Fréttablaðið - 03.04.2002, Síða 2

Fréttablaðið - 03.04.2002, Síða 2
FRÉTTABLAÐIÐ KIÖRKASSINN 3. apríl 2002 MIÐVIKUPAGUR OF LANGT GENGIÐ Yfirgnæfandi meirihluti netverja telur Israela hafa gengið of langt í aðgerðum sínum gegn Palestínumönnum. Eru ísraelsmenn að ganga of langt í aðgerðum sínum gegn Palestínumönnum? Niðurstöður gærdagsins á ywyw.vfeir.is um..................................j.2.% Spurning dagsins í dag: A að leggja Þjóðhagsstofnun niður? Farðu inn á vísi.is og segðu I þina skoðun ___________CQ29 Arsreikningar RÚV: 250 milljón króna halli útvarpið Tæplega 250 milljóna króna halli vað á rekstri Ríkisút- varpsins á síðasta ári. Árið 2000 nam tapið um 92 milljónum og eykst því um nálægt því 270 pró- sent milli ára. Staðan er þó heldur skárri en óttast var að hún yrði á haustdögum 2001 þegar útlit var fyrir að hallinn yrði milli 3 og 4 hundruð milljónir. í ársreikningn- um er óhagstæðri gengisþróun og almennum kaupgjalds- og verðlags- hækkunum kennt um hallann. Launahækkanir og almennar verðlagshækkanir voru mun meiri á árinu en fram kom í forsendum fjárlaga óg þar sem erlent dag- skrárefni nemur um 60 prósentum af heildarútsendingartíma Sjón- varpsins breytti gengisfall krón- unnar miklu. „Síðast en ekki síst hafði alvarlegur samdráttur á aug- lýsingamarkaði slæm áhrif á rekstrarafkomu Ríkisútvarpsins,“ segir í reikningnum en auglýsinga- tekjur lækkuðu um rúmar 63 millj- ónir króna milli áranna 2000 og 2001. Jafnframt segir að auknar líf- eyrisskuldbindingar sem Ríkis- tvarpinu hafi verið gert að taka á sig hafi haft afskaplega neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu síðustu ára. „Og hefur staðan versnað með hverju ári,“ segir í ársreikningnum. Stofnunin er þrátt fyrir fjár- hagsþrengingar sögð standa nokk- uð vel og starfsemin sögð hafa styrkst undanfarin misseri í sam- keppni við aðra miðla hvað varðar hlustun og áhorf. „Er það nánast undantekning, að fjölmiðlar í al- mannaþágu í Evrópu, sem standa í vaxandi samkeppni við nýja miðla, hafi haldið hlut sínum jafnvel og Ríkisútvarpið." ■ HJÁLPARSTARF Starfsmenn Rauða krossins bera líbanska konu sem meiddist eftir sprengju árás á laugardaginn var. Hjálparstofnanir á Vesturbakkanum: Hjálparstarf ómögulegt vesturbakkinn Hjálparstofnanir hafa ekki getað sinnt starfi sínu á átakasvæðum á Vesturbakkanum vegna versnandi ástands þar und- anfarna daga. í sameiginlegri fréttatilkynningu, sem Alþjóðaráð Rauða krossins sendi frá sér, kem- ur fram að samskipti hjálparstofn- ana við ísraelsk yfirvöld hafa farið versnandi. Eins og ástandið er í dag er lífi starfsmanna Rauða krossins ógnað. Stofnanirnar hafa sótt hart að því að fá að hlúa að særðum Palestínumönnum en ísraelsher hefur komið í veg fyrir það. Alþjóðaráð Rauða krossins biðl- ar því til allra viðkomandi aðila að virða Genfarsáttmálann frá 1949 um réttindi óbreyttra borgara. ■ Langur opnunartími ekki vinsæll í Smáralind: 2.000 m2 óráðstafað í Smáralind verslun Pálmi Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Smáralindar, segir opnunartíma verslana í Smáralind hafa verið breytt vegna þess að opnunartími sem lagt var upp með, frá 10-20 á virkum dögum, hafi ekki verið réttlætanlegur. Verslun hafi dottið mikið niður eftir kl. 19 á kvöldin. Nú er opið frá kl. 11-19 í Smáralind á virkum dögum. Pálmi segir að viðbúið hafi verið að opn- unartími yrði endurskoðaður og verslunareigendur hafi verið nokk- uð sammála um breytinguna. Breytingarnar höfðu þau áhrif á starfsemi Hagkaupa í Smáralind að sex manns var sagt upp. Að sögn Finns Árnasonar framkvæmda- SMÁRALIND „Það var ákveðin tilraun að hafa opið til 20," segir Pálmi Kristinsson, framkvæmda- stjóri. stjóra skýrast breytingarnar af breyttu vaktafyrirkomulagi. Alls vinna hátt í 200 manns í Hag- kaupum í Smáralindinni. Pálmi seg- ist ekki geta fullyrt hvort að upp- sagnir hafi fylgt breyttum