Fréttablaðið - 03.04.2002, Síða 22
FRÉTTABLAÐIÐ
SACA DACSINS
3. APRIL
Landshöfðingi tilkynnti árið 1882
um stofnun sameiginlegrar
geymslu fyrir skjalasöfn æðstu
embætta. Þar með var lagður
grunnur að Þjóðskjalasafni ís-
lands.
Hundahald var leyft í
Reykjavík árið 1984
að uppfylltum ströngum
skilyrðum. Það hafði ____________
verið bannað 1. septem-
ber 1971 og valdið miklum deilum.
Arið 1948 ákváðu Bandaríkin að
veita sextán Evrópuþjóðum
f járhagsaðstoð til uppbyggingar í
kjölfar seinni heimsstyrjaldarinn-
ar. Alls fengu Evrópuríkin sextán
5,33 milljarða bandarískra dala í
aðstoð samkvæmt Marshall-áætl-
uninni, eins og þessi efnahagsað-
stoð var nefnd.
FÓLK í FRÉTTUM
Akureyri var aðalstaðurinn
um páskana. Talað var um
Séð og heyrt stemmningu á Hót-
el KEA. í Hlíðarfjalli renndu
andstæðingar og samherjar sér
á skíðum. Þar mátti sjá Eyjólf
Sveinsson, útgáfustjóra Frétta-
blaðsins, njóta
útivistar og Óla
Björn Kárason
og Sigmund Erni
Rúnarsson rit-
stjóra DV. Magn-
ús L. Sveinsson
fyrrverandi for-
maður VR og Ari
Edwald fram-
kvæmdastjóri SA
ræddu rauðu
strikin í lyfturöð-
inni. Árni Þór
Vigfússon, sjón-
varpsstjóri Skjás
eins var í bænum
í góðum félags-
skap og yfirlæti.
Með honum í för
var Helgi Ey-
steinsson, starfs-
maður íslands-
banka og fyrr-
verandi umsjón-
armaður Skotsilf-
urs á Skjá einum.
Þorsteinn J. var
líka í fjallinu
með öllum sem
vilja vinna millj-
ón. Bolli Krist-
jánsson í Sautján
yfirgaf sinn ást-
kæra Laugaveg
um páskana og
renndi sér á skíð-
um í Hlíðarfjalli.
Fleiri menn úr
viðskiptalífinu
nutu blíðunnar
fyrir norðan.
Meðal annarra
Bjarni Ármanns-
son, íslands-
bankastjóri. í bænum gengu
veitingamenn með bros á vör,
enda helgin með þeim allra
bestu.
Fyrir um tíu árum reyndi
bókaútgáfan Iðunn að efla
sig og færa út kvíarnar. Meðal
þess sem þá var gert var að
kaupa nokkrar bókabúðir. Allt
kom fyrir ekki og nú er Iðunn
deild innan Fróða. Þess vegna
þykir þeim, sem þekkja til,
merkilegt að Edda miðlun er að
gera nánast alveg það sama og
Iðunn gerði. Hver framtíð Eddu
verður er óvíst. Hitt er vitað að
vandræðin eru ærin.
Utvarp Saga breyttist í gær
þegar skrúfað var fyrir ís-
lensku tónlistina sem þar hefur
verið spiluð sólarhringunum
saman. í stað þess er á dag-
skránni talmál út í eitt. Þeir
sem reyndu að hlusta í gær
heyrðu enda-
lausa þjóðarsál.
