánaða dreng. lögreglumál Landspítalinn lét barnaverndaryfirvöld ekki vita um óútskýrt handleggsbrot átta mánaða gamallar stúlku sem kom til aðhlynningar á spítalanum í fyrra. Þetta kom fram í bréfi yfirmanns fjölskyldudeild- ar Kópavogs til Barna- verndarstofu 25. maí í fyrra. Hann taldi að spítal- inn og heilsugæslustöðin Hvammur hefðu brugðist lögbundinni tilkynninga- skyldu. Fjölskyldudeild Kópa- vogs barst fyrst vitneskja um mál stúlkunnar eftir að lög- regla hóf rannsókn vegna andláts níu mánaða gamals drengs í byrj- un maí í fyrra. Drengurinn var í vist hjá dagforeldrum í Kópavogi. í febrúar sl. var maðurinn dæmd- ur í fangelsi fyrir að hafa hrist litla drenginn til bana. Bæði voru hjónin dæmd fyrir að hafa tekið alltof mörg börn til gæslu. Litla handleggsbrotna stúlkan var í vist hjá þessu fólki. Réttar- krufning á litla drengnum leiddi í ljós að hann var einnig með gam- alt handleggsbrot. Engar skýring- ar fundust á því. Komið var með litlu telpuna á slysadeild Land- spítalans í Fossvogi 13. febrúar 2001. Hún var framhandleggsbrotin. Læknir taldi þá að brotið væri 10 til 14 daga gamalt. Brotið þótti óvenjulegt fyrir barn sem ekki var farið að ganga. Skoða þyrfti barnið betur sem og aðstæður hjá dagmóður. Viku síðar sagði barnalæknir brotið hafa verið 5 til 8 daga gam- alt. Engin góð skýring hefði feng- ist á brotinu, hvorki frá foreldrum eða ömmu barnsins: „Samkvæmt viðtali við bæklunarlækna þarf töluverðan áverka til að fá slíkt brot og með þeirri tilfærslu sem er til staðar,“ sagði hann í skýrslu. Rannsókn lögreglu, sem óskað var eftir í lok maí, leiddi þó ekki til neinnar niðurstöðu. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir Land- spítalann hafa átt að tilkynna án tafar til barnaverndarnefndar að grunur léki á að barn hefði sætt líkamlegu ofbeldi. Spítalinn virð- ist hafa fyrir misgáning sent heilsugæslustöðinni tilkynningu um atvikið en ekki félagsþjónust- unni í Kópavogi. Bragi segist hafa boðað yfirmenn Landspítalans til fundar þegar honum varð kunn- ugt um málið: „Það var ákveðið að þeir myndu yfirfara sínar starfsvenj- ur. Samtímis erum við að vinna saman að ítarlegri leiðbeinandi reglum um framkvæmd tilkynn- ingarskyldunnar," segir Bragi. Að sögn Braga veldur það áhyggjum hversu fáar tilkynning- ar berast frá heilbrigðiskerfinu vegna ofbeldis gegn börnum. Þó sýni bráðabirgðatölur að í fyrra hafi tilkynningar í Reykjavík rúmlega þrefaldast. gar@frettanbladid.is —#--- „Samkvæmt viðtali við bækl- unarlækna þarf töluverðan áverka til að fá slíkt brot og með þeirri til- færslu sem er til staðar." . —♦— SÍÐA 14

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.