opnun- artíma, eitthvað hafi verið um að verslanir fækkuðu starfsfólki en það væri ekki í miklum mæli. Enn er 2.000 fermetrum af 30.000 fermetra verslunarrými Smáralindar óráðstafað. Líklegt er að fataverslunin Hennes og Mauritz verði í 1.200 fm rými, en samningar við sænsku verslunar: keðjuna eru ekki frágengnir. í heildina segir Pálmi að verslun hafi gengið vel í Smáralind. Því verði þó ekki neitað að verslanir hafi gengið misvel, sumar miklu betur en búist var við, aðrar verr. Því megi búast við því að einhverjar verslanir hætti í Smáralindinni, en það geti ekki talist annað en eðlilegt. ■ Skipulagði smygl af Litla Hrauni Tveir fangar á Litla Hrauni hafa verið ákærðir fyrir e-töflusmygl. Auk þeirra voru þrír aðrir menn ákærðir. Að sögn lögreglu er ekki vitað til þess að fangi hafi áður staðið að fíkniefnasmygli á meðan hann afplánaði refsingu. smygl Tveir fangar á Litla Hrauni og þrír aðrir menn hafa verið ákærðir fyrir að hafa flutt inn tæplega 1.000 e-töflur og reynt að smygla um 4.000 til 5.000 töflum til viðbótar til landsins. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Að sögn lögreglu er ekki vitað til þess að fangi hafi áður staðið að fíkniefnasmygli á meðan hann hafi verið að afplána refsingu. Út- lit er fyrir að aðalsakborningur- inn í málinu hafi verið að undir- búa þau mál sem hann nú hefur verið ákærður fyrir á sama tíma og hann áfrýjaði 7 ára fangelsis- dómi til Hæstaréttar, í lok ársins 2000. Hann er nú að að afplána þann dóm, sem hann fékk fyrir e- töflusmygl í desember árið 2000. Það var þyngsti dómur í fíkni- efnamáli, sem Hæstiréttur Is- lands hafði kveðið upp. Maðurinn er nú ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað smygl á 995 e-töflum, sem hald- lagðar voru í póstmiðstöðinni við Stórhöfða í apríl í fyrra. Töflurn- ar bárust hingað með almennri póstsendingu frá Hollandi og átti einn hinna ákærðu að sækja þær á pósthúsið í Mjódd. Lögreglan hafði hins vegar áður komist á snoður um málið og gert töflurnar upptækar, eins og áður sagði. Gerviefni var komið fyrir í pakk- anum og maðurinn handtekinn þegar hann reyndi að leysa hann út. Fanginn er einnig ákærður fyr- ir tilraun til innflutnings á 4.000 til 5.000 e-töflum til viðbótar í lok ársins 2000. Fanginn fékk menn, sem ekki voru í fangelsi, til þess HÉRAÐSDÓMUR reykjavíkur Wlál mannanna fimm var þingfest ( Héraðsdómi Reykjavíkur f gær. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa smyglað nær þúsund e-töflum til landsins og gert tilraun til að smygla milli fjögur og fimm þúsund e- töflum til viðótar. að standa að smyglinu með ser. Einn þeirra tók við peningunum og skipti þeim í gyllini og afhenti öðrum manni sem fór til Amster- dam til að kaupa töflurnar. Þær bárust hins vegar aldrei til lands- trausti@frettabladid.is E-TÖFLUR Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir smygl á 1.000 e-töflum og fyrir að hafa reynt að smygla 4.000 til 5.000 töflum til viðbótar. Sjálfstæðismenn með rangar tölur um gestakomur út í Viðey: Gestum fækkaði um 21% en ekki 54% viðey Um 21.500 manns heimsóttu Viðey árið 2001 en ekki 12.000 eins og sjálfstæðismenn í borgar- stjórn létu bóka á fundi borgar- ráðs um miðjan mars. Þetta kom fram í samtali Fréttablaðsins við Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur borgarminjavörð. Á borgarráðs- fundinum gagnrýndu sjálfstæðis- menn nýja stefnumörkun fyrir Viðey og bentu á að gestum hefði fækkað úr 26.000 áriö 2000 í 12.000 árið 2001 eða um 54%. Guðný Gerður sagðist ekki vita hvar sjálfstæðismenn hefðu feng- ið þessar upplýsingar. Rétt væri að 26.900 gestir hefðu heimsótt Viðey árið 2000 og 21.368 í fyrra, en ekki 12.000. Júlíus Vífill Ingv- arsson, borgarráðsfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, sagði að upplýs- ingarnar hefðu komið frá ráðs- manninum í Viðey. Samkvæmt upplýsingum Guð- nýjar Gerðar fækkaði