Það var sama
hvort Sigurður
G. Tómasson eða
Hallgrímur
Thorsteinsson
stjórnuðu dag-
skránni. Eflaust
22
3. april 2002 MIÐVIKUPAGUR
Einn áttræður aðstoðar við tölvuna
„Mér gekk alveg ljómandi vel og
námskeiðið var skemmtilegt,"
segir Rúrik Haraldsson leikari
sem var að ljúka 15 stunda tölvu-
námskeiði hjá Tölvuskóla Ný-
herja. „Dóttir mín sem býr
erlendis hefur verið að hvetja mig
til að fara á námskeið til að við
getum skipst á tölvupósti og ég lét
verða af því núna. Það er þó fjarri
því að ég sé útlærður því nú þarf
ég að æfa mig heima,“ segir Rúrik
sem er á áttræðisaldri og hættur
störfum í Þjóðleikhúsinu fyrir
þrettán árum. „Ég bý einn í íbúð-
um aldraðra á Seltjarnarnesi því
konuna missti ég fyrir fjórum
árum.“ Hann segist kunna því
prýðilega að búa í húsinu og þar
sé öll þjónusta sem hann þurfi
fyrir hendi. „Við fáum heitan mat
í hádeginu og það er góður félags-
kapur hérna. Á daginn hef ég nóg
að starfa og mér leiðist aldrei. Ég
lít inn til vina minna og fæ kaffi-
sopa og hér í íbúðinni minni er ég
kóngur í eigin ríki.“ Rúrik segir
að ef hann ætli sér að halda tölvu-
kunnáttunni við verði hann að æfa
sig og halda áfram þar sem frá
var horfið á námskeiðinu. „Ég veit
að ég verði að þreifa mig sjálfur
áfram því þannig lærir maður
mest. Nágranni minn sem er á ní-
ræðisaldri er skolli klár á sína
tölvu og ég get alltaf kallað á hann
þegar ég verð stopp. Hann fór á
námskeið þegar hann var 84 ára
og þvælist um allan heim í tölv-
unni.“ Rúrik lærði á námskeiðinu
____________Personan
Rúrík Haraldsson leikari var að Ijúka
tölvunámskeiði fyrir eldri borgara.
að nota tölvupóstinn og ritvinnsl-
una auk þess sem hann fékk dá-
litla innsýn í heim innternetsins.
„Ég veit ekki hvað ég kemst langt
sjálfur. Ætli ég myndi ekki klára
að senda tölvupóst einn og óstudd-
ur en ég yrði lengi að því.“ ■
LÍÐUR VEL OG HEF NÓG AÐ STARFA
Rúrik Haraldsson leikari segir að sér leið-
ist aldrei. Tölvan mun í framtiðinni taka
frá honum tíma og ef hann verður strand
fær hann nágranna á níræðisaldri til að
aðstoða sig.
TÍMAMÓT
JARÐARFARIR_________________________
13.30 Katrín Sigurgeirsdóttir, Öngul-
stöðum II, verður jarðsungin f dag
frá Munkaþverárkirkju.
13.30 Guðjón Guðmundsson, Klepps-
vegi 32, Reykjavík, verður jarð-
sunginn í dag frá Áskirkju.
13.30 Guðný Indriðadóttir, Seljahlíð,
Reykjavík, verður jarðsungin í dag
frá Fosvogskapellu.
13.30Már Ingólfur Ingólfsson, Skóla-
völlum 11, Selfossi, verður jarð-
sunginn í dag frá Selfosskirkju.
13.30 Bjarnveig Þorsteinsdóttir, Sól-
vangsvegi 1, Hafnarfirði, verður
jarðsungin í dag frá Hafnarfjarðar-
kirkju.
15.00 Sigurður Hrafn Guðmundsson,
Njálsgötu 110, Reykjavík, verður
jarðsunginn í dag frá Fossvogs-
kirkju.
15.00 Erna Rós Hafsteinsdóttir, Ásgarði
eystri, Skagafirði, verður jarðsung-
inn í dag frá Víðistaðakirkju.
15.00 Margrét Sigurðardóttir, Hrafnistu,
Reykjavík, áður Hvassaleiti 58,
verður jarðsungin í dag frá Dóm-
kirkjunni.
AFMÆLI______________________________
Atli Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri
í viðskiptaráðineytinu, er 54 ára í dag.
Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Sjó-
vá, er 64 ára í dag.
STÖÐUVEITINCAR______________________
Sigurður G. Tómasson hefur verið ráð-
inn sem dagskrárgerðarmaður á Út-
varpsstöðina Sögu.
Ingvi Hrafn Jónsson hefur verið ráðinn
sem dagskrárgerðarmaður á Útvarps-
stöðina Sögu.
Hallgrímur Thorsteinson hefur verið
ráðinn sem dagskrárgerðarmaður á Út-
varpsstöðina Sögu.
Þór Bæring hefur verið ráðinn sem
íþróttafréttamaður á Útvarpsstöðina
Sögu.
ANDLÁT______________________________
Jón Múli Árnason, útvarpsmaður og
tónskáld, Keldulandi 19, lést 1. apríl.
Karen P. Guðmundsdóttir er látin.
Jarðaförin hefur farið fram.
eru margir sem
fagna slíku efni.
Eins er nokkuð
víst að hluti
hlustenda saknar
tónlistarinnar
sem var leikin á
Útvarpi Sögu.
ar sem vinnandi fólk getur
ekki hlustað daglangt er ekki
víst að sá hluti dagskrár Útvarps
Sögu sem hlustað var á í gær sé
lýsandi fyrir áherslurnar. Svo
virðist sem tveir gestir hafi verið
í endalausri þjóðarsálinni; Björn
Bjarnason og Gísli Marteinn
Baldursson. Þeir eiga það sam-
eiginlegt að vera
á lista Sjálfstæð-
isflokks. Ekki er
víst að það sé al-
vont að gera
framboðum mis-
hátt undir höfði.
Það er nefnilega
þannig að ekki er
| AFMÆLI 1
I hesthúsinu á
afmælisdaginn
Atli Freyr Guðmundsson er mikill hestamaður og á afmælisdaginn
ætlar hann að sinna sínum hrossum eins og alla aðra daga á meðan
þau eru í húsi. Þess á milli gengur hann heil ósköp.
HORNSTRANDIRNAR HEILLA
Atli Freyr Guðmundsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, ætlar í fjórða sinn á
Hornstrandirnar i sumar.
„Ég verð í vinnunni eins og alla
aðra daga en síðan fer ég í hest-
húsið og annast hrossin mín. Að
öllum líkindum fæ ég mér góðan
reiðtúr áður en ég fer heim,“ seg-
ir Atli Freyr Guðmundsson skrif-
stofustjóri í viðskiptaráðuneyt-
inu sem er 54 ára í dag. „Þetta er
ég vanur að gera alla aðra daga
þannig að ætli ég biðji ekki kon-
una að hafa eitthvað gott að
borða fyrir mig í tilefni dagsins."
Atli Freyr er mikill hestamaður
og segist eiga tvö hross í húsi
núna. „Ég hef átt fleiri hross en
þessi tvö duga mér prýðilega. Á
sumrin eru þau í hagabeit hjá
austur í Brekkum í Holtahreppi.
Þangað fer ég á sumrin og ríð út
með góðum vinum.“
Atli Freyr er fæddur á Akra-
nesi og ólst þar upp. Hann nam g
við Samvinnuskólann á Bifröst og .g
lauk prófum í félagsvísindum og |
hagfræði í Bretlandi en BA próf í |
félagsvísindum lauk hann frá Há- g
skóla íslands. Hann hefur verið |
erindreki Framsóknarflokksins
og framkvæmdarstjóri SUF.
Ilann á tvö uppkomin börn sem
eru í námi erlendis. Atli er tví-
kvæntu og seinni kona hans er
Þorgerður Jónsdóttir læknaritari.
Atli Freyr segir áhugamálin
ekki eingöngu vera hrossin því
hann er mikill göngumaður og
gengur á hverjum degi. Hann
gengur ekki aðeins um stræti
borgarinnar því hann er í göngu-
hópi með nokkrum góðum vinum.
„Við förum árlega og í fyrra-
sumar gengum við Austfirðina.
Hornstrandirnar hafa verið í
sérstöku uppáhaldi og í sumar
stendur til að fara í fjórðu ferð-
ina þangað. Strandirnar heilla
mig. Líklega vegna þess hve
náttúran er óblíð og víðáttan er
mikill. Ekki síst finnst mér
áhugavert að kynnast því harða
mannlífi sem fólk bjó við. Best
þykir mér að fara vikuna fyrir
verslunarmannahelgi en þá hef-
ur allan snjó tekið upp.“ ■
víst að fari saman
framboð eða of-
framboð og ár-
angur. Hitt er
annað, hvað gera
stjórnendur dag-
skrárinnar þegar
kosningarnar eru
að baki.
Enn um Útvarp Sögu. Hinn
brottrekni pistlahöfundur á
Ríkisútvarpinu; Karl Th. Birgis-
son talar ekki lengur sem full-
trúi Austfirð-
inga. Hann er
greinilega bú-
settur á Akur-
eyri ef marka má
viðtal við hann á
Útvarpi SÖgu í
gær. Hvort það
er liður í því að
fá starf pistlahöfundar aftur er
ekki vitað. En sem kunnugt er á
að flytja hluta Ríkisútvarpsins
til Akureyrar.