gestum því um 21% milli ára, en ekki 54%. Hún sagði að skýra mætti fækk- unina m.a. með því að almennt hefðu færri erlendir ferðamenn verið hér á landi í fyn-a en árið 2000. Árbæjarsafn og önnur söfn í Reykjavík hefðu fundið fyrir því. Þá sagði hún að árið 2000 hefði verið menningarborgarár og þá hafi einnig verið kristnihátíð og ýmsir atburðir tengdir þeim hefðu dregið fólk út í Viðey og á söfnin. ■ VIÐEY Borgarminjavörður sagði að færri gestir hefðu heimsótt Viðey, Árbæjarsafn og önn- ur söfn ( Reykjavík í fyrra miðað við árið 2000. Byggingaverktakar: Dæmdir fyrir bók- haldsfals dómsmáL Þrír karlmenn á aldrinum 39 til 66 ára hafa verið dæmdir í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot á bókhaldslögum og fyrir að svíkja 2,2 milljónir króna undan tekju- og virðisaukaskatti. Að auki voru þeir hver um sig dæmdir til að greiða 350 þúsund króna sekt. Greiði þeir ekki sektina bíður þeirra 30 daga varðhald. Þremenn- ingarnir voru m.a. taldir hafa fals- að kerfisbundið bókhald bygging- arfyrirtækis sem þeir áttu saman frá árinu 1992. Fyrirtækið var úr- skurðað gjaldþrota árið 1998. ■ Heilsugæslustöðvar: Fólk getur lent í vand- ræðum læknisvottorð Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambands- ins, segir að launafólk geti lent í vandræðum ef það fær ekki læknis- vottorð vegna veikinda. Hann segir að sambandið sé að undirbúa bréfa- skriftir til stjórnvalda og lækna í von um að það geti haft einhver áhrif til úrbóta. Magnús Norðdahl lögfræðingur ASÍ segir að það komi sér mjög á óvart að þeim sem falið er opinbert hlutverk, eins og heilsu- gæslulæknum í þessu tilfelli, geti neitað að gefa út staðfestingu á því að hafa annast um sjúklinga. Hann telur einsýnt að heilbrigðisráðherra verði að taka á þessu vandamáli. Starfsgreinasambandinu hafa að undanförnu borist fregnir frá aðild- arfélögum um að Iæknar á heilsu- gæslustöðvum víða um land séu hættir útgáfu læknisvottorða vegna kjaradeilu þeirra við ríkið. Kjara- nefnd úrskurðaði nýlega að útgáfa læknisvottorða félli undir aðalstarf heilsugæslulækna. Af þeim sökum væri þeim óheimilt að innheimta sérstaklega fyrir þau. í bréfi sam- bandsins til aðildarfélaga eru þau hvött til að hafa samband við at- vinnurekendur til að koma í veg fyrir að dregið verði af launum fólks sem ekki getur framvísað læknisvottorði. Félögin hafa einnig verið beðin um að tilkynna til sam- bandsins um þær stöðvar sem neita útgáfu læknisvottorða. Af hálfu heilsugæslulækna er staðhæft að þessi úrskurður kjaranefndar hafi í för með sér 10 - 15% kjaraskerð- ingu fyrir þá. ■ 1 INNLENT 1 Þrír nítján og átján ára gamlir drengir hafa verið dæmdir í þriggja til fjögurra mánaða fang- elsi fyrir innbrot í Árbæjarskóla og fyrir að hafa brotið rúðu í mannalausum bíl með loftbyssu. Dómarnir yfir piltunum eru skil- orðsbundnir til tveggja ára. Pilt- arnir stálu fimm ferðatölvum úr Árbæjarskóla, samtals að verð- mæti um 800 þúsund krónur. Fjórði pilturinn var einnig ákærður fyrir sömu verknaði. Mál hans bíður hins vegar meðferðar þar sem hann er staddur erlendis. Einn drengurinn var jafnfram fundinn sekur um að hafa haft tvö grömm af amfetamíni í fórum sínum. Olíuverð hjá Essó lækkaði í gær um eina til eina og hálfa krónu. Gasolía, flotaolía og flotadíselolia lækka um 1 krónu en svartolía um 1,50 krónur. Þessi lækkun kemur degi eftir að olíufélögin hækkuðu olíuverð um 3,50 - 5,00 krónur. Eft- ir breytinguna mun lítrinn af gasolíu 48.40 krónur, flotaolíu kr. 31.30 og svartolíu kr. 30.22. Matthías Lýðsson, oddviti Kirkjubólshrepps, sagði af sér störfum í hreppsnefnd í gær vegna málefnaágreinings um stofnun hlutafélags um öflun jarðhita í landi Þorpa. Matthías sagði í viðtali við Bæjarins besta að málið snérist um fjárhagstöðu hreppsins vegna væntanlegrar sameiningar við Hólmavíkui'hrepps